Fréttir
30.3.2010
Atvinnuleysiš mį ekki festast ķ sessi
Ef hagvöxtur á Íslandi verður aðeins 1-2% á næstu árum verður hér viðvarandi 7-8% atvinnuleysi. „Það er ástand sem við höfum ekki kynnst á Íslandi og við hjá Samtökum atvinnulífsins viljum ekki sjá. Við munum berjast gegn því af fullum krafti." Þetta segir Grímur Sæmundsen, varaformaður SA. Hann bendir á að 5% árlegan hagvöxt þurfi næstu fimm árin til að hægt sé að vinna bug á atvinnuleysinu og skapa ný störf fyrir þá sem eru að koma út á vinnumarkaðinn.
29.3.2010
Yfir 15.000 įn atvinnu og žvķ veršur aš breyta
Yfir 15.000 Íslendingar eru án atvinnu og um 1.500 til viðbótar á atvinnuleysisskrá að hluta. Þá hefur stór hópur fólks orðið að minnka við sig vinnu og horfast í augu við lægri tekjur. Samtök atvinnulífsins telja þetta óviðunandi og vilja bregðast við, rjúfa kyrrstöðuna sem ríkir í efnahags- og atvinnulífi þjóðarinnar og hefja uppbyggingu af krafti. Ef fylgt væri öflugri atvinnustefnu gæti kreppunni lokið á þessu ári.
27.3.2010
Traustiš er brostiš
„Samtök atvinnulífsins harma þá stöðu sem upp er komin. Mikið var reynt til að halda lífi í stöðugleikasáttmálanum en þegar stjórnarmeirihlutinn greip til beinna aðgerða gegn honum var traustið endanlega farið og sáttmálinn þar með að því er Samtök atvinnulífsins varðar." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í niðurlagi greinar sem birtist í Morgunblaðinu í dag.
25.3.2010
Kosning formanns SA er hafin
Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins er hafin meðal aðildarfyrirtækja samtakanna. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður. Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Félagsmenn Samtaka atvinnulífsins hafa fengið send lykilorð í pósti til að taka þátt í kosningunni.
25.3.2010
Atvinnuleysiš veršur aš minnka og hagur fólks aš batna
Samtök atvinnulífsins leggja höfuðáherslu á það að kyrrstaðan í íslensku atvinnu- og efnahagslífi verði rofin. „Málið snýst um það í grundvallaratriðum að á þessu ári gætum við verið að komast upp úr kreppunni. Við ættum ekki að þurfa að upplifa samdrátt á þessu ári. Við ættum að geta séð atvinnuleysið fara að minnka og hag okkar fara að batna og það er það sem við viljum sjá." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
25.3.2010
Formašur SA: Kornin ķ męlinum
Ummæli í leiðara Fréttablaðsins þann 24. mars um "afleik" og "upphlaup" SA vegna þess að ríkisstjórnin vísaði Samtökum atvinnulífsins frá stöðugleikasáttmálanum eru úr lausu lofti gripin. Önnur ummæli á borð við að verið sé að beygja sig undir "áhrifavald hagsmunaaðila í sjávarútvegi" og að verið sé að "hrópa ábyrgðarlaust á vanhugsuð úrræði" eru órökstudd því ákvörðun SA á sér langan aðdraganda og byggir á heildstæðu mati samtakanna á samstarfinu við ríkisstjórnina og árangur þess. Það hefur skort verulega á að stjórnvöld hafi gert það sem í þeirra valdi stendur til þess að stuðla að atvinnuuppbyggingu en Samtök atvinnulífsins hafa lagt sig fram um að standa við það sem um hefur verið samið og í raun sýnt ótrúlega biðlund vegna seinagangs ríkisstjórnarinnar.
24.3.2010
Formašur SA segir kyrrstöšuna óžolandi
Kyrrstaðan í atvinnu- og efnahagslífi þjóðarinnar að undanförnu er óþolandi að mati formanns SA, Vilmundar Jósefssonar. Í samtali við fréttastofu RÚV segir hann ótal mörg atriði hafa orðið til þess að þolinmæði SA brast gagnvart stöðugleikasáttmálanum og samstarfi við stjórnvöld undir merkjum hans. Verklegar framkvæmdir hafi dregist úr hömlu, lífeyrissjóðirnir séu ekki farnir að fjárfesta eina einustu krónu til framkvæmda og 15 þúsund manns séu atvinnulausir. Það sé ólíðandi.
