Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

19.10.2009

Stjórnvöld liðki fyrir stórfjárfestingum

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, vonast til þess að nýtt Icesave-samkomulag auki stjórnvöldum kjark til að taka ákvarðanir um afnám gjaldeyrishafta og lækkun vaxta. Það hjálpi til í viðræðum um að stöðugleikasáttmálinn haldi. Hann minnir þó á að stjórnvöld eigi enn eftir að standa við atriði sem kveðið er á um í sáttmálanum. Þau þurfi t.a.m. að liðka fyrir stórfjárfestingum eins og álveri í Helguvík, framleiðsluaukningu í Straumsvík og byggingu gagnavera.

 

Rætt var við Vilhjálm í morgunfréttum RÚV 19. október en þar sagði hann ofangreind fjárfestingarverkefni „í stóra stoppi" á meðan úrskurður umhverfisráðherra um Suðvesturlínur standi. Þá standi áform um orkuskatta þversum í þeim sem hafi áhuga á að fjárfesta á Íslandi.

 

Smellið hér til að hlusta á frétt RÚV


Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english