Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

13.7.2009

Báđir ađilar hafa samţykkt samkomulagiđ frá 25. júní

7. júlí sl. sendu Samtök atvinnulífsins ASÍ tilkynningu um að framkvæmdastjórn samtakanna hefði samþykkt samkomulag SA og samninganefndar ASÍ sem gert var 25. júní sl. Alþýðusamband Ísland sendi SA í dag staðfestingu á samkomulaginu fyrir hönd samninganefndar ASÍ. Launahækkanir, eins og samið var um 25. júní sl., koma því til framkvæmdar frá og með síðustu mánaðamótum. 

9.7.2009

Stöđugleikasáttmálinn - vegvísir út úr kreppunni

Vinna við að fylgja eftir stöðugleikasáttmálanum frá 25. júní er þegar hafin. „Mikilvægt er að hefjast strax handa vegna þess að mörg mikilvæg mál sem þarf að ljúka fyrir 1. nóvember næstkomandi eru umfangsmikil. Því þarf að taka vel til hendi til þess að leiða þau til lykta," segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA. Fyrsti samráðsfundurinn með ríkisstjórninni var í gær og fyrr í dag gengust SA fyrir sérstökum fundi vegna álversins í Helguvík og tengdra fjárfestinga í orkugeiranum. Vilhjálmur segir að engan tíma megi missa til þess að koma atvinnulífinu almennilega af stað fyrir næsta haust og vetur. Meginverkefnið sé að láta ekki hörmungarspár rætast - að því þurfi allir að vinna.

9.7.2009

Til félagsmanna í Samtökum atvinnulífsins

Þór Sigfússon, formaður SA, hefur ákveðið að taka sér leyfi frá störfum sem formaður Samtaka atvinnulífsins um óákveðinn tíma, frá og með 9. júlí, þar til mál skýrast varðandi stöðu hans í rannsókn sérstaks saksóknara á fjárfestingarstarfsemi Sjóvar. Þetta kemur fram í bréfi Þórs til félagsmanna SA en greint var frá rannsókninni á vef SA. Þór segist telja að störf hans hjá Sjóvá hafi í einu öllu verið í samræmi við lög enda hafi hann unnið af metnaði og bestu samvisku fyrir fyrirtækið. Honum sé umhugað um að starfsemi SA gangi eins vel og kostur er og vilji á engan hátt að samtökin verði fyrir skaða vegna fyrrgreindrar rannsóknar sem sé þeim algjörlega óviðkomandi.

9.7.2009

Hvatt til innlendrar og erlendrar fjárfestingar

Í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera náðist sátt um að greiða fyrir auknum framkvæmdum til að auka atvinnu. Lykilatriði er að hvatt verði til þátttöku erlendra og innlendra fjárfesta í fjölbreyttum verkefnum. Nauðsynlegt er að hraða framkvæmdum við álver í Helguvík sem þegar eru hafnar og kanna þarf áhuga fjárfesta á þátttöku í fjárfestingarverkefnum á sviði orkunýtingar án þess að ríki og sveitarfélög afsali sér eignarhaldi á auðlindum. Þá er mikilvægt að leita leiða til að ráðast í arðbærar samgönguframkvæmdir sem að hluta yrðu fjármagnaðar með notendagjöldum. Þetta kemur m.a. fram í ítarlegri umfjöllun SA um verklegar framkvæmdir.

9.7.2009

Launabreytingum frestađ

Með samkomulagi SA og ASÍ um framlengingu kjarasamninga þann 25. júní var launabreytingum frestað. Einungis kauptaxtar kjarasamninga hækka 1. júlí, um kr. 6.750 hjá verkafólki og afgreiðslufólki en kr. 8.750 hjá iðnaðarmönnum og skrifstofufólki. Nýju kauptaxtana má finna í nýrri kaupgjaldsskrá SA. Laun sem eru hærri en nýju kauptaxtarnir hækka ekki.

9.7.2009

Umsagnir SA til Alţingis

Samtök atvinnulífsins vekja athygli á þremur umsögnum SA til Alþingis sem má nálgast á vef samtakanna. Um er að ræða umsagnir um frumvarp fjármálaráðherra vegna Icesave, frumvarp um Bankasýslu ríkisins og umsögn um tillögu að aðildarumsókn Íslands að ESB. Samtök atvinnulífsins styðja að gengið verði til samninga vegna Icesave og benda á að efnahagslegur kostnaður af því að fella samkomulagið gæti orðið mjög mikill. Lausn málsins sé þáttur í því að sköpun starfa geti hafist á ný á Íslandi.

