Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

4.3.2004

Félagafrelsi starfsmanna og dómsvald Félagsdóms

Nýlegur dómur Hćstaréttar vekur upp ađkallandi spurningar um félagafrelsi starfsmanna og ekki síđur um dómsvald Félagsdóms, sem er sérdómstóll í málum um túlkun og gildi kjarasamninga og laga um stéttarfélög og vinnudeilur, en dómum hans verđur ekki áfrýjađ.

 

Forgangsréttarákvćđi kjarasamninga

Deilan snerist um ţađ hvađa réttur fćlist í hinum svokölluđu forgangsréttarákvćđum kjarasamninga eđa nánar tiltekiđ hvort forgangsrétturinn ćtti viđ um uppsagnir starfsmanna. Forgangsréttarákvćđi eru í flestum kjarasamningum á almennum vinnumarkađi og veita ţau félagsmönnum viđkomandi stéttarfélags forgang til starfa ef félagsmenn bjóđast. Á síđari árum hefur veriđ gerđur greinarmunur á ţess konar  forgangsrétti til starfa og skyldu til ađildar ađ félagi sem sumir kjarasamningar kváđu á um. Viđ stjórnarskrár-breytinguna 1995 var tekiđ upp í 2. mgr. 74. gr. stjórnarskrár ákvćđi um ađ engan megi skylda til ađildar ađ félagi. Síđan hefur veriđ litiđ svo á ađ óheimilt vćri ađ semja um ađildarskyldu ađ stéttarfélagi. ASÍ breytti í kjölfariđ samţykktum sínum ţví til samrćmis.

 

Túlkun Félagsdóms

Meiri óvissa hefur veriđ um forgangsréttarákvćđin vegna ţeirra ummćla í nefndaráliti stjórnskipunarnefndar ađ ţau leiđi ekki af sér óheimila félagsskyldu. Međ vísan til ţessa og Félagsdóms frá 1965 var ţađ niđurstađa Félagsdóms ađ forgangsréttarákvćđi kjarasamninga nái ekki tilgangi sínum séu ţau takmörkuđ ţannig ađ félagsmenn stéttarfélagsins sitji ekki fyrir um vinnu ţegar fćkka ţarf starfsmönnum. Ţví var jafnframt hafnađ ađ skýra bćri forgangsréttarákvćđiđ í samrćmi viđ ákvćđi stjórnarskrár. Samkvćmt dómi Félagsdóms braut fyrirtćkiđ gegn forgangsréttarákvćđi kjarasamningsins međ ţví ađ segja félagsmönnum viđkomandi stéttarfélags upp starfi og hafa á sama tíma í störfum félagsmenn í félagi sem ekki hafđi samiđ um forgangsrétt félagsmanna sinna til viđkomandi starfa. 

 

Sýknudómur hérađsdóms

Í framhaldi af dómi Félagsdóms höfđuđu starfsmennirnir mál til heimtu skađabóta vegna uppsagnanna fyrir almennum dómstólum. Fyrirtćkiđ var sýknađ af bótakröfunni í hérađsdómi međ vísan til félagafrelsisákvćđis stjórnarskrár. Taldi dómurinn ađ ţótt ákvćđi í kjarasamningum um forgangsrétt til starfa yrđu almennt ekki talin brjóta í bága viđ félagafrelsisákvćđi stjórnarskrár verđi ađ beita slíku ákvćđi af varfćrni ţegar lýstur saman hagsmunum félagsmanna í stéttarfélagi sem gert hefur slíkan samning og samstarfsmanna ţeirra sem ekki heyra undir samninginn. Bent er á ađ félagsmenn í öđrum stéttarfélögum eđa einstaklingar utan félaga geti veriđ ráđnir ef enginn félagsmađur sćkir um starfiđ og ađ slík ráđning ţurfi ekki ađ brjóta gegn forgangsréttarákvćđinu. Taldi dómurinn ţađ ađ láta félagsađild skipta sköpum viđ uppsagnir fela í sér svo alvarlega íhlutun í frelsi manna til ađ velja sér stéttarfélag eđa vera utan ţeirra ađ jafngilti ţvingun til ađildar ađ félagi.

