Fréttir
31.3.2008
Stórhækkun matarverðs ólíkleg
Vilhjálmur segir inntak kjarasamninga hafa verið að forgangsraða launahækkununum til þeirra lægst launuðu. Mikið af starfsfólki ákveðins hluta verslunarinnar sé láglaunafólk sem og hluta matvælaiðnaðarins. Algengt að kostnaðarhækkun í verslun þar sem hann varð mestur sé um 8%. Launakostnaður sé hins vegar ekki nema 1/10 af matarverðinu. Innkaupsverð vöru sé stærsti hlutinn og það hafi hækkað. Síðan bætist gengislækkun krónunnar við.
Vilhjálmur segir það hafa verið ljóst í kjarasamningunum að kostnaðurinn af þeim myndi koma mjög misjafnt niður og það hafi jafnframt verið ljóst að þau fyrirtæki sem tækju á sig mikinn kostnað þyrftu að fá ákveðið svigrúm til verðhækkana. Mjög mörg fyrirtæki þurfi hins vegar ekki að hækka neitt.









