Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

29.12.2010

Algjört úrslitaatriđi ađ koma fjárfestingum í gang

Mikilvægasta verkefnið um þessar mundir er að koma fjárfestingum í atvinnulífinu í gang - það er raunar algjört úrslitaatriði. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, en rætt var við hann í morgunþætti Bylgjunnar um stöðuna í atvinnulífinu, takmarkaða bjartsýni stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins og hvort viðsnúningur í efnahagsmálunum sé á næsta leiti. Vilhjálmur segir fjárfestingarnar í raun svo litlar að mikil hætta sé á að þjóðin dragist verulega aftur úr í lífskjörum og samkeppnishæfni.

28.12.2010

Mikilvćgt ađ móta nýja peningastefnu

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir miklu skipta að móta nýja peningamálastefnu sem fyrst. Í samtali við Fréttablaðið í dag segir Vilhjálmur ánægjulegt að Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, vilji hafa forgöngu um að setja í gang umræðu um peningastefnuna. Augljóst hafi verið að framkvæmd hennar hafi ekki virkað þegar Seðlabanki Íslands hækkaði ítrekað vexti í aðdraganda hrunsins til að reyna að sporna við verðbólgu. Þá segir Vilhjálmur mikilvægt að aflétta gjaldeyrishöftunum sem fyrst til að opna fjármagnsmarkaði. Gengi krónunnar geti þá byggt á raunveruleikanum en ekki því gerviumhverfi sem höftin skapi.

28.12.2010

Ráđningaráform fyrirtćkja ekki uppörvandi

Í nýrri reglubundinni könnun Capacent meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins kemur fram að nær allir aðspurðra telja sig hafa nægt starfsfólk og einungis 5,5% búa við skort á starfsfólki. Ráðningaráform stjórnenda eru ekki uppörvandi þar sem 14% hyggjast fjölga starfsmönnum á næstu sex mánuðum, 26% hyggjast fækka en 60% halda óbreyttum fjölda. Þetta er heldur lakari niðurstaða en í síðustu könnunum. Mesta fjölgunin er áformuð í fjármála- og tryggingastarfsemi en mesta fækkunin í iðnaði og framleiðslu.

27.12.2010

Stjórnendur 400 stćrstu fyrirtćkjanna: Ađstćđur enn slćmar

Yfirgnæfandi hluti stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins telja aðstæður slæmar í atvinnulífinu. Þetta kemur  fram í reglubundinni könnun Capacent meðal fyrirtækjanna. Samkvæmt könnuninni, sem gerð var í desember 2010, telja 84% stjórnenda aðstæður slæmar, 15% að þær séu hvorki góðar né slæmar en nánast enginn að þær séu góðar. Þetta er svipuð niðurstaða og fengist hefur frá miðju ári 2008. Þeir örfáu stjórnendur sem telja aðstæður góðar starfa í sjávarútvegi og í iðnaði en í öðrum greinum telur enginn að aðstæður séu góðar.

21.12.2010

Samţćtting atvinnu og fjölskyldulífs gengur almennt vel

Nýleg könnun meðal félagsmanna Samtaka atvinnulífsins leiðir í ljós að samþætting atvinnu og fjölskyldulífs gengur almennt vel. Stjórnendur fyrirtækja innan SA voru annars vegar spurðir að því hvort þeir eða fyrirtæki þeirra hafi orðið varir við erfiðleika hjá starfsfólki vegna skipulags skólastarfs í leikskólum eða grunnskólum og hins vegar voru þeir spurðir að því hvort þeir eða fyrirtæki þeirra hafi orðið varir við erfiðleika hjá starfsfólki vegna umönnunar aldraðra foreldra.

17.12.2010

Gögn frá fundi um lausnir á skuldamálum fyrirtćkja

Á fjórða hundrað stjórnenda mættu á opinn upplýsingafund í morgun um nýtt samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Um víðtækt samkomulag er að ræða sem efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands standa að.

 

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, hvetur fyrirtæki til að snúa sér sem fyrst til síns viðskiptabanka til að skoða hvaða möguleikar standi þeim til boða og taka ákvarðanir í framhaldinu. Margir aðilar eru tilbúnir til að veita fyrirtækjunum hlutlausa þjónustu í þeirri vinnu sem framundan er og verða upplýsingar um þá birtar hér á vef SA.

16.12.2010

Formađur SA: Mikilvćg efnahagsleg ađgerđ

Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir nýtt samkomulag um leiðir við úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja mikilvæga efnahagslega aðgerð. Hann hvetur stjórnendur fyrirtækjanna til að snúa sér sem fyrst til bankanna til að skoða hvaða lausnir standi þeim til boða. Samkomulagið verður kynnt á opnum kynningarfundi á Grand Hótel Reykjavík í fyrramálið kl. 8:30 og stefnir í fjölmennan fund. Vel á annað hundrað stjórnenda hafa nú þegar skráð sig á fundinn en hægt er að skrá þátttöku hér á vef SA.

15.12.2010

Kynningarfundur á föstudag um nýtt samkomulag um úrvinnslu skuldamála fyrirtćkja

Nýtt víðtækt samkomulag um leiðir við úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja verður kynnt á opnum fundi á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 17. desember kl. 8:30-10:00. Að samkomulaginu standa efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands.

15.12.2010

Samkomulag um úrlausn á skuldavanda lítilla og međalstórra fyrirtćkja

Víðtækt samkomulag hefur náðst um leiðir við úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Að því standa efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands. Skrifað var undir samkomulagið í dag í Rúgbrauðsgerðinni. Samkomulagið verður kynnt á opnum fundi á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 17. desember kl. 8.30-10.00. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA.

13.12.2010

Húsfyllir á fundi SA um atvinnumál

Um 50 manns mættu til opins fundar Samtaka atvinnulífsins um atvinnumál sem fram fór að Mælifelli á Sauðárkróki síðastliðinn föstudag. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, ræddu m.a. um stöðu efnahagsmála, yfirstandandi kjaraviðræður og hvernig marka megi leiðina út úr kreppunni. Fjölbreyttur hópur fólks úr atvinnulífinu sótti fundinn en á honum kom skýrt fram að það sé algjört forgangsmál að skapa nýja sókn í atvinnumálum á traustum grunni svo fólk geti hækkað tekjur sínar og bætt lífskjörin.

9.12.2010

Mikilvćgur tími framundan

Samtök atvinnulífsins hafa óskað eftir víðtæku samráði á vinnumarkaði til næstu þriggja ára. Markmiðið er að launahækkanir verði hóflegar og sambærilegar fyrir alla hópa og lagður verður grunnur að nýrri endurreisnaráætlun sem geti orðið til þess að koma Íslandi út úr kreppunni. Samtök opinberra starfsmanna hafa hins vegar gefið út óljósar yfirlýsingar um vilja til samstarfs um samræmda launastefnu en ljóst er að svigrúm ríkis og sveitarfélaga til launahækkana er nánast ekkert. Á næstu vikum mun því reyna á hvort samstaða næst á vettvangi SA og ASÍ um samræmda launastefnu á almenna vinnumarkaðnum en aðilar opinbera vinnumarkaðarins bíði á meðan.

 

Á sama tíma og aðilar vinnumarkaðarins byrja af alvöru að glíma við að koma saman kjarasamningum þarf jafnframt að leita eftir aðkomu ríkisstjórnar og Alþingis að þeim málum sem nauðsynlegt er að fá lausn á til þess að skapa grundvöll fyrir samningum til lengri tíma. Þetta er meðal þess sem kemur fram í leiðara Vilhjálms Egilssonar, í nýju fréttabréfi SA, sem fjallar um stöðuna á vinnumarkaðnum og kjarasamningalotuna sem nú er hafin, en það bíður Samtaka atvinnulífsins að gera nærri 130 kjarasamninga.

9.12.2010

Atvinnuleysi áfram mikiđ ef ekkert verđur gert

Skráð atvinnuleysi hjá Vinnumálastofnun í október síðastliðnum nam 7,5% af mannafla sem samsvarar 12.100 fullum störfum. Í byrjun þessa mánaðar voru hins vegar 14.250 á atvinnuleysisskrá þar sem hluti þeirra sem eru skráðir atvinnulausir þiggja bætur vegna hlutastarfa. Í nóvember og desember er búist við að atvinnuleysi muni nema u.þ.b. 8% og verður atvinnuleysi ársins í heild líklega 8,2% sem samsvarar 13.200 fullum störfum.

 

Samkvæmt  opinberum spám mun draga úr atvinnuleysi á næsta ári og það verði rúmlega 7% eða sem svarar 11.600 fullum störfum.  Það er þó alls óvíst að sá takmarkaði árangur náist þar sem horfur um fjárfestingar, hagvöxt og þar með sköpun starfa eru mjög óvissar og því eins líklegt að atvinnuleysi minnki ekki að óbreyttum horfum. Þetta kemur m.a. fram í umfjöllun hagdeildar Samtaka atvinnulífsins um stöðu efnahagsmála í desember. Allt að 12.000 störf hafa tapast á árunum 2009 og 2010. Brottflutningur fólks af landinu heldur áfram, einkum af landsbyggðinni.

9.12.2010

Skýr afstađa SA til Icesave

Samtök atvinnulífsins hafa allt frá því íslenska bankakerfið hrundi haustið 2008 hvatt til þess að reynt yrði sem fyrst að koma viðskiptum Íslands við aðrar þjóðir í eðlilegt horf. Því hafa samtökin stutt allar tilraunir starfandi ríkisstjórna á þessum tíma til að ná samkomulagi við við stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi um svokallað Icesave-mál. Lausn þess er einn liður í endurreisn efnahagslífsins sem hefur dregist allt of lengi, en fleira þarf að koma til. Yfir 14 þúsund manns eru án atvinnu á Íslandi og þúsundir hafa yfirgefið landið í leit að betri tækifærum. SA telja þetta ólíðandi og hafa því lagt fram ítarlega aðgerðaáætlun um endurreisn atvinnulífsins. Lausn milliríkjadeilunnar við Breta og Hollendinga er einn liður í þeirri áætlun en til að komast út úr kreppunni þarf Ísland að fjárfesta í arðbærum útfluningsgreinum. Til þess þarf atvinnulífið greiðan aðgang að innlendu og erlendu lánsfé á viðráðanlegum kjörum og opinn aðgang að erlendum fjármálamörkuðum.

 

Á vef SA má nú nálgast ítarlegt yfirlit yfir framgang Icesave-málsins á vettvangi ríkisstjórnar og Alþingis og afstöðu SA til þess en framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins hvatti til þess í upphafi ársins að reynt yrði að ná víðtækri samstöðu um lausn málsins.

9.12.2010

Starfsafl fékk Starfsmenntaverđlaunin 2010

Starfsafl, starfsmenntasjóður Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins,  fékk í gær Starfsmenntaverðlaunin í flokki  félagasamtaka og einstaklinga fyrir verkefnið Fræðslustjóri að láni. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim sem vinna að framúrskarandi verkefnum í fræðslumálum og starfsmenntun.

9.12.2010

Opinn fundur um stöđu atvinnumála á Sauđárkróki á morgun

Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn föstudaginn 10. desember á Sauðárkróki. Fundurinn fer fram á Hótel Mælifelli kl. 12 - 14. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu, komandi kjarasamninga og svara fyrirspurnum. Stjórnendur og forsvarsmenn fyrirtækja, stórra sem smárra, eru hvattir til að mæta og taka þátt ásamt öllu áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífsins.

8.12.2010

Jákvćđ lćkkun stýrivaxta Seđlabankans

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fagnar vaxtalækkun Seðlabanka Íslands, en peningastefnunefnd bankans hefur ákveðið að lækka stýrivexti  um eitt prósentustig í 4,5%. Vilhjálmur segir í samtali við mbl.is að Seðlabankinn hafi stigið mjög myndarlegt skref að þessu sinni og vextir á Íslandi nálgist nú stýrivexti a evrusvæðinu.

7.12.2010

Óraunhćft ađ hćkka lágmarkslaun um 21% viđ núverandi ađstćđur

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir kröfur Starfsgreinasambandsins um að lágmarkstekjur fyrir fulla dagvinnu verði kr. 200.000  frá 1. desember 2010 óraunhæfar við núverandi aðstæður en krafan felur í sér 21% hækkun. SGS krefjast einnig almennra launahækkana frá 1. desember 2010 auk atriða vegna einstakra sviða kjarasamningsins sem ekki hafa verið metin.

6.12.2010

SA vilja samstarf um bćtt lífskjör og aukna atvinnu

Samtök atvinnulífsins funduðu síðdegis í dag með samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands utan svokallaðs Flóabandalags (Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis). Samtök atvinnulífsins kynntu samninganefnd SGS megináherslur SA vegna komandi kjarasamninga og samninganefnd SGS kynnti SA jafnframt sínar megináherslur og kröfur vegna þeirra kjaraviðræðna sem eru framundan.

 

Stefna SA miðar að því að ná samstöðu á vinnumarkaði um atvinnusköpun og bætt lífskjör. Forsenda fyrir því er að allir aðilar vinnumarkaðarins fari í sameiginlegan leiðangur og semji á svipuðum nótum til þriggja ára til að skapa grundvöll fyrir stöðugleika í launamálum og vinnufrið. SA telja það algjörlega ólíðandi að 14.250 séu nú án vinnu á Íslandi og vilja stuðla að því að atvinnuleysi verði kveðið niður sem allra fyrst.

6.12.2010

Hröđ úrlausn á skuldavanda heimila og fyrirtćkja mikilvćg

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir jákvætt að niðurstaða sé fengin varðandi aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna. Mikilvægt sé að unnið verði hratt úr vanda þeirra en einnig verði ráðist hratt í að leysa úr skuldavanda lífvænlegra fyrirtækja eins og boðað hafi verið. Hannes segir að ef endurskipulagning á fjárhag heimila og fyrirtækja gangi vel sé mögulega hægt að sjá fyrir botn hagsveiflunnar og jafnvel viðspyrnu.

2.12.2010

Einungis óinnheimtanlegar kröfur verđi felldar niđur

Samtök atvinnulífsins áttu í gær fund með ráðherrum og Alþýðusambandi Íslands í stjórnarráðinu þar sem rætt var um aðgerðir í þágu skuldsettra heimila og framlag lífeyrissjóðanna til þeirra. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir að viðfangsefnið sé að tryggja að stjórnir sjóðanna geti tekið ákvörðun um að taka þátt í aðgerðum stjórnvalda án þess að eiga yfir höfði sér málaferli og bótakröfur. Búa verði þannig um hnútana að kröfur sem eru innheimtanlegar verði ekki afskrifaðar.

30.11.2010

Kaupmáttur lćgstu launa aukist um 80% frá 1995

Kaupmáttur lægstu launa hefur aukist um 80% frá árinu 1995 en kaupmáttur launa almennt hefur á sama tíma aukist um rúmlega 30%. Kjarasamningarnir sem gerðir voru í febrúar árið 2008  eru mestu láglaunasamningar sem gerðir hafa verið en með þeim tókst að verja kaupmátt lægstu launa og lægstu kauptaxta í gegnum kreppuna.

30.11.2010

Opinn fundur SA um atvinnumálin á Sauđárkróki 10. desember kl. 12

Fundaröð Samtaka atvinnulífsins um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn heldur áfram föstudaginn 10. desember á Sauðárkróki. Fundurinn fer fram á Hótel Mælifelli kl. 12-14. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu, komandi kjarasamninga og svara fyrirspurnum. Stjórnendur og forsvarsmenn fyrirtækja, stórra sem smárra, eru hvattir til að mæta og taka þátt ásamt öllu áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífsins.

27.11.2010

Stjórnvöld marki sóknarstefnu í atvinnumálum

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að samtökin telji að Seðlabankinn hafi ráðist allt of hægt í stýrivaxtalækkanir. Svigrúm Seðlabankans til að keyra niður raunvexti fer minnkandi með lækkandi verðbólgu en hagdeild Samtaka atvinnulífsins telur að ábyrgðin á því að blása lífi í hagkerfið sé að færast frá Seðlabankanum og yfir á stjórnvöld. Hannes segir mikilvægast að stjórnvöld marki sóknarstefnu í atvinnumálum, eyði óvissu í kringum sjávarútveginn og stuðli að því að þau fjárfestingarverkefni sem eru á borðinu verði að veruleika.

26.11.2010

Ţađ er ekki eftir neinu ađ bíđa - 13.923 án atvinnu

Um hádegisbil í gær voru 13.923 án atvinnu á Íslandi skv. vef Vinnumálastofnunar. Samtök atvinnulífsins telja þetta ólíðandi og hafa lagt fram ítarlega aðgerðaáætlun um uppbyggingu atvinnulífsins og útrýmingu atvinnuleysis. SA óska eftir samstarfi við ábyrga aðila um að hefjast handa við að kveða atvinnuleysið niður. Það er ekki eftir neinu að bíða.

26.11.2010

Engar sértćkar ađgerđir

Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við Morgunblaðið að SA hafi markað þá stefnu að eitt mun yfir alla ganga varðandi almennar launabreytingar og ekki verði ráðist í sértækar aðgerðir fyrir einstaka hópa. Sérstakar viðbótarhækkanir til starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum rúmist ekki innan þeirrar stefnu. Hann segir kröfur starfsmanna fiskimjölsverksmiðja um allt að 27% hækkun á kauptöxtum og desember- og orlofsuppbætur á við það sem gerist í stóriðjuverum landsins óraunhæfar. Þá sé svigrúm sjávarútvegsins til kostnaðarhækkunar takmarkað vegna óvissu um starfsumhvefi greinarinnar sem stjórnvöld hafi skapað.

24.11.2010

Samstarf um aukna menntun á vinnumarkađi

Í dag var skrifað var undir samstarfsyfirlýsingu um að hækka menntunarstig íslensku þjóðarinnar og að auka virkni í atvinnulífi og samfélaginu í heild. Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, skrifaði undir yfirlýsinguna fyrir hönd samtakanna. Að henni standa auk SA mennta- og menningarmálaráðuneyti, Alþýðusamband Íslands (ASÍ), Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), fjármálaráðuneyti, og Samband íslenskra sveitarfélaga.

24.11.2010

Samstađa á vinnumarkađi?

Samstarf í komandi kjarasamningaviðræðum verður rætt á sameiginlegum fundi aðila vinnumarkaðarins á morgun. Magnús Pétursson, ríkissáttasemjari, mun stýra fundinum en fulltrúar bæði almenna og opinbera markaðarins munu sækja fundinn. „Það er nauðsynlegt að allir aðilar vinnumarkaðarins komi saman og ræði málin," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Fréttablaðið í dag. Samtök atvinnulífsins hafa lagt áherslu á að stefnt verði að gerð kjarasamninga allra aðila til þriggja ára með með hóflegum launahækkunum. Forsenda þess er að verðbólga verði lág og ný störf skapist. Flestir kjarasamningar á almenna og opinbera markaðnum renna út í lok þessa mánaðar eða þess næsta.

22.11.2010

Tekjur ríkisins mögulega ofmetnar

Gangi spá OECD um hagvöxt á þessu og næsta ári eftir eru tekjur ríkissjóðs ofmetnar í fjárlagafrumvarpi næsta árs um 15 milljarða. Þetta segir Halldór Árnason, hagfræðingur hjá Samtökum atvinnulífsins, í samtali við Morgunblaðið. OECD hefur birt spá sem gerir ráð fyrir 1,5% hagvexti á næsta ári, en í fjárlagafrumvarpinu er byggt á þeirri forsendu að hagvöxtur verði 3,2%. Halldór segir fjárfestingu í atvinnulífinu í lágmarki og það hafi leitt til samdráttar. Samtök atvinnulífsins hafi margsinnis bent á að skapa verði skilyrði til að atvinnulífið geti hafið að fjárfesta á ný og ráða fólk í vinnu.

19.11.2010

Fólk vantar í vinnu fyrir austan

Fyrirtæki á Austurlandi vantar fólk í vinnu og þar er kraftur í atvinnulífinu. Austfirðingar bjóða jafnframt fólk velkomið sem vill skjóta rótum fyrir austan og taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér þar stað. Mikill útflutningur er frá svæðinu en fjölmörg öflug fyrirtæki í sjávarútvegi, iðnaði, ferðaþjónustu og fleiri greinum skapa þjóðfélaginu dýrmætar gjaldeyristekjur. Niðurskurður á opinberri þjónustu, einkum, heilbrigðisþjónustu, ógnar þó búsetuskilyrðum fólks á svæðinu gangi hann eftir og gerir fyrirtækjum erfiðara fyrir að manna störf. Þetta kom m.a. fram á fundi SA með fyrirtækjum á Austurlandi sem fór nýverið fram á Reyðarfirði.

19.11.2010

Ţingeyingar undirbúa sókn í atvinnumálum

Mikill hugur er í Þingeyingum um þessar mundir en þeir eru tilbúnir að blása til sóknar í atvinnumálum. Mikil orka bíður þess að vera virkjuð á svæðinu en umhverfismat vegna virkjanakosta liggur senn fyrir. Það eru alls kyns tækifæri sem Þingeyingar vilja nýta svo hægt sé að byggja upp fjölbreytt atvinnulíf á svæðinu. Áform um stóriðju eru vel þekkt en þar væri jafnframt hægt að stórefla ferðaþjónustu allt árið um kring og byggja upp smærri iðnfyrirtæki og margs konar þjónustu þeim tengd. Þá skyldi ekki gleyma öflugri matvælaframleiðslu fyrir norðan, í landbúnaði, sjávarútvegi og fiskeldi.

18.11.2010

Guđjón Axel Guđjónsson til Samtaka atvinnulífsins

Guðjón Axel Guðjónsson, lögfræðingur, hefur hafið störf á vinnumarkaðssviði Samtaka atvinnulífsins. Guðjón hefur undanfarin 14 ár starfað í iðnaðarráðuneytinu, þar af síðustu fjögur árin sem skrifstofustjóri orkumála. Hann var í tvö ár fulltrúi iðnaðar- og viðskiptaráðuneyta í fastnefnd Íslands í Brussel gagnvart Evrópusambandinu. Þekking hans og reynsla mun nýtast samtökunum vel við stefnumörkun samtakanna, gerð umsagna um þingmál og samskipti við Alþingi og stjórnvöld. Guðjón mun ásamt öðrum lögfræðingum SA veita aðildarfyrirtækjum samtakanna ráðgjöf í vinnumarkaðs- og vinnuréttarmálum og taka þátt í kjarasamningagerð SA.

