Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

8.3.2010

Ályktun aðalfundar SART - Samtaka rafverktaka

„Aðalfundur SART- Samtaka rafverktaka haldinn á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn  5. mars 2010,  ítrekar og mótmælir harðlega aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart heimilum og fyrirtækjum í landinu. Þá lýsir fundurinn vanþóknun sinni á framgöngu þeirra ráðherra og alþingismanna sem virðast hafa sett sér það eina markmið að setja fótinn fyrir fjárfestingar í virkjunum og stóriðju og hindra þannig framgang verklegra framkvæmda sem þjóðin kallar eftir. Aðalfundur SART skorar á þingmenn allra flokka að sameinast nú um heildarhagsmuni þjóðarinnar og láta verkin tala."

 

Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar SART 5. mars 2010. Í ályktuninni segir ennfremur:

„Þá lýsir fundurinn vanþóknun sinni yfir þeirri framgöngu stjórnvalda sem virðist vera orðin venja fremur en undantekning, að ríkið hirði til sín fjármuni sem sannanlega eru innheimtir og ætlaðir til ákveðinna málaflokka. Má þar sem dæmi nefna verkefni á fyrrum varnarsvæði á Keflavíkurflugvelli þar sem sala og leiga eigna átti að fara í uppbyggingu á svæðinu, m.a. til endurnýjunar raflagna, til að fullnægja bráðabirgðalögum sem falla úr gildi þann 1. október 2010. 

Rafverktakar minna á, að á fundum sem haldnir voru í júní á síðasta ári í tengslum við hinn margumtalaða stöðugleikasáttmála kom fram hjá fulltrúa fjármálaráðuneytis að ekkert stæði í vegi fyrir því að hefja framkvæmdir á svæðinu. Síðan þá hefur ekkert gerst, sem er lýsandi dæmi um aðgerðarleysi stjórnvalda á sama tíma sem atvinnuleysi er hvað mest á Suðurnesjum."

 

Frekari umfjöllun um aðalfund SART má nálgast á vef samtakanna: www.sart.is


Atvinna fyrir alla - smelltu til að sækja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english