Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

19.3.2009

Af gjaldeyrisviðskiptum Jóns og séra Jóns

Seðlabanki Íslands mismunar einstaklingum og fyrirtækjum við afgreiðslu á gjaldeyri fullyrðir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem segir að menn virðist geta fengið undanþágur ef þeir eiga góða vini á réttum stöðum. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.

 

Í frétt á Vísi.is um málið segir:

 

„Samtök atvinnulífsins hafa talað mjög fyrir afnámi gjaldeyrishafta sem sett voru á eftir bankahrunið. Framkvæmdastjóri samtakanna segir að í byrjun hafi gjaldeyrishöftin verið mjög víðtæk, en smám saman hafi þau þrengst og það hafi valdið því að jafnræðis var ekki lengur gætt. Hann kveður erlenda fjárfesta kvarta mjög undan þessu fyrirkomulagi og ekki sé sama Jón og séra Jón þegar kemur að afgreiðslu umsókna um gjaldeyri.

 

„Menn þurfa gjarnan að fá undanþágu og ef þeir eiga góða vini á réttum stöðum þá er hægt að ræða um þau mál sem sýnir nú hvað þessi gjaldeyrishöft eru skrítin og vitlaus og þurfa að hverfa," segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

 

Sama segir hann að gildi um innlenda atvinnurekendur og greinilega megi ráða af samtölum við einstaklinga í atvinnulífinu að lagt sé einhvers konar mat á hvert og eitt mál."

 

Smellið hér til að horfa á frétt Stöðvar 2


Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english