Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

30.1.2009

Samtök atvinnulífsins heimsækja vinnustaði - bókið núna

Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins heimsækja aðildarfyrirtæki SA þessa dagana og kynna nýja atvinnustefnu samtakanna sem nýverið kom út. Stjórnendur sem vilja fá Samtök atvinnulífsins í heimsókn til að kynna starfsmönnum sýn SA á hvernig snúa skuli vörn í sókn er velkomið að hafa samband til að finna hentugan tíma.

 

Áhugasamir hafi samband við Hörð Vilberg hjá SA með tölvupósti á hordur@sa.is eða í síma 591-0005.

 

Yfirskrift atvinnustefnu SA er Hagsýn, framsýn og áræðin atvinnustefna. Það er mat SA að  í núverandi ástandi verði að bregðast rétt við þegar í stað, lágmarka skaðann og auðvelda nýja uppbyggingu. Atvinnustefna SA er innlegg í umræðu um hvernig þeirri uppbyggingu verði best háttað.

 

Sjá nánar á vef SA


Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english