18.11.2010

Mikilvćgt ađ vera ţátttakandi í samfélaginu og vinna

Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Virk - starfsendurhæfingasjóðs, segir hættu á því að fólk einangrist stundi það ekki ekki vinnu en undanfarið hefur verið töluvert fjallað um að hvati til vinnu sé orðinn of lítill vegna þess hversu litlu muni á lágmarkslaunum og bótum.  Vigdís segir í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að það sé mikilvægt fyrir fólk að vera þátttakandur á vinnumarkaði og ekki megi gleyma því að þar fái fólk tækifæri til að vinna sig upp og bæta sinn hag. Fólk missi af þeim tækifærum ef það taki ekki þátt.

18.11.2010

Vinnustađaskírteinin víđast hvar í góđu lagi

Þrír mánuðir eru nú liðnir frá því samkomulag Samtaka atvinnulífsins (SA) og Alþýðusambands Íslands (ASÍ) um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum tók gildi. Markmiðið með útgáfu slíkra skírteina er að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum á vinnumarkaði. Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag en þrír mánuðir voru gefnir í aðlögunartíma þar sem eftirlitsfulltrúar hafa leiðbeint atvinnurekendum. Samkomulagið nær til að byrja með til byggingastarfsemi, mannvirkjagerðar og rekstrar gististaða og veitingahúsa.

17.11.2010

Mestar kjarabćtur fást međ aukinni atvinnu

Til að bæta kjör fólks á íslenskum vinnumarkaði skiptir langmestu máli að fólk fái aukna vinnu. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Raunhæfustu kjarabæturnar felist í að atvinnulaust fólk fái vinnu og að fyrirtæki sem hafi þurft að draga saman seglin, lækka laun og bjóða upp á hlutastörf að einhverju leyti auki umsvifin á nýjan leik. Aukin atvinna sé lykillinn að því að ná Íslandi í gang á nýjan leik og bæta hag almennings.

15.11.2010

Alţjóđleg athafnavika 2010 hefst í dag

Alþjóðleg athafnavika 2010 hefst 15. nóvember á Íslandi og um allan heim, en um er að ræða hvatningarátak til nýsköpunar. Samtök atvinnulífsins eru meðal stuðningsaðila vikunnar og er Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, einn af talsmönnum hennar. Boðið verður upp á fjölda viðburða til  að kynna fólki leiðir til að nýta hæfileika sína til nýsköpunar, athafnasemi og frumkvöðlahugsunar. Nemendur, frumkvöðlar, stjórnendur, starfsmenn fyrirtækja, stjórnmálaleiðtogar og margir fleiri munu taka þátt í fjölda viðburða af öllum stærðum og gerðum á meðan Athafnaviku stendur.

12.11.2010

Samtök atvinnulífsins vilja víđtćkt samstarf um atvinnusköpun og bćtt lífskjör

Í leiðara nýs fréttabréfs SA, Af vettvangi, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri samtakanna m.a.: „Samtök atvinnulífsins vilja víðtækt samstarf um atvinnusköpun og betri lífskjör en munu standa gegn ævintýramennsku í kjarasamningum, verðbólgu og áframhaldandi atvinnuleysi. Samtökin vilja víðtækt samstarf um að virkja þann kraft sem býr í íslenskum fyrirtækjum, kraftinn sem getur skilað okkur upp úr kreppunni og fært okkur aftur störf og lífskjör sem glatast hafa."

12.11.2010

Fyrirtćkin í landinu telja ađgerđir stjórnvalda ţeirra helsta vandamál

Þriðjungur forsvarsmanna aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins telja aðgerðir stjórnvalda vera helsta vandamál fyrirtækisins við núverandi aðstæður og á næstu misserum og tæplega fjórðungur til viðbótar setur aðgerðir stjórnvalda í annað sæti meðal helstu vandamála þeirra. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á rekstrarhorfum fyrirtækja sem gerð var dagana 29. október til 8. nóvember 2010. Um 60% forsvarsmanna fyrirtækja í sjávarútvegi telja aðgerðir stjórnvalda vera helsta vandamál fyrirtækisins og um 40% fyrirtækja í verslun, þjónustu og fjármálum.

12.11.2010

Horfur á enn minnkandi atvinnuvegafjárfestingu

Sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum SA hyggjast ekki gera leggja í umtalsverðar fjárfestingar eða endurbætur á næsta ári, 30% telja það óvíst en einungis 12% hyggjast gera það. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á fjárfestingaráformum fyrirtækjanna.

12.11.2010

Fyrirtćkin eru sammála um stefnu í kjaramálum

Samtök atvinnulífsins hafa lagt áherslu á að allir hópar fái sambærilega og hóflega prósentuhækkun launa í næstu kjarasamningum.Tvö af hverjum þremur eða 67% aðildarfyrirtækja SA eru frekar eða mjög sammála þessari stefnu.18% segjast hvorki sammála né ósammála en 15% eru frekar eða mjög ósammála. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA meðal fyrirtækjanna.

12.11.2010

Desemberuppbót 2010 greiđist eigi síđar en 15. desember

Samkvæmt almennum kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins greiðist desemberuppbót eigi síðar en 15. desember. Desemberuppbótin fyrir árið 2010 er kr. 46.800 fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn, en þeir fá greiddar kr. 53.100. Uppbótin greiðist fyrir fullt starf fyrir a.m.k. 45 unnar vikur hjá sama vinnuveitanda á árinu 2010, en er hlutfallsleg fyrir styttri starfstíma og minna starfshlutfall.

12.11.2010

Opinn fundur SA um atvinnumálin á Reyđarfirđi í dag kl. 12

Fundaröð Samtaka atvinnulífsins um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn heldur áfram í dag, föstudaginn 12. nóvember. Á Reyðarfirði hefst fundur SA kl. 12 í Safnaðarheimilinu en Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA munu ræða þar um stöðuna í atvinnulífinu, komandi kjarasamninga og svara fyrirspurnum. Þetta er fjórði fundur SA á landsbyggðinni um atvinnumálin í vikunni. Fyrsti fundurinn fór fram á Ísafirði á þriðjudaginn, í gær mættu yfir 100 manns úr norðlensku atvinnulífi á fundi SA á Akureyri og Húsavík en fleiri fundir verða auglýstir síðar. Fjallað verður um fundina á vef SA næstu daga.

11.11.2010

SA óska eftir samstarfi viđ ađila á vinnumarkađi og ríkisstjórn um sókn í atvinnulífinu

Á fjölmennum fundi Samtaka atvinnulífsins á Akureyri í morgun um stöðu atvinnumála lýstu formaður SA og framkvæmdastjóri yfir vilja til samstarfs við aðra aðila á vinnumarkaðnum og ríkisstjórnina um að snúa af braut stöðnunar og atvinnuleysis. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, sögðu það löngu tímabært að hefja sókn í atvinnulífinu og skapa ný störf til að endurheimta á næstu árum lífsjör fólks og kveða niður atvinnuleysi.

 

Ný störf og sókn í atvinnulífinu er forsenda fyrir því að hægt sé að greiða niður skuldir ríkisins á næstu árum og spara þjóðinni þar með háar fjárhæðir sem fara að öðrum kosti í greiðslu vaxta. Vilmundur sagði á fundinum í morgun sem fram fór á Hótel KEA að vandinn sem þjóðin búi við í dag sé heimatilbúinn og aðgerðaleysi auki enn á vandann.

10.11.2010

Formađur og framkvćmdastjóri SA á opnum fundum á Akureyri og Húsavík á morgun - 11. nóvember

Fundaröð Samtaka atvinnulífsins um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn heldur áfram á morgun, fimmtudaginn 11. nóvember. Á Akureyri hefst fundur SA kl. 8:30 á Hótel KEA en á Húsavík hefst fundur kl. 12 á Veitingahúsinu Sölku. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu, komandi kjarasamninga og svara fyrirspurnum. Á fundinum verður kynnt ný skoðanakönnun meðal félagsmanna Samtaka atvinnulífsins um horfurnar í atvinnulífinu á næstu mánuðum auk skoðana stjórenenda fyrirtækja á brýnustu úrlausnarefnum stjórnvalda við núverandi aðstæður.

9.11.2010

Vel heppnađur fundur SA um atvinnumál á Ísafirđi

Það var þétt setinn bekkurinn á fundi Samtaka atvinnulífsins á Hótel Ísafirði í hádeginu í dag. Fjölbreyttur hópur fólks úr atvinnulífinu sótti fundinn sem markar upphafið að fundaröð SA um Ísland þar sem staða atvinnumála og vinnumarkaðurinn er í kastljósinu. Næstu fundir fara fram á Akureyri og Húsavík á fimmtudaginn og á Reyðarfirði á föstudaginn. Hreinskiptar umræður fóru fram á Ísafirði um atvinnumálin, stjórnmálin og mikilvægi þess að koma atvinnulífinu af stað á nýjan leik.

9.11.2010

Fundaröđ SA um Ísland hefst á Ísafirđi í dag

Samtök atvinnulífsins efna til opinna funda á landsbyggðinni um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn dagana 9.-12. nóvember. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu, komandi kjarasamninga og svara fyrirspurnum. Stjórnendur og forsvarsmenn fyrirtækja, stórra sem smárra, eru hvattir til að mæta og taka þátt ásamt öllu áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífsins. Fundaröðin hefst með fundi í hádeginu þriðjudaginn 9. nóvember á Hótel Ísafirði. Í vikunni sækja SA einnig heim Akureyri, Húsavík og Reyðarfjörð en fleiri fundir verða auglýstir síðar.

8.11.2010

Starfsmenntaverđlaunin 2010: Óskađ eftir tilnefningum

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur verið falin umsjón með Starfsmenntaverðlaununum árið 2010. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim aðilum sem vinna að framúrskarandi verkefnum í fræðslumálum og starfsmenntun.  Tilnefningar/umsóknir skal senda inn rafrænt á vefnum www.frae.is. Frestur til að senda inn tilnefningar/umsóknir er til og með 15. nóvember nk.

5.11.2010

Ríkisstjórnin standi viđ fyrirheit í atvinnumálum

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að ríkisstjórnin eigi eftir að hrinda mörgum málum í framkvæmd í atvinnumálum og það geti hún gert án aðkomu annarra. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.  „Það er heilmikill verkefnalisti hjá ríkisstjórninni og hún þarf í sjálfu sér enga samstöðu við aðra flokka til að ná mjög mörgum málum fram. Ríkisstjórnin þarf bara að telja atkvæðin hjá sjálfri sér."

4.11.2010

Ráđherra segir fólki ađ bíđa

Í þættinum Okkar á milli í Ríkisútvarpinu í gær sagði umhverfisráðherra að ekki þyrfti að koma til móts við raddir hagsmunasamtaka eins og Samtaka atvinnulífsins. Þrýstingur frá hagsmunasamtökum væri mjög mikill en þau yrðu nú að gera sér að góðu að sitja á bekknum og bíða. Samtök atvinnulífsins hafa vissulega gagnrýnt stjórnsýslu umhverfisráðuneytisins og undirstofnana þess. Sú gagnrýni hefur m.a. byggst á því að stjórnvöld virða ekki tímafresti heldur draga afgreiðslu mála von úr viti.

4.11.2010

Formađur SA: Allir hópar fái sambćrilega og hóflega launahćkkun

Formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, segir að í komandi kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði verði lögð á það áhersla af hálfu SA að allir hópar fái sambærilega og hóflega launahækkun og að samningar allra aðila hafi sama gildistíma sem verði allt að þremur árum. Vilmundur leggur þunga áherslu á að það sé algjört forgangsmál að koma atvinnulífinu af stað á nýjan leik, skapa ný störf og minnka atvinnuleysið sem allra fyrst. Að því muni SA stefna.

 

Samtök atvinnulífsins efna til opinna funda á landsbyggðinni í næstu viku um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn og verður fyrsti fundurinn á Ísafirði 9. nóvember. Fimmtudaginn 11. nóvember efna SA til funda á Akureyri og Húsavík og á Reyðarfirði föstudaginn 12. Nóvember. Fleiri fundir verða auglýstir síðar víðar um landið.

3.11.2010

SA ráđa fulltrúa til ađ vinna gegn svartri atvinnustarfsemi

Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag SA og ASÍ um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Vinnustaðaskírteinum er ætlað að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum á vinnumarkaði en mikilvægt er að öll fyrirtæki sitji við sama borð og fylgi settum reglum. Til að stuðla að framgangi þessa samkomulags hafa Samtök atvinnulífsins ráðið tvo eftirlitsfulltrúa sem bætast í hóp eftirlitsmanna sem stéttarfélög hafa tilnefnt.

2.11.2010

Ísland í dag: Alvarleg stađa atvinnumála - breytinga ţörf

Í ítarlegri umfjöllun Ísland í dag á Stöð 2 þann 1. nóvember var fjallað um alvarlega stöðu atvinnumála á Íslandi og leiðir til þess að koma hlutunum á hreyfingu á nýjan leik. Niðurstöður nýlegrar könnunar Capacent meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins var höfð til hliðsjónar en samkvæmt henni telja 80% stjórnenda aðstæður vera slæmar en enginn telur þær góðar. Miðað við niðurstöður könnunarinnar er erfiður vetur framundan ef ekki rætist fljótlega úr málum.

1.11.2010

Ađalfundur LÍÚ: Hugmynd sjávarútvegsráđherra um ađ taka fyrirhugađa aukningu aflaheimilda af útgerđum og selja ţćr öđrum harđlega mótmćlt

Aðalfundur LÍÚ fór fram í Reykjavík dagana 28. og 29. október 2010. Í einni af tillögum fundarins, sem var samþykkt samhljóða, mótmæla samtökin harðlega hugmynd sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að taka fyrirhugaða aukningu aflaheimilda í þorski, ýsu, gullkarfa, ufsa og síld af útgerðum og selja þær öðrum. Formaður LÍU, Adolf Guðmundsson, sagði m.a. í ávarpi sínu á fundinum að árangri og orðspori okkar megi ekki kasta fyrir róða með upptöku og uppboði aflaheimilda.

1.11.2010

Fundaröđ SA um stöđu atvinnumála og vinnumarkađinn

Samtök atvinnulífsins efna til opinna funda á landsbyggðinni um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn dagana 9.-12. nóvember. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu, komandi kjarasamninga og svara fyrirspurnum. Stjórnendur og forsvarsmenn fyrirtækja, stórra sem smárra, eru hvattir til að mæta og taka þátt ásamt öllu áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífsins.

 

Fyrsti fundurinn fer fram í hádeginu þriðjudaginn 9. nóvember á Hótel Ísafirði, annar fundurinn verður að morgni fimmtudagsins 11. nóvember á Hótel KEA á Akureyri, sá þriðji fer fram í hádeginu sama dag á Veitingahúsinu Sölku á Húsavík og sá fjórði verður haldinn í hádeginu föstudaginn 12. nóvember í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði.

28.10.2010

Breyttar frádráttarreglur vegna arđs og söluhagnađar koma í veg fyrir innstreymi fjár til landsins

Samtök atvinnulífsins hvetja stjórnvöld til þess að nýtilkomin skilyrði um að jafna skuli tap til þess að öðlast rétt til frádráttar á móti fengnum arði verði felld niður sem og skilyrði um 10% lágmarkseign hlutafjár. Fyrir liggur að fjöldi fyrirtækja, með yfirfæranlegt skattalegt tap, sjá fram á umtalsverðan skattalegan kostnað við að færa fjármuni frá dótturfélögum til móðurfélags. Þessi meðferð söluhagnaðar veikir samkeppnisstöðu þeirra á alþjóðavettvangi og gerir þeim erfitt fyrir að halda höfuðstöðvum sínum hérlendis.

27.10.2010

Er rétt ađ skattleggja tekjur erlendra ađila ţyngra en innlendra?

Miklu skiptir að íslensk skattalöggjöf hvetji til fjárfestinga erlendra aðila. Breytingar á tekjuskattslögum í lok árs 2009 hafa virkað þveröfugt. Ein breytingin felur í sér að skattandlag erlendra lögaðila verður ekki lengur tekjuskattstofn heldur tekjur. Tekjur erlendra aðila af t.a.m. vöxtum eru nú skattlagðar brúttó en ekki nettó eins og áður. Þessi breyting hefur gert Ísland að enn verri fjárfestingarkosti en þegar var orðið. Tekjur þessara aðila eru margskattlagðar, á meðan innlendir aðilar njóta sama fyrirkomulags og gilti áður. Samtök atvinnulífsins leggja því eindregið til að fallið verði frá þessari breytingu.

26.10.2010

Auđvelda ţarf íslenskum fyrirtćkjum ađ afla verkefna erlendis

Síðastliðin tvö ár hefur nær algjört hrun orðið í verktakagreininni. Starfsmönnum hefur þannig fækkað um 50% til 60%. Til að koma í veg fyrir verkefnaskort og atvinnuleysi og að greinin leggist ekki af í bókstaflegri merkingu er íslenskum fyrirtækjum og starfsmönnum í verktakastarfssemi mikilvægt að geta fengið verkefni við hæfi erlendis.

21.10.2010

Skýringar 6% hćkkunar launavísitölu síđustu 12 mánuđi

Launavísitala hækkaði um 6,0% milli september 2009 og 2010. Þessi hækkun á sér fyrst og fremst skýringu í tveimur samningsbundnum hækkunum samkvæmt almennum kjarasamningum.  Þann 1. nóv. 2009 var almenn 3,5% launahækkun (launaþróunartrygging) og kauptaxtar verkafólks hækkuðu um 6.750 kr. og iðnaðarmanna 8.750 kr. Þann  1. júní 2010 hækkuðu laun almennt um 2,5%, kauptaxtar verkafólks hækkuðu um 6.500 kr. og iðnaðarmanna um 10.500 kr. Almennar launahækkanir vor því samtals 6,1% á tímabilinu og hækkanir samningsbundinna kauptaxta 8-9%.

21.10.2010

Skattleysi eingreiđslubóta sjúkdómatrygginga er réttlćtismál

Samtök atvinnulífsins hvetja stjórnvöld til að taka af allan vafa, með breytingu á lögum um tekjuskatt, að eignaauki vegna eingreiðslubóta úr sjúkdómatryggingum skuli vera undanþeginn tekjuskatti. Jafnræðissjónarmið mæla með því að eignaauki vegna þessara bóta verði áfram undanþegin tekjuskatti. Þá mæla velferðarrök með hinu sama. Með skattlagningu bótanna er verið að sækja fjármagn til þeirra sem lenda í alvarlegum heilsufarsvanda og hafa keypt sér að því þeir töldu skattfrjálsa tryggingu til að mæta slíkum vanda. Skattskylda bóta er tvísköttun og felur í sér auknar álögur á þá sem eiga um sárt að binda vegna alvarlegra sjúkdóma eða fötlunar.

20.10.2010

Jákvćđar breytingar á gjaldţrotalögum fyrirhugađar

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Vilhjálmur Egilsson, segir boðað frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á gjaldþrotalögum jákvætt. Frumvarpið auðveldi fólki að komast aftur af stað eftir gjaldþrot og hvetji fólk til þátttöku í atvinnulífinu. Það hafi hins vegar í för með sér að þeir sem láni peninga verði að fara varlegar og gera meiri greinarmun á áhættu en nú. Vilhjálmur segir jafnframt að frumvarpið muni hafa þau áhrif að ásóknin í neðanjarðarhagkerfið minnki en þeir sem hafi orðið gjaldþrota á Íslandi hafi oft ekki átt neitt annað athvarf en að leita þangað.

19.10.2010

Flestir stjórnendur gera ráđ fyrir ađ laun standi í stađ

Ný könnun Capacent meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins leiðir í ljós að 52% stjórnenda telja að laun muni standa í stað á næstu 6 mánuðum en 45% telja að laun muni hækka. Samanvegið reikna stjórnendur með að laun hækki um 1,4% að meðaltali á næstu 6 mánuðum. Í flestum atvinnugreinum er reiknað með hækkunum á bilinu 1-1,5%, nema í byggingariðnaði þar sem ekki er reiknað með neinum hækkunum. Lítill munur er á höfuðborgarsvæði og landsbyggð eða eftir því hvort fyrirtækin selji vörur til útlanda eða ekki.

18.10.2010

Hóflegir kjarasamningar tryggi raunverulegar kjarabćtur

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdarstjóri Samtaka atvinnulífsins, telur óskynsamlegt að hækka laun sérstaklega hjá fyrirtækjum í útflutningsgreinum vegna þess að gengi krónunnar sé lágt um þessar mundir. Samtök atvinnulífsins telji að gengi krónunnar þurfi að hækka og hóflegir kjarasamningar sem valdi lítilli  verðbólgu muni stuðla að styrkingu krónunnar. Það komi öllum til góða.

15.10.2010

400 stćrstu: Áframhaldandi djúp lćgđ í rekstri fyrirtćkja

Erfiðleikar í atvinnulífinu endurspeglast skýrt í mati stjórnenda fyrirtækja á stöðu og horfum í  ársfjórðungslegri könnun Capacent meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins. Samkvæmt nýrri könnun, sem gerð var í september 2010, telja 80% stjórnenda aðstæður slæmar, 20% að þær séu hvorki góðar né slæmar en enginn að þær séu góðar. Þetta er svipuð niðurstaða og í fyrri könnunum á árinu þar sem fram hefur komið að 80-90% svarenda telja aðstæður í efnahagslífinu slæmar.

15.10.2010

Unniđ verđi hratt úr skuldamálum fyrirtćkja

Aðilar vinnumarkaðarins áttu í gær fund með ríkisstjórninni um skuldavanda heimila og fyrirtækja. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins, segir að á fundinum hafi komið fram að ríkisstjórnin vilji ganga hratt í það verk og fjarlægja þær hindranir sem séu í vegi þess að fyrirtæki geti starfað með eðlilegum hætti. „Við brýndum fyrir ríkisstjórninni að fyrirtækin yrðu að hafa rekstrargrundvöll. En á meðan þessi óvissa er um mál fyrirtækja geta þau ekki gert framtíðaráætlanir eða ráðið til sín fólk."

14.10.2010

Skráningu lýkur í dag: Námskeiđ í miđlun upplýsinga um samfélagsábyrgđ fyrirtćkja

Dagana 27-28. október næstkomandi heldur danska ráðgjafarfyrirtækið Grontmij | Carl Bro tveggja daga námskeið í miðlun upplýsinga um samfélagsábyrgð fyrirtækja, í samræmi við viðmið Global Reporting Initiative (GRI). Námskeiðið verður haldið í Reykjavík, í kjölfar fundar norræna Global Compact tengslanetsins, dagana 25-26. október.

13.10.2010

Mikilvćg ákvörđun Samkeppniseftirlitsins vegna yfirtöku Arion banka á B.M. Vallá

Virk samkeppni er mikilvæg við endurreisn atvinnulífsins og því er ákvörðun Samkeppniseftirlitsins vegna yfirtöku Arion banka á B.M. Vallá (nr. 31/2010) jákvæð. Þar eru sett fram skýr viðmið um hvernig yfirtöku banka á fyrirtækjum skuli háttað þannig að endurskipulagning þeirra geti tekist vel án þess að raska samkeppni eða fyrirtækjum sé alvarlega mismunað.

