Fréttir
21.1.2009
Vottun jafnra launa mikilvæg
Hrafnhildur tók þátt í umræðum um hvernig tryggja mætti jafnrétti í uppbyggingu til framtíðar. Sagði hún að skýra stefnumörkun þyrfti þar sem lögð væri áhersla á að virkja hæfasta fólkið hverju sinni, jafnt konur sem karla. Lykillinn að árangursríkri uppbyggingu væri fjölbreytni og tók hún undir með Margréti Pálu Ólafsdóttur um að konur í hefðbundnum kvennastéttum þyrftu að fá fleiri tækifæri til að nýta þekkingu sína og reynslu, m.a. með því að taka að sér að veita og reka ákveðna þjónustu sem hið opinbera veitir í dag.
Þá vakti Hrafnhildur athygli á framsækinni löggjöf um fæðingar- og feðraorlof á Íslandi sem íslenskir atvinnurekendur hafi stutt dyggilega við - en evrópskir atvinnurekendur skilja jafnan lítið í því hvers vegna íslensk fyrirtæki sjái sér hag í því að senda karla og konur í langt „frí" á launum til að ala upp börn.
Sjá nánar:









