Fréttir
20.4.2008
Við óbreytt ástand er ekki unnt að una
Ingimundur sagði jafnframt brýnt að auka gjaldeyrisforða Seðlabankans og gera honum kleift að tryggja íslenskum fjármálastofnunum aðgang að lausafé og lánsfé á eðlilegum kjörum, svo koma megi í veg fyrir stöðvun nýrra fjárfestinga, sem byggja á fjármögnun íslenskra banka. „Að öðrum kosti er hætt við því, að framfarir stöðvist í íslensku atvinnulífi um langa hríð og þungi fjárfestinga í landinu verði einungis á vegum hins opinbera eða þeirra aðila, sem aflað geta lánsfjár án atbeina innlendra fjármálafyrirtækja. Íslensku atvinnulífi er nauðsynlegt, að gripið verði til aðgerða sem allra fyrst. Dragist það úr hófi, mun það ef að líkum lætur brjótast undan oki hárra vaxta og stöðugra gengissveiflna með þeim aðferðum, sem tiltækar eru. Sú hætta blasir við, að íslensk fyrirtæki, sem að stórum hluta starfa á erlendum mörkuðum, muni sjá hag sínum betur borgið með því að flytja starfsemi sína til annarra landa, þar sem stöðugleiki er meiri og rekstrarumhverfi hagfelldara. Við óbreytt ástand er ekki unnt að una og er því nauðsynlegt að fara yfir allar hugmyndir um umbætur á núverandi aðstæðum."
Sjá nánar:









