Fréttir
26.11.2007
SA auglýsa eftir verkefnastjóra Evrópumála
Starfssvið:
-
Fylgja eftir hagsmunamálum atvinnulífsins í tengslum við þær breytingar sem á hverjum tíma er verið að vinna að á Evrópulöggjöfinni
-
Hafa tengsl við áhrifavalda í Brussel og þekkja vel til starfshátta framkvæmdastjórnar ESB, Evrópuþingsins, Eftirlitsstofnunar EFTA og EFTA
-
Viðhalda tengslaneti innan stjórnkerfisins hér á landi, aðildarsamtaka SA, einstakra fyrirtækja og víðar
-
Vera íslenskum fyrirtækjum innan handar í Brüssel og sinna öðrum tilfallandi verkefnum
Umsóknarfrestur er til og með 9. desember.
Áhugasamir hafi samband við Capacent Ráðningar.
Sjá nánar á vef Capacent þar sem hægt er að sækja um starfið









