Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

3.10.2008

Ræddu viðbrögð ESB við fjármálakreppu

Forysta SA hefur lokið viðræðum í Brussel við sérfræðinga ESB og forystu evrópsks atvinnulífs. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið að viðræðurnar hafi gengið vel en mikill tími hafi farið í að skoða þá stöðu sem nú er uppi í fjármálakerfinu. „Það eru allir að tala um hana og hvað ESB ætlar að gera í henni."

 

Vilhjálmur segir að í umræðunum hafi verið farið yfir vítt svið en þær hafi dýpkað þekkingu forystu SA á ESB, hvert það er að þróast og um hvað aðild að sambandinu myndi snúast. „Þetta skiptir mjög miklu máli, bæði til lengri tíma og skemmri tíma litið. Við höfum lært heilmikið í sambandi við fjármálakreppuna sem við erum að glíma við núna og hvernig ESB glímir við þessa sömu kreppu."


Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english