Fréttir
10.3.2010
Aðgangur að erlendu lánsfé verði tryggður
Vilhjálmur segir í samtali við blaðið að lausn Icesave-málsins hafi mikið að segja um aðgang að fjármagnsmörkuðum í útlöndum. Aðgangur ríkissjóðs og einstakra fyrirtækja að lánsfé sé nauðsynlegur, bæði vegna atvinnusköpunar en ekki síður vegna mikillar endurfjármögnunarþarfar ríkisins og orkufyrirtækjanna á næsta og þarnæsta ári.
„Það verður að vera búið að koma þessum málum í lag. Aðgangur að erlendu lánsfé er langur ferill og þetta þarf að vera í lagi þegar við þurfum á peningunum að halda. Þetta er ekki eins og að kveikja og slökkva ljós," segir Vilhjálmur.
Einnig var rætt við Vilhjálm í Bítinu morgunþætti Bylgjunnar í morgun um atvinnumálin og horfurnar framundan.
Sjá nánar:
Vefútgáfa Fréttablaðsins 10. mars 2010









