Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

27.1.2006

Góð störf og mikill stöðugleiki í starfsmannahaldi

Góð og vel launuð störf og mikill stöðugleiki í starfsmannahaldi er meðal þess sem Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, fjallaði um í erindi sínu á Orkulindinni Ísland – ráðstefnu SA, SI og Samorku um gildi ál- og orkuframleiðslu. Meðalstarfsaldur hjá Alcan er þannig með því lengsta sem gerist, eða yfir 15 ár í árslok 2005. Veltuhraði starsfsmanna þar er einnig með því lægsta sem þekkist, eða 3,5 – 4% í áliðnaði árið 2004. Í samanburði er meðaltalið meðal félagsmanna ASÍ yfir 30%. Gylfi sýndi einnig hvernig regluleg mánaðarlaun verkafólks og iðnaðarmanna í álverum eru mun hærri en meðaltalið meðal þessara hópa á landsvísu. Þá sagði Gylfi álver vissulega vera hættulega vinnustaði en sagði mikinn skilning og öryggisvitund til staðar meðal starfsmanna og stjórnenda þessara fyrirtækja, sem væru frumkvöðlar og í fararbroddi í öryggis- og aðbúnaðarmálum. Slysatíðni hefði þannig verið nokkur en farið mjög ört lækkandi og mjög lítið um alvarleg slys.

 

Sjá glærur Gylfa Arnbjörnssonar.


Atvinna fyrir alla - smelltu til að sækja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english