11.10.2010

Aukin skattheimta óheillaspor sem takmarkar vöxt

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastóri SA, tók þátt í umræðum um skattastefnu ríkisstjórnarinnar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni sunnudaginn 10. október ásamt Helga Hjörvar alþingismanni. Hannes segir skattastefnuna koma í veg fyrir nauðsynlega uppbyggingu atvinnulífsins. Frekari hækkun tekjuskatts fyrirtækja og fyrirhuguð hækkun á fjármagnstekjuskatti hindri fjárfestingar í atvinnulífinu en en aukin fjárfesting sé einmitt það sem Ísland þurfi á að halda til að komast út úr kreppunni. Fjárfestingar eru nú í algjöru lágmarki - þær hafa aldrei verið lægri.

8.10.2010

Áfrýjun umhverfisráđherra verđi dregin til baka

Samtök atvinnulífsins krefjast þess að forsætisráðherra beiti sér fyrir því að áfrýjun umhverfisráðherra á dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um ógildingu á synjun ráðherrans á aðalskipulagi Flóahrepps verði dregin til baka. Framferði ráðherrans gengur þvert á yfirlýsingar forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar til aðila vinnumarkaðarins um framkvæmdir og uppbyggingu og hefur enga aðra efnislega þýðingu aðra en þá að tefja framkvæmdir um nokkra mánuði og auka tilkostnað forsætisráðuneytisins.

7.10.2010

Uppbyggileg atvinnustefna óskast

Án öflugs atvinnulífs verður ekki til öflugt velferðarkerfi. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í leiðara nýs fréttabréfs samtakanna. Hann segir að ef vinna eigi bug á atvinnuleysinu þurfi fjárfestingar, smáar og stórar, innlendar sem erlendar, að aukast verulega. Hækkun tekjuskatts fyrirtækja, hækkun skatts á arðgreiðslur og hækkun tryggingagjalds dragi úr fjárfestingum og seinki þar með atvinnusköpun og minnki svigrúm fyrirtækja til kjarabóta. Þá hafi ríkisstjórnin boðað að tryggingagjaldið muni ekki lækka samhliða minnkandi atvinnuleysi, eins og gengið hafi verið út frá, og við það verði ekki unað. Almenningur muni finna fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar með meira atvinnuleysi, lakari lífskjörum og minni velferðarþjónustu en annars hefði orðið.

7.10.2010

Veikleikar í fjárlagafrumvarpinu 2011

Ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til fjárlaga 2011. Samkvæmt athugun SA er nokkra augljósa veikleika að finna á frumvarpinu og líkur á að tekjur ríkissjóðs verði allt að 30 milljörðum króna lægri en gert er ráð fyrir. Markmið áætlunar ríkisstjórnarinnar og AGS um jákvæðan rekstur ríkisins yrðu þar með að engu.

 

Í yfirliti SA er bent á að fyrirhugaður sparnaður í skóla- og heilbrigðiskerfinu sé lítt eða ekkert útfærður og óvarlegt sé að ætla að ríkisútgjöld vaxi ekkert til ársins 2014 eins og gert sé ráð fyrir í frumvarpinu. Eigi það að standast þurfi að auka afköst ríkisrekstursins með endurskipulagn­ingu, þ.m.t. mennta-, heilbrigðis-, félagsmála- og dómskerfisins.

7.10.2010

Ţörf á auknum fjárfestingum í atvinnulífinu - kćrkomin fjárfesting í Straumsvík

Fjárfestingar í atvinnulífinu eru forsenda samkeppnishæfni og hagvaxtar. Án fjárfestinga skapast engin ný störf og grunnur þeirra sem fyrir eru veikist smám saman þar til þau hverfa að lokum. Frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar fram til 2008 voru fjárfestingar hér á landi að meðaltali á ári um 25% landsframleiðslunnar. Síðustu tvo áratugina hefur hlutfallið numið 21%. Í yfirstandandi efnahagskreppu hefur umfang fjárfestinga hrunið og á það jafnt við um fjárfestingar í atvinnulífinu, í íbúðarhúsnæði og um fjárfestingar hins opinbera. Árið 2009 námu fjárfestingar í heild 14% af landsframleiðslu og er áætlað að þær lækki í 12% á þessu ári. Fjárfestingar atvinnuveganna eru taldar hafa numið 7% af landsframleiðslu 2009 og 8% á þessu ári.

5.10.2010

Ný handbók um ábyrgđ og skyldur stjórnarmanna

KPMG, í samstarfi við Landssamtök lífeyrissjóða, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands, hefur gefið út Handbók stjórnarmanna en þar er að finna ítarlegt yfirlit yfir hlutverk, ábyrgð og skyldur stjórnarmanna í íslensku atvinnulífi. Handbókin tekur m.a. mið af leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtök atvinnulífsins gáfu út árið 2009. KPMG mun kynna bókina 8. október og 15. október á opnum fundum.

4.10.2010

Forsendur fjárlagafrumvarpsins úreltar

 „Forsendur fjárlagafrumvarpsins eru að mörgu leyti úreltar og staðan veikari en gengið er út frá," segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. „Við fyrstu sýn kemur það okkur hjá Samtökum atvinnulífsins á óvart að byggt sé á forsendum þjóðhagsspár Hagstofunnar frá því í júní." Síðan í júní hafi forsendur verið endurmetnar og til dæmis sé minni hagvexti spáð á næsta ári samkvæmt áætlun Seðlabankans frá því í ágúst.

1.10.2010

Skattlagning smáfyrirtćkja verđi endurskođuđ

Í desember 2009 ákvað Alþingi að skipta úthlutuðum arði hlutafélaga og einkahlutafélaga upp í launahluta og fjármagnshluta við skattlagningu. Samkvæmt reglunum ber að skattleggja arð allt að 20% af eigin fé sem fjármagnstekjur en helming af arðinum umfram það sem fjármagnstekjur og launatekjur. Sá hluti arðsins, sem sætir launatekjuskattlagningu, ber því eftir atvikum 32,72%, 42,12% eða 46,12% skatt. Þetta skapar óvissu, óþarfa flækjur og eykur líkur á flutningi fyrirtækja erlendis, svo sem rannsóknar- og nýsköpunarfyrirtækja. Nauðsynlegt er að endurskoða þetta fyrirkomulag.

30.9.2010

Ríkiđ verđur af milljarđatekjum

Upptaka skatts á vaxtagreiðslur til erlendra aðila olli því að tíu erlend fyrirtæki lögðu niður starfsemi í fyrra. Tvö fyrirtækjanna greiddu einn milljarð í skatt á síðasta ári. Tæplega 740 manns með rúmar 420 þúsund krónur í mánaðarlaun þarf til að vega upp tapið. Um tíu dótturfélög erlendra stórfyrirtækja hættu starfsemi hér síðasta haust eftir að afdráttarskattur á vaxtagreiðslur til erlendra aðila var innleiddur. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag en Samtök atvinnulífsins hafa lagt til að skatturinn verði felldur niður.

30.9.2010

Haustráđstefna Stjórnvísi á morgun: Upp úr öldudalnum

Haustráðstefna Stjórnvísi verður haldin á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 1.október kl.8:30 til 11:30. Ráðstefnan ber yfirskriftina Upp úr öldudalnum.  Rætt verður um viðhorf til íslensks atvinnulífs, stöðu þess, áhugaverð sprotafyrirtæki og leiðir upp úr öldudalnum.  Forráðamenn fyrirtækja og áhugamenn um stjórnun og rekstur fyrirtækja eru hvattir til að mæta. Aðgangseyrir er enginn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef Stjórnvísis.

27.9.2010

Ályktun ađalfundar Samtaka fiskvinnslustöđva

Samtök fiskvinnslustöðva (SF) skora á ríkisstjórnina að hefja nú þegar  vinnu við að útfæra nánar tillögur Endurskoðunar- og sáttanefndar  um Samningaleið í sjávarútvegi  sem felur í sér samninga við sjávarútvegsfyrirtæki um langtíma nýtingu aflaheimilda og endurúthlutun. Í ályktun aðalfundar SF sem fram fór föstudaginn 24. september segir að afar mikilvægt sé að vel takist til um framhald málsins og nauðsynlegt að fulltrúar sjávarútvegsfyrirtækja komi þar að málum með beinum hætti, enda um tilverugrunn fyrirtækjanna að tefla.

23.9.2010

Tillögur til umbóta á skattkerfinu

Skattkerfi atvinnulífsins - smelltu til að sækjaSamtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands hafa gefið út nýtt rit með ítarlegum tillögum til umbóta á skattkerfinu sem hafa það að markmiði að efla fjárfestingu, auka atvinnu og bæta lífskjör. Ritið heitir Skattkerfi atvinnulífsins. Fjárfesting - atvinna - lífskjör og var kynnt á opnum fundi í morgun á Hilton Reykjavík Nordica þar sem fullt var út úr dyrum. Á fjórða hundrað stjórnenda úr íslensku atvinnulífi mætti til fundarins.

 

Í inngangi ritsins kemur m.a. fram að á Íslandi eru skatttekjur hins opinbera í hlutfalli við landsframleiðslu meðal þeirra hæstu í OECD ríkjunum (m.v. 2007) þegar lögbundin iðgjöld í lífeyrissjóði eru talin með. Það er eðlilegt að telja þau með þar sem sambærileg iðgjöld eru víðast annars staðar í formi skatta. Hlutfallið þannig reiknað var 48,6% á Íslandi en hæst 48,7% í Danmörku. Skatthlutfall evru-ríkjanna var hins vegar 39,7% og OECD-ríkjanna 35,8%.

 

Rafrænt eintak má nú nálgast hér á vef SA.

23.9.2010

Skattkerfiđ stuđli ađ aukinni samkeppnishćfni

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, kynnti í morgun  tillögur SA og Viðskiptaráðs Ísland um umbætur á skattkerfinu sem hafa að markmiði að efla fjárfestingar, stuðla að sköpun nýrra starfa og bæta lífskjör landsmanna.  Í kynningu sinni sagði hann m.a. nauðsynlegt að skattkerfið stuðli að bættri samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.  Ýmis skilyrði hér á landi séu lakari en hjá keppninautum okkar og því þurfi að breyta. Margar breytingar sem gerðar hafa verið á skattkerfinu skemmi fyrir fyrirtækjum í stað þess að auka tekjur ríkissjóðs.

23.9.2010

Ávarp formanns Samtaka atvinnulífsins á skattafundi SA og VÍ

Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins setti í morgun opinn fund SA og Viðskiptaráðs Íslands um skattamál fyrirtækja sem nú stendur yfir. Þar lögðu samtökin fram ítarlegar tillögur að umbótum á skattkerfinu sem miða að því að efla fjárfestingar, stuðla að sköpun nýrra starfa og bæta lífskjör landsmanna. Í erindi sínu sagði Vilmundur að þær breytingar sem ríkisstjórnin hafi gert á skattkerfinu lýsi ótrúlega mikilli vanþekkingu á efnahagslífinu. Skattkerfið hafi verið fært áratugi aftur í tímann, einfaldleika þess og gagnsæi hafi verið fórnað.

23.9.2010

Skattatillögur SA og VÍ kynntar kl. 8:30

Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands kynna í dag ítarlegar tillögur að umbótum á skattkerfinu sem miða að því að efla fjárfestingar, stuðla að sköpun nýrra starfa og bæta lífskjör landsmanna. Tillögurnar verða kynntar á opnum morgunverðarfundi samtakanna sem hefst á Hilton Reykjavík Nordica kl. 8:30 og stendur til k. 10:00. Rúmlega 300 stjórnendur úr íslensku atvinnulífi hafa boðað komu sína á fundinn en þar mun m.a. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, bregðast við tillögunum.

22.9.2010

Mikill áhugi á skattafundi SA og VÍ á Hilton Nordica - skráningu lýkur í dag

Á þriðja hundrað stjórnenda úr íslensku atvinnulífi hafa nú þegar boðað komu sína á opinn fund SA og VÍ um skattamál fyrirtækja en fundurinn fer fram á Hótel Nordica í fyrramálið. Skráningu á fundinn lýkur í dag og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig sem fyrst en ljóst er að skattamálin hvíla þungt á atvinnulífinu um þessar mundir - einkum breytingar á skattkerfinu sem stjórnvöld hafa ráðist í og valda atvinnulífinu og ríkissjóði skaða.

20.9.2010

Opinn fundur um skattamál fyrirtćkja 23. september - skráning stendur yfir

Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands efna til opins morgunverðarfundar um skattamál fyrirtækja fimmtudaginn 23. september nk. á Hótel Nordica. Þar munu samtökin leggja fram og kynna tillögur að umbótum á skattkerfinu  sem miða að því að efla fjárfestingar, stuðla að sköpun nýrra starfa og bæta lífskjör landsmanna. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, mun bregðast við tillögunum og fjalla um skattamálin, auk þess sem stjórnendur og skattasérfræðingar munu ræða raunveruleg dæmi um það sem þarf að laga til að endurreisn atvinnulífsins geti hafist.

17.9.2010

Unniđ verđi hratt úr lánamálum fyrirtćkja

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Fréttablaðið að með dómi Hæstaréttar 16. september um hvernig reikna skuli vexti ólögmæts gengistryggðs láns hafi verið stigið stórt skref í að eyða óvissu. „Það sem nú þarf að gerast hvað varðar fyrirtækin er að allir setjist niður við sama borð, bankarnir og viðskiptavinirnir, og fari yfir hvernig best sé að vinna úr lánamálum fyrirtækjanna. Það verður að ganga eins hratt og mögulegt er í fjárhagslega endurskipulagningu á atvinnulífinu án þess að réttur sé tekinn af einum eða öðrum."

9.9.2010

Ţriđja hruniđ?

Í leiðara nýs fréttabréfs Samtaka atvinnulífsins, ræðir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA, um stöðu efnahags- og stjórnmála á Íslandi þegar tvö ár eru að verða liðin frá bankahruninu. Hann segir mikla óvissu enn í kringum fjármálakerfið og ekki útilokað að annað hrun verði. „Þriðja hrunið er ennfremur raunhæfur möguleiki en það gæti gert sjálft ríkið gjaldþrota. Alþingi mun innan tíðar taka ákvörðun um hvort sækja eigi nokkra ráðherra ríkisstjórnarinnar, sem sat í aðdraganda bankahrunsins, til saka fyrir vanrækslu og draga þá fyrir landsdóm. Vandséð er hvernig hægt er að sakfella þetta fólk fyrir vanrækslu án þess að ríkið sjálft verði þá bótaskylt vegna afleiðinga meintra misgjörða þeirra," segir Vilhjálmur m.a. í leiðaranum. „Það þarf að hætta að slátra köttum en fara á fullt í að veiða mýs."

9.9.2010

Skađlegar breytingar á skattkerfinu gangi til baka

Samtök atvinnulífsins telja nauðsynlegt að flestar þær breytingar sem gerðar voru á síðasta ári á skattalegu umhverfi atvinnulífsins gangi til baka eða verði breytt. Þær eru flestar til þess fallnar að draga úr fjárfestingum og vilja til þátttöku í atvinnurekstri. Sérstaklega á þetta við um breytingar sem ekki skila ríkissjóði ætluðum tekjum en valda sjálfstætt starfandi einstaklingum, fyrirtækjum og ríkissjóði kostnaðarauka og óhagræði.

9.9.2010

Ísland á eftir í menntamálum

OECD hefur birt árlega skýrslu sína um menntun (e. Education at a glance). Í henni er að finna tölulegan samanburð á flestu því sem viðkemur menntun í aðildarríkjunum, m.a. fjölda á skólastigum, kostnað, menntun kennara, laun og fjölda erlendra stúdenta. Tölurnar sem nú birtast eru frá 2008. Fram kemur að menntunarstig hér á landi er að hækka, en að talsvert er í land að ná samsvarandi árangri og nágrannalöndin. Átak þarf til að ná markmiði sem sett var í kjarasamningum 2008 um að árið 2020 verði ekki meira en 10% fólks á vinnumarkaði án viðurkenndrar starfs- eða framhaldsskólamenntunar.

7.9.2010

Framkvćmdastjórn SA: Eyđum óvissu - stórauknar fjárfestingar forsenda hagvaxtar

Samtök atvinnulífsins vilja vekja sérstaka athygli á þýðingu fjárfestinga fyrir íslenskt samfélag nú þegar afar misvísandi skilaboð um hagþróun koma fram og skapa mikla óvissu um þróun atvinnulífsins og efnahags þjóðarinnar. Þróun á vinnumarkaði sýnir minnkandi atvinnuleysi og að fjöldi starfa á fyrri árshelmingi þessa árs hafi verið svipaður og í fyrra. Í síðustu viku birti Hagstofan svo aðrar tölur sem gefa til kynna að afraksturinn af störfum þjóðarinnar hafi verið 7,3% samdráttur í landsframleiðslu milli fyrri árshelminga 2009 og 2010 og leiðrétti þannig niður á við fyrri tölur um hagvöxt í byrjun þessa árs og í lok þess síðasta.

 

Í ríkjum með áreiðanlegar hagtölur væri slíkt framleiðniáfall í atvinnulífinu tilefni til neyðarviðbragða og rannsókna, en íslenskt atvinnulíf þarf að búa við óvissu og óáreiðanlegar hagtölur.

3.9.2010

Lífeyrissjóđir á Íslandi eru margir og ólíkir - áhćtta í fjárfestingum nauđsynleg til ađ ná viđunandi ávöxtun

Málefni íslenskra lífeyrissjóða hafa verið nokkuð til umræðu að undanförnu, m.a. aðkoma atvinnurekenda að rekstri sjóðanna, en það fyrirkomulag er ekki algilt. Í vikunni var rætt við Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA, um lífeyrismálin á Bylgjunni en þar var þeirri hugmynd m.a. varpað fram að leggja niður alla starfandi lífeyrissjóði og stofna einn sjóð fyrir landsmenn. Vilhjálmur segir þá hugmynd ekki góða í ljósi reynslunnar en með fjölbreyttu lífeyriskerfi sé hægt að bera saman árangur ólíkra sjóða. Hann segir nauðsynlegt að taka ákveðna áhættu í fjárfestingum sjóðanna til að tryggja fólki verðtryggðan lífeyri en ávöxtun hafi farið lækkandi að undanförnu með aukinni sókn í tryggari ávöxtunarleiðir.

30.8.2010

Gegn svartri atvinnustarfsemi og undirbođum á vinnumarkađi

Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum. Það er mikilvægt að öll fyrirtæki sitji við sama borð og fylgi settum reglum en vinnustaðaskírteinum er  ætlað að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum á vinnumarkaði.

23.8.2010

Ráđstefna um samgöngu- og orkumál: Driving Sustainability 2010

Dagana 16.-18. september verður ráðstefnan Driving Sustainability haldin á Hilton Reykjavík Nordica. Þetta er í fjórða sinn sem ráðstefnan er haldin en hún höfðar til þeirra sem vilja fylgjast með þróun samgöngumála og orkumála. Félagsmönnum Samtaka atvinnulífsins býðst 25% afsláttur af ráðstefnugjaldi til og með 27. ágúst. Miðinn kostar kr. 56.900 ef hann er keyptur fyrir þann tíma.

19.8.2010

Reglur um fjármál sveitarfélaga algengar utan Íslands

Í flestum OECD-ríkjum hefur ríkisvaldið sett fjármálareglur sem gilda fyrir lægri stjórnsýslustig, eða þau hafa sjálf sett þær, til þess að koma í veg fyrir skuldasöfnun eða útgjaldavöxt hins opinbera. Yfirleitt er með setningu eða aðlögun slíkra reglna stefnt að því að tryggja markmið í hagstjórn og stöðugleika í efnahagslífinu. SA telja mikilvægt að slíkar reglur verði settar á Íslandi en umsvif sveitarfélaga hafa aukist verulega á undanförnum árum.

19.8.2010

Tćkifćri í atvinnumálum verđi nýtt

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við Fréttablaðið í dag að stjórnvöld verði að nýta sér góðar horfur í efnahagslífinu og beita sér fyrir því að koma verkefnum á borð við álverið í Helguvík í gang. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir í frétt blaðsins að það yrði gríðarlegt reiðarslag ef eigendur Norðuráls hættu við byggingu álvers í Helguvík vegna óvissu um raforku og tafa á veitingu virkjanaleyfis. Stjórnvöld verði að fylgja eftir batasporum í efnahagslífinu með þróttmeiri ákvörðunum í efnahagsmálum. Einkennileg staða sé uppi hjá stjórnvöldum í málefnum HS Orku, sem setji álver í Helguvík í uppnám.

16.8.2010

Skattar verđi ekki hćkkađir

Samtök atvinnulífsins leggja áherslu á að skattar verði ekki hækkaðir heldur opinber útgjöld lækkuð til að ná jafnvægi í ríkisfjármálum fyrir næsta fjárlagaár. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttavef Vísis vegna fréttar Morgunblaðsins um að ríkisstjórnin hyggist hækka skatta, m.a. fjármagnstekjuskatt, tekjuskatt fyrirtækja, auðlegðarskatt, erfðafjárskatt og umhverfis- og auðlindagjald auk áforma um sérstakan bankaskatt.

10.8.2010

Hćgir á fjölgun örorkulífeyrisţega

Verulega hefur hægt á fjölgun örorkulífeyrisþega, þ.e. þeirra sem skráðir eru með 75% örorku eða meira, á þessu ári miðað við það síðasta. Fjöldi örorkulífeyrisþega var 15.842 þann 1. júlí síðastliðinn en hann var 15.677 í ársbyrjun þannig að fjölgunin á árinu nemur 165 einstaklingum á fyrri hluta ársins. Þetta er mikil breyting frá fyrri árum þar sem örorkulífeyrisþegum fjölgaði um 500-1.300 árlega á árabilinu 2004-2009.

10.8.2010

Vinnustađaeftirlit og vinnustađaskírteini - allar upplýsingar á www.skirteini.is

Þann 15. ágúst næstkomandi tekur gildi samkomulag SA og ASÍ um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Samkomulagið byggir á lögum nr. 42/2010 um sama efni  sem veita heildarsamtökum vinnumarkaðarins heimild til að semja um  hvaða starfsgreinar falli undir gildissvið laganna hverju sinni. Öllum atvinnurekendum í hlutaðeigandi greinum ber að sjá til þess að starfsmenn fái vinnustaðaskírteini þegar þeir hefja störf.

