Fréttir
15.10.2009
Fjórðungur fyrirtækja hyggst fækka starfsfólki
Þróun til hins verra
Könnunin var rafræn og gerð meðal aðildarfyrirtækja SA dagana 7.-13. október 2009 en framkvæmd hennar var í höndum Outcome hugbúnaðar ehf. Markmiðið með könnuninni var að fá skýrari mynd af horfunum framundan í íslensku atvinnulífi.
Rúmur fjórðungur fyrirtækjanna, 27%, hafa brugðið á það ráð að breyta fullum störfum í hlutastörf á árinu 2009 til þess að forðast uppsagnir. Í sambærilegri könnun í febrúar síðastliðnum sögðust 18% fyrirtækjanna hafa gert það, þannig að notkun þessa úrræðis virðist hafa farið vaxandi. Fjórðungur, 25%, fyrirtækjanna hefur gripið til launalækkana á árinu til þess að tryggja áframhaldandi rekstur, en til samanburðar höfðu 18% gert það í könnuninni í febrúar.
Niðurstöður yfirfærðar á atvinnulífið í heild
Fyrirtækin í könnuninni endurspegla sjávarútveg, iðnað, byggingastarfsemi, veitur, verslun og samgöngur, hótel og veitingahús, fjármála- og tryggingafyrirtæki. Áætlað er að í þessum atvinnugreinum starfi um 87.000 manns um þessar mundir. Áformuð fjölgun starfsmanna hjá þeim fyrirtækjum í könnuninni sem hyggjast fjölga á næstu sex mánuðum er 1,2% af heildar starfsmannafjölda en áformuð fækkun nemur 3,5%. Nettófækkun starfsmanna verður því 2,3% af starfsmannafjölda, eða sem samsvarar 2.000 manns, í þessum atvinnugreinum á næstu sex mánuðum. Launagreiðslur sem falla brott af þeim sökum nema um 10 milljörðum króna á ársgrundvelli.
----------
Um könnunina
Könnunin var tölvupóstkönnun og var send til 1.764 fyrirtækja en fjöldi svarenda var 668, svarhlutfall var því 38%. Langflestir svarenda (83%) voru með undir 50 starfsmenn í vinnu, flestir með 5 starfsmenn eða færri (35%).









