Fréttir
22.2.2009
Erlendir aðilar komi að rekstri íslenskra banka
Rætt var við Vilhjálm vegna frétta um að mögulega verði Kaupþing selt kröfuhöfum bankans. „Þetta er það besta sem getur komið fyrir í þessari stöðu. Við höfum talað um það hér í Samtökum atvinnulífsins að það væri nauðsynlegt að bankarnir kæmust í eigu erlendra kröfuhafa. Þannig að það yrði áfram opinn aðgangur að erlendu lánsfé," sagði Vilhjálmur.
Vilhjálmur sagði ennfremur að sala Kaupþings myndi auka líkurnar á því að það tækist að bjarga lánasöfnum í eigu gamla Kaupþings svo að ekki þurfi að afskrifa þau í gegnum gjaldþrot. „Það er algjörlega nauðsynlegt að það sé flæði af fjármagni inn í landið á móti vöxtum og afborgunum af erlendum lánum.
Vilhjálmur telur að langbesta leiðin til að tryggja stöðu viðskiptavina bankanna sé sú að erlendir kröfuhafar og helst stórir bankar í þeirra hópi eignist íslensku bankana.









