Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

9.10.2008

SA fylgjast með og bregðast við afleiðingum fjármálakreppunnar

Samtök atvinnulífsins hafa stofnað vinnuhóp til að fylgjast með afleiðingum fjármálakreppunnar fyrir atvinnulífið í landinu. Vinnuhópurinn er skipaður fulltrúum aðila vinnumarkaðarins og Viðskiptaráðs Íslands. Safnað verður saman upplýsingum um áhrif á fyrirtæki, vandamál sem upp koma og hvernig unnt er að bregðast við þeim. Samtökin munu koma upplýsingum á framfæri við fulltrúa ríkisstjórnarinnar og gæta þannig hagsmuna fyrirtækjanna. 

 

Mjög mikilvægt er að fyrirtæki láti Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök þeirra fylgjast með því hvernig gengur að standast það álag sem ástandið hefur fyrir nánast allt atvinnulíf í landinu.

 

Mikilvægasta verkefni stjórnvalda nú er að koma fjármagnsflæði í landinu í eðlilegt horf þannig að fyrirtæki hafi nauðsynlegan aðgang að rekstrarfé og búa þannig um hnútana að stöðugleiki komist á sem fyrst - bæði í gengis- og verðlagsmálum og að vextir lækki sem allra fyrst.

 

Umsjón með verkefninu af hálfu SA hafa Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, Guðlaugur Stefánsson, hagfræðingur og Pétur Reimarsson, forstöðumaður.


Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english