Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

6.10.2008

Aðgangur atvinnulífsins að fjármagni verði tryggður

Þór Sigfússon, formaður SA, segir í samtali við fréttastofu Sjónvarps verkefni númer eitt, tvö og þrjú að útvega íslenskum fyrirtækjum fjármagn til að halda atvinnulífinu gangandi. Þór segir ennfremur mikilvægt að stjórnvöld komi með röggsemi að vaxtapólitíkinni. Ná þurfi stýrivöxtum umtalsvert niður og jafnframt að ná stöðugleika í gengið. „Ef að við fáum þetta sem allar Evrópuþjóðir búa við núna - umfram það sem við höfum - þá trúi ég því að íslenskt atvinnulíf eigi eftir að hrista þetta af sér fljótt og vel og við eigum eftir að halda hér atvinnustigi áfram háu."

 

Í viðtali á Stöð 2 sagði Þór að á Íslandi sé fullt af tækifærum og einstakt að lenda í krísu á meðan geirar innanlands séu á uppleið. Stjórnvöld takist nú á við yfirstandandi vanda af röggsemi sem verði að nýta á fleiri sviðum - ekki þurfi endilega að koma koma til mikilla uppsagna á næstu mánuðum vegna versnandi stöðu efnahagslífsins. Mikilvægt sé að horfa til framtíðar og hefja uppbyggingu.

 

Sjá nánar: 

 

Viðtal RÚV við forseta ASÍ og formann SA

 

Viðtal við Þór Sigfússon á Stöð 2


Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english