Fréttir
26.10.2007
Samningsmarkmið Íslands vegna viðræðna um loftslagsmál
Í september síðastliðnum var greint frá því að skipaður hafi verið starfshópur ráðherra til að móta samningsmarkmið Íslands í væntanlegum viðræðum um samkomulag um loftslagsmál eftir 2012.
Atvinnugreinum verði sett ákveðin mörk
Mikilvægt er að íslensk stjórnvöld styðji við þær hugmyndir og tillögur sem komið hafa fram í alþjóðaviðræðum um loftslagsmál að tilteknum atvinnugreinum (stálframleiðsla, sementsiðnaður, álframleiðsla) séu sett ákveðin mörk um útstreymi sem þeim beri að fara eftir hvar sem er í heiminum („Sectoral Approach”) svo að alþjóðlegt samkomulag verði ekki til þess að framleiðsla flytjist til þeirra landa þar sem litlar kröfur eru gerðar um takmörkun útstreymis.
Á það er minnt að þau rök sem lágu að baki samþykkt 14/CP.7 við Kyoto-bókunina eru enn í fullu gildi. Það er loftslagsvænt að nýtt sé endurnýjanleg orka við framleiðslu tiltekinna afurða í stað jarðefnaeldsneytis. Það er rökrétt að áfram verði til alþjóðlegur pottur útstreymisheimilda sem ríki geta sótt í uppfylli tiltekin verkefni þau skilyrði sem sett eru á svipaðan hátt og í ofangreindri samþykkt. Í því felast ekki undanþágur til einstakra ríkja heldur að ríki heims séu sammála um að beita þeim aðferðum sem tiltækar eru gegn loftslagsvandanum og að smæð einstakra hagkerfa sé ekki Þrándur í Götu á þeirri vegferð.
Tekið verði mið af sérstöðu Íslands
Ríkisstjórnin hefur mótað þá stefnu að dregið verði úr nettóútstreymi hér á landi um 50-75% til ársins 2050. Mikilvægt er að hafa í huga þegar sett eru markmið til skemmri tíma að samsetning útstreymis hér á landi er með allt öðrum hætti en í nálægum löndum þar sem stór hluti stafar af brennslu kola, olíu og jarðgass í orkuverum. Því er mikilvægt að fyrir liggi nákvæm úttekt á möguleikum atvinnulífs hér á landi til að draga útstreymi áður en sett verða tölusett markmið til skemmri tíma en ársins 2050.
Ítarefni: Pistlar SA um loftslagsmál