28.7.2010

Meiri atvinnu - ekki meiri upphlaup

Samtök atvinnulífsins lýsa undrun sinni á því upphlaupi sem orðið hefur innan stuðningsliðs ríkissjórnarinnar vegna Magma málsins. Hið sænska félag sem keypt hefur HS orku að stærstum hluta hefur full réttindi á hinu Evrópska efnahagssvæði og er lögmætur eigandi hlutarins í HS orku. Kaup Magma á hlutum í HS orku er ennfremur alfarið í samræmi við lög frá árinu 2008 þar sem kveðið er á um aðskilnað milli eignarhalds á orkulindum og framleiðslu eða dreifingar.

16.7.2010

Kaupmáttur lágmarkslauna hćrri nú en í ársbyrjun 2008

Kaupmáttur lágmarkslauna er nú 2,5% hærri en í ársbyrjun 2008. Kjaraskerðing verkafólks af völdum efnahagskreppunnar hefur verið minni en annarra hópa.

15.7.2010

Vönduđ skattaskýrsla AGS

Íslenska skattkerfið fær á heildina litið jákvæða umsögn í skýrslu AGS um skattkerfið, Improving the Equity and Revenue Productivity of the Icelandic Tax System. Það sé fremur einfalt, skattstofnar breiðir, skatthlutföll tiltölulega lág, möguleikar til skattasniðgöngu takmarkaðir og tekjuöflunargeta mikil. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA í grein í Viðskiptablaðinu í dag.

8.7.2010

Komum atvinnulífinu af stađ

Svipleg örlög stöðugleikasáttmálans breyta því ekki að gera verður nýja atrennu að því að ná atvinnulífinu á alvöru skrið, skapa störf og eyða atvinnuleysinu. Ríkisstjórnin kemur óhjákvæmilega að því en í samskiptum við ríkisstjórn og önnur stjórnvöld þarf í ljósi reynslunnar að ganga mun tryggilegar frá málum en áður var nauðsynlegt. Nú þarf að miða við að lagabreytingar sem ríkisstjórn vill beita sér fyrir í samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins verði samþykktar áður en gengið er frá kjarasamningum og sambærilegt gildi um stjórnvaldsákvarðanir. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins m.a. í leiðara nýs fréttabréfs SA um komandi kjaraviðræður og áherslur SA en flestir samningar á vinnumarkaðinum renna út í lok nóvember.

8.7.2010

Verulegt svigrúm til ađ bćta rekstur sveitarfélaga: 20 milljarđar á ári

Sveitarfélög verða að setja sér haldgóðar fjármálareglur sem tryggja eftir föngum hallalausan rekstur þeirra. Fjárhagur flestra sveitarfélaga þolir ekki lausatök og mikilvægt er að sveitarfélög sæki leiðir til hagræðingar í reynslu hjá hverju öðru. Breytileiki í kostnaði sveitarfélaga á hvern íbúa er mikill sem sýnir að verulegt svigrúm er fyrir bættan rekstrarárangur sem nauðsynlegt er að nýta. Í tillögum Samtaka atvinnulífsins að nauðsynlegum umbótum í fjármálum hins opinbera kemur fram að hægt sé að hagræða á vettvangi sveitarfélaganna fyrir um 20 milljarða króna á ári.

8.7.2010

Umbćtur nauđsynlegar í menntakerfinu

Lækka þarf kostnað á nemanda í íslensku skólakerfi með því að gera skipulag grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla markvissara. Þrátt fyrir að útgjöld til menntamála á Íslandi séu hærri en í öðrum OECD ríkjum sem hlutfall af landsframleiðslu þá skilar það sér ekki sem skyldi í árangri í menntun. Menntunarstig landsmanna 25-64 ára er töluvert undir meðaltali OECD ríkja.

8.7.2010

Ljósvakamiđlar fái jöfn tćkifćri til ađ sinna hlutverki RÚV

Skatttekjur Ríkisútvarpsins eru vel á fjórða milljarð króna á ári. Að mati Samtaka atvinnulífsins er óhjákvæmilegt að þessi starfsemi verði fyrir miklum niðurskurði á næstunni. Mikil framþróun hefur átt sér stað í fjölmiðlun á síðustu árum og því eðlilegt að ljósvakamiðlar fái allir jöfn færi á að sinna því hlutverki sem Ríkisútvarpið gegnir nú samkvæmt útvarpslögum: Að gegna öryggishlutverki á hættutímum, flytja fréttir og skoðanaskipti, standa vörð um íslenska tungu, menningararfleifð og sögu þjóðarinnar, flytja lista- og menningarefni, fræða hlustendur, flytja skemmtiefni, sérstaklega fyrir börn og senda dagskrána út til landsins alls.

7.7.2010

Allir vinna: Hvatningarátak um atvinnuskapandi framkvćmdir

Sameiginlegt hvatningarátak stjórnvalda, aðila vinnumarkaðarins og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands hófst í dag undir yfirskriftinni Allir vinna. Átakinu eru ætlað að efla innlenda atvinnustarfsemi, framleiðslu, verslun og þjónustu. Landsmenn eru hvattir  til að nýta sér hagstæðar aðstæður til að ráðast í framkvæmdir og leggja þar með sitt af mörkum til að skapa atvinnu.

 

Endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna vinnu við eigið íbúðarhúsnæði eða sumarhús hefur verið hækkuð úr 60% í 100%. Þá geta einstaklingar sem fjárfesta í viðhaldi á eigin húsnæði fengið allt að 200 þúsund króna skattafrádrátt en hjón eða samskattaðir allt að 300 þúsund króna skattafrádrátt.

7.7.2010

Íslenska ákvćđiđ skilar miklum árangri

Nýlega sendi Umhverfisstofnun skýrslu til skrifstofu loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna um útstreymi gróðurhúsalofttegunda hér á landi árið 2008. Þetta er fyrsta árið af fimm sem fellur innan skuldbindingartímabils Kyoto-bókunarinnar. Eins og kemur fram í tilkynningu Umhverfisstofnunar er búist við að Ísland uppfylli þær skuldbindingar sem bókunin kveður á um.

7.7.2010

Útstreymi gróđurhúsalofttegunda viđ fiskveiđar dregst enn saman

Á árunum 1990 til 2008 dró úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda við fiskveiðar hér á landi um 21%. Útstreymið varð mest árið 1996 um 800 þúsund tonn en var aðeins 517 þúsund tonn árið 2008 og hafði þannig minnkað um þriðjung frá því mest var. Enn meira hefur dregið úr útstreymi frá fiskimjölsverksmiðjum. Ekki er vafi á að aflamarkskerfið á sinn þátt í þessari þróun en það hefur ýtt undir fækkun fiskiskipa, hagræðingu og tæknivæðingu í greininni. Hvati til olíusparnaðar er einnig mikill.

5.7.2010

Gćtt verđi međalhófs viđ beitingu kyrrsetningarúrrćđa

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekki venju að stjórnarmenn hlutafélaga fari nákvæmlega yfir virðisaukaskattskil félaganna. Hann telur að það geti haft letjandi áhrif á vilja fólks til að gegna stjórnarsetu ef yfirvöld gæti ekki meðalhófs við beitingu kyrrsetningarúrræða gagnvart stjórnarmönnum hlutafélaga vegna skattskila.

1.7.2010

SA krefjast hrađrar úrlausnar mála er tengjast gengistryggđum lánum

Samtök atvinnulífsins hafa farið þess á leit við dómsmála- og mannréttindaráðherra að beita sér fyrir því að mál vegna gengistryggðra lána fái flýtimeðferð í dómskerfinu. Með dómunum hefur skapast gríðarleg réttaróvissa ásamt óvissu um afleiðingarnar m.a. um hversu víðtæk áhrifin eru, hvernig fara eigi með það sem greitt hefur verið og hvernig skuli fara með skuldbindingar sem eru að fullu greiddar. Skiptar skoðanir eru einnig um hvaða vexti skuli miða við á umræddum skuldbindingum.

30.6.2010

Íslandsstofa stofnuđ

Stofnfundur Íslandsstofu var haldinn þriðjudaginn 29. júní. Með tilkomu hennar verður öll kynning á viðskiptalegum hagsmunum Íslands komin undir einn hatt, en í lögum um Íslandsstofu segir að markmið þeirra sé að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, sagði í ávarpi að stofnun Íslandsstofu væri sérstakt gleðiefni. Með samstarfi atvinnulífs, utanríkisþjónustunnar, fyrirtækja og stjórnvalda hafi verið skapaður grunnur til að standa vel að þessu mikla og mikilvæga verkefni.

25.6.2010

Óvissu verđi eytt sem fyrst

Aðilar vinnumarkaðarins og fulltrúar sveitarfélaganna voru boðaðir á upplýsingafund í stjórnarráðinu í gær um mögulegar afleiðingar nýfallinna dóma Hæstaréttar um gengistryggingu lána. „Það var verið að kynna okkur ákveðnar sviðsmyndir sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn hafa verið að setja upp í framhaldi á dómi Hæstaréttar. Þær voru misdökkar eftir því hvaða forsendur voru gefnar," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við Vísi en Vilhjálmur sat fundinn ásamt Vilmundi Jósefssyni, formanni SA. Vilhjálmur og Vilmundur segja að eyða þurfi óvissu í málinu sem allra fyrst. Það sé afar brýnt að það komi fljótt fram einhver lína um hvernig fjármálafyrirtækin ætli að taka á þessu máli og að ríkisstjórnin styðji þá leið.

21.6.2010

Hćkkun lífeyrisaldurs verđi skođuđ

Samtök atvinnulífsins telja að skoða beri hækkun lífeyrisaldurs og tengingu hans við lengri meðalævi þjóðarinnar. Miklar breytingar eru fyrirsjáanlegar á aldurssamsetningu Íslendinga á næstu áratugum þar sem eldra fólki mun fjölga hlutfallslega og fólki á vinnualdri mun jafnframt fækka hlutfallslega. SA telja því að það hljóti að koma til alvarlegrar skoðunar að hækka almennan aldur til töku lífeyris á næstunni úr 67 árum í 68 ár hjá almennu lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun og hækka jafnframt þennan aldur hjá lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna úr 65 í 68 ár. Þetta kemur m.a. fram í nýju riti SA Nauðsynlegar umbætur í fjármálum hins opinbera. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2.

16.6.2010

Lćkkun ríkisútgjalda nauđsynleg

Samtök atvinnulífsins vilja hefja umræðu um að hækka viðmiðunaraldur vegna lífeyristöku úr 67 í 68 ár. Ennfremur telja SA skynsamlegt að viðmiðunaraldur vegna lífeyrisréttinda opinberra starfsmanna, sem er 65 ár, verði samræmdur því sem gildir um almenna lífeyrissjóði og almannatryggingar. Í ljósi fyrirsjáanlegra breytinga á aldurssamsetningu þjóðarinnar eru hugmyndir um skattlagningu inngreiðslna í lífeyrissjóði fráleitar. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs SA um leiðir til umbóta í ríkisfjármálum.

16.6.2010

Nýtt rit SA: Tillögur um nauđsynlegar umbćtur í fjármálum hins opinbera

Einn meginþátturinn í endurreisn íslensks efnahags er að snúa hallarekstri ríkissjóðs við þannig að afgangur verði á rekstrinum. Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, á morgunverðarfundi SA í morgun þar sem nýtt rit SA um nauðsynlegar umbætur í fjármálum hins opinbera var kynnt.

 

Vilhjálmur sagði  fjármál hins opinbera hafa margvísleg áhrif á atvinnulífið og móta starfsskilyrði og samkeppnisstöðu þess. Opinberu fjármálin hafi t.a.m. áhrif á verðbólgu og vexti og þar með á hagvöxt, sköpun starfa og kaupmátt launa. Traust opinber fjármál séu því ein grundvallarforsenda þess að unnt verði að sækja fram til bættra lífskjara.

16.6.2010

400 stćrstu: Ađstćđur slćmar, fćkkun starfsmanna, minnkandi eftirspurn og versnandi afkoma

Aðstæður í efnahagslífinu eru nú slæmar að mati 87%  stjórnenda í stærstu fyrirtækjum landsins, 1% telja þær góðar en 12% telja aðstæður hvorki góðar né slæmar. Er þetta meðal niðurstaðna ársfjórðungslegrar könnunar Capacent Gallup á stöðu og horfum meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins, en könnunin var gerð í maí og byrjun júní 2010. Afstaða stjórnenda hefur ekki breyst frá síðustu könnun í febrúar og mars sl. Vísitala efnahagslífsins er því enn við lægstu mörk líkt og hún hefur verið frá hruni bankanna.

16.6.2010

BUSINESSEUROPE: Hógvćr hagvaxtarspá fyrir Evrópu

BUSINESSEUROPE (Evrópusamtök atvinnulífsins) birtu í vikunni nýja hagvaxtarspá en Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins eiga aðild að BUSINESSEUROPE. Samtökin spá hægum efnahagsbata í löndum ESB og gera ráð fyrir 1,1% hagvexti á þessu ári og 1,6% á því næsta. Búist er við að atvinnuleysi verði að meðaltali um 10% í löndum ESB og að atvinnuástandið batni ekki fyrr en í árslok 2011. Þó er atvinnuleysi mjög mismunandi milli landa eða frá 5-6% í Austurríki og Hollandi til tæplega 20% á Spáni. BUSINESSEUROPE birtu einnig nýja skýrslu um stöðu evrunnar í vikunni og æskileg viðbrögð til að styrkja framtíð hennar. Skýrsluna má nálgast á vef SA ásamt hagvaxtarspánni.

15.6.2010

Samkomulag SA og ASÍ um vinnustađaskírteini - nýr upplýsingavefur

Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins (SA) og Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og aðildarsamtaka þess undirrituðu í dag, 15. júní, samkomulag um vinnustaðaskírteini og framkvæmd eftirlits á vinnustöðum. Samkomulagið byggir á lögum nr. 42/2010 sem samþykkt voru á Alþingi 11. maí sl. um sama efni sem veita heildarsamtökum vinnumarkaðarins heimild til að semja um hvaða starfsgreinar falli undir gildissvið laganna hverju sinni.

15.6.2010

Skráningu á morgunverđarfund SA 16. júní lýkur í dag

Hátt í 200 manns hafa nú þegar boðað komu sína á morgunverðarfund Samtaka atvinnulífsins um nauðsynlegar umbætur í fjármálum hins opinbera en skráningu á fundinn lýkur í dag. Fundurinn fer fram þann 16. júní á Grand Hótel Reykjavík kl. 8:30-10:00 í salnum Gullteig. Tillögur SA um nauðsynlegar umbætur í fjármálum hins opinbera kynntar verða kynntar á fundinum.

11.6.2010

Ríkisfjármálum verđur ađ koma í lag

Grundvallarforsenda þess að unnt verði að sækja fram til bættra lífskjara á Íslandi er að dregið verði úr útgjöldum hins opinbera og fjármunir þess nýttir betur. Of miklar skattaálögur á fyrirtæki og einstaklinga draga úr hagvexti og því eru takmörk sett hversu mikið er hægt að auka skattheimtuna. Því eru líka takmörk sett hvað hægt er að draga mikið saman þjónustu hins opinbera. Með hagræðingu og nýjum hugmyndum um skipulag þjónustunnar er hins vegar hægt að lækka útgjöld ríkisins án þess að skerða lífskjör borgaranna.

10.6.2010

Nauđsynlegar umbćtur í fjármálum hins opinbera - tillögur SA kynntar 16. júní

Samtök atvinnulífsins efna til morgunverðarfundar um nauðsynlegar umbætur í fjármálum hins opinbera, miðvikudaginn 16. júní, á Grand Hótel Reykjavík. Á fundinum verður kynnt nýtt rit SA um fjármál hins opinbera og tillögur SA til umbóta. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra mun á fundinum bregðast við tillögum SA og fjalla um fjármál ríkisins. Sérstakur gestur fundarins verður David Croughan frá samtökum atvinnurekenda á Írlandi og mun hann m.a. segja frá aðgerðum Íra í kreppunni.

3.6.2010

Mikiđ fé bundiđ í Seđlabankanum

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að 200 milljarðar króna af innlánum viðskiptabanka og sparisjóða séu úr umferð meðan þær fjárhæðir liggi í Seðlabankanum. Atvinnulífið í landinu sé svelt um tugi milljarða vegna þessa. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.

1.6.2010

55 milljónir í styrki til starfsmenntunar í atvinnulífinu

Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunarverkefna í atvinnulífinu á árinu 2010. Til úthlutunar eru 55 milljónir króna en skilyrði fyrir styrkveitingu verða kynnt á opnum fundi Starfsmenntaráðs, fimmtudaginn 3. júní kl. 9:15-10:30 í húsakynnum BSRB, Grettisgötu 89 Reykjavík. Aðildarfyrirtæki SA eru hvött til að kynna sér þá möguleika sem í boði eru en m.a. verða veittir styrkir til fræðsluverkefna sem stuðla að atvinnusköpun en einnig verða þróunarverkefni styrkt sem miðað að því að vinna gegn neikvæðum áhrifum breytinga í kjölfar efnahagskreppu.

28.5.2010

Markmiđ Stađlaráđs ađ auka samkeppnishćfni atvinnulífsins

Á aðalfundi Staðlaráðs sem fram fór í vikunni kom fram að stjórn þess hyggst veita allt að 5 milljónum króna til nýrra verkefna á sviði stöðlunar á vegum aðila þess. Á fundinum kom fram sú skoðun að með því að styrkja Staðlaráð enn frekar sem miðstöð stöðlunarstarfs á Íslandi, nýtist betur fjármunir sem eru til umráða í staðlastarfi. Markmið Staðlaráðs er m.a. að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

27.5.2010

Gögn frá ráđstefnu um góđa stjórnarhćtti

Á ráðstefnu um stjórnarhætti fyrirtækja sem haldin var í vikunni á vegum Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins, Kauphallarinnar og rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti var m.a. fjallað um áhrif góðra stjórnarhátta á rekstur fyrirtækja. Hátt í 100 manns sóttu ráðstefnuna, en þar tóku m.a. til máls Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar og Páll Harðarsonar forstöðumaður rekstrarsviðs Kauphallar Íslands.

27.5.2010

Fundur SA og SVŢ um sameiningu samgöngustofnana

Samtök atvinnulífsins og SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu efna til opins upplýsingafundar um fyrirhugaða sameiningu samgöngustofnana þriðjudaginn 1. júní í Húsi atvinnulífsins kl. 8:30-10:00. Fundurinn fer fram á 6. hæð og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir

26.5.2010

Stóru verkefnin skortir

„Ríkisstjórnin hefur vissulega verið að gera eitt og annað en það eru stóru verkefnin sem skipta höfuðmáli sem hafa ekki komist í framkvæmd," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, á fréttavef mbl.is aðspurður um viðbrögð fjármálaráðherra við gagnrýni ASÍ á aðgerðaleysi stjórnvalda. „Þá er ég fyrst og fremst að tala um þessar stóru fjárfestingar í atvinnulífinu þar sem öllum hindrunum átti að vera búið að ryðja úr vegi fyrir 1. nóvember á síðasta ári. Og sömuleiðis átti að vera búið að taka ákvörðun fyrir 1. september á síðasta ári um stórar samgönguframkvæmdir þar sem lífeyrissjóðirnir áttu að koma að fjármögnun. Við erum enn þá með óþarflega mikið atvinnuleysi."

25.5.2010

Ekkert svigrúm til frekari skattahćkkana ađ mati ađila vinnumarkađarins

Það er ekkert svigrúm til frekari skattahækkana og í raun eru þær brot á samkomulagi ríkisstjórnarinnar við aðila vinnumarkaðarins. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, bendir á að nú þegar sé búið að hækka skatta um 70 milljarða króna á árunum 2009 og 2010. „Það er ekki hægt að ganga lengra í þeim efnum." Vilhjálmur segir að fyrst verði að lækka útgjöld ríkisins um allt að 50 milljarða króna. Ef ríkisstjórnin láti verða af því að hækka skattana muni það setja í uppnám samninga við ríkið í tengslum við gerð nýrra kjarasamninga í haust.

25.5.2010

Ráđstefna um stjórnarhćtti fyrirtćkja í dag - 25. maí

Þriðjudaginn 25. maí standa Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq OMX á Íslandi og Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands fyrir ráðstefnu um stjórnarhætti . Markmiðið með ráðstefnunni er að minna á mikilvægi góðra stjórnarhátta innan fyrirtækja og stofnana hér á landi, en ofangreindir aðilar gáfu á síðasta ári út nýja og endurbætta útgáfu af leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja. Ráðstefnan fer fram á Grand Hótel Reykjavík, hún hefst klukkan 12 og stendur til 13.45.

21.5.2010

Illt er ađ tala tungum tveim og mćla sitt međ hvorri

Samtök atvinnulífsins telja eitt brýnasta verkefni stjórnvalda að  örva fjárfestingar og efla útflutningsframleiðslu. Eitt mikilvægasta tækið til þess er að styrkja orkufyrirtækin til að tryggja að þau geti fjárfest í aukinni orkuframleiðslu og stundað rannsóknir svo unnt sé að halda áfram að virkja sjálfbærar orkulindir Íslands. Þetta markmið er í fullu samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar sem lýsti yfir við myndun stjórnarinnar: „Leitað verður leiða til þess að örva fjárfestingu innlendra og erlendra aðila og sköpun nýrra starfa á almennum vinnumarkaði."

21.5.2010

SFF: Bćtur vegna sjúkdómatrygginga verđi ekki skattskyldar

Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) telja mikilvægt að eyða óvissu um skattalega meðferð bóta og taka undir sjónarmið  Gigtarfélags Íslands, Hjartaheillar og Krabbameinsfélagsins í bréfi til efnahags- og skattanefndar Alþingis þar sem bent er á að brýnt sé að taka af öll tvímæli um að bætur úr sjúkdómatryggingum séu ekki og verði ekki til framtíðar tekjuskattsskyldar. Þetta kemur fram í samantekt SFF um skattlagningu sjúkdómatrygginga sem birt er á vef samtakanna.

21.5.2010

Aftur um skrif Jóhanns Páls Símonarsonar um Gildi

„Enn reynir Jóhann Páll Símonarson að sverta forráðamenn lífeyrissjóðsins Gildis í Mbl. þann 14. maí sl. Sem fyrr er reitt hátt til höggs en eins og endranær missir Jóhann Páll marks. Fullyrðing Jóhanns um 100 milljarða tap Gildis stendur gegn þeirri staðreynd að meðalávöxtun sjóðsins sl. 10 ár er 2% að raungildi. Þetta þýðir að höfuðstóll sjóðsins hefur varðveist bærilega þrátt fyrir hrun fjármálakerfisins, að það sem hefur tapast er fyrst og fremst eitthvað sem áður græddist. Fullyrðingar um 100 milljarða tap eru ekki á rökum reistar frekar en annað í málflutningi Jóhanns." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, varaformaður stjórnar Gildis og framkvæmdastjóri SA, m.a. í grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag.

