Fréttir
3.3.2009
Stefnumót atvinnulífsins í Evrópu 26.-27. mars
Á stefnumótinu í ár verða viðbrögð við hinni alþjóðlegu fjármálakrísu í forgrunni auk áskorana í umhverfismálum. Þessi málefni verða rædd út frá ótal sjónarhornum í 15 málstofum þar sem framúrskarandi fólk á sínu sviði leiðir umræðuna.
Yfirskrift stefnumótsins er „Dare and Care: sustaining Europe's ambitions; Financing, Staffing, Greening". Leitað verður fjölmargra svara við því á hvaða sviðum sé að gera betur og hvernig megi finna leið út úr kreppunni með því að nýta lausnir markaðarins með sjálfbærum hætti. Lögð er áhersla á að nýsköpun verði efld og aukinn kraftur settur í rannsóknir, þróunarstarf og sköpun nýrra starfa. Á sama tíma verði barist gegn einangrunarstefnu og fólki verði auðveldað að eiga viðskipti innan Evrópusambandsins.
Á ráðstefnunni verða niðurstöður nýrrar rannsóknar INSEAD kynntar um þá helstu þætti sem Evrópa þarf á að halda til að geta með góðu móti tekist á við framtíðina.
Samtök atvinnulífsins eru aðilar að BUSINESSEUROPE en fulltrúar aðildarfyrirtækja SA fá helmings afslátt af þátttökugjaldi. Tilgreina þarf SA við skráningu til að fá afslátt (Confederation of Icelandic Employers - SA).
Vefur Stefnumóts atvinnulífsins í Evrópu 2009









