Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

21.3.2008

Karin Forseke á leið til Íslands

Karin ForsekeSænska athafnakonan Karin Forseke er á leið til Íslands en hún tekur þátt í námstefnunni Virkjum fjármagn kvenna sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica föstudaginn 28. mars. Karin er fædd árið 1955 og er fyrsta kona heims til að stýra fjárfestingarbanka en hún var forstjóri sænska fjárfestingarbankans Carnegie á árunum 2003-2006. Hún var ein fárra kvenna í forstjórastóli fyrirtækja í kauphöllinni í Stokkhólmi. Karin mun fjalla um reynslu sína úr fjármálageiranum og mikilvægi þess að konur hasli sér völl innan hans.

 

Karin er stjórnarmaður í breska fjármálaeftirlitinu (FSA) og hefur áratugareynslu af fjármálamörkuðum á Norðurlöndunum, í Bretlandi og Bandaríkjunum. Hún situr m.a. í ráðgjafaráði fjármálamarkaðarins í Svíþjóð (Financial Markets Advisory Council), og er stjórnarmaður í konunglegu óperunni í Stokkhólmi og Wallenius skipafélaginu.

 

Áður en Karin hóf störf hjá Carnegie fjárfestingarbankanum stýrði hún m.a. LIFFE (London International Financial Futures Exchange) og var einnig ábyrg fyrir viðskiptaþróun OMLX exchange í London.

 

Nánari upplýsingar um Virkjum fjármagn kvenna


Atvinna fyrir alla - smelltu til að sækja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english