20.5.2010

Hćgagangur í úrlausn skuldavanda framlengir kreppuna og tefur endurreisn

„Það er afar brýnt að bankarnir vinni með fyrirtækjunum að úrlausn þess vanda sem skapaðist annars vegar við hrun bankanna og hins vegar gríðarlega gengislækkun íslensku krónunnar. Nauðsynlegt er að sem fyrst takist að ljúka afgreiðslu mála þannig að fyrirtækin þurfi ekki að velkjast um í óvissu misseri eftir misseri án þess að það takist að ljúka samkomulagi við viðskiptabanka sinn." Þetta sagði Vilmundur Jósefsson, formaður SA, m.a. í ræðu á opnum fundi Samkeppniseftirlitsins um yfirtöku banka á fyrirtækjum og hlutverk Samkeppniseftirlitsins.

20.5.2010

Tćplega helmingur lána til fyrirtćkja í skilum hjá Íslandsbanka

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, birti í morgun á opnum fundi Samkeppniseftirlitsins yfirlit yfir lán Íslandsbanka til fyrirtækja. Athygli verkur að þrátt fyrir mjög erfiðar aðstæður í atvinnulífinu er tæpur helmingur lána bankans til fyrirtækja, eða 46%, í skilum. Þá eru 41% lánanna í endurskipulagningu en markmið Íslandsbanka er að fyrirtækin geti staðið í skilum að henni aflokinni.  Aðeins 4% lána Íslandsbanka til fyrirtækja eru í vanskilum en 9% eru á athugunarlista.

20.5.2010

Óţarft ađ auka valdheimildir Samkeppnisstofnunar til ađ skipta upp fyrirtćkjum

Vilmundur Jósefsson, formaður SA, fjallaði um aðkomu bankanna að endurskipulagningu fyrirtækja og hlutverk Samkeppniseftirlitsins á opnum fundi eftirlitsins sem fram fór í morgun. Þar ræddi hann m.a. um ósk Samkeppniseftirlitsins um auknar valdheimildir til að skipta upp fyrirtækjum án þess að þau hafi brotið af sér eða án þess að um sé að ræða samruna sem hefur í för með sér markaðsráðandi stöðu. Þessar óskir hafa nú birst í lagafrumvarpi sem til umfjöllunar er á Alþingi. Samtök atvinnulífsins eru algerlega ósammála þessu sjónarmiði, telja stofnunina ekki hafa fært fyrir því gild rök og að sú lagabreyting sem stofnunin hefur farið fram á sé óþörf.

20.5.2010

Mörg fyrirtćki í vanda vegna erlendra lána

Rætt var við Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsis, í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í kjölfar frétta um að BM Vallá var úrskurðað gjaldþrota í byrjun vikunnar eftir áratuga farsælan rekstur. Vilhjálmur segir afar dapurlegt að svona hafi farið fyrir fyrirtækinu sem hafi verið rekið af miklum metnaði í gegnum tíðina. Vilhjálmur segir að samkvæmt upplýsingum frá bönkunum muni hópur fyrirtækja fara í þrot vegna kreppunnar en framundan sé heilmikil endurskipulagning í atvinnulífinu sem ljúki vonandi að mestu á næstu 12 mánuðum. Vilhjálmur segir stöðu fyrirtækja vera mismunandi en erlend lán valdi mörgum þeirra vandræðum.

17.5.2010

Endurskipulagning stjórnarráđsins: Rekstrarumhverfi fyrirtćkja verđi bćtt

Ríkisstjórnin vinnur nú að útfærslu tillagna um endurskipulagningu stjórnarráðsins,  fækkun ráðuneyta og sparnaði í ríkisrekstri. Gert er ráð fyrir að  ráðuneytum verði fækkað úr tólf í níu og m.a. stofnað nýtt atvinnuvegaráðuneyti með sameiningu iðnaðarráðuneytis og sjávar- og landbúnaðarráðuneytis. Samtök atvinnulífsins telja afar mikilvægt að unnið verði að aukinni skilvirkni, hagræðingu og sparnaði í stjórnsýslunni. Við áformaðar breytingar verði hagur atvinnulífsins jafnframt hafður í fyrirrúmi og tryggt að þær leiði til bætts rekstrarumhverfis fyrirtækja.

17.5.2010

Mikilvćg fjárfesting Magma Energy í HS Orku

Samtök atvinnulífsins fagna samkomulagi um kaup Magma Energy á stórum hlut í HS Orku. Með samkomulaginu hefur sterkt erlent fyrirtæki eignast ráðandi hlut í HS Orku og jafnframt lýst yfir áformum um að standa að öflugri uppbyggingu jarðvarmavirkjana hér á landi. Sérstaklega mun þetta gefa HS Orku tækifæri til að halda áfram á fullum krafti  uppbyggingu Reykjanesvirkjunar ásamt frekari rannsóknum á svæðinu.

14.5.2010

Glötuđ tćkifćri?

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í leiðara nýs fréttabréfs SA að tölur um vinnumarkaðinn á 1. ársfjórðungi gefi tilefni til bjartsýni þar sem störfum í heild fækki lítið milli ára og störfum á landsbyggðinni fjölgi umtalsvert. Atvinnulífið gæti því byrjað að vaxa á 2. ársfjórðungi ef allt væri eðlilegt og árið í heild komið út á núlli eða með örlitlum hagvexti í stað 2-3% samdráttar sem nú er spáð. „Aðeins eldgosið í Eyjafjallajökli ógnar nú þeirri þróun," segir Vilhjálmur en bendir þó á að þetta gerist án þess að möguleikar séu nýttir til að koma atvinnulífinu á verulegan skrið.

 

„Ennþá eru fjárfestingar í atvinnulífinu í lágmarki og fyrirtæki, stór og smá, halda að sér höndum. Ennþá hefur ekki tekist að hrinda af stað stórum fjárfestingum á vegum hins opinbera með aðkomu lífeyrissjóðanna eins og talað var um síðastliðið sumar að gera fyrir 1. september 2009."

14.5.2010

Skattahćkkanir vanmetnar í skýrslu Alţjóđagjaldeyrissjóđsins

Samtök atvinnulífsins telja að svigrúm ríkisstjórnarinnar til skattahækkana á árunum 2009-2011 sé nú þegar fullnýtt og ná verði markmiðum um bætta afkomu ríkissjóðs 2011 með gjaldalækkunum. Í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá 8. apríl eru skattahækkanir á Íslandi vanmetnar um 2% af landsframleiðslu en samkvæmt fjárlögum 2010 aukast skatttekjur ríkissjóðs um 50 milljarða króna frá fjárlögum 2009 að teknu tilliti til samdráttar í eftirspurn en útgjöld ríkissjóðs að frátöldum vaxtagjöldum aukast um 2 milljarða króna. Til að ná yfirlýstum markmiðum um jafnvægi í ríkisfjármálum verður þörf á aðgerðum til að bæta afkomu ríkissjóðs í fjárlögum 2011 sem nema allt að 3% af landsframleiðslu eða um 50 milljörðum króna og um 2% af landsframleiðslu hvort ár 2012 og 2013.

14.5.2010

Ţriđja stođ lífeyriskerfisins - 300 milljarđar í séreignarsparnađi

Kostir núverandi fyrirkomulags  fulltrúalýðræðis við stjórnun lífeyrissjóða sem samið er um í kjarasamningum eru ótvíræðir, vegna þess að  það tryggir jafnvægi milli ólíkra hagsmuna, langtímastöðugleika og vönduð vinnubrögð. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í grein á vef SA um lífeyrismál og séreignarsparnað en áætlað er að séreignarsparnaður landsmanna nemi nú allt að 300 milljörðum króna. Í greininni fjallar Hannes m.a. um hugmyndir á vettvangi stjórnmálanna um breytingar á umgjörðinni um lífeyrissjóði og lífeyrissparnað sem hingað til hefur verið sátt um, m.a. skattlagningu inngreiðslna í lífeyrissjóði sem bæði SA og ASÍ hafa eindregið lagst gegn.

14.5.2010

Auka ţarf útflutning um 7-8% á ári

Á Útflutningsþingi sem fór nýverið fram sagði Grímur Sæmundsen, varaformaður SA, nauðsynlegt að setja markmið um að auka útflutning frá Íslandi um 7-8% á ári og að vöxturinn verði 1-2% umfram árlega aukningu alþjóðaviðskipta. Með markvissum og samhæfðum aðgerðum er hægt að auka útflutning um 60-70 milljarða á ári sagði Grímur. „Til þess að það verði unnt, verður ríkisvaldið að taka höndum saman við atvinnulífið, verkalýðshreyfinguna og sveitarfélög um nauðsynlegar aðgerðir og nýja endurreisnaráætlun, sem komið getur atvinnulífinu á réttan kjöl. Innihaldslausar yfirlýsingar eins og gefnar voru við gerð stöðugleikasáttmálans sáluga síðastliðið sumar duga ekki í þeim efnum."

13.5.2010

Upptökur frá SFF-deginum komnar á vefinn

SFF dagur Samtaka fjármálafyrirtækja var haldinn 12. maí sl. undir yfirskriftinni Með traust að leiðarljósi. Ræðumenn á ráðstefnunni voru Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra, Salvör Nordal forstöðumaður Siðfræðistofnunar, Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Lilja Ólafsdóttir formaður stjórnar FME, og Birna Einarsdóttir, formaður SFF. Ráðstefnustjóri var Margrét Kristmannsdóttir formaður SVÞ. Upptökur af erindum ræðumanna má nú nálgast á vef SFF.

10.5.2010

Hlé á viđrćđum ađila vinnumarkađarins og stjórnvalda

Ekkert hefur þokast í viðræðum á milli aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um áframhaldandi samráð eftir að Samtökum atvinnulífsins var vísað frá stöðugleikasáttmálanum. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að ákveðið hafi verið að bíða með frekari fundahöld á meðan reynt sé að koma sjávarútvegsmálunum í einhvern farveg á nýjan leik.  „Við þurfum að reyna að koma einhverri hreyfingu á sjávarútvegsmálin."

10.5.2010

Útflutningsţing 2010 - erindi fyrirlesara komin á vefinn

Útflutningsþing var haldið á Hilton Reykjavík Nordica, fimmtudaginn 6. maí 2010. Þar komu saman stjórnendur fjölbreyttra útflutningsfyrirtækja og fjölluðu um tækifæri í útflutningi ásamt því að miðla af reynslu sinni. Að þinginu stóðu Samtök atvinnulífins, Útflutningsráð og Íslandsbanki. Þingið var mjög vel sótt og tókst í alla staði vel.

8.5.2010

Athugasemdir vegna skrifa Jóhanns Páls Símonarsonar um Gildi

„Jóhann Páll Símonarson skrifaði opið bréf til mín í Morgunblaðinu fimmtudaginn 6. maí sl. og leggur fram ýmsar spurningar um málefni lífeyrissjóðsins Gildis. Fyrir þá sem ekki vita hefur Jóhann Páll reynt að gera sig gildandi á ársfundum Gildis undanfarin ár og skeytt takmarkað um samþykktir sjóðsins eða almenn fundarsköp en reitt til höggs gagnvart stjórn og starfsmönnum óháð því hvort vel hefur gengið eða miður. Málefnatilbúnaðurinn hefur verið fátæklegur en þó sjaldnast jafn rýr og nú." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, varaformaður stjórnar Gildis og framkvæmdastjóri SA m.a. í grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Greinina má lesa á vef SA.

6.5.2010

Frćđslumiđstöđ atvinnulífsins ţjónar vinnumarkađnum öllum

Á aðalfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) í dag var samþykkt að BSBR, Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðuneytisins verði aðilar að félaginu, auk Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Þá undirrituðu fjármálaráðherra fh. ríkisins og fulltrúar BSRB, samtaka sveitarfélaga, ASÍ og SA nýjar samþykktir fyrir Fræðslumiðstöðina. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins er ætlað mikilvægt hlutverk í framhaldsfræðslu.

6.5.2010

Útflutningur, hagvöxtur og fjárfestingar

Í ræðu sinni á Útflutningsþingi sem haldið var á Hótel Nordica í morgun fjallaði Grímur Sæmundsen, varaformaður SA, um þau skilyrði sem nauðsynlegt er að uppfylla til að auka útflutning og sagði m.a. nauðsynlegt að lækka vexti, afnema gjaldeyrishöft, efla alþjóðleg tengsl bankakerfisins þannig að „sköpuð verði skilyrði til að efla fjárfestingar, hvort sem er í ferðaþjónustu, orkufrekum iðnaði, sjávarútvegi eða öðrum greinum – í smáum sem stórum fyrirtækjum“. „Þær fjárfestingar verða að vera á breiðu sviði með langtímasýn að leiðarljósi. Þetta felur í sér að byggja verður upp atvinnustarfsemi í útflutningsgreinum, sem geta verið samkeppnishæfar þrátt fyrir, að raungengi muni hækka og launakostnaður aukast“. 

6.5.2010

Ađilar vinnumarkađarins munu verja lífeyrissjóđina

Uppbygging lífeyrissjóða er eitt af því sem best hefur tekist hjá Íslendingum undanfarin ár og áratugi. Í sjóðunum eru nú samtals rúmlega 1.800 milljarðar króna og fáar þjóðir hafa byggt upp sambærilegan sparnað til þess að standa undir lífeyrisgreiðslum í framtíðinni. Einungis Holland og Sviss eru sambærileg við Ísland en þessi þrjú ríki eiga sparnað í lífeyrissjóðum sem nemur 120-130% af landsframleiðslu en önnur ríki standa þeim langt að baki. Umhugsunarvert er að bera saman stöðu Íslands og Grikklands. Grikkland engist í djúpri kreppu meðal annars vegna ákvarðana skammsýnna og tækifærissinnaðra stjórnmálamanna fyrr á árum sem lögleiddu lífeyriskerfi á kostnað skattgreiðenda sem engin leið er að standa undir, en Grikkir eiga enga lífeyrissjóði. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í grein um lífeyrissjóðina.

4.5.2010

Stefnumót viđ stjórnendur leiđandi fyrirtćkja á Útflutningsţingi fimmtudaginn 6. maí

Samtök atvinnulífsins, Útflutningsráð og Íslandsbanki efna til Útflutningsþings fimmtudaginn 6. maí á Hótel Nordica kl. 8:30-13:00. Á þinginu munu stjórnendur leiðandi íslenskra útflutningsfyrirtækja miðla af reynslu sinni og rýna í framtíðina ásamt því sem upplýsingar um stöðu útflutnings frá Íslandi verða birtar. Í hádeginu verður boðið upp á léttan hádegisverð og tengslamyndun en þá gefst þátttakendum einstakt tækifæri á að ræða í góðu tómi við fjölbreyttan hóp stjórnenda sem flytja erindi á þinginu - samanlögð reynsla þeirra og þekking á íslensku atvinnulífi og útflutningi er gríðarlega mikil.

29.4.2010

Viđrćđur um nýja endurreisnaráćtlun efnahags- og atvinnulífsins

Í Viðskiptablaðinu sem kom út í dag er að finna ítarlegt viðtal við Vilmund Jósefsson, formann Samtaka atvinnulífsins. Þar segir Vilmundur m.a. að ákveðið hafi verið að huga að nýrri endurreisnaráætlun fyrir efnahags- og atvinnulífið en SA líta svo á að ríkisstjórnin hafi vísað samtökunum frá stöðugleikasáttmálanum sem skrifað var undir fyrir tæpu ári. „Við eigum nú í viðræðum við aðila vinnumarkaðarins um það hvort við getum komið af stað einhvers konar áætlun. Síðan kemur það í hlut ríkisstjórnarinnar að ákveða hvort hún vill vera aðili að þeirri áætlun," segir Vilmundur.

29.4.2010

Yfir 500 milljarđa reikningur á skattgreiđendur vegna lífeyrissjóđa hins opinbera

Viðskiptablaðið birtir í dag ítarlega úttekt á ávöxtun lífeyrissjóða á síðasta ári. Þar er m.a. vísað til orða formanns SA, Vilmundar Jósefssonar, um málefni lífeyrissjóðanna í ræðu á aðalfundi SA 2010. Þar segir Vilmundur m.a. að það sé mikið umhugsunarefni að opinberir starfsmenn þurfi ekki að glíma við skerðingu á sínum lífeyri í því árferði sem nú ríkir. Vilmundur bendir á að hjá lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna hafi hrúgast upp skuldbindingar langt umfram inngreiðslur. Sjóðir hins opinbera hafi þannig verið með yfir 500 milljarða króna tryggingafræðilegan halla í árslok 2008 sem sé ávísun á miklar skattahækkanir í framtíðinni.

29.4.2010

Fréttir frá ađalfundi SA 2010

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2010 fór fram á Hótel Nordica 21. apríl sl. á síðasta degi vetrar. Hátt í 400 manns úr íslensku atvinnulífi mættu til opinnar dagskrár fundarins sem fór fram undir yfirskriftinni ÍSLAND AF STAÐ! Á vef SA má nú nálgast allt efni aðalfundarins, nýja ársskýrslu SA, ræður frummælenda, upplýsingar um kjör formanns SA og varaformanns, ásamt upplýsingum um kjör nýrrar stjórnar og framkvæmdastjórnar SA fyrir starfsárið 2010-2011.

27.4.2010

Rödd atvinnulífsins í vefsjónvarpi SA

Á vef Samtaka atvinnulífsins má nú horfa á fjölmörg sjónvarpsinnslög undir yfirskriftinni Rödd atvinnulífsins. SA brugðu sér nýverið af bæ og heimsóttu félagsmenn og frumkvöðla víðs vegar um landið til að skoða fjölbreytta framleiðslu og  verðmætasköpun í öllum regnbogans litum. Afraksturinn má sjá á vef SA - á slóðinni www.sa.is/tv - en innslögin voru birt dagana fyrir og eftir aðalfund SA sem fram fór þann 21. apríl undir yfirskriftinni ÍSLAND AF STAÐ!

26.4.2010

SA-TV: 11 milljarđa fjárfesting í aflţynnuverksmiđju Becromal

Á Krossanesi við Eyjafjörð eru framleiddar aflþynnur í nýrri verksmiðju Becromal á Íslandi. Framleiðslan hófst á haustmánuðum 2009 en verið er að byggja verksmiðjuna í áföngum. Um 100 manns munu vinna hjá fyrirtækinu þegar framleiðslan verður komin á fullan skrið. Heildarfjárfesting nemur um 11 milljörðum króna. Í viðtali við SA-TV segir Gauti Hallsson, framkvæmdastjóri Becromal á Íslandi, frá framleiðslunni og ræðir um rektrarumhverfið. Hann segir mikilvægt að eyða óvissu í efnahagslífinu, lækka vexti og að frekari skattar verði ekki lagðir á reksturinn. Slíkt geti verið mjög skaðlegt.

26.4.2010

SA-TV: Breyting SkjásEins í áskriftarsjónvarp hefur gengiđ upp

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjá miðla, segir að það hafi verið líkast því að vera í rússíbana að reka fjölmiðla undanfarna mánuði. Innan Skjá miðla er sjónvarpsstöðin SkjárEinn en fyrir fjórum mánuðum var stöðin gerð að áskriftarstöð eftir að hafa verið 10 ár í opinni útsendingu. Sigríður segir í viðtali við SA-TV umbreytinguna hafa gengið vel og 22% heimila hafi nú tryggt sér áskrift að SkjáEinum.

26.4.2010

SA-TV: Ný vél á leiđ í Reykjanesvirkjun

Möguleikar til orkunýtingar á Reykjanesinu eru ótrúlega miklir. Þetta segir Albert Albertsson, aðstoðarforstjóri HS Orku, en SA-TV ræddi við hann um orkumál í Reykjanesvirkjun. Ný vél í virkjunina er á leiðinni til landsins og verður hún komin fyrir lok maí. Albert segir orkuvinnslu klárlega mikilvægan lið í endurreisn landsins en gangi t.a.m. áform um djúpboranir eftir þúsundfaldast sá orkupottur sem Íslendingar hafa aðgang að. Vonir standa til að með djúpborun niður á 4-5 þúsund metra dýpi sé hægt að vinna mikla orku án þess að hafa mikil áhrif á umhverfið.

26.4.2010

SA-TV: Milljarđar eru búnir til úr ţúsundköllum

Milljarðar eru búnir til úr þúsundköllum og mörg vel rekin lítil og meðalstór fyrirtæki geta búið til verðmæti sem jafnast á við verðmæti stórfyrirtækja sem mest er hampað í íslensku viðskiptalífi. Þetta segir Pétur Jónsson, upptökustjóri og eigandi fyrirtækisins Medialux, sem sérhæfir sig í framleiðslu á tónlist. Pétur segir algenga hugsanavillu að fyrirtæki verði að vera stór til að vera góð. Það sé ekki nauðsynlegt heldur þurfi þau að vera arðbær. Hann segir stjórnmálamenn og viðskiptalífið gjarnan gleyma smáfyrirtækjum sem séu þó viðskipalífinu mjög mikilvæg.

26.4.2010

SA-TV: Eiríkur Tómasson segir nauđsynlegt ađ ná sátt um málefni sjávarútvegsins

Í viðtali við SA-TV segir Eiríkur Tómasson, forstjóri Þorbjarnar í Grindavík, að rekstur fyrirtækisins gangi vel en öllum áformum um framkvæmdir hafi verið slegið á frest á meðan ríkisstjórnin hafi fyrningarleiðina á stefnuskrá sinni. Eiríkur segir fyrningarleiðina mjög skaðlega íslenskum sjávarútvegi en nauðsynlegt sé að sátt náist um málefni sjávarútvegsins svo fyrirtæki innan hans og starfsfólk þeirra geti unnið í friði. Eiríkur segir atvinnulífið tilbúið til að byggja upp á nýjan leik og kallar eftir því að stjórnvöld vinni með atvinnulífinu að þeirri uppbyggingu. Það sé ótækt að fólk sé án atvinnu - jafnvel árum saman.

26.4.2010

SA-TV: Mikiđ ađ gera hjá Promens á Dalvík

Hjá Promens á Dalvík er mikið að gera en þar er unnið allan sólarhringinn og um helgar líka. Promens á Dalvík framleiðir m.a. ker úr plasti sem eru seld víða um heim og notuð undir fisk og önnur matvæli. Daði Valdimarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir í viðtalið við SA-TV að þrátt fyrir alþjóðlegu efnahagskreppuna gangi salan erlendis vel en innlend eftirspurn hafi minnkað, m.a. vegna óvissu í sjávarútvegi sem hafi skapast vegna áforma ríkisstjórnarinnar.