24.3.2010
Įlyktun ašalfundar SAF 2010
„Í þeirri stöðu sem þjóðfélagið er í á að lækka skatta en ekki hækka. Þannig eykst eftirspurn og störfum fjölgar." Þetta segir m.a. í ályktun aðalfundar Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) sem fram fór í gær. Í henni kemur einnig fram að brýnast sé að allt atvinnulífið fái að búa við vexti sem eru samkeppnishæfir við önnur lönd, öfluga þjónustu fjármálastofnana og afnám gjaldeyrishafta.
23.3.2010
Korniš sem fyllti męlinn - Stöšugleikasįttmįlanum slitiš
Á fundi stjórnar SA í gær var samþykkt samhljóða að ríkisstjórnin hafi bæði með aðgerðum sínum og aðgerðaleysi á þeim níu mánuðum sem liðnir eru frá undirritun stöðugleikasáttmálans vísað SA frá sáttmálanum. Verulegur brestur hafi orðið af hálfu ríkisstjórnarinnar við efndir fyrirheita sáttmálans. Skattar hafi verið hækkaðir umfram það sem gert var ráð fyrir og ýmsar aðgerðir til að stuðla að aukinni atvinnu hafi ekki gengið eftir.
22.3.2010
Erfišar įkvaršanir bķša ķ rķkisfjįrmįlunum
Skattar hafa nú þegar verið hækkaðir of mikið miðað við það sem samið var um í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaganna og ríkisstjórnarinnar. Það bíða því erfiðar ákvarðanir í ríkisfjármálunum þar sem óumflýjanlegt er að skera niður útgjöld til að rétta af halla ríkissjóðs. Þetta kom m.a. fram í spjalli við Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni um skattahækkanir og áhrif þeirra.
18.3.2010
Gögn frį fundi SA um heilbrigšismįl
Hátt í 200 manns sóttu fund SA um heilbrigðismál sem fram fór í morgun á Hótel Nordica auk þess sem fulltrúar heilbrigðisstofnana víða um landið fylgdust með fundinum í beinni útsendingu. Yfirskrift fundarins var Hvernig fáum við það besta úr heilbrigðiskerfinu? Boðað var til fundarins í samráði við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Reykjavíkur, Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands. Kynningar frummælenda má nú nálgast á vef SA.
17.3.2010
Lękkun stżrivaxta ķ 9% lķtiš skref ķ rétta įtt
Seðlabanki Íslands tilkynnti í dag um lækkun stýrivaxta um hálft prósentustig í 9,0%. Fréttastofa RÚV leitaði viðbragða hjá Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra SA: „Þetta er lítið skref í rétta átt en betur má ef duga skal." Vilhjálmur segir fjármagnskostnað íslenskra fyrirtækja allt of háan. Fjárfestingar þeirra séu í algjöru lágmarki en með því að koma þeim af stað sé hægt að koma Íslandi út úr kreppunni og auka atvinnu í landinu.
16.3.2010
Hvernig fįum viš žaš besta śt śr heilbrigšiskerfinu?
Samtök atvinnulífsins efna til fundar um heilbrigðismál og skipulag heilbrigðiskerfisins, fimmtudaginn 18. mars, á Hótel Nordica í samráði við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Reykjavíkur, Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands. Yfirskrift fundarins er Hvernig fáum við það besta út úr heilbrigðiskerfinu?
15.3.2010
Upptaka af stórfundi SA um atvinnumįl komin į vefinn
Sjónvarpsupptaka af fundi SA um stöðu atvinnumála og horfurnar framundan er komin á vefinn. Um 300 stjórnendur úr íslensku atvinnulífi, stjórnmálamenn, fulltrúar sveitarfélaga, ríkisstofnana og verkalýðshreyfingar, mættu til fundarins sem fram fór á Hótel Nordica föstudaginn 12. mars. Þar var m.a. rætt um til hvaða aðgerða hægt er að grípa til að koma Íslandi af stað og rjúfa þá kyrrstöðu sem nú einkennir atvinnulífið.
15.3.2010
Ašalfundur SVŽ 2010: Spilum saman
Aðalfundur SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu fór fram fimmtudaginn 11. mars undir yfirskriftinni Spilum saman. Fundurinn markaði upphaf Viku verslunar og þjónustu sem nú stendur yfir en markmiðið með henni er að vekja athygli á mikilvægi verslunar og þjónustu, atvinnugreinar þar sem um fjórði hver Íslendingur starfar. Jafnframt að hvetja Íslendinga á jákvæðan og ábyrgan hátt til að „spila með" og taka þátt í að snúa hjólum atvinnulífsins með því að eiga viðskipti við verslunar- og þjónustufyrirtæki. Margrét Kristmannsdóttir var endurkjörinn formaður SVÞ en hún gagnrýndi í ræðu sinni bæði stjórn og stjórnarandstöðu harðlega fyrir framtaksleysi.
12.3.2010
Gögn frį fundi SA um atvinnumįl
Um 300 stjórnendur úr íslensku atvinnulífi, stjórnmálamenn, fulltrúar sveitarfélaga, ríkisstofnana og verkalýðshreyfingar, mættu til fundar SA í morgun á Hótel Nordica til að ræða stöðu atvinnumála, horfurnar framundan og til hvaða aðgerða sé hægt að grípa til að koma Íslandi af stað og rjúfa þá kyrrstöðu sem nú einkennir atvinnulífið. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, setti fundinn og sagði þolinmæði fólks og fyrirtækja á þrotum. Tími væri fyrir ríkisstjórnina að láta nú verkin tala en dráttur hafi orðið á úrlausn margra mála.
11.3.2010
Atvinna fyrir alla - ašgeršaįętlun 2010
„Samtök atvinnulífsins hafa sett fram markmið um að þjóðin hafi endurheimt fyrra atvinnustig og lífskjör á árinu 2015. Þetta er hægt með því að setja atvinnusköpun í forgang, sérstaklega með fjárfestingum og vexti í útflutningsgreinum. Núverandi spár gera ráð fyrir 2% árlegum hagvexti en það er of lítið til þess að nógu mörg störf skapist til að það dragi úr atvinnuleysinu. Náist 3,5% hagvöxtur á næstu árum er árangur samt ekki nægur til að eyða atvinnuleysi. Það þarf að setja djarfari hagvaxtarmarkmið og stilla saman strengi til þess að ná þeim. Um 5% árlegan hagvöxt þarf til." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara nýs fréttabréfs samtakanna.
11.3.2010
Mikiš traust til ķslenskra fyrirtękja
Íslendingar eru mjög jákvæðir í garð íslenskra fyrirtækja og traust þeirra til eigin vinnuveitanda skorar einna hæst í árlegum mælingum Capacent Gallup á trausti til stofnana og embætta. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir SA. Nærri 88% eru jákvæð gagnvart sínum vinnustað - aðeins rúm 4% neikvæð. Þá bera yfir 81% Íslendinga mikið traust til síns vinnuveitanda en aðeins tæp 7% bera til hans lítið traust.
11.3.2010
Taktu mynd af žinni veršmętu sköpun og sendu SA
Á hverjum virkum degi eru sköpuð verðmæti á Íslandi fyrir um sex milljarða króna. Fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins gegna mikilvægu hlutverki í þeirri sköpun en innan raða SA eru um 2.000 fyrirtæki þar sem starfar um helmingur launamanna á Íslandi. Í tilefni aðalfundar SA 2010 viljum við festa verðmætasköpun atvinnulífsins á mynd og sýna úr hverju stoðir íslensks atvinnulífs eru gerðar.
10.3.2010
Vöxtur og velferš forgangsmįl ķ Evrópu
Evrópusamtök atvinnulífsins, BUSINESSEUROPE, hafa nýverið sent frá sér stefnumörkun sem mælir með markvissum aðgerðum til að vinna Evrópu út úr þeirri djúpstæðu kreppu sem herjað hefur á flest ríki í álfunni á undanförnum tveimur árum. Stefnumörkunin er sett fram í hnitmiðaðri skýrslu þar sem greindar eru helstu áskoranir sem evrópskt atvinnulíf stendur frammi fyrir og mælt með skilvirkum lausnum til að snúa aftur á braut hagvaxtar og velferðar. Án kraftmikilla fyrirtækja sem skapa störf og verðmæti molnar fljótt undan velferðarkerfinu.
