Fréttir
16.7.2010
Kaupmáttur lágmarkslauna hærri nú en í ársbyrjun 2008
Öðru máli gegnir um laun almennt. Launavísitala Hagstofunnar, sem endurspeglar laun alls launafólks á landinu, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði, hefur hækkað um 12% frá ársbyrjun 2008 en kaupmáttur launa hefur dregist saman um 13,5% á tímabilinu. Sjá meðfylgjandi línurit.
Smellið á myndina til að stækka.
Verkafólk með minnstu kjaraskerðinguna
Kjaraskerðing launafólks af völdum efnahagskreppunnar hefur verið mjög mismunandi eftir starfsstéttum. Gögn Hagstofunnar um launaþróun starfsstétta ná til 1. fjórðungs þessa árs og þau sýna að verkafólk varð fyrir minnstri kjaraskerðingu á tímabilinu, eða 8%, samaborið við 13% hjá öllum launamönnum. Næst minnst varð kjaraskerðingin hjá félagsmönnum verslunarmannafélaga, þ.e. afgreiðslu- og skrifstofufólki, eða sem nam 11%. Mest varð kjaraskerðingin hjá stjórnendum, 19%, og sérfræðingar fylgdu þar fast á eftir með 17% kjaraskerðingu. Kaupmáttarfall hjá iðnaðarmönnum var nálægt meðaltali eða 14%.
Smellið á myndina til að stækka.
Skýringin á þessum mikla mun á launa- og kaupmáttarþróun liggur í útfærslu kjarasamninganna sem gerðir voru í febrúar 2008. Þeir voru sniðnir þannig að tiltölulega háum krónutölum var bætt við umsamda kauptaxta þannig að þeir hækkuðu hlutfallslega mikið, en umsamdar almennar launahækkanir til þeirra sem taka laun samkvæmt ráðningarsamningum hækkuðu mun minna eða um 11% alls á samningstímanum. Þá hefur launaskrið verið mjög lítið og laun lækkað á sumum sviðum, einkum hjá þeim hærra launuðu, stjórnendum og sérfræðingum.











