Fréttir
23.3.2009
Kosning formanns SA er hafin
Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Félagsmenn Samtaka atvinnulífsins hafa fengið send lykilorð í pósti til að taka þátt í kosningunni.
Á forsíðu vefs SA - er hnappur merktur Formannskjör. Smellt er á hnappinn til að komast inn á sérstakan kosningarvef. Þar nálgast félagsmenn kjörseðil sinn með hjálp lykilorðsins.
Rafrænni kosningu lýkur kl. 12:00 á aðalfundardag þann 22. apríl 2008.
Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu SA í síma 591 0000 eða með því að senda tölvupóst á jonina@sa.is.
Kosningakerfið er hannað af fyrirtækinu Outcome hugbúnaði ehf. og mun umsjón kosninganna vera hjá þeim. Atkvæði kjósenda verða ekki rakin af SA og kosningin því leynileg.









