Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

7.3.2008

Ávinningur af fjölbreytni á vinnumarkaði

Kanadíska sendiráðið á Íslandi í samstarfi við félags- og tryggingamálaráðuneytið, Háskóla Íslands - Stofnun stjórnsýslufræða, Alþýðusamband Íslands, Alþjóðahúsið og Samtök atvinnulífsins, býður til opins málþings um reynslu og ávinning kanadískra fyrirtækja af því að hafa fjölbreytni starfsmanna í fyrirrúmi - miðvikudaginn 12. mars. Erindi flytja Yasmin Meralli, aðstoðarforstöðumaður hjá elsta og stærsta banka Kanada, Bank of Montreal  og Cindy Chan forstjóri Info Spec Systems en það er hugbúnaðarfyrirtæki sem hún stofnaði sjálf og hefur náð góðum árangri í Bandaríkjunum, Kanada og Asíu.

 

Auk þeirra flytja ávörp sendiherra Kanada á Íslandi Anna Blauveldt, Svali Björgvinsson Kaupþingi, Tatiana K. Dimitrova leikskólastjóri og Ólafur Ólafsson, AstraZeneca. Lokaorð flytur Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA.

 

Málþinginu stýrir Tatjana Latinovic, stjórnandi í þróunardeild Össsurar hf.

 

Málþingið fer fram á Háskólatorgi, neðri hæð, stofu 104, miðvikudaginn 12. mars nk. kl. 15.15 - 17.00. Málþingið fer fram á ensku og er öllum opið. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef HÍ.

 

Smellið hér til að skrá þátttöku

 

Markmiðið málþingsins er að greina hvernig fyrirtæki og stofnanir geti notið ávinnings af því að vera með fjölbreytt starfsfólk. Fjölbreytni sem er sýnileg eða ósýnleg og getur verið vegna kyns, aldurs, kynþáttar, fötlunar, persónu eða vinnulags.

 

Nánari dagskrá og upplýsingar um fyrirlesara má nálgast hér


Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english