Fréttir
8.2.2010
Kynning á nýrri matvælalöggjöf
Samtök iðnaðarins standa fyrir kynningarfundum um nýja matvælalöggjöf í samstarfi við Matvælastofnun og önnur samtök í atvinnulífi 9.,16. og 22. febrúar. Á fundunum munu sérfræðingar Matvælastofnunar kynna efnil löggjafarinnar og þær breytingar sem hún hefur í för með sér.
Fundirnir verða á eftirtöldum tímum:
9. febrúar kl. 14:30-16:30 í Húsi atvinnulífsins - Borgartúni 35, Reykjavík, 6. hæð
16. febrúar kl. 14:30-16:30 í Húsi atvinnulífsins - Borgartúni 35, Reykjavík, 6. hæð
22. febrúar kl. 14:30-16:30 í Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14, Akureyri, fundarsalnum Ánni á fjórðu hæð
Dagskrá:
- Af hverju ný matvælalöggjöf?
- Breyttar kröfur til matvælafyrirtækja?
- Hvernig breytist eftirlit með matvælafyrirtækjum?
Eftir hverja kynningu verður boðið upp á fyrirspurnir.
Fundarstjóri: Ragnheiður Héðinsdóttir, Samtökum iðnaðarins.
Upplýsingar um matvælalöggjöfina eru á heimasíðu Matvælastofnunar
Matvælaframleiðendur eru hvattir til að kynna sér löggjöfina.
Skráning þátttöku í síma 591 0100 eða með tölvupósti á netfangið mottaka@si.is. Taka skal fram dagsetningu fundar.











