Fréttir
2.10.2009
Ályktun aðalfundar SF
Samtök fiskvinnslustöðva skora á Seðlabanka Íslands að lækka stýrivexti í samræmi við fyrirheit við gerð Stöðugleikasáttmálans frá 25. júní. Í ályktuninni segir m.a.:
„Veruleg lækkun stýrivaxta eigi síðar en 5. nóvember nk. og lækkun annarra nafnvaxta í kjölfarið væru skýr og jákvæð skilaboð út í þjóðfélagið. Við endurreisn fjármálakerfisins og lækkun fjármagnskostnaðar skapast fyrst aðstæður til að hefja raunverulega endurreisn íslensks atvinnulífs.
Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva leggst eindregið gegn öllum tillögum og hugmyndum ríkisstjórnarinnar um fyrningarleið í sjávarútvegi og innköllun á öllum fiskveiðiheimildum til ríkisins á næstu tveimur áratugum. Framkvæmd fyrningarleiðar mun fela í sér að afkoma sjávarútvegsfyrirtækja og atvinnuöryggi starfsfólks þeirra mun verða kippt í burtu á fáum árum.
Aðalfundurinn skorar á ríkisstjórnina að falla frá öllum hugmyndum um fyrningarleið í sjávarútvegi, en beina kröftum sínum þess í stað að þeim gríðarlegu vandamálum sem þjaka þjóðarbúið. Við þessar aðstæður væri eðlilegt að endurskoðunar- og sáttanefnd sjávarútvegsráðherra sem skila á tillögum fyrir 1. nóvember nk., einbeiti sér að þeim vandamálum sem brenna mest á atvinnugreininni.
Mikilvægi sjávarútvegs og annarra útflutningsgreina hefur aukist mikið í kjölfar efnahagshrunsins. Það á því að vera kappsmál stjórnvalda að halda frið við atvinnugreinina í stað þess að boða ráðstafanir sem gera nær ómögulegt fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi að marka sér framtíðarsýn við ríkjandi aðstæður.
Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva leggst eindregið gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þessari afstöðu samtakanna var komið skýrt á framfæri við Utanríkismálanefnd þegar þingsályktunartillögur utanríkisráðherra og stjórnarandstöðuflokkanna voru til umræðu á Alþingi í sumar."
Ályktunina í heild má nálgast á vef SF en þar eru m.a. sett fram samningsskilyrði sem aðalfundur SF vill að verði ófrávíkjanleg í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, m.a. að Íslendingar fari sjálfir með forræði yfir fiskimiðunum og lagasetningarvald á sviði sjávarútvegsmála verði áfram hjá Alþingi.
„Fiskimiðin umhverfis Ísland eru ein mikilvægasta náttúruauðlind okkar og ein af grunnundirstöðum íslensks efnahags. Forræði yfir fiskimiðunum og öðrum mikilvægum hagsmunum verður ekki afsalað í aðildarviðræðum við Evrópusambandið," segir jafnframt í ályktun aðalfundar SF.
Ítarlega umfjöllun um aðalfund SF má finna á vef samtakanna, m.a. allar glærur frummælenda. Meðal þeirra sem fluttu erindi var Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, sem fjallaði um stöðugleikasáttmálann - framvindu og horfur.
Sjá nánar:











