Fréttir
12.2.2010
Íslenskur vinnumarkaður er mjög kynskiptur
Þetta kom fram á ráðstefnunni Virkjum karla og konur sem fram fór 10. febrúar á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan var haldin til að fylgja eftir og kynna samstarfssamning samtaka í atvinnulífinu frá 15. maí 2009 um að aukna fjölbreytni í forystusveit atvinnulífsins til loka ársins 2013 þannig að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40%.
Algengt hlutfall kvenna í atvinnulífinu er í kringum 20% ef horft er til stjórnunarstarfa, stjórnarsæta eða til hlutfalls kvenna sem stofna fyrirtæki.
Leitað var til fjölda álitsgjafa til að ræða kynskiptingu vinnumarkaðarins og mögulegar leiðir til að auka fjölbreytni í forystusveit atvinnulífsins. Svörin má horfa á hér að neðan en rætt var við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra CCP, Svala Björgvinsson, starfsmannastjóra Icelandair, Jón G. Hauksson, ritstjóra Frjálsrar verslunar, Þórhildi Þorleifsdóttur, formann jafnréttisráðs, Ragnheiði Ríkharðsdóttur, alþingismann, Margréti Pálu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra Hjallastefnunnar og Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra.
Kynskiptur vinnumarkaður
Viðhorfabreyting / lagabreyting?









