Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

10.10.2008

Hugað verði vel að bankafólki

Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við Morgunblaðið mikilvægt að vel sé hugað að fólki sem missi vinnu í bönkunum. „Við þurfum að taka utan um þetta fólk sem og aðra sem eru að missa vinnuna."

 

Það megi ekki gerast að bankastarfsmenn séu stimplaðir sem eitthvað óráðsíufólk. „Þetta er mikið til ungt fólk, nýkomið úr skóla, og fór beint í bankana. Það er klárlega hluti af framtíð Íslands og þarf ekki á því að halda, í ofanálag að vera búið að missa vinnuna, að í þjóðfélaginu sé sá andi að það hafi staðið að einhverri óreiðu. Það hefur staðið sig vel í bönkunum, enda hafa þeir staðið vel að sínum verkefnum, og á skilið að við tökum utan um það eins og aðra sem eiga núna um sárt að binda," segir Þór.


Atvinna fyrir alla - smelltu til að sækja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english