Fréttir
16.4.2009
Hver prósenta í hagvexti skapar 800-900 störf
Ársstörfum fjölgaði um 90% á tímabilinu 1963 til 1997 eða um rúmlega 2% á ári að jafnaði. Á sama tímabili var hagvöxtur að jafnaði 4% árlega þannig að hver prósenta í hagvexti skapaði grundvöll fyrir 0,5% fjölgun starfa. Hinn mikli hagvöxtur skapaði grundvöll bæði fyrir mikill fjölgun starfa umfram fólksfjölgun og stórbættum lífskjörum.
Starfandi fólki fjölgaði einnig um rúm 2% á ári að jafnaði á tímabilinu 1997 til 2008 og hagvöxtur var rúmlega 4% árlega þannig að einnig á þessu tímabili fylgdi hverri prósentu í hagvexti 0,5% fjölgun starfa. Fækkun starfa á þessu ári er þó mun meiri en fall landsframleiðslu gefur tilefni til samkvæmt þessu sambandi. Það skýrist að miklu leyti af þeim óvenjulegu aðstæðum sem ríkjandi eru í kjölfar bankahrunsins og mikilli fækkun starfa í byggingariðnaði í kjölfar ofþenslunnar á þeim markaði á undanförnum árum.
Smellið á myndina til að stækka










