Fréttir
21.6.2010
Hækkun lífeyrisaldurs verði skoðuð
Fréttastofa Stöðvar 2 ræddi m.a. við Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóra SA. Hannes segir að margar þjóðir hafi nú þessa leið til athugunar og spurning hvort Íslendingar eigi ekki að skoða hana líka í stað þess að þurfa að horfa upp á stöðugar skerðingar á lífeyrisgreiðslum vegna lengingar meðalævi þjóðarinnar.
Samtök atvinnulífsins leggja til að hækkun lífeyrisaldurs megi framkvæma í nokkrum áföngum t.d. með lengingu um þrjá mánuði í senn. Núverandi sveigjanleika verði jafnframt viðhaldið, eða hann jafnvel aukinn, þannig að fólk geti hafið töku lífeyris á nokkura ára bili, t.d. 65-72 ára, bæði hjá lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun.
Eftir að slík skref hafa verið stigin hlýtur að koma til skoðunar að tengja lífeyrisaldur við lengingu meðalævi, eins og einstaka ríki hafa ákveðið að gera, og Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hefur nýlega lagt til við Spánverja að gert verði þar í landi.
Sjá nánar:
Frétt Stöðvar 2 - 20. júní 2010
Rit SA:
Nauðsynlegar umbætur í fjármálum hins opinbera. Tillögur SA í júní 2010 (PDF)
Fjallað er um félagslega tryggingakerfið og lífeyrismálin á bls. 32.










