Fréttir
8.5.2008
Fjarvistir vegna veikinda jukust 2007
Veikindafjarvistir 2000-2007 skráðar af Heilsuverndarstöðinni
Í október 2007 birtu Samtök atvinnulífsins á vef sínum í fyrsta sinn niðurstöður um veikindafjarvistir úr gagnasafni Heilsuverndarstöðvarinnar og byggðu þær á gögnum fyrir tímabilið 2000-2006. Nú liggja fyrir upplýsingar vegna ársins 2007 og ná þær til tæplega 13.000 starfsmanna. Niðurstöðurnar í heild má nálgast í grein hér að neðan þar sem er gerð grein fyrir fjarvistum í dögum að meðaltali á starfsmann á ári og hlutfall veikindadaga af virkum vinnudögum er skipt eftir aldri starfsmanna, lengd veikinda og tilefni. Rétt er að nefna að niðurstöðum um 2000-2006 ber ekki nákvæmlega saman við þær sem birtust í greininni í október 2007 vegna betrumbóta á úrvinnslu gagnanna. Vísað er til umfjöllunar í þeirri grein varðandi aðferðir og fyrirvara um marktækni og túlkun.
Á meðfylgjandi mynd má sjá veikindahlutfall og veikindadaga á starfsmanna á tímabilinu 2000-2007. Meðalfjöldi veikindadaga var 8,8 árið 2007 og veikindahlutfallið, þ.e. hlutfall veikindadaga á ári af vinnudögum ársins, var 3,9%. Þetta er nokkur aukning frá 2006 þegar veikindadagar voru 8,3 að meðaltali og veikindahlutfallið 3,7%. Veikindadagarnir voru þó færri en á árunum 2000-2003.
Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu
Veikindafjarvistir langmestar hjá yngstu starfsmönnunum
Veikindafjarvistir eru áberandi mestar í yngstu aldurshópunum. Veikindadagar eru að meðaltali 14-15 á ári í aldurshópnum 15-30 árs, sem nemur 6-7% vinnudaga. Í aldurshópnum 31-35 ára fækkar veikindadögum niður í 10 að meðaltali á ári og 4,6% veikindahlutfall. Hver fimm ára hópur á aldursbilinu 35-65 ára eru með svipaðan fjölda veikindadaga á ári eða 6-7 og í kringum 3% veikindahlutfall. Elstu starfsmennirnir, 65 ára og eldri eru minnst frá vegna veikinda.
Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu
Fjölskylduábyrgð karla fer vaxandi
Karlar axla í auknum mæli ábyrgð vegna veikinda barna þó svo að konur axli þá ábyrgð enn sem komið er að stærstum hluta. Fjarvistir vegna veikinda barna voru 6% af fjarvistum í heild á árinu 2007 eða sem nemur hálfum degi á hvern starfsmann á ári að meðaltali. Fjarvistir vegna veikinda barna hafa minnkað jafnt og þétt frá árinu 2003 þegar þær voru 7,3% veikindafjarvista. Hlutur kvenna í fjarvistum vegna veikinda barna var 68% og lækkaði úr 72% árið 2006. Hlutfallið er allnokkuð lægra en það var í byrjun áratugarins þegar það var 74%.
Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu
Sjá nánar:
Veikindafjarvistir 2000-2007 skv. grunni Heilsuverndarstöðvarinnar














