Fréttir
18.3.2009
Viðskiptalíf G20: Fyrirtækin þurfa aðgang að fjármagni
BUSINESSEUROPE vinnur nú að aðgerðaáætlun sem er ætlað að auðvelda stórum fyrirtækjum sem smáum aðgang að fjármagni. Jafnframt hvetur BUSINESSEUROPE G20 ríkin til aukinnar samvinnu í baráttunni við alþjóðlegu fjármálakrísuna. Markmiðið með fundi fulltrúa viðskiptalífsins í G20 ríkjunum í London í dag var að stilla saman strengina fyrir fund leiðtoga G20 ríkjanna sem fram fer í London þann 2. apríl næstkomandi. Miklar væntingar hafa verið bundnar við að þar verði kynnt alþjóðleg viðbrögð við efnahagskreppu heimsins.
Áherslur BUSINESSEUROPE voru kynntar á fundinum í London í dag og þær má nálgast hér að neðan. Í þeim segir m.a. að fyrirtæki um alla Evrópu líði nú fyrir skort á fjármagni og umsvif í efnahagslífinu dragist hratt saman. Fjárfesting í atvinnulífinu sé á undanhaldi, verslun hafi minnkað og atvinnuleysi aukist. Verði ekkert að gert verði félagslegar afleiðingar fjármálakrísunnar dýrkeyptar. Það sé kominn tími til að grípa til aðgerða - atvinnulífið verði að fá fjármagn á samkeppnishæfum kjörum.
Rétt er að halda því til haga að á Íslandi eru stýrivextir 18% og rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi því afleitt. SA hafa bent á að mikilvægasta aðgerðin í atvinnumálum sé lækkun stýrivaxta.
Í áherslum sínum leggja BUSINESSEUROPE áherslu á að ekki sé nóg að koma á stöðugleika í fjármálakerfinu, búa þurfi þannig um hnútana að fjárfesting í atvinnulífinu geti hafist á nýjan leik til að skapa störf og efla velferð.
Sjá nánar:
Áherslur BUSINESSEUROPE á G20-Business fundi í London 18. mars (PDF)











