Beint á leiðarkerfi vefsins

Dómsmál

0 - 10

3.2.2011

Verkfall dæmt ólögmætt

Verkfallsboðun Afls og Drífanda vegna starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum er ólögmæt. Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu í dag. Til stóð að félagsmenn þessara félaga færu í verkfall kl. 00:30 mánudaginn 7. febrúar nk. SA hafa hafnað kröfum Afls og Drífanda um 30% hækkun launa starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum. Ljóst er að langvinnt verkfall hefði komið til framkvæmda á mánudaginn hefði niðurstaða Félagsdóms verið á annan veg.
1 - 10
1 - 10
1 - 10

14.6.2007

Vel sóttur fundur um efnahagsbrot

Húsfyllir var á morgunverðarfundi SA og saksóknara efnahagsbrota sem fram fór á Grand Hótel Reykjavík en þar var rætt um efnahagsbrot, þolendur þeirra og afleiðingar. Sarah Jane Hughes, prófessor í lögum við Indiana háskóla, fjallaði um hvítflibbaglæpi út frá bandarískum sjónarhóli, Helgi Magnús Gunnarsson  saksóknari efnahagsbrota fjallaði um skipulag og framkvæmd efnahagsbrotarannsókna á Íslandi og Garðar G. Gíslason hdl. hjá Lex ræddi um brotalamir og réttarvernd. Fram kom á fundinum að stytta þyrfti málsmeðferðartíma rannsóknaraðila og nauðsynlegt væri að einfalda skipulag.

2 - 10
2 - 10
2 - 10

1.6.2007

Ólöglegar eftirlíkingar af framleiðsluvörum á Íslandi

Á síðustu árum hafa ýmis konar eftirlíkingar af framleiðsluvörum, flestar upprunnar í Kína, flætt yfir Vesturlönd. Ísland er þar ekki undanskilið en bæði er um að ræða dreifingu á eftirlíkingum af þekktum húsgögnum og einnig öðrum vörum sem eru merktar með vörumerkjum annarra aðila. Erfitt getur verið fyrir fyrirtæki að verjast þessari meinsemd en í íslenskum tollalögum er að finna heimild fyrir tollyfirvöld að uppfylltum tilteknum skilyrðum að fresta tollafgreiðslu ef sýnt þykir að innflutningur vöru brjóti gegn hugverkaréttindum. Nýleg lög veita einnig heimild fyrir rétthafa sem telja brotin á sér hugverkaréttindi að óska þess að sýslumaður framkvæmi leit í húsakynnum þess sem talinn er brotlegur. Lögunum hefur þegar verið beitt á Íslandi og á þessu ári og síðasta ári gengu dómar í tveim málum hér á landi þar sem niðurstaðan var sú að banna dreifingu eftirlíkinga af þekktum stólum.

3 - 10
3 - 10
3 - 10

8.12.2006

Starfsmannaleigudómur í Hæstarétti

Í máli sem dæmt var í Hæstarétti 7. desember var deilt um hvort verktakafyrirtækinu Impregilo bæri að greiða starfsmanni sem ráðinn var af starfsmannaleigu til starfa við verkframkvæmdirnar við Kárahnjúka mismun þeirra launa sem hann taldi sig eiga rétt á sem trésmiður í vaktavinnu og verkamannalaunum sem starfsmannaleigan greiddi honum. Þá var deilt um það hvort Impregilo eða starfsmannaleigan væri vinnuveitandi starfsmannsins. Niðurstaða Hæstaréttar var að Impregilo væri ekki vinnuveitandi starfsmannsins heldur starfsmannaleigan. SA bendir á að sú niðurstaða er í fullu samræmi við gildandi lög um starfsmannaleigur.

