Fréttir
9.7.2009
Umsagnir SA til Alþingis
SA eru andvíg því að frumvarp um Bankasýslu ríkisins verði að lögum og mælast til þess að umfjöllun um það verði frestað þar til skipulag og eignarhald á fjármálamarkaði liggur skýrar fyrir og þá verði endurmetið hvort þörf sé á sérstakri Bankasýslu eða hvort ríkið geti sinnt eigendahlutverki sínu með einfaldari og ódýrari hætti.
Varðandi aðildarumsókn Íslands að ESB undirstrika SA að EES-samningurinn verði ekki vanræktur en slíkt geti reynst íslensku atvinnulífi dýrkeypt. SA fagna því að stjórnvöld hyggist hafa víðtækt samráð við hagsmunaaðila um samningsmarkmið fyrir hugsanlegar aðildarviðræður við ESB. Skiptar skoðanir eru innan SA um hvort sækja beri um aðild að ESB.
Umsögn SA um frumvarp fjármálaráðherra (PDF)
Umsögn SA um Bankasýslu ríkisins (PDF)