26.4.2010

SA-TV: Hvernig geta Ţingeyingar nýtt orkuna til atvinnusköpunar?

Reinhard Reynisson, framkvæmdastjóri  Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, segir í  viðtali  við SA-TV að Þingeyingar hafi horft til þess í langan tíma að nýta orkuauðlindir á svæðinu til öflugrar atvinnuuppbyggingar. Reinhard segir að undirbúningur álvers Alcoa á Bakka sé það verkefni sem lengst er komið en hann útilokar þó ekki  að ráðist verði í önnur verkefni sem hafa verið til skoðunar. Reinhard segist vonast til þess að hægt verði innan skamms að taka ákvarðanir um virkjanaframkvæmdir á svæðinu og nýtingu orkunnar til atvinnuuppbyggingar í héraðinu.

26.4.2010

SA-TV: Öflugt markađsstarf mikilvćgt í fiskeldi Samherja

Stærsti framleiðandi eldisbleikju í heimi er fyrirtækið Íslandsbleikja á Reykjanesi en það er í eigu Samherja. Fyrirtækið hefur lagt mikla fjármuni í þróunarvinnu á liðnum árum en Samherji er með eldisstöðvar á fimm stöðum á landinu. Auk eldis á bleikju elur Samherji lax, sandhverfu og lúðu. Undanfarin þrjú ár hefur mikil áhersla verið lögð á markaðsstarf í fiskeldi Samherja en það getur ráðið úrslitum um hvort starfsemin ber sig eða ekki.

23.4.2010

Rćđa Birnu Einarsdóttur á ađalfundi SA 2010

„Það er orðið afar brýnt að koma íslensku atvinnulífi í gang fyrir alvöru - núna er annaðhvort að duga eða drepast." Þetta sagði Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, í upphafi ræðu sinnar á aðalfundi SA sem fram fór á síðasta degi vetrar. Íslandsbanki hefur frá hruninu 2008 lánað samtals 50 milljarða króna í nýjum peningum en í erindi Birnu kom fram að Íslandsbanki hefur síðastliðna 18 mánuði unnið að ýmsum verkefnum með fjölmörgum viðskiptavinum - bæði stórum og smáum - þrátt fyrir erfitt efnahagsástand.

23.4.2010

Ný framkvćmdastjórn SA skipuđ 2010-2011

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar Samtaka atvinnulífsins 21. apríl 2010 var skipuð ný framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsárið 2010-2011. Framkvæmdastjórn SA er skipuð formanni og varaformanni samtakanna ásamt 6 mönnum sem stjórnin kýs úr hópi stjórnarmanna. Í framkvæmdastjórn SA 2010-2011 sitja auk Vilmundar Jósefssonar, formanns SA, og Gríms Sæmundsen, varaformanns SA, Birna Einarsdóttir, Finnur Árnason, Friðrik J. Arngrímsson, Helgi Magnússon, Margrét Kristmannsdóttir og Rannveig Rist.

23.4.2010

Grímur Sćmundsen endurkjörinn varaformađur SA

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar Samtaka atvinnulífsins 21. apríl 2010 var Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf., endurkjörinn varaformaður SA. Grímur situr í stjórn Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) ásamt því að eiga sæti í framkvæmdastjórn SA. Grímur tók við sem varaformaður í SA á árinu 2009 en hann hefur nokkur undanfarin ár sinnt trúnaðarstörfum fyrir SAF og SA.

23.4.2010

Ársskýrsla Samtaka atvinnulífsins 2009-2010 komin á vefinn

Ársskýrsla Samtaka atvinnulífsins 2009-2010 kom út á aðalfundi SA 21. apríl. Þar er að finna greinagott yfirlit yfir starfsemi samtakanna á liðnu starfsári. Í skýrslunni er einnig ítarleg umfjöllun um þróun efnahags- og atvinnumála undanfarið ár auk yfirlits um kjaramál og samninga. Rafrænt eintak skýrslunnar má nálgast á vef SA.

23.4.2010

Óvissa um framtíđar rekstrarumhverfi sjávarútvegsins skađleg

Það sem veldur sjávarútvegi mestum vanda í dag er aðallega tvennt. Annars vegar stórfelldur niðurskurður á aflaheimildum og hins vegar óvissa um framtíðar rekstrarumhverfi greinarinnar. Þetta segir Stefán Friðriksson framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja, sem var meðal frummælenda á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins 2010. Stefán segir að engin atvinnugrein geti búið við að forsendum og rekstrarumhverfi sé kollvarpað með þeim hætti sem lagt er til með svokallaðri fyrningarleið.

23.4.2010

Útflutningur á hátćknivörum og ţjónustu 37 milljarđar 2009

Verðmæti útflutnings á hátæknivörum og þjónustu á síðasta ári nam 37 milljörðum íslenskra króna. Það jafngilti 5,5% af  heildarútflutningstekjum þjóðarinnar. Þetta kom fram í ræðu sem Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika og formaður Samtaka sprotafyrirtækja, flutti á aðalfundi SA á síðasta degi vetrar. Svana segir að á síðustu 10 árum hafi þessi verðmæti nærri fimmfaldast og frekari sóknarfæri séu til staðar innan hátækni- og sprotagreina á Íslandi. Tími sé kominn til að virkja mannauð betur á Íslandi en verið hefur til verðmætasköpunar.

21.4.2010

Grímur Sćmundsen rćddi um sóknarfćri í ferđaţjónustu á ađalfundi SA

Það er einstakt tækifæri sem felst í að efla íslenska ferðaþjónustu, auka hagvöxt og koma þar með Íslandi af stað. Þetta sagði Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins og varaformaður SA á aðalfundi samtakanna í dag. Grímur benti á að íslensk ferðaþjónusta skapaði 20% gjaldeyristekna þjóðarbúsins á síðasta ári. Til samanburðar skapaði sala stóriðjuafurða 24% og sala sjávarafurða 27% gjaldeyristeknanna. Árið 2009 var stærsta tekjuár atvinnugreinarinnar frá upphafi  og gjaldeyristekjur hennar námu eitt hundrað fimmtíu og fimm milljörðum króna. Var um 21% raunaukningu að ræða frá árinu 2008.

21.4.2010

Rćđa forsćtisráđherra á ađalfundi SA 2010

„Í mínum huga vegnar okkur best með frjálsum viðskiptum í opnu og alþjóðlegu hagkerfi þar sem pólitíska valdið setur atvinnulífinu laga- og regluramma og hefur virkt eftirlit með því að honum sé framfylgt. Samskiptin fari eftir almennum leikreglum sem séu gegnsæjar þannig að hægt sé á hverjum tíma að sannreyna að þeim hafi verið fylgt." Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra m.a. á aðalfundi SA sem nú stendur yfir.

21.4.2010

Rćđa formanns Samtaka atvinnulífsins á ađalfundi 2010

„Íslensk fyrirtæki verða að fjárfesta,  hafa greiðan aðgang að erlendum lánsfjármörkuðum án gjaldeyrishafta, lágum vöxtum og bankakerfi með góð alþjóðleg tengsl til þess að standast alþjóðlega samkeppni. Þau verða að hafa aðgang að markaði fyrir skuldabréf og hlutabréf og endurreisn trausts á verðbréfamarkaði er einn lykilþáttur í uppbyggingunni. Fyrirtækin verða að hafa svigrúm til þess að stunda nýsköpun, skapa ný störf og geta hagnast og greitt eigendum sínum eðlilegan arð. Fjárfestingar í útflutningsgreinum þurfa að verða á breiðu sviði, allt frá orkufrekum iðnaði, meðalstórum iðnaðarkostum til uppbyggingar ferðaþjónustu.

 

Til þess verða allir ábyrgir aðilar - stjórnvöld, hagsmunasamtök, fólk og fyrirtæki  - að standa saman um þessi lykilatriði." Þetta sagði Vilmundur Jósefsson, formaður SA, m.a. á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins sem nú stendur yfir.

21.4.2010

Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins fyrir 2010-2011

Lýst hefur verið kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2010 til 2011. Ný inn í stjórnina koma þau Aðalheiður Héðinsdóttir, Ásbjörn Gíslason, Guðmundur H. Jónsson, og Hjörleifur Pálsson. Úr stjórninni ganga Gunnar Karl Guðmundsson, Kristín Pétursdóttir  og Jón Sigurðsson. Vilmundur Jósefsson var kjörinn formaður af félagsmönnum SA 2010-2011 en stjórn SA er skipuð 20 mönnum auk formanns. Stjórn SA mótar stefnu og megináherslur samtakanna, m.a. fyrir gerð almennra kjarasamninga.

21.4.2010

Vilmundur Jósefsson kjörinn formađur SA

Á aðalfundi SA 21. apríl 2010 var Vilmundur Jósefsson kjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins. Kosningin fór fram með rafrænum hætti og var þátttaka góð. Vilmundur var rétt kjörinn formaður starfsárið 2010-2011 með 87% greiddra atkvæða. 

21.4.2010

Yfirlýsing forseta Íslands um vćntanlegt Kötlugos

Samtök atvinnulífsins lýsa undrun sinni yfir óheppilegum yfirlýsingum Forseta Íslands 19. apríl sl. á BBC um væntanlegt Kötlugos. Þessi yfirlýsing hefur skaðað íslenska ferðaþjónustu á efriðum tímum þegar allir þurfa að hjálpast að við að styrkja ímynd landins sem áfangastaðar fyrir ferðamenn. Íslensk náttúra er heillandi aðdráttarafl en á stundum óblíð og óútreiknanleg og fjölbreytileiki hennar er það sem vekur athygli og áhuga þeirra sem til landsins koma.

21.4.2010

Skilabođ atvinnulífsins um brýnustu úrlausnarefnin

Í könnun meðal forsvarsmanna aðildarfyrirtækja SA í fyrri hluta apríl voru þeir beðnir um að koma á framfæri skilaboðum til stjórnvalda um brýnustu úrlausnarefnin að þeirra mati. 199 þátttakendur tjáðu sig og lögðu flestir áherslu á mikilvægi þess að örva fjárfestingar. Næst flestar athugasemdir snéru að gagnrýni á ríkisstjórnina og þar á eftir kom áhersla á lækkun vaxta og skatta. Á vef SA er yfirlit yfir þá málaflokka sem nefndir voru til sögunnar og nokkur dæmi um athugasemdir forsvarsmannanna fylgja með.

21.4.2010

Mikill áhugi á ađalfundi Samtaka atvinnulífsins í dag

Vel á fjórða hundrað manns hafa boðað komu sína á opna dagskrá aðalfundar Samtaka atvinnulífsins sem fram fer á Hótel Nordica í dag undir yfirskriftinni „Ísland af stað". Þar mun fjölbreyttur hópur fólks úr íslensku atvinnulífi kynna hugmyndir sínar um hvernig hægt sé að koma Íslandi af stað - 15.000 Íslendingar eru án atvinnu og því verður að breyta. Opin dagskrá hefst kl. 15 með ávarpi Vilmundar Jósefssonar, formanns SA, og Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra.

20.4.2010

Engir gervimenn eigendur ađ fyrirtćkjum sem eiga ađild ađ SA

Í hinni vönduðu skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008 er tafla í viðauka níunda heftis sem ber heitið: Eignarhlutir Gervimanns í útlöndum, þar sem hann átti að minnsta kosti 10% eignarhlut eitthvert áranna 2006, 2007 og 2008. Taflan byggist á tiltekinni frumskrá embættis ríkisskattstjóra þar sem erlendum eigendum fyrirtækja á Íslandi er úthlutað gervikennitölum þar sem þeir hafa ekki íslenskar kennitölur.

20.4.2010

SA-TV: Verđmćti útflutnings Alcoa-Fjarđaáls rúmlega 200 milljónir króna á dag

Erna Indriðadóttir, framkvæmdastjóri hjá Alcoa-Fjarðaáli, á rödd atvinnulífsins þriðjudaginn 20. apríl. Á síðasta ári flutti fyrirtækið út ál fyrir 75 milljarða króna eða sem nemur rúmlega 200 milljónum króna á dag - um 1.400 milljónum á viku. Erna segir Alcoa-Fjarðaál leggja um þessar mundir áherslu á að auka enn frekar verðmæti framleiðslunnar.  Í viðtali við SA-TV segir Erna jafnframt frá því að fyrirtækið keypti vörur og þjónustu fyrir um 13 milljarða króna á Íslandi á síðasta ári fyrir utan raforku. Þá námu launagreiðslur og launakostnaður fyrirtækisins  um 3,6 milljörðum króna á árinu 2009. Um 800 manns eru að störfum á hverjum degi á álverssvæðinu í Reyðarfirði.

20.4.2010

Kosningu formanns SA lýkur á hádegi á morgun

Rafrænni kosningu formanns Samtaka atvinnulífsins lýkur á hádegi á morgun en aðalfundur SA fer fram síðar um daginn á Hilton Reykjavík Nordica. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, gefur áfram kost á sér sem formaður samtakanna. Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Félagsmenn Samtaka atvinnulífsins hafa fengið send lykilorð í pósti til að taka þátt í kosningunni.

19.4.2010

Stefnir í fjölmennan ađalfund SA á miđvikudag

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2010 verður haldinn miðvikudaginn 21. apríl á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica. Yfirskrift fundarins er ÍSLAND AF STAÐ. Venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 14 í sal H á 2. hæð. Opin dagskrá hefst kl. 15 í aðalsal Nordica með ávarpi Vilmundar Jósefssonar, formanns SA, og Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Skráning á opna dagskrá aðalfundarins er nú í fullum gangi og stefnir í fjölmennan fund. Samtök atvinnulífsins hvetja alla áhugasama - sem vilja koma Íslandi af stað - til að skrá þátttöku á vef SA.

19.4.2010

SA-TV: Íslensk verđbréf međ 100 milljarđa í eignastýringu

Íslensk verðbréf eru meðal elstu fjármálafyrirtækja landsins en fyrirtækið hóf starfsemi árið 1987. Íslensk verðbréf eru sérhæft eignarstýringarfyrirtæki með um 100 milljarða í eignastýringu fyrir bæði einstaklinga og fagfjárfesta. Það hefur gengið vel hjá Íslenskum verðbréfum að undanförnu í mjög erfiðu starfsumhverfi en fyrirtækið skilaði hagnaði bæði árin 2008 og 2009. Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, á rödd atvinnulífsins mánudaginn 19. apríl.

19.4.2010

SA-TV: Bandaríkjamenn sólgnir í bleikjuna frá Rifósi

Hjá fiskeldisstöðinni Rifósi í Kelduhverfi er alin bæði bleikja og lax og þar á bæ eru menn stórhuga. Stefnt er að því að stækka stöðina umtalsvert þannig að ársframleiðslan verði um 1000 tonn en í dag annar Rifós ekki eftirspurn eftir vörum fyrirtækisins. Í vinnslu Rifóss er unninn fiskur alla virka daga ársins og er fyrirtækið mikilvægur vinnustaður í Kelduhverfi með 12 fasta starfsmenn en ársverk eru um 15. Afurðirnar fara mest til útflutnings, einkum til Bandaríkjanna. Rödd atvinnulífsins, mánudaginn 19. apríl, á Hlífar Karlsson, framkvæmdastjóri Rifóss.

18.4.2010

Ađalfundur SA miđvikudaginn 21. apríl - skráning stendur yfir

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2010 verður haldinn miðvikudaginn 21. apríl á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica. Yfirskrift fundarins er ÍSLAND AF STAÐ. Venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 14 (í sal H) en opin dagskrá hefst kl. 15 (í sal A&B) með ávarpi Vilmundar Jósefssonar, formanns SA, og Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Skráning á opna dagskrá aðalfundarins er nú í fullum gangi og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig sem allra fyrst.

18.4.2010

SA-TV: Framkvćmdastjóri Creditinfo rćđir um atvinnulífiđ og stöđu heimilanna

Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo, á rödd atvinnulífsins sunnudaginn 18. apríl. Hún segir að um 2000 fyrirtæki fari nú í þrot á ári og rúmlega 2000 ný fyrirtæki verði til. Fleiri fyrirtæki séu því stofnuð en fari í þrot og það sé mynstur sem muni líklega verða til staðar á meðan hjól atvinnulífsins eru í hægagangi. Rakel segir stöðu margra heimila áhyggjuefni en allar upplýsingar um vanda þeirra liggi í raun fyrir og ekki þurfi fleiri hugmyndir, tillögur eða skýrslur um hvernig eigi að taka á vandanum.Tími sé kominn til að láta verkin tala - margvíslegar lausnir séu til staðar.

17.4.2010

SA-TV: Einstakar sćlusápur framleiddar hjá Sćlusápum

Rödd atvinnulífsins laugardaginn 17. apríl á Guðríður Baldvinsdóttur hjá  sápugerðinni Sælusápum sem staðsett er við bæinn Lón í Kelduhverfi á Norðausturlandi. Guðríður stofnaði fyrirtækið ásamt manni sínum Einari Ófeigi Björnssyni og hóf markaðssókn í október 2008 þegar íslenskt efnahagslíf gekk í gegnum eld og brennistein. Sælusápur framleiða og selja handgerðar íslenskar gæðasápur úr náttúrulegum hráefnum og gengur salan vel en nálgast má sápurnar í verslunum víða um land og í gefnum vef fyrirtækisins.

16.4.2010

SA-TV: Spennandi tímar hjá ORF Líftćkni

Rödd atvinnulífsins í dag á Björn Lárus Örvar framkvæmdastjóri ORF Líftækni og einn stofnenda fyrirtækisins. Það eru spennandi tímar framundan hjá fyrirtækinu en ORF var stofnað árið 2001 og er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í Evrópu en hjá því starfa um 30 manns. Fyritækið framleiðir sérvirk prótein með nýstárlegum hætti í íslensku byggi en vörur fyrirtækisins nýtast m.a. við lækisrannsóknir, lyfjaþróun og snyrtivöruframleiðslu. ORF á stærsta safn sérvirkra próteina í heiminum sem framleidd eru með þessum hætti.

15.4.2010

SA-TV: Friđrik Pálsson rćđir um ferđaţjónustuna og atvinnulífiđ

Það þarf að bregðast skjótt við og hjálpa þeim fyrirtækjum sem voru í eðlilegum rekstri fyrir hrun og endurskipuleggja efnahag þeirra þannig að hægt sé að tryggja störf og tryggja ríkinu skatttekjur. Jafnframt þarf að lækka vexti og koma peningum sem eru inni í bönkunum út í atvinnulífið. Þetta segir Friðrik Pálsson, eigandi Hótel Rangár, sem á Rödd atvinnulífsins fimmtudaginn 15. apríl. Hægt er að horfa á viðtalið við Friðrik á vef SA.

15.4.2010

Ísland af stađ

Meginmarkmið Samtaka atvinnulífsins er að koma atvinnulífinu af stað og skapa störf á nýjan leik þannig að forsendur skapist fyrir batnandi lífskjörum. Laun verða hins vegar ekki hækkuð frekar meðan atvinnuleysi er í hámarki og engar horfur á því að atvinnulífið rétti úr kútnum. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfs samtakanna sem kemur út í dag. Hann segir gerð kjarasamninga næsta haust verða meginverkefni SA á næstunni og niðurstaða þeirra muni skipta sköpum um þróun íslensks efnahagslífs á næstu árum og jafnvel áratug.

15.4.2010

Störfum gćti fćkkađ um 1.500 á almennum markađi

Helmingur aðildarfyrirtækja SA hyggst ekki gera breytingar á starfsmannafjölda á þessu ári en fjórðungur hyggst fjölga starfsmönnum og sama hlutfall fækka þeim. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar könnunar SA meðal aðildarfyrirtækja. Niðurstaðan bendir til þess að störfum á almennum vinnumarkaði fækki um rúmlega 1.500 á árinu.

15.4.2010

Háir vextir og óvissa hamla fjárfestingum

Rúmlega sex af hverjum tíu (62%) forsvarsmanna aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins telja að umtalsverð lækkun stýrivaxta og samsvarandi lækkun útlánsvaxta banka myndi hvetja fyrirtæki þeirra til fjárfestinga. Þetta kemur fram í könnun sem SA létu gera meðal aðildarfyrirtækja í byrjun apríl 2010. Þetta er sama niðurstaða og fram kom í sams konar könnun SA í október 2009. Meira en fjórir af hverjum fimm forsvarsmanna veitufyrirtækja svöruðu spurningunni játandi og þrír af hverjum fjórum í ferðaþjónustu. Meirihluti stjórnenda í öllum atvinnugreinum telur að umtalsverð lækkun vaxta muni örva fjárfestingu.

15.4.2010

SA-TV: Horfđu á Rödd atvinnulífsins og hlustađu

Næstu daga birtast á vef SA sjónvarpsinnslög undir yfirskriftinni Rödd atvinnulífsins. SA brugðu sér af bæ nýverið og heimsóttu félagsmenn og frumkvöðla víðs vegar um landið til að skoða fjölbreytta framleiðslu og  verðmætasköpun í öllum regnbogans litum. Afraksturinn má sjá á vefnum dagana fyrir og eftir aðalfund SA sem fram fer 21. apríl á Hótel Nordica. Fyrsta innslagið verður birt á vef SA í dag, en rætt verður við Friðrik Pálsson, eiganda Hótel Rangár, um ferðaþjónustuna, stöðu atvinnulífsins og möguleg sóknarfæri. Innslögin verða einkennd með SA-TV og birt á fréttasíðu SA og á www.sa.is/tv.

14.4.2010

Myndir af verđmćtasköpun fyrirtćkja streyma til SA

Á hverjum virkum degi eru sköpuð verðmæti á Íslandi fyrir um sex milljarða króna. Fyrirtæki í Samtökum atvinnulífsins gegna mikilvægu hlutverki í þeirri sköpun en innan raða SA eru um 2.000 fyrirtæki þar sem starfar um helmingur launamanna á Íslandi. Í tilefni aðalfundar SA 2010 óskuðu SA eftir myndum frá aðildarfyrirtækjum samtakanna til að sýna úr hverju stoðir íslensks atvinnulífs eru gerðar. Fjöldi mynda hefur borist skrifstofu SA en enn er hægt að skila inn myndum. Þær verða til sýnis á aðalfundi SA sem fram fer 21. apríl - á síðasta degi vetrar. Yfirskrift  fundarins er ÍSLAND AF STAÐ.

