Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

30.10.2008

Uppfærðar upplýsingar um stöðu greiðslumiðlunar

Á vef Seðlabanka Íslands eru birtar upplýsingar um stöðu greiðslumiðlunar í landinu og milli landa og eru þær uppfærðar reglulega. Erlend greiðslumiðlun um starfandi viðskiptabanka á Íslandi hefur gengið illa og því ákvað Seðlabanki Íslands að miðla slíkum greiðslum í þeim tilvikum sem aðrar leiðir reyndust lokaðar. Seðlabankinn segir að þeir sem eigi von á greiðslum frá útlöndum verði að sjá til þess að greiðandinn fái réttar upplýsingar um greiðsluleiðir, en á vef bankans má finna greiðslufyrirmæli fyrir alla þá gjaldmiðla sem Seðlabankinn getur tekið við.

 

Sjá nánar:

 

Upplýsingasíða Seðlabankans

 

Greiðslufyrirmæli Seðlabankans (PDF)

 

Þau má hafa til hliðsjónar og bæta inn nafni viðtakanda fyrir aftan þar sem stendur „final beneficiary" og IBAN-númer reiknings viðtakanda þar fyrir neðan áður en upplýsingarnar eru sendar greiðanda.


Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english