Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

12.3.2008

Óskað eftir tilnefningum vegna Kuðungsins

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins - Kuðunginn - fyrir árið 2007. Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum. Tillögur skulu berast umhverfisráðuneytinu eigi síðar en föstudaginn 4. apríl næstkomandi.

 

Tillögur skal merkja ,,Kuðungurinn 2007" og senda í tölvupósti á póstfangið postur@umhverfisraduneyti.is eða með pósti í umhverfisráðuneytið, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík.

 

Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Þau fyrirtæki sem hafa hlotið viðurkenninguna hingað til eru Kjötverksmiðjan Goði 1994, Gámaþjónustan 1994, Umbúðamiðstöðin 1994, Prentsmiðja Morgunblaðsins 1995, Fiskverkun KEA í Hrísey 1996, Olíufélagið 1997, Fiskversmiðja Haraldar Böðvarssonar á Akranesi 1998, Borgarplast 1999, Íslenska Álfélagið 2000, Árvakur 2002, Hópbílar 2003, Orkuveita Reykjavíkur 2004, Línuhönnun 2005 og Bechtel fyrir árið 2006.


Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english