Fréttir
21.4.2008
Baráttan um besta fólkið
Samtök atvinnulífsins hafa gefið út nýtt rit Baráttan um besta fólkið þar sem fjallað er um alþjóðavæðingu vinnumarkaðarins. Þar kemur m.a. fram að Ísland stendur Norðurlöndunum í heild að baki við að takast á við áskoranir hnattvæðingarinnar. Ísland stendur vel að vígi í alþjóðlegum samanburði hvað varðar laun og skatta en hátt verðlag og smæð landsins eru ekki aðlaðandi. Á heildina litið er samkeppnisstaða Íslands um hæft starfsfólk í meðallagi þegar litið er til kaupmáttar launa eftir skatt, en baráttan um besta fólkið mun fara harðnandi.
Í ritinu kemur m.a. fram að Íslendingum á vinnumarkaði muni fjölga tiltölulega hægt á næstu árum og áratugum. Stórir árgangar hverfi af vinnumarkaði vegna aldurs og nýir árgangar sem komi í staðinn verði tiltölulega fámennir. Vinnuframlag erlends starfsfólks verði ein meginforsenda hagvaxtar.
Áætla má að miðað við 3% árlegan hagvöxt að jafnaði þegar fram í sækir muni a.m.k. 1.000 erlendir starfsmenn þurfa að flytjast til landsins árlega á tímabilinu 2015-2020 og allt að 1.500 árlega eftir það.
Sjá nánar:
Alþjóðavæðing vinnumarkaðarins - Baráttan um besta fólkið (PDF)









