Fréttir
15.10.2009
Fjölgum konum í forystu atvinnulífsins
SA hafa skuldbundið sig til að leggja sitt af mörkum til að stuðla að því að hlutfall kvenna í forystusveit íslensks atvinnulífs verði ekki undir 40% árið 2013. Síðastlið vor skrifuðu SA undir samstarfssamning við FKA - Félag kvenna í atvinnurekstri og Viðskiptaráð Íslands um að efla hlut kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs. Fulltrúar stjórnmálaflokka á Alþingi styðja samninginn en CreditInfo mun mæla árangur verkefnisins árlega.
Hér að neðan má nálgast lista yfir öflugar rekstarkonur ásamt hvatningarbréfi SA, FKA og Viðskiptaráðs sem sent hefur verið til fjölda aðila í íslensku viðskiptalífiað undanförnu.
Sjá nánar:
Smellið hér til að sækja rannsókn CreditInfo
Hvatningarbréf SA, FKA og Viðskiptaráðs
Samstarfssamningur SA, FKA og Viðskiptaráðs