4 - 10
4 - 10
4 - 10

19.5.2006

Gjaldtaka Aðfangaeftirlisins dæmd ólögmæt

Í ársbyrjun 2003 hóf Aðfangaeftirlitið nýtt eftirlit og gjaldtöku með útfluttu fiskmjöli og lýsi. Samtök atvinnulífsins og Félag íslenskra fiskmjölsframleiðanda mótmæltu strax þessu nýja eftirliti og gjaldtöku f.h. fiskmjölsframleiðanda. Ákveðið var að reka prófmál um lögmæti gjaldtökunnar gagnvart einu aðildarfyrirtæki SA. Í gær staðfesti Hæstiréttur fyrri úrskurð héraðsdóms þess efnis að nýtt eftirlit Aðfangaeftirlitsins (nú Landbúnaðarstofnunar) hafi ekki átt neina stoð í lögum og raunar hefði stofnunin brotið gegn skýrum ákvæðum laga um valdsvið og verkefni Fiskistofu. Sjá dóminn á vef Hæstaréttar.

5 - 10
5 - 10
5 - 10

3.2.2005

Hvenær eru störf jafn verðmæt og sambærileg?

Í nýlegum dómi telur Hæstiréttur Akureyrarbæ ekki hafa tekist að sanna að hlutlægar og málefnalegar ástæður hafi ráðið mismun starfskjara tveggja launþega. Mismunandi kjara-samningar geti ekki einir sér réttlætt mismun starfskjara kvenna og karla í skilningi jafnréttislaga. Dómurinn gefur hins vegar ekki einhlítt svar við spurningunni um hvenær störf séu jafn verðmæt og sambærileg og því hæpið að draga of víðtækar ályktanir um þýðingu þessa dóms.

6 - 10
6 - 10
6 - 10

4.3.2004

Félagafrelsi starfsmanna og dómsvald Félagsdóms

Nýlegur dómur Hæstaréttar vekur upp aðkallandi spurningar um félagafrelsi starfsmanna og ekki síður um þörf á endur-skoðun dómsvalds Félagsdóms, en dómar hans eru endan-legir, segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hún segir Hæstarétt af þeirri ástæðu hafa lagt dóm Félagsdóms til grundvallar bótaskyldu starfsmanna, en þar var því hafnað að félaga-frelsisákvæði stjórnarskrár hafi áhrif á túlkun forgangsréttar-ákvæða kjarasamninga. Niðurstaðan er því sú að þeim er jafnað til aðildarskyldu að félagi.

7 - 10
7 - 10
7 - 10

27.10.2003

Fyrirtæki dæmdar bætur vegna brota starfsmanns á samkeppnisákvæði í ráðningarsamningi

Hæstiréttur hefur dæmt fyrrverandi starfsmann fyrirtækis til greiðslu 900.000 kr. févítis vegna brota á ákvæði í ráðningarsamningi um að hann skuldbindi sig til að ráða sig ekki hjá fjórum nafngreindum fyrirtækjum í tvö ár frá starfslokum sínum hjá fyrirtækinu.
8 - 10
8 - 10
8 - 10

2.9.2003

Ábyrgð nýs rekstraraðila gagnvart starfsmönnum

Við kaup á fyrirtæki eða hluta þess og samruna fyrirtækja geta starfsmenn átt rétt á að flytjast yfir til hins nýja rekstraraðila með óbreyttum kjörum og nýji rekstraraðilinn jafnvel verið ábyrgur fyrir ógreiddum launaskuldum fyrri vinnuveitanda gagnvart þeim starfsmönnum sem hefja störf hjá honum.
9 - 10
9 - 10
9 - 10

3.7.2003

Félagsdómur túlkar útkallsákvæði kjarasamninga

Samkvæmt nýlegum dómi Félagsdóms er ekki um útkall að ræða þegar haft er samband við starfsmann, sem þegar hefur verið kallaður út, og hann beðinn að vinna annað verk innan útkallstímans. Samkvæmt öðrum dómi eiga útkallsákvæði kjarasamnings einungis við um kvaðningu til vinnu sem feli í sér að starfsmaður þurfi að fara á vinnustað.
RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
NÝTT RIT SA
11.11.11:
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english