Fréttir
28.9.2004
Ábyrgt atvinnulíf
Grein Ara Edwald, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, í Morgunblaðinu þriðjudaginn 28. september 2004:
Ábyrgt atvinnulíf
Viðskiptablað Morgunblaðsins birti nýlega viðtal við Michael Treschow, formann sænsku samtaka atvinnulífsins. Í kjölfarið hefur leiðarahöfundur blaðsins vitnað til orða Treschows um skaðsemi hringamyndunar í sænsku viðskiptalífi og hefur blaðið hvatt
Tillögur SA
Undanfarin ár hafa SA lagt mikla vinnu í skýrslugerð og vandaðar tillögur um hvernig bæta megi samkeppnislögin og
Að efla traust til atvinnulífsins
Í öðrum hluta fyrrnefnds viðtals Morgunblaðsins við Treschow, þar sem rætt er um reglusmíð um stjórnarhætti fyrirtækja og ákvarðanatöku um laun æðstu stjórnenda, segist Treschow vona að aðallega verði um það að ræða að viðskiptalífið sjái sjálft um að setja sér reglur fremur en að hlutirnir verði settir í lög. Hér á landi hafa SA, ásamt með Verslunarráði Íslands og Kauphöll Íslands, kynnt leiðbeiningar um starfshætti fyrirtækja, m.a. með það að markmiði að tryggja traust á fyrirtækjum og atvinnurekstri almennt. Í viðtalinu við Treschow er jafnframt fjallað um svokallaða „trausts-ráðstefnu“ sænsku samtaka atvinnulífsins fyrr á þessu ári. Erlendur gestur aðalfundar SA í maí síðastliðnum var einmitt Göran Trogen, framkvæmdastjóri hjá sænsku samtökum atvinnulífsins, sem hafði veg og vanda af umræddri ráðstefnu. SA buðu Trogen hingað til þess að fræðast um viðamikið starf sænsku samtakanna við að efla traust almennings á atvinnulífinu, í því skyni að hægt væri að draga lærdóm af því hér. Í samtölum Treschows við forystumenn SA hefur hann lagt áherslu á að viðskiptalífið sýni frumkvæði í þessum efnum, til að koma í veg fyrir óþarfa lagasetningu. Enda séu reglur viðskiptalífsins líklegri til að geta tekið sveigjanlegt tillit til mismunandi aðstæðna í stórum og smáum fyrirtækjum, skráðum fyrirtækjum og fjölskyldurekstri. Ýmis atriði sem snúa að stjórnarháttum fyrirtækja eiga heima í lögum. Það verður þó að segjast eins og er að SA telja fram komnar tillögur um lögfestingu stjórnarhátta ganga fulllangt um sum atriði og ekki síður að þær nái til of smárra fyrirtækja, sem rekin eru sem einkahlutafélög.
Áherslur í Svíþjóð
Auðvelt er að nálgast áherslur sænsku samtaka atvinnulífsins í samkeppnismálunum á vef samtakanna, www.svensktnaringsliv.se en þar er m.a. að finna bæklinginn Karteller, konkurrenslag, EU-regler. Þar er sænska hugtakið „kartell“, sem hér á landi virðist í blaðaumræðu hafa verið þýtt sem „hringamyndun“, skilgreint sem ólögmætt samkomulag um verð, tilboðsgerð og markaðsskiptingu. Í inngangi er bent á að samkeppni þrífist best á markaði með eins fáum tilbúnum hindrunum og mögulegt er. Sænsku samtök atvinnulífsins telji því mikilvægt að standa vörð gegn ónauðsynlegum reglum. Ekki megi heldur leyfa fyrirtækjunum að hindra samkeppni. Samkeppnisreglurnar eigi að vera skarpar og eftirlitið skilvirkt, en ekki að stýra því í smáatriðum hvað fyrirtækin aðhafast. Ólögmætt samráð og uppskipting markaðar „karteller” sé óverjandi. Þar eigi að sporna fast við fótum. Samtökin styðji því viðleitni til þess. Samhliða benda sænsku samtök atvinnulífsins á að ekki sé bannað að fyrirtæki séu markaðsráðandi. Það sem er bannað sé að misnota þá aðstöðu. Samkeppnishæf og vaxandi fyrirtæki hafi a
Að lokum skal það fullyrt að áherslur SA í umfjöllun sinni um samkeppnismál og stjórnarhætti fyrirtækja hafa í öllum megindráttum verið þær nákvæmlega sömu og systursamtaka SA í Svíþjóð. Það er sömuleiðis að sjálfsögðu markmið SA að vinna með stjórnvöldum að jákvæðri þróun mála á þessu sviði, þótt meiningar geti á stundum verið mismunandi um hvaða leiðir eru heppilegastar. Með því hugarfari taka SA þátt í skoðanaskiptum um útfærslu þeirra tillagna sem nú liggja fyrir.









