Fréttir
19.11.2007
Skattpíndir Svíar flykkjast til Danmerkur
Umferð um Eyrarsundsbrúnna milli Svíþjóðar og Danmerkur hefur aukist um nærri 30% á þessu ári og er búist við því að umferðin muni aukast enn frekar á næsta ári. Ástæðan er einföld og hefur lítið að

Hærri laun og lægri tekjuskattur lokka Svía yfir Eyrarsundsbrúnna
Umdeilt fyrirkomulag
Fjallað er um málið á vef sænsku samtaka atvinnulífsins en þar kemur fram að umfang skattalækkana Dana um áramótin nemi um 12 milljörðum sænskra króna og eru margir sænskir launamenn staðráðnir í að njóta þessara lækkana. Svíar sem búa á Skáni en vinna í Danmörku greiða skatta sína í Danmörku og finnst sumum Svíum það umdeilanlegt. Áætlað er að skattalækkunin muni skapa um 7.300 ný störf í Danmörku.
Skattarnir stýra umferðinni
Ljóst er að skattabreytingar Dana munu hafa áhrif í Svíþjóð en atvinnurekendur á Skáni sjá fram á að þurfa að hækka laun til að mæta samkeppninni frá vinnumarkaðnum í Kaupmannahöfn.. Samkeppnisstaða þeirra versnar verulega um áramótin og jafnvel er búist við því að sum fyrirtæki þurfi að hætta rekstri. Veitingahúseigandi í Malmö segist









