Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

29.10.2007

Innleiðing tilskipunar um raftækja- og rafeindatækjaúrgang

Miðvikudaginn 7. nóvember verður haldinn upplýsingafundur í Húsi atvinnulífsins um innleiðingu tilskipunar Evrópusambandsins um raftækja- og rafeindatækjaúrgang. Í tilskipuninni er gert ráð fyrir að framleiðendur og innflytjendur raftækja og rafeindatækja beri ábyrgð á og greiði fyrir söfnun og förgun úrsérgenginna raftækja og rafeindatækja.

 

Nefnd sem undirbjó lagasetningu hefur nú skilað tillögum sínum til umhverfisráðherra. Á fundinum verður gerð grein fyrir tillögum nefndarinnar sem meðal annars felast í því að framleiðendur og innflytjendur skuli eiga aðild að skilakerfi sem tekur að sér ábyrgð þeirra á úrganginum. Kristín Linda Árnadóttir, formaður nefndarinnar og fulltrúi umhverfisráðherra og Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá SA, munu kynna tillögurnar og svara fyrirspurnum. Fundarstjóri er Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri FÍS.

 

Félag íslenskra stórkaupmanna, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu boða til fundarins, en hann fer fram í Húsi atvinnulífsins - Borgartúni 35 - á 6. hæð kl. 8:30 – 10:00.

 

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku með því að smella hér

 

Dagskrá fundarins (PDF)


Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english