13.4.2010

SA lýsa stuđningi viđ hugmyndir samgönguráđherra um flýtingu samgönguframkvćmda

Samgönguráðherra hefur kynnt hugmyndir um flýtingu stórra framkvæmda í samgöngumálum. Um er að ræða þær þrjár leiðir sem liggja til og frá höfuðborginni, þ.e. tvöföldun Vesturlandsvegar, tvöföldun Suðurlandsvegar auk nýrrar brúar yfir Ölfusá, að lokið verði við tvöföldun Reykjanesbrautar og Vaðlaheiðargöng. Kostnaður er áætlaður samtals 33 milljarðar króna og geta framkvæmdir hafist þegar á þessu ári og lokið árið 2014. Stofnað verði sérstakt félag í eigu ríkissjóðs um þessar framkvæmdir sem taki lán hjá lífeyrissjóðum á svipuðum vöxtum og  skuldabréf Íbúðalánasjóðs bera og hófleg veggjöld standi straum af endurgreiðslu lána og vaxta.

12.4.2010

Kosning formanns SA stendur yfir

Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins stendur nú yfir meðal aðildarfyrirtækja samtakanna. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, gefur áfram kost á sér sem formaður. Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Félagsmenn Samtaka atvinnulífsins hafa fengið send lykilorð í pósti til að taka þátt í kosningunni. Rafrænni kosningu lýkur kl. 12:00 þann 21. apríl 2010 en aðalfundur SA fer fram sama dag á Hótel Nordica undir yfirskriftinni Ísland af stað.

9.4.2010

400 stćrstu: Ađstćđur slćmar en vonir um batnandi hag

Aðstæður í efnahagslífinu eru nú slæmar að mati 86%  stjórnenda í stærstu fyrirtækjum landsins, 2% telja þær góðar en 12% telja aðstæður hvorki góðar né slæmar. Er þetta meðal niðurstaðna ársfjórðungslegrar könnunar Capacent Gallup á stöðu og horfum meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins, en könnunin var gerð í febrúar og mars 2010. Fjórðungur svarenda telur að aðstæður verði betri eftir sex mánuði, sama hlutfall að þær verði verri en helmingur telur að þær verði óbreyttar. Meiri bjartsýni ríkir um það hvernig aðstæður í atvinnulífinu verða eftir 12 mánuði.

6.4.2010

Ađalfundur SA 21. apríl - skráning stendur yfir

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2010 verður haldinn miðvikudaginn 21. apríl á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica. Yfirskrift fundarins er ÍSLAND AF STAÐ. Venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 14 (í sal H) en opin dagskrá hefst kl. 15 (í sal A&B) með ávarpi Vilmundar Jósefssonar, formanns SA, og Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Skráning á opna dagskrá aðalfundarins er nú í fullum gangi.

6.4.2010

Halldór Árnason til SA

Halldór Árnason, hagfræðingur, hefur verið ráðinn til starfa á hagdeild Samtaka atvinnulífsins og hefur Halldór þegar hafið störf. Halldór starfaði áður sem skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og staðgengill ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins um sjö ára skeið. Áður starfaði hann m.a. sem skrifstofustjóri fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins og Fjárlaga- og hagsýslustofnunar í um áratug.

6.4.2010

Guđlaugur Stefánsson til eftirlitsstofnunar EFTA

Guðlaugur Stefánsson, hagfræðingur hjá Samtökum atvinnulífsins, hefur verið ráðinn til starfa hjá eftirlitstofnun EFTA (ESA) og hefur hann látið af störfum hjá SA. Samtök atvinnulífsins þakka Guðlaugi fyrir vel unnin störf í þágu samtakanna og óskar honum velfarnaðar í nýju starfi. Guðlaugur hóf störf hjá SA í ársbyrjun 2005. Hann starfaði m.a. sem yfirhagfræðingur Samkeppnisstofnunar og hagfræðingur hjá Eftirlitsstofnun EFTA áður en hann hóf störf hjá SA.

30.3.2010

Atvinnuleysiđ má ekki festast í sessi

Ef hagvöxtur á Íslandi verður aðeins 1-2% á næstu árum verður hér viðvarandi 7-8% atvinnuleysi. „Það er ástand sem við höfum ekki kynnst á Íslandi og við hjá Samtökum atvinnulífsins viljum ekki sjá. Við munum berjast gegn því af fullum krafti." Þetta segir Grímur Sæmundsen, varaformaður SA. Hann bendir á að 5% árlegan hagvöxt þurfi næstu fimm árin til að hægt sé að vinna bug á atvinnuleysinu og skapa ný störf fyrir þá sem eru að koma út á vinnumarkaðinn.

29.3.2010

Yfir 15.000 án atvinnu og ţví verđur ađ breyta

Yfir 15.000 Íslendingar eru án atvinnu og um 1.500 til viðbótar á atvinnuleysisskrá að hluta. Þá hefur stór hópur fólks orðið að minnka við sig vinnu og horfast í augu við lægri tekjur. Samtök atvinnulífsins telja þetta óviðunandi og vilja bregðast við, rjúfa kyrrstöðuna sem ríkir í efnahags- og atvinnulífi þjóðarinnar og hefja uppbyggingu af krafti. Ef fylgt væri öflugri atvinnustefnu gæti kreppunni lokið á þessu ári.

27.3.2010

Traustiđ er brostiđ

„Samtök atvinnulífsins harma þá stöðu sem upp er komin. Mikið var reynt til að halda lífi í stöðugleikasáttmálanum en þegar stjórnarmeirihlutinn greip til beinna aðgerða gegn honum var traustið endanlega farið og sáttmálinn þar með að því er Samtök atvinnulífsins varðar." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í niðurlagi greinar sem birtist í Morgunblaðinu í dag.

25.3.2010

Kosning formanns SA er hafin

Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins er hafin meðal aðildarfyrirtækja samtakanna. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður. Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Félagsmenn Samtaka atvinnulífsins hafa fengið send lykilorð í pósti til að taka þátt í kosningunni.

25.3.2010

Atvinnuleysiđ verđur ađ minnka og hagur fólks ađ batna

Samtök atvinnulífsins leggja höfuðáherslu á það að kyrrstaðan í íslensku atvinnu- og efnahagslífi verði rofin. „Málið snýst um það í grundvallaratriðum að á þessu ári gætum við verið að komast upp úr kreppunni. Við ættum ekki að þurfa að upplifa samdrátt á þessu ári. Við ættum að geta séð atvinnuleysið fara að minnka og hag okkar fara að batna og það er það sem við viljum sjá." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

25.3.2010

Formađur SA: Kornin í mćlinum

Ummæli í leiðara Fréttablaðsins þann 24. mars um "afleik" og "upphlaup" SA vegna þess að ríkisstjórnin vísaði Samtökum atvinnulífsins frá stöðugleikasáttmálanum eru úr lausu lofti gripin. Önnur ummæli á borð við að verið sé að beygja sig undir "áhrifavald hagsmunaaðila í sjávarútvegi" og að verið sé að "hrópa ábyrgðarlaust á vanhugsuð úrræði" eru órökstudd því ákvörðun SA á sér langan aðdraganda og byggir á heildstæðu mati samtakanna á samstarfinu við ríkisstjórnina og árangur þess. Það hefur skort verulega á að stjórnvöld hafi gert það sem í þeirra valdi stendur til þess að stuðla að atvinnuuppbyggingu en Samtök atvinnulífsins hafa lagt sig fram um að standa við það sem um hefur verið samið og í raun sýnt ótrúlega biðlund vegna seinagangs ríkisstjórnarinnar.

24.3.2010

Formađur SA segir kyrrstöđuna óţolandi

Kyrrstaðan í atvinnu- og efnahagslífi þjóðarinnar að undanförnu er óþolandi að mati formanns SA, Vilmundar Jósefssonar. Í samtali við fréttastofu RÚV segir hann ótal mörg atriði hafa orðið til þess að þolinmæði SA brast gagnvart stöðugleikasáttmálanum og samstarfi við stjórnvöld undir merkjum hans. Verklegar framkvæmdir hafi dregist úr hömlu, lífeyrissjóðirnir séu ekki farnir að fjárfesta eina einustu krónu til framkvæmda og 15 þúsund manns séu atvinnulausir. Það sé ólíðandi.

24.3.2010

Ályktun ađalfundar SAF 2010

„Í þeirri stöðu sem þjóðfélagið er í á að lækka skatta en ekki hækka. Þannig eykst eftirspurn og störfum fjölgar." Þetta segir m.a. í ályktun aðalfundar Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) sem fram fór í gær. Í henni kemur einnig fram að brýnast sé að allt atvinnulífið fái að búa við vexti sem eru samkeppnishæfir við önnur lönd, öfluga þjónustu fjármálastofnana og afnám gjaldeyrishafta.

23.3.2010

Korniđ sem fyllti mćlinn - Stöđugleikasáttmálanum slitiđ

Á fundi stjórnar SA í gær var samþykkt samhljóða að ríkisstjórnin hafi bæði með aðgerðum sínum og aðgerðaleysi á þeim níu mánuðum sem liðnir eru frá undirritun stöðugleikasáttmálans vísað SA  frá sáttmálanum. Verulegur brestur hafi orðið af hálfu ríkisstjórnarinnar við efndir  fyrirheita sáttmálans. Skattar hafi verið hækkaðir umfram það sem gert var ráð fyrir og ýmsar aðgerðir til að stuðla að aukinni atvinnu hafi ekki gengið eftir.

22.3.2010

Erfiđar ákvarđanir bíđa í ríkisfjármálunum

Skattar hafa nú þegar verið hækkaðir of mikið miðað við það sem samið var um í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaganna og ríkisstjórnarinnar. Það bíða því erfiðar ákvarðanir í ríkisfjármálunum þar sem óumflýjanlegt er að skera niður útgjöld til að rétta af halla ríkissjóðs. Þetta kom m.a. fram í spjalli við Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni um skattahækkanir og áhrif þeirra.

18.3.2010

Gögn frá fundi SA um heilbrigđismál

Hátt í 200 manns sóttu fund SA um heilbrigðismál sem fram fór í morgun á Hótel Nordica auk þess sem fulltrúar heilbrigðisstofnana víða um landið fylgdust með fundinum  í beinni útsendingu. Yfirskrift fundarins var Hvernig fáum við það besta úr heilbrigðiskerfinu? Boðað var til fundarins í samráði við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Reykjavíkur, Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við  Háskóla Íslands. Kynningar frummælenda má nú nálgast á vef SA.

17.3.2010

Lćkkun stýrivaxta í 9% lítiđ skref í rétta átt

Seðlabanki Íslands tilkynnti í dag um lækkun stýrivaxta um hálft prósentustig í 9,0%. Fréttastofa RÚV leitaði viðbragða hjá Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra SA: „Þetta er lítið skref í rétta átt en betur má ef duga skal." Vilhjálmur segir fjármagnskostnað íslenskra fyrirtækja allt of háan. Fjárfestingar þeirra séu í algjöru lágmarki en með því að koma þeim af stað sé hægt að koma Íslandi út úr kreppunni og auka atvinnu í landinu.

16.3.2010

Hvernig fáum viđ ţađ besta út úr heilbrigđiskerfinu?

Samtök atvinnulífsins efna til fundar um heilbrigðismál og skipulag heilbrigðiskerfisins, fimmtudaginn 18. mars, á Hótel Nordica í samráði við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Reykjavíkur, Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við  Háskóla Íslands. Yfirskrift fundarins er Hvernig fáum við það besta út úr heilbrigðiskerfinu?

15.3.2010

Upptaka af stórfundi SA um atvinnumál komin á vefinn

Sjónvarpsupptaka af fundi SA um stöðu atvinnumála og horfurnar framundan er komin á vefinn. Um 300 stjórnendur úr íslensku atvinnulífi, stjórnmálamenn, fulltrúar sveitarfélaga, ríkisstofnana og verkalýðshreyfingar, mættu til fundarins sem fram fór á Hótel Nordica föstudaginn 12. mars. Þar var m.a. rætt um til hvaða aðgerða hægt er að grípa til að koma Íslandi af stað og rjúfa þá kyrrstöðu sem nú einkennir atvinnulífið.

15.3.2010

Ađalfundur SVŢ 2010: Spilum saman

Aðalfundur SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu fór fram fimmtudaginn 11. mars undir yfirskriftinni Spilum saman. Fundurinn markaði upphaf Viku verslunar og þjónustu sem nú stendur yfir en markmiðið með henni er að vekja athygli á mikilvægi verslunar og þjónustu, atvinnugreinar þar sem um fjórði hver Íslendingur starfar. Jafnframt að hvetja Íslendinga á jákvæðan og ábyrgan hátt til að „spila með" og taka þátt í að snúa hjólum atvinnulífsins með því að eiga viðskipti við verslunar- og þjónustufyrirtæki. Margrét Kristmannsdóttir var endurkjörinn formaður SVÞ en hún gagnrýndi í ræðu sinni bæði stjórn og stjórnarandstöðu harðlega fyrir framtaksleysi.

12.3.2010

Gögn frá fundi SA um atvinnumál

Um 300 stjórnendur úr íslensku atvinnulífi, stjórnmálamenn, fulltrúar sveitarfélaga, ríkisstofnana og verkalýðshreyfingar, mættu til fundar SA í morgun á Hótel Nordica til að ræða stöðu atvinnumála, horfurnar framundan og til hvaða aðgerða sé hægt að grípa til að koma Íslandi af stað og rjúfa þá kyrrstöðu sem nú einkennir atvinnulífið. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, setti fundinn og sagði þolinmæði fólks og fyrirtækja á þrotum. Tími væri fyrir ríkisstjórnina að láta nú verkin tala en dráttur hafi orðið á úrlausn margra mála.

11.3.2010

Atvinna fyrir alla - ađgerđaáćtlun 2010

„Samtök atvinnulífsins hafa sett fram markmið um að þjóðin hafi endurheimt fyrra atvinnustig og lífskjör á árinu 2015. Þetta er hægt með því að setja atvinnusköpun í forgang, sérstaklega með fjárfestingum og vexti í útflutningsgreinum. Núverandi spár gera ráð fyrir 2% árlegum hagvexti en það er of lítið til þess að nógu mörg störf skapist til að það dragi úr atvinnuleysinu. Náist 3,5% hagvöxtur á næstu árum er árangur samt ekki nægur til að eyða atvinnuleysi. Það þarf að setja djarfari hagvaxtarmarkmið og stilla saman strengi til þess að ná þeim. Um 5% árlegan hagvöxt þarf til." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara nýs fréttabréfs samtakanna.

11.3.2010

Mikiđ traust til íslenskra fyrirtćkja

Íslendingar eru mjög jákvæðir í garð íslenskra fyrirtækja og traust þeirra til eigin vinnuveitanda skorar einna hæst í árlegum mælingum Capacent Gallup á trausti til stofnana og embætta. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir SA. Nærri 88% eru jákvæð gagnvart sínum vinnustað - aðeins rúm 4% neikvæð. Þá bera yfir 81% Íslendinga mikið traust til síns vinnuveitanda en aðeins tæp 7% bera til hans lítið traust.

11.3.2010

Taktu mynd af ţinni verđmćtu sköpun og sendu SA

Á hverjum virkum degi  eru sköpuð verðmæti á Íslandi fyrir um sex milljarða króna. Fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins gegna mikilvægu hlutverki í þeirri sköpun en innan raða SA eru um 2.000 fyrirtæki þar sem starfar um helmingur launamanna á Íslandi. Í tilefni aðalfundar SA 2010 viljum við festa verðmætasköpun atvinnulífsins á mynd og sýna úr hverju stoðir íslensks atvinnulífs eru gerðar.

10.3.2010

Vöxtur og velferđ forgangsmál í Evrópu

Evrópusamtök atvinnulífsins, BUSINESSEUROPE, hafa nýverið sent frá sér stefnumörkun sem mælir með markvissum aðgerðum til að vinna Evrópu út úr þeirri djúpstæðu kreppu sem herjað hefur á flest ríki í álfunni á undanförnum tveimur árum. Stefnumörkunin er sett fram í hnitmiðaðri skýrslu þar sem greindar eru helstu áskoranir sem evrópskt atvinnulíf stendur frammi fyrir og mælt með skilvirkum lausnum til að snúa aftur á braut hagvaxtar og velferðar. Án kraftmikilla fyrirtækja sem skapa störf og verðmæti molnar fljótt undan velferðarkerfinu.

10.3.2010

Ađgangur ađ erlendu lánsfé verđi tryggđur

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, hvetur þá sem koma að Icesave-verkefninu að nálgast það af ábyrgð og með alla hagsmuni í huga. Meta þurfi kostnaðinn sem hljótist á töfum á því að samið sé um Icesave en hann geti verið mikill. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

9.3.2010

Leitađ eftir samstöđu ábyrgra ađila um uppbyggingu atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins telja að örlög íslensks atvinnu- og efnahagslífs séu fyrst og fremst í höndum Íslendinga sjálfra. Aðgerðir eða aðgerðaleysi ráði því hvernig til takist að komast út úr kreppunni í kjölfar bankahrunsins í október 2008. SA leita því eftir samstöðu með öllum ábyrgum aðilum sem hafa metnað fyrir hönd íslensku þjóðarinnar til þess að ná viðsnúningi strax þannig að endurheimta megi fulla atvinnu og fyrri lífskjör eigi síðar en á árinu 2015. Í ljósi alvarlegrar stöðu atvinnumála efna SA til opins fundar föstudaginn 12. mars um stöðuna og horfurnar framundan.

8.3.2010

Ályktun ađalfundar SART - Samtaka rafverktaka

„Aðalfundur SART- Samtaka rafverktaka haldinn á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn  5. mars 2010,  ítrekar og mótmælir harðlega aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart heimilum og fyrirtækjum í landinu. Þá lýsir fundurinn vanþóknun sinni á framgöngu þeirra ráðherra og alþingismanna sem virðast hafa sett sér það eina markmið að setja fótinn fyrir fjárfestingar í virkjunum og stóriðju og hindra þannig framgang verklegra framkvæmda sem þjóðin kallar eftir. Aðalfundur SART skorar á þingmenn allra flokka að sameinast nú um heildarhagsmuni þjóðarinnar og láta verkin tala."

8.3.2010

Líst illa á nýja lagasetningu um kynjakvóta

Á Íslandi hefur verið lögð áhersla á að tryggja rétt minnihluta í stjórnum fyrirtækja. Ný lög um kynjakvóta innan stjórna geta haft truflandi áhrif á þau markmið. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

5.3.2010

Nauđsynlegt ađ auka fjárfestingar minni fyrirtćkja og koma stóriđjuframkvćmdum á skriđ

Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir í samtali við Vísi að það séu vissulega gleðifréttir að landsframleiðslan hafi vaxið um 3,3% á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. „Nú er nauðsynlegt að viðhalda þessari þróun með fjárfestingum í minni og meðalstórum atvinnufyrirtækjum og stóriðjuframkvæmdum," segir Vilhjálmur.

5.3.2010

Vilhjálmur, Steingrímur, Gylfi og ţú á fundi 12. mars

Samtök atvinnulífsins efna til opins morgunverðarfundar föstudaginn 12. mars til að ræða stöðu atvinnumála og horfurnar framundan. Fundurinn fer fram á Hótel Nordica kl. 8:30-10:00. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, kynnir nýja stefnumörkun samtakanna Atvinna fyrir alla - aðgerðaáætlun 2010 um uppbyggingu atvinnulífsins en auk hans flytja erindi  Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Í kjölfarið fara fram umræður og fyrirspurnir.

5.3.2010

Ályktun Iđnţings 2010

„Hagsæld og velferð verður ekki tryggð á Íslandi án vaxtar og nýsköpunar. Vöxtinn þarf að sækja til atvinnustarfsemi sem skapar eins mikinn virðisauka og kostur er, greiðir góð laun og skapar þjóðarbúinu tekjur. Stóraukin skattheimta vinnur gegn þessum markmiðum." Þetta segir m.a. í ályktun Iðnþings Samtaka iðnaðarins sem fram fór fimmtudaginn 4. mars.

3.3.2010

Verklagsreglur um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtćkja

Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa unnið sameiginlegar verklagsreglur um úrlausn á skuldavanda fyrirtækja í samræmi við ákvæði laga nr. 107/2009, um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins. Þessar verklagsreglur hafa verið staðfestar af Fjármálaeftirlitinu (FME), með bréfi 2. mars 2010. Gerður er fyrirvari um að Samkeppniseftirlitið veiti undanþágu fyrir slíkum samræmdum reglum fjármálafyrirtækja á grunni 15. gr. samkeppnislaga. SFF eiga í samskiptum við Samkeppniseftirlitið hvað þann þátt varðar og vonast til að slík undanþága liggi fyrir fljótlega.

1.3.2010

Vilhjálmur Egilsson á Sprengisandi

Rætt var við Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA, í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni á laugardag. Sigurjón M. Egilsson, stjórnandi þáttarins, ræddi við Vilhjálm um stöðu atvinnulífsins og horfurnar framundan ásamt því að fjalla um hvaða leiðir eru færar út úr kreppunni þannig að Íslendingar endurheimti lífskjör sín á næstu árum.

25.2.2010

Opinn fundur um atvinnumál föstudaginn 12. mars

Samtök atvinnulífsins efna til opins morgunverðarfundar föstudaginn 12. mars um stöðu og horfur í atvinnumálum. Fundurinn fer fram á Hótel Nordica kl. 8:30-10:00. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, kynnir nýja stefnumörkun samtakanna Atvinna fyrir alla - aðgerðaáætlun 2010 um uppbyggingu atvinnulífsins en auk hans flytja erindi  Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Í kjölfarið fara fram umræður og fyrirspurnir.

24.2.2010

Bankaráđ Landsbankans jafnar hlut kynjanna

Bankaráð Landsbankans samþykkti á fundi sínum 17. febrúar 2010, tillögu þess efnis að fyrirtækið skuli tryggja fyrir árslok 2013 að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40% í forystusveit bankans og dótturfélaga hans. Með því hefur bankinn sett sér sömu markmið og sett voru í samstarfssamningi samtaka í atvinnulífinu frá maí 2009. Sá samningur er að auki undirritaður af fulltrúum stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi.

24.2.2010

EDI bikarinn til Samkaupa

Á aðalfundi ICEPRO sem haldinn var í vikunni var EDI bikarinn afhentur í 14. sinn.  ICEPRO er vettvangur samstarfs um rafræn viðskipti og EDI bikarinn er afhentur árlega því fyrirtæki, stofnun eða lausn sem skarað hefur fram úr á sviði rafrænna samskipta á liðnu starfsári. Að þessu sinni hlutu Samkaup bikarinn, sem Gylfi  Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra afhenti.

22.2.2010

Full atvinna 2015 - hvađ ţarf til?

