Fréttir
15.6.2010
Skráningu á morgunverðarfund SA 16. júní lýkur í dag
Á fundinum verður kynnt nýtt rit SA um fjármál hins opinbera og tillögur SA til umbóta. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra mun á fundinum bregðast við tillögum SA og fjalla um fjármál ríkisins.
Sérstakur gestur fundarins verður David Croughan frá samtökum atvinnurekenda á Írlandi og mun hann m.a. segja frá aðgerðum Íra í kreppunni.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, kynnir tillögur SA en að afloknum framsöguerindum Steingríms J. Sigfússonar og David Croughan fara fram umræður.
Í umræðunum taka þátt, Bjarni Benediktsson, alþingismaður, Kirstín Flygenring hagfræðingur, Oddný G. Harðardóttir, alþingismaður, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður, Steingrímur Ari Arason, forstjóri og Sigríður Guðjónsdóttir lögreglustjóri.
Fundarstjóri er Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu.
Fundurinn hefst kl. 8:30 í salnum Gullteig og verður lokið kl. 10:00.
Léttur morgunverður frá kl. 8:00.
Dagskrá fundarins má nálgast hér (PDF)
Þátttakendur fá eintak af riti SA um fjármál hins opinbera.









