Fréttir
20.1.2012
Yfirlýsing samninganefndar aðildarsamtaka ASÍ og SA vegna opnunarákvæða kjarasamninga 20. janúar 2012
Forsendunefnd samninganefndar aðildarsamtaka ASÍ og SA hefur komist að þeirri niðurstöðu að þær fyrstu þrjár forsendur sem settar voru fyrir samningum þeirra hafi gengið eftir en að sú forsenda sem fjallar um efndir ríkisstjórnarinnar á þeim fyrirheitum sem hún gaf í sérstakri yfirlýsingu í tengslum við þá hafi ekki gengið eftir.
Samninganefnd aðildarsamtaka ASÍ og framkvæmdastjórn SA hafa rætt um sameiginleg viðbrögð og komist að eftirfarandi niðurstöðu:
Þrátt fyrir að forsenda kjarasamninga 5. maí 2011 um efndir á fyrirheitum í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar hafi ekki gengið eftir mun hvorugur samningsaðila segja upp kjarasamningunum.
Tengt efni:
Yfirlýsing Samtaka atvinnulífsins vegna uppsagnarákvæðis kjarasamninga (PDF)
Yfirlýsing samninganefndar ASÍ vegna endurskoðunar kjarasamninga (PDF)
Niðurstaða forsendunefndar SA og ASÍ
Umfjöllun fjölmiðla:
Frétt RÚV 20.1. 2012 - smelltu til að horfa










