Fréttir
28.12.2007
Hjöðnun verðbólgu forgangsmál
Greinina má lesa í heild hér:
Verjum lífskjörin
Höfuðmarkmið Samtaka atvinnulífsins í komandi kjarasamningum er að varðveita þann árangur sem náðst hefur í atvinnulífinu og lífskjörum þjóðarinnar og skapa nýjan grunn til framfara. Á árinu 2007 hefur margt gengið vel, fjárfestingar hafa verið miklar, fyrirtækin hafa viljað ráða til sín starfsfólk, kaupmáttur hefur vaxið og atvinnuleysi hefur ekkert verið. Ekki hefur tekist jafn vel til í baráttunni gegn verðbólgunni, fyrst og fremst vegna verðhækkunar íbúðarhúsnæðis og mikilla launahækkana sem voru rúmlega þrefalt meiri en á evrusvæðinu. Vaxtatæki Seðlabankans hefur reynst bitlaust þrátt fyrir ótæpilegar vaxtahækkanir. Fyrirtæki í alþjóðlegri samkeppni hafa þurft að búa við erfið rekstrarskilyrði vegna hás gengis krónunnar.
Komið er að endurnýjun kjarasamninga og niðurstaðan ræður miklu um þróun verðbólgu á næsta ári. Þess vegna hafa
Mikil óvissa er um framvindu efnahagslífsins á næsta ári. Fjármálageirinn sem leitt hefur uppganginn í atvinnulífinu hefur orðið fyrir barðinu á samdrætti á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Búast má við því að það hægi smám saman á atvinnulífinu á fyrri hluta ársins og vonandi verður botninum þá náð og nýtt uppgangstímabil hafið. Hjöðnun verðbólgu er lykilatriði til þess að minnka óvissu, stytta og draga úr hugsanlegum samdrætti og koma atvinnulífinu aftur á fulla ferð. Hjöðnun verðbólgu hlýtur því að vera forgangsmál fyrir