10.3.2010
Ašgangur aš erlendu lįnsfé verši tryggšur
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, hvetur þá sem koma að Icesave-verkefninu að nálgast það af ábyrgð og með alla hagsmuni í huga. Meta þurfi kostnaðinn sem hljótist á töfum á því að samið sé um Icesave en hann geti verið mikill. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
9.3.2010
Leitaš eftir samstöšu įbyrgra ašila um uppbyggingu atvinnulķfsins
Samtök atvinnulífsins telja að örlög íslensks atvinnu- og efnahagslífs séu fyrst og fremst í höndum Íslendinga sjálfra. Aðgerðir eða aðgerðaleysi ráði því hvernig til takist að komast út úr kreppunni í kjölfar bankahrunsins í október 2008. SA leita því eftir samstöðu með öllum ábyrgum aðilum sem hafa metnað fyrir hönd íslensku þjóðarinnar til þess að ná viðsnúningi strax þannig að endurheimta megi fulla atvinnu og fyrri lífskjör eigi síðar en á árinu 2015. Í ljósi alvarlegrar stöðu atvinnumála efna SA til opins fundar föstudaginn 12. mars um stöðuna og horfurnar framundan.
8.3.2010
Įlyktun ašalfundar SART - Samtaka rafverktaka
„Aðalfundur SART- Samtaka rafverktaka haldinn á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 5. mars 2010, ítrekar og mótmælir harðlega aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart heimilum og fyrirtækjum í landinu. Þá lýsir fundurinn vanþóknun sinni á framgöngu þeirra ráðherra og alþingismanna sem virðast hafa sett sér það eina markmið að setja fótinn fyrir fjárfestingar í virkjunum og stóriðju og hindra þannig framgang verklegra framkvæmda sem þjóðin kallar eftir. Aðalfundur SART skorar á þingmenn allra flokka að sameinast nú um heildarhagsmuni þjóðarinnar og láta verkin tala."
8.3.2010
Lķst illa į nżja lagasetningu um kynjakvóta
Á Íslandi hefur verið lögð áhersla á að tryggja rétt minnihluta í stjórnum fyrirtækja. Ný lög um kynjakvóta innan stjórna geta haft truflandi áhrif á þau markmið. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
5.3.2010
Naušsynlegt aš auka fjįrfestingar minni fyrirtękja og koma stórišjuframkvęmdum į skriš
Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir í samtali við Vísi að það séu vissulega gleðifréttir að landsframleiðslan hafi vaxið um 3,3% á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. „Nú er nauðsynlegt að viðhalda þessari þróun með fjárfestingum í minni og meðalstórum atvinnufyrirtækjum og stóriðjuframkvæmdum," segir Vilhjálmur.
5.3.2010
Vilhjįlmur, Steingrķmur, Gylfi og žś į fundi 12. mars
Samtök atvinnulífsins efna til opins morgunverðarfundar föstudaginn 12. mars til að ræða stöðu atvinnumála og horfurnar framundan. Fundurinn fer fram á Hótel Nordica kl. 8:30-10:00. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, kynnir nýja stefnumörkun samtakanna Atvinna fyrir alla - aðgerðaáætlun 2010 um uppbyggingu atvinnulífsins en auk hans flytja erindi Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Í kjölfarið fara fram umræður og fyrirspurnir.
5.3.2010
Įlyktun Išnžings 2010
„Hagsæld og velferð verður ekki tryggð á Íslandi án vaxtar og nýsköpunar. Vöxtinn þarf að sækja til atvinnustarfsemi sem skapar eins mikinn virðisauka og kostur er, greiðir góð laun og skapar þjóðarbúinu tekjur. Stóraukin skattheimta vinnur gegn þessum markmiðum." Þetta segir m.a. í ályktun Iðnþings Samtaka iðnaðarins sem fram fór fimmtudaginn 4. mars.
3.3.2010
Verklagsreglur um fjįrhagslega endurskipulagningu fyrirtękja
Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa unnið sameiginlegar verklagsreglur um úrlausn á skuldavanda fyrirtækja í samræmi við ákvæði laga nr. 107/2009, um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins. Þessar verklagsreglur hafa verið staðfestar af Fjármálaeftirlitinu (FME), með bréfi 2. mars 2010. Gerður er fyrirvari um að Samkeppniseftirlitið veiti undanþágu fyrir slíkum samræmdum reglum fjármálafyrirtækja á grunni 15. gr. samkeppnislaga. SFF eiga í samskiptum við Samkeppniseftirlitið hvað þann þátt varðar og vonast til að slík undanþága liggi fyrir fljótlega.
1.3.2010
Vilhjįlmur Egilsson į Sprengisandi
Rætt var við Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA, í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni á laugardag. Sigurjón M. Egilsson, stjórnandi þáttarins, ræddi við Vilhjálm um stöðu atvinnulífsins og horfurnar framundan ásamt því að fjalla um hvaða leiðir eru færar út úr kreppunni þannig að Íslendingar endurheimti lífskjör sín á næstu árum.
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010
Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------












