Fréttir
20.4.2007
Er einkaframkvæmd framtíðin á Íslandi?
Ráðstefna um einkaframkvæmd á Íslandi verður haldin á vegum Rannsóknarmiðstöðvar um einkaframkvæmd við Háskólann í Reykjavík mánudaginn 23. apríl kl. 15.30 – 18.15. Markmið með ráðstefnunni er að vekja athygli á möguleikum einkaframkvæmdar á Íslandi til næstu framtíðar og kynna hugmynd að framtíðarsýn. Ráðstefnan er vettvangur umræðna um tækifærin á Íslandi, hvað vel hefur tekist erlendis, víti að varast og lykilatriði til árangurs. SA eru meðal samstarfsaðila ráðstefnunnar.
15.15 - 15.30 Skráning
15.30 - 15.40 Opnun og kynning
15.40 - 15.50 Árni Mathiesen, fjármálaráðherra: Einkaframkvæmd á Íslandi í næstu framtíð
15.50 - 16.10 Davíð Þorláksson, lögfræðingur: Opinberar fasteignir - Umfangsmesta einkavæðingin?
16.10 - 16.30 KPMG í UK kynnir skýrslu um árangur einkaframkvæmdar í UK 1997-2005
16.30 – 16.50 Kaffihlé
16.50 – 17.10 Einkaframkvæmd í heilbrigðismálum – Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Inpro
17.10 – 17.30 Einkaframkvæmd í menntamálum – Margrét Pála Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunar
17.30 – 17.50 Einkaframkvæmd í samgöngumálum – Halldór Benjamín Þorbergsson, hagfræðingur.
17.50 – 18.15 Panel-umræður
18:15 – 18:45 Léttar veitingar
Ráðstefnan er öllum opin. Aðgangur er ókeypis. Fundarstjóri er Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Skráning er hjá Háskólanum í Reykjavík í síma 599-6200 og á netfanginu skraning@ru.is.
Samstarfsaðilar: Háskólinn í Reykjavík, Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð, KPMG, Glitnir, Þyrping, Nýsir, ÍAV, Seltjarnarnesbær, Baugur, Sjóvá og Milestone.