Á árunum 1963 til 2009 var hagvöxtur, þ.e. raunvöxtur landsframleiðslunnar, 3,6% að meðaltali árlega en störfum fjölgaði um 1,8% að meðaltali. Þannig fjölgaði störfum um hálfa prósentu við hverja prósentu í hagvexti á þessu tímabili. Á síðustu tveimur áratugum hefur hagvöxtur á Ísland ekki verið eins vinnuaflsfrekur og áður var og þetta hlutfall farið lækkandi. Á árunum 1999-2009 fjölgaði störfum um 0,33% að jafnaði við hverja prósentu í hagvexti og á árunum 1989-1999 um 0,38%. Þessi hlutföll verður  að hafa í huga þegar fjallað er um hvað þurfi mikinn hagvöxt til vinna á bug á núverandi atvinnuleysi og mæta þeirri fjölgun sem fyrirsjáanleg er á fólki á vinnualdri næstu árin.

22.2.2010

300 ný verđmćt störf í Reykjanesbć

Samtök atvinnulífsins fagna áformum Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar (Kadeco) og Iceland Healthcare um að ráðast í umfangsmiklar endurbætur á sjúkrahúsinu að Ásbrú, í Reykjanesbæ. Á sjúkrahúsinu verða þrjár skurðstofur og 35 legurými, þar sem boðið  verður upp á sérhæfðar meðferðir fyrir útlendinga. Allt að 300 störf munu skapast í tengslum við starfsemina. Gert er ráð fyrir að þjónustuþegar verði um 1.000 talsins fyrsta starfsárið en tvöfaldist síðan á næstu tveimur árum, með árlegum tekjum sem áætlaðar eru um 3,5 milljarðar króna.

20.2.2010

Íslensk orkufyrirtćki reiđubúin til ţátttöku í endurreisninni

„Bein erlend fjárfesting, með tilheyrandi hagvaxtaráhrifum, hefur e.t.v. aldrei verið íslensku atvinnulífi mikilvægari en einmitt um þessar mundir. Endurnýjanleg orka er eitt helsta aðdráttaraflið í þeim efnum enda henni ætlað stórt hlutverk í endurreisn íslensks efnahagslífs, m.a. í efnahagsáætlunum stjórnvalda. Íslensk orkufyrirtæki lýsa sig reiðubúin til þátttöku í endurreisninni og munu þar leggja sitt af mörkum eins og kostur er. Þá binda fyrirtækin miklar vonir við að væntanleg afgreiðsla 2. áfanga rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma muni stuðla að aukinni sátt um nýtingu íslenskra orkulinda, færa orkufyrirtækjunum aukin og spennandi verkefni og þannig stuðla að mikilvægri uppbyggingu í íslensku atvinnulífi." Þetta kemur m.a. fram í ályktun aðalfundar Samorku sem fram fór þann 19. febrúar.

18.2.2010

Ný rannsókn: Launamunur kynjanna á almennum vinnumarkađi 2000-2007

Hagstofa Íslands hefur gefið út hagtíðindaheftið Launamunur kynjanna á almennum vinnumarkaði 2000-2007. Í því er greint frá helstu niðurstöðum úr rannsókn á launamun kynjanna á almennum vinnumarkaði. Rannsóknin er byggð á gagnasöfnum Hagstofunnar og var framkvæmd í kjölfar samkomulags á milli Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Hagstofu Íslands í tengslum við kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins í febrúar 2008. Niðurstöður byggjast á tæplega 185 þúsund athugunum á launum einstaklinga sem störfuðu á almennum vinnumarkaði á árunum 2000-2007.

18.2.2010

Nýr starfsmenntasjóđur SA og VSSÍ

Í júlí 2008 sömdu SA og Verkstjórasamband Íslands (VSSÍ) um stofnun nýs starfsmenntasjóðs og greiða atvinnurekendur 0,3% af launum verkstjóra í sjóðinn. Í byrjun árs 2010 hófst móttaka umsókna um námskeiðsstyrki til verkstjóra (eða fyrirtækja fyrir þeirra hönd)  í samræmi við reglur  Starfsmenntasjóðs SA og VSSÍ.  Markmið sjóðsins er að stuðla að því að starfandi verkstjórum bjóðist heildstæð grunn- og endurmenntun sem uppfylli þekkingarkröfur sem verkstjórar þurfa að búa yfir á hverjum tíma.

16.2.2010

50 milljarđa niđurskurđur bíđur í ríkisfjármálunum

Ríkisstjórnin þarf að skera fimmtíu milljarða króna af ríkisútgjöldum til viðbótar til að halda ákvæði stöðugleikasáttmálans. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Vilhjálmur Egilsson,  kveðst í samtali við Fréttastofu Stöðvar 2 engin teikn sjá um að ráðherrar séu með uppbrettar ermar að undirbúa slíkan niðurskurð. Búið sé að nýta allt svigrúm sem gefið var  fyrir skattahækkanir  á árunum 2009, 2010 og 2011. Útgjöldin hafi ekki lækkað að sama skapi og það eigi eftir að lækka útgjöld um 50 milljarða áður en menn geti farið að tala um meiri skattahækkanir.

15.2.2010

Atvinna fyrir alla á vef SA

Atvinna fyrir alla - aðgerðaáætlun 2010 um uppbyggingu atvinnulífsins er komin út. Um er að ræða nýja stefnumörkun SA um atvinnu- og efnahagsmál sem miðar að sköpun nýrra starfa og uppbyggingu atvinnulífsins á þessu ári og í næstu framtíð. Meginmarkmiðið er að útrýma atvinnuleysi og tryggja að ný störf verði til fyrir þá sem koma út á vinnumarkaðinn á næstu árum. Um er að ræða stefnumörkun á fjölmörgum sviðum sem miða að því að koma Íslandi af stað. Rafrænt eintak ritsins má nú nálgast hér á vef SA.

12.2.2010

Atvinnuleysiđ ekki ásćttanlegt – atvinnu fyrir alla

„Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram víðtæka stefnumörkun undir heitinu „Atvinna fyrir alla - aðgerðaáætlun 2010". Bág staða atvinnulífsins, hallærisrekstur fjölmargra fyrirtækja, afturför í velferðarmálum, fækkun starfa og 10% atvinnuleysi eru ekki ásættanleg framtíðarsýn að mati Samtaka atvinnulífsins. Þess vegna verður að grípa til aðgerða." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfs SA. Hann segir fyrirliggjandi efnahagsspár gera ráð fyrir um 2% árlegum hagvexti á næstu árum. „Þetta er of lítið til þess að efnahagslífið nái sér á strik og fyrirtæki ráði fólk í ný störf þannig að atvinnuleysi minnki og lífskjör batni."

12.2.2010

Ađgerđaáćtlun 2010 um uppbyggingu atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins kynntu í dag nýja stefnumörkun stefnu um atvinnu- og efnahagsmál sem miðar að sköpun nýrra starfa og uppbyggingu atvinnulífsins á þessu ári og í næstu framtíð. Meginmarkmiðið er að útrýma atvinnuleysi og tryggja að ný störf verði til fyrir þá sem koma út á vinnumarkaðinn á næstu árum. Um er að ræða stefnumörkun á fjölmörgum sviðum sem miða að því að koma Íslandi af stað. Yfirskrift hennar er Atvinna fyrir alla.

12.2.2010

Íslenskur vinnumarkađur er mjög kynskiptur

Karlar eru tveir þriðju hlutar starfsmanna á almennum vinnumarkaði en konur einn þriðji.  Karlar vinna líka lengur en þeir skila 71% vinnustunda á almennum vinnumarkaði en konur 29%. Hjá hinu opinbera eru konur þrír fjórðu hlutar starfsmanna en karlar fjórðungur. Þar skila konur skila tveimur þriðju hluta vinnustunda en karlar þriðjungi. Meðalvinnutími karla er rúmir 46 tímar á viku en konur vinna tæpa 36 tíma.

11.2.2010

Fyrirmyndir í forystu atvinnulífsins

Samkvæmt rannsókn Creditinfo eru 4.321 fyrirtæki á Íslandi með blandaðar stjórnir karla og kvenna og jafnt kynjahlutfall. Fram til loka ársins 2013 hefur viðskiptalífið sett sér það markmið að auka fjölbreytni atvinnulífsins enn frekar. Á næstu vikum og misserum munu því SA, Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands, Creditinfo og Leiðtoga-Auður hvetja fyrirtæki og eigendur þeirra til auka að fjölbreytni í forustusveit sinni.

9.2.2010

Umhverfisráđherra gegn almenningi og atvinnulífi

Á undanförnum árum hefur umhverfisráðherra ítrekað staðfest skipulagstillögur sveitarfélaga þar sem framkvæmdaaðilar hafa greitt kostnað vegna breytinga á aðalskipulagi. Þessi háttur hefur tíðkast í mörg ár og aldrei verið gerð við það athugasemd. Dæmi eru um sveitarfélög sem gert hafa sérstakar samþykktir í þessum efnum þannig að kostnaður við breytingu á aðalskipulagi falli á þann sem breytingarinnar óskar. Þann 29. janúar skrifaði umhverfisráðherra hins vegar tveimur sveitarfélögum bréf og synjaði staðfestingar aðalskipulagi þeirra vegna þess að hrepparnir gerðu samkomulag um að framkvæmdaaðili greiddi hluta kostnaðar við gerð aðalskipulags.

5.2.2010

Hópstefnumót atvinnulífsins á Nordica 10. febrúar

Fjölbreyttur hópur fólks úr atvinnulífinu mun koma saman á Hótel Nordica þann 10. febrúar næstkomandi. Þá efna Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands, Leiðtoga-Auður, iðnaðarráðuneytið, efnahags- og viðskiptaráðuneyti og Creditinfo til morgunverðarfundar þar sem m.a. verður greint frá því hvaða leiðir viðskiptalífið hyggst fara til að fjölga konum í forystusveit atvinnulífsins auk þess sem nýjar tölur Creditinfo um kynjahlutföll í atvinnulífinu verða birtar. Konur og karlar sem koma saman til fundarins greiða aðeins eitt þátttökugjald en til þessa hafa fundir sem fjalla um karla og konur í forystusveit atvinnulífsins einkum verið sóttir af konum.

2.2.2010

Umhverfisráđherra á móti framförum og orkunýtingu

Með bréfum dagsettum 29. janúar 2010 synjaði umhverfisráðherra aðalskipulagi tveggja hreppa staðfestingar. Annars vegar aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem beðið hafði staðfestingar ráðherra í 14 mánuði og hins vegar aðalskipulagi Flóahrepps sem lá í ráðuneytinu óafgreitt í 11 mánuði. Talsmenn launþega og atvinnulífs eru undrandi á þessum úrskurði umhverfisráðherra, þar sem skipulagsbreytingum sem snúa að virkjunum í neðri hluta Þjórsár er synjað staðfestingar.

28.1.2010

Atvinnuleysi hverfur međ 5% međalhagvexti 2011-2015

Ef það tekst að ná 5% meðalhagvexti á Íslandi á árunum 2011-2015 mun atvinnuleysi hverfa og landsmenn endurheimta lífskjör sín. Með slíkum vexti verður hægt að greiða niður skuldir ríkisins og sækja fram í velferðarmálum. Með 2% meðalvexti á sama tíma mun atvinnuleysi hins vegar verða svipað og nú, ríkisfjármálin í vanda og velferðarkerfinu hraka.

27.1.2010

Algjört forgangsmál ađ lćkka útgjöld ríkisins

Enginn einstakur liður í hagstjórninni skiptir jafn miklu máli við núverandi aðstæður og árangurinn í ríkisfjármálum. Þar skilur algerlega á milli feigs og ófeigs. Þetta sagði Björn Rúnar Guðmundsson, skrifstofustjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, á morgunverðarfundi SA um horfurnar í fjármálum ríkisins til ársins 2013. Björn sagði ennfremur að af þeim meginverkefnum sem framundan eru í hagstjórninni séu ríkisfjármálin mest krefjandi. Á síðasta ári hafi ríkisfjármálum verið beitt til að milda áhrif efnahagsáfallsins en þann slaka þurfi nú að vinna hratt til baka.

27.1.2010

Ákvörđun Seđlabankans hćnufet í rétta átt

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við Vísi ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans að lækka stýrivexti um 0,5 prósentur vera hænufet í rétta átt en breyti ekki miklu varðandi fjármagnskostnað og möguleika lítilla og meðalstórra fyrirtækja til uppbyggingar. Með ákvörðun peningastefnunefndar bankans lækkuðu stýrivextir úr 10% í 9,5%. Vilhjálmur segist hafa viljað sjá meiri lækkun. Ekki séu nein rök fyrir því að halda vöxtum svona háum.

26.1.2010

Seđlabankinn lćkki vexti

Seðlabanki Íslands hefur nú gott tækifæri til þess að lækka vexti í framhaldi af nýjustu verðbólgumælingu Hagstofu Íslands fyrr í dag. Reynsla undanfarinna ára hefur sýnt að geta Seðlabankans til að ráða niðurlögum verðbólgu með vaxtahækkunum er afar lítil. Á þenslutímanum frá árinu 2004 - 2008 höfðu vaxtahækkanir fyrst og fremst þau áhrif að hækka gengi krónunnar, laða kvikt erlent skammtímafjármagn inn í landið og skapa enn frekari verðbólgutilefni.

26.1.2010

Umsögn SA til Samkeppniseftirlitsins vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar fyrirtćkja

Samtök atvinnulífisins hafa sent Samkeppniseftirlitinu umsögn um umræðuskjal stofnunarinnar sem fjallar um banka og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja, skuldavanda íslenskra fyrirtækja og samkeppnisleg álitaefni tengd honum. SA telja jákvætt að Samkeppniseftirlitið hafi sett fram góða greiningu á flóknu úrlausnarefni en benda á að svör skorti við því hvernig leysa eigi úr raunverulegum málum. Þá telja SA óviðeigandi að stofnunin óski eftir auknum valdheimildum í umræddu umræðuskjali til að skipta upp fyrirtækjum en fyrir því eru engar efnislegar forsendur.

25.1.2010

Ályktun framkvćmdastjórnar SA um Icesave

Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins hvetur stjórn og stjórnarandstöðu til þess að standa saman um skilmála í viðræðum við stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi um skuldbindingar Tryggingasjóðs innistæðueigenda vegna Icesave-reikninga Landsbanka Íslands hf. Stjórnmálaflokkarnir þurfa að ná samkomulagi um nýja samningsskilmála og ná betri samningum en nú liggja fyrir. Brýn þörf er á víðtækri samstöðu um lausn þessa mikilvæga máls.

22.1.2010

Fyrningarleiđin er ófćr og verđur aldrei ţoluđ

„Fyrningarleiðin vinnur gegn sjávarútvegi, sjávarbyggðum og þjóðarhag og verður aldrei þoluð." Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, á fjölmennum baráttufundi íbúa í Vestamannaeyjum í gærkvöldi. Vilhjálmur sagði löggjöf um stjórn fiskveiða byggja á málamiðlunum en mestu skipti að sjávarútvegur sé samkeppnishæf atvinnugrein sem skapi starfsfólki góðar tekjur. Þannig leggi sjávarútvegurinn mest til samfélagsins en árlegar útflutningstekjur greinarinnar nema 200 milljörðum á ári. Vilhjálmur sagði lagalegan stöðugleika nauðsynlegan í greininni og gera verði þá grundvallarkröfu til stjórnvalda að sjávarútvegurinn fái starfsfrið.

22.1.2010

Hvert stefna fjármál ríkisins?

Samtök atvinnulífsins í samráði við Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands efna til morgunverðarfundar á Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn 27. janúar um stöðu og horfur í ríkisfjármálum 2010-2013 og nauðsynleg viðbrögð. Fjallað verður um mögulegar umbætur í fjárlagagerðinni og hvort nauðsynlegt sé að grípa til róttækra aðgerða.

21.1.2010

Ástandiđ langt í frá glćsilegt

Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir horfur ekki bjartar hvað varðar fjárfestingar atvinnuveganna. Þær hafi að jafnaði verið um 13% af vergri landsframleiðslu á undanförnum árum en fóru niður í um 9% á síðasta ári. „Við erum dauðhræddir við að þær fari ennþá neðar." Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag.

20.1.2010

Fjárfestingar stefna í sögulegt lágmark

Mikill samdráttur í fjárfestingum atvinnuveganna á síðasta ári og takmörkuð áform um fjárfestingar á árinu 2010 valda því að ástæða er til þess að hafa áhyggjur af þróuninni í atvinnumálum. Óvissa um framtíðina, háir vextir, gjaldeyrishöft, skattahækkanir og minnkandi kaupgeta stuðla almennt að slæmu andrúmslofti fyrir fjárfestingar. Ef dráttur verður á áformum um fjárfestingar í virkjunum og orkufrekum iðnaði á þessu ári eru líkur á því að fjárfestingar atvinnuveganna verði minni í hlutfalli við landsframleiðslu en þær hafa verið frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.

18.1.2010

Vilmundur Jósefsson gefur áfram kost á sér sem formađur SA

Formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður SA. Kosning formanns fer fram með rafrænum hætti meðal aðildarfyrirtækja SA í aðdraganda aðalfundar samtakanna sem fer fram 21. apríl 2010 á Hótel Nordica - á síðasta degi vetrar.

14.1.2010

Fjárfestingar forsenda viđsnúnings

Nú þegar árið er hafið eru útistandandi alltof margar hindranir í veginum fyrir því að fjárfestingar í íslensku atvinnulífi verði nægilegar til þess að komast út úr kreppunni á þessu ári, ná einhverjum hagvexti á nýjan leik og leggja grunn að arðsömum framtíðarstörfum. Nauðsynlegt er að framgangur fjárfestinga í atvinnulífinu fái þann forgang sem þarf til þess að efnahagsáætlanir gangi eftir á þessu ári og hægt verði að kveikja einhver bjartsýnisljós í íslensku efnahagslífi. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara nýs fréttabréfs samtakanna.

14.1.2010

Fleiri konur til forystu í atvinnulífinu

Samtök atvinnulífsins hvetja eigendur og stjórnendur fyrirtækja til að nýta vel þau tækifæri sem gefast á komandi vikum, mánuðum og misserum til að fjölga konum í forystusveit atvinnulífsins. Framundan er fjöldi aðalfunda þar sem tækifæri gefast til að auka hlut kvenna í atvinnulífinu en SA telja það bæði nauðsynlegt  og skynsamlegt.

14.1.2010

400 stćrstu: Afleitar ađstćđur og versnandi horfur

Aðstæður í efnahagslífinu eru nú slæmar að mati 92% stjórnenda í stærstu fyrirtækjum landsins, 8% telja aðstæður hvorki góðar né slæmar - enginn telur þær góðar. Er þetta meðal niðurstaðna ársfjórðungslegrar könnunar Capacent Gallup á stöðu og horfum meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins, en könnunin var gerð í desember 2009. Enn mun syrta í álinn að mati 43% stjórnenda sem telja að aðstæður í efnahagslífinu eigi eftir að verða enn verri eftir sex mánuði, 39% telja að aðstæður verði óbreyttar en aðeins 18% telja að það horfi til betri vegar. Fækkun starfsfólks er fyrirhuguð hjá 37% fyrirtækja á næstu 6 mánuðum, 49% hyggjast halda óbreyttum starfsmannafjölda en 14% ætla að bæta við sig starfsfólki.

14.1.2010

Arđbćrar fjárfestingar forsenda nýrra starfa

Eitt brýnasta verkefnið í efnahagsmálum þjóðarinnar er að stuðla að því að störfum taki að fjölga á nýjan leik. Ljóst er að það gerist ekki nema með arðbærum fjárfestingum, einkum í útflutningsstarfsemi, og það er jafnframt forsenda þess að lífskjör geti batnað á nýjan leik. Efnahagslegur stöðugleiki, með lágri verðbólgu og vöxtum, er einnig mikilvæg forsenda fyrir jákvæðri þróun á vinnumarkaði því að við slíkar aðstæður verða fjárfestingar, framkvæmdavilji og fjölgun starfa meiri en ella. Þetta kemur fram nýrri greiningu SA á íslenskum vinnumarkaði.

12.1.2010

Ekkert svigrúm til frekari skattahćkkana

Nauðsynlegt var að hækka skatta vegna mikils hallareksturs ríkissjóðs í kjölfar hruns bankanna en ríkisstjórnin hefur nú þegar hækkað skatta umfram það sem samið var um í stöðugleikasáttmálanum sumarið 2009. Samstaða var um að skattar yrðu hækkaðir um 54 milljarða á árunum 2009-2011 en skattahækkanir á árunum 2009-2010 nema nú þegar rúmlega 72 milljörðum króna. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir ríkisstjórnina ekki hafa svigrúm til frekari skattahækkana, ná þurfi tökum á rekstri ríkissjóðs með lækkun útgjalda. Erfiðar ákvarðanir séu framundan sem taka verði sem fyrst.

11.1.2010

Skipuđ verđi ný samninganefnd í Icesave-deilunni

Formaður Samtaka atvinnulífsins,  Vilmundur Jósefsson, Tómas Már Sigurðsson, formaður Viðskiptaráðs Íslands og Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, leggja það til í grein í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu í dag að Alþingi skipi nýja samninganefnd án tafar til að leita lausna og ná sátt í Icesave-deilunni. Nefndin yrði skipuð fulltrúum allra þingflokka undir forystu utanríkisráðherra. Í greininni segja þeir mikilvægt að fá til liðs við nefndina erlendan fyrrverandi stjórnmálaleiðtoga til að gegna hlutverki sáttasemjara.

6.1.2010

Minnkandi líkur á hagvexti 2010

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, setur spurningarmerki við að hagvöxtur náist á þessu ári, í ljósi ákvörðunar forseta Íslands um að skrifa ekki undir Icesave-lögin. „Eftir því sem óvissan varir lengur þá minnka líkurnar á því að við komumst upp úr kreppunni á þessu ári."

5.1.2010

Mikil óvissa í atvinnulífinu vegna ákvörđunar forseta Íslands í Icesave-málinu

Ákvörðun forseta Íslands um að staðfesta ekki Icesave-lögin veldur mikilli óvissu og töfum í íslensku atvinnulífi auk þess að valda að öllum líkindum miklu tjóni. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Hann segir mikilvægt að ná aftur eðlilegum aðgangi að erlendum fjármagnsmörkuðum bæði fyrir hið opinbera og almenn fyrirtæki.

4.1.2010

Icesave-málinu ljúki

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir mikilvægt að klára Icesave-málið og að forseti Íslands þurfi að taka ákvörðun um Icesave-lögin sem fyrst. Í samtali við Vísi segir Vilhjálmur að biðin megi ekki verða löng. „Einn dagur til eða frá, ég held að það sé ekki afdrifaríkt. Það er niðurstaðan sem skiptir mestu máli," segir Vilhjálmur. „Okkar afstaða hefur verið sú að það þurfi að klára þetta mál sem fyrst og snúa sér að öðru."
RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english