Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

6.12.2007

Mennt slitið

Á aðalfundi Menntar 27. nóvember var ákveðið að slíta félaginu. Fyrir rúmu ári var staða og hlutverk félagsins endurmetin og gerð úttekt á starfsemi og fjármálum þess. Niðurstaða þeirrar úttektar var lögð fyrir framhaldsaðalfund í janúar s.l. Þar var lagt til að Mennt skyldi vera áfram til í breyttri mynd, rekstur skorinn niður og haldnir yrðu tveir félagsfundir á ári. Formlegum rekstri skrifstofu skyldi hætt á miðju ári og verkefnum komið fyrir annars staðar. Þetta gekk ekki eftir sem skyldi. Ákvað aðalfundur því nú að leggja Mennt alfarið niður og fól stjórn að ganga frá lausum endum og slíta félaginu formlega  á fyrri hluta næsta árs.

 

Mennt var samstarfsvettvangur atvinnulífs og skóla og varð níu ára í haust.  Meginhlutverk var að annast söfnun og miðlun upplýsinga, halda utan um tiltekin Evrópuverkefni auk þess að vera vettvangur umræðna. Félagsaðilar skiptu tugum og voru m.a. aðilar vinnumarkaðarins, háskólar, framhaldsskólar og nokkur félög og stofnanir.


Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english