 

Hćstiréttur er bundinn af niđurstöđu  Félagsdóms 

Dómi hérađsdóms var snúiđ viđ í Hćstarétti og fyrirtćkiđ dćmt til ađ greiđa starfsmönnunum bćtur vegna uppsagnanna á grundvelli dóms Félagsdóms. Vísar Hćstiréttur til ţess ađ dómar Félagsdóms séu lögum samkvćmt endanlegir og verđi ekki áfrýjađ. Hćstiréttur taldi dóminn ţví ekki bćran til ađ fjalla efnislega um máliđ. Félagsdómur á ţannig endanlegt úrskurđarvald um túlkun á félagafrelsisákvćđum stjórnarskrár ţegar meta ţarf áhrif ţeirra á efni kjarasamninga. Niđurstađa í slíkum málum verđur ekki endurskođuđ á ćđra dómstigi. Draga verđur í efa ađ slík skipan sé réttlćtanleg ţegar um er ađ rćđa mál sem ekki krefjast skjótrar úrlausnar og varđa mikilsverđa hagsmuni, eđa í ţeim tilvikum ađ önnur löggjöf en lög um stéttarfélög og vinnudeilur kann ađ hafa afgerandi áhrif á niđurstöđu máls. Í ţeim tilvikum verđur heldur ekki séđ ađ röksemdir um sérţekkingu Félagsdóms eigi viđ. Styrkur Félagsdóms er á hinn bóginn ađ ţar má fá skjóta úrlausn ţegar niđurstađa ţolir ekki biđ og mikil verđmćti eru í húfi, svo sem í deilum um lögmćti verkfalla.

 

Ţörf á endurskođun laga um Félagsdóm

Félagsdómur hefur starfađ međ svipuđum hćtti frá stofnun dómsins 1938 og skilađ góđu starfi. Ţjóđfélagshćttir hafa gjörbreyst á ţessum tíma, ađstćđur á vinnumarkađi orđiđ margbreytilegri og međferđ mála fyrir dómstólum breyst, t.d. međ möguleikanum á flýtimeđferđ. Ţađ er jafnframt viđurkennd meginregla ađ menn skuli eiga kost á ađ fá dóma endur-skođađa á ćđra dómstigi, a.m.k. ţegar um mikilsverđa hagsmuni er ađ rćđa. Ţađ er óviđunandi ađ niđurstöđur dómsins í mikilvćgum málum sem hafa almennt gildi, eins og á viđ í ţví máli sem hér er til umfjöllunar, fáist ekki endurskođađar. SA telja ţví brýnt ađ ráđist verđi í ađ endurskođa lög um Félagsdóm.

 

Er félagafrelsi starfsmanna ţá orđin tóm?

Ekki er óalgengt ađ starfsmenn séu ekki allir í sama félagi. Samningssviđ stéttarfélaga skarast í auknum mćli án ţess ađ mörkin séu alltaf ljós. Hvernig á ţá međ ađ fara ef fćkka ţarf starfsmönnum? Hvađ ef félagsbundinn mađur krefst starfs hjá fyrirtćki á grundvelli forgangs umfram ţá sem ţegar eru í starfi? Vinnuveitandinn á á hćttu ađ verđa bótaskyldur virđi hann ekki forgangsréttarákvćđiđ og láti ţá víkja sem hvorki eru í viđkomandi félagi né njóta hliđstćđs forgangsréttar. Hann á ekki annan kost en ađ láta ţessa starfsmenn fara eđa ýta ţeim inn í félagiđ og gerast ţar međ sekur um ađ ţvinga starfsmenn til ađildar ađ félagi og jafnvel orđiđ bótaskyldur. Í ţví felst félagafrelsiđ. Ţessi mál verđa ekki skýrđ í bráđ nema eitthvađ verđi ađ gert. Hjálpin kemur ţó hugsanlega ađ utan ţar sem nefnd Evrópuráđsins sem hefur eftirlit međ framkvćmd Félagsmálasáttmála Evrópu hefur ítrekađ gagnrýnt forgangsréttarákvćđi kjarasamninga og taliđ ţau brjóta gegn sáttmálanum.

 

Hrafnhildur Stefánsdóttir


Atvinna fyrir alla - smelltu til ađ sćkja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english