9.7.2009

Óskilvirk vinnumiđlun

Nú þegar álögur á atvinnulífið vegna atvinnuleysis hafa þrefaldast með hækkun atvinnutryggingagjalds úr 0,65% í 2,21% aukast kröfur um að vel sé haldið á fjármunum Atvinnuleysistryggingasjóðs. Vaxandi kröfur eru gerðar til þess að fólk þiggi ekki atvinnuleysisbætur á sama tíma og laus störf eru í boði sem það getur unnið. Töluvert er kvartað yfir því í atvinnulífinu að illa gangi að manna sum störf ófaglærðra, t.d. á hótelum.

9.7.2009

Um tekjur og gjöld Atvinnuleysistryggingasjóđs

Tekjustofn Atvinnuleysistryggingasjóðs er atvinnutryggingagjald, sem er hluti af lögbundnu tryggingagjaldi atvinnurekenda sem reiknast af greiddum launum. Í árslok 2008 var eigið fé sjóðsins um 16 milljarðar króna. Aukin greiðslubyrði sjóðsins vegna nýrra viðfangsefna og sérstakrar hækkunar bóta í janúar umfram almennar launahækkanir var talin leiða til þess að sjóðurinn myndi tæmast haustið 2009 ef ekkert yrði að gert. Með hækkun atvinnutryggingagjalds frá 1. júlí sl. úr 0,65% í 2,21% gera bjartsýnustu spár ráð fyrir að um næstu áramót verði eigið fé sjóðsins jákvætt um 2,5 milljarða en útlitið verði dökkt á árinu 2010.

9.7.2009

Vinnustađaskírteini tekin í notkun í haust

Vinnustaðaskírteini verða innleidd í byggingariðnaði í haust. Þeim er m.a. ætlað að auðvelda eftirlit á vinnustöðum svo hægt sé að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og misnotkun atvinnuleysisbóta.

9.7.2009

Hćrra tryggingagjald og hátekjuskattur

Frá 1. júlí verður tryggingagjald 7,0% í stað 5,34%. Annars vegar hækkar atvinnutryggingagjald úr 0,65% í 2,21% og hins vegar tvöfaldast gjald í ábyrgðasjóð launa og fer í 0,2%. Samtals hækkar tryggingagjald því um 1,66%  Hækkað gjald reiknast af launum frá og með 1. júlí og kemur til greiðslu við innheimtu staðgreiðslu í ágúst. Viðbót vegna launa sjómanna á fiskiskipum verður áfram 0,65%.

7.7.2009

Húsleit hjá Samtökum atvinnulífsins

Starfsmenn sérstaks saksóknara gerðu í dag húsleit á starfsstöð Þórs Sigfússonar, formanns SA, á skrifstofu samtakanna, en Þór hefur haft þar starfsaðstöðu í nokkrar undanfarnar vikur.  Leitað var að gögnum sem tengjast fyrri störfum Þórs hjá Sjóvá en sérstakur saksóknari hefur í dag látið leita víðar að gögnum um fjárfestingastarfsemi fyrirtækisins á undanförnum árum.  Þór er leitarþoli í þessu tilviki en réttarstaða hans í málinu hefur ekki verið skilgreind að öðru leyti. Þór er nú í sumarfríi og tekur ekki þátt í störfum SA á meðan.  Vonast er til að þegar Þór kemur úr fríi undir lok mánaðarins liggi réttarstaða hans í málinu fyrir.

5.7.2009

Icesave-frumvarpiđ verđi samţykkt

Forsvarsmenn atvinnulífsins og verkalýðsforystunnar taka undir rök fjármálaráðherra um nauðsyn þess að frumvarp hans um Icesave-samninginn verði samþykkt. Uppbyggingin framundan sé því háð. Þetta kemur fram í umfjöllun Fréttablaðsins. „Það verður að klára þetta. Öðruvísi komumst við ekki í samband við erlenda fjármagnsmarkaði sem endurreisnin byggir á," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við blaðið.

3.7.2009

Gagnslaus og skađleg gjaldeyrishöft

 „Gjaldeyrishöft eiga að vinna gegn veikingu krónunnar en það virkar ekkert frekar en að verðlagshöft virka til að halda niðri verðbólgu þannig að þetta er bara falleinkunn þeirra yfir sjálfum sér. Gjaldeyrishöft hafa hvergi virkað til að styðja við gengi gjaldmiðla, þeir vita það og það vita allir en samt komast þeir ekki út úr þeirri hugsun." Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson í viðtali við Vísi um þá ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankansað halda stýrivöxtum óbreyttum.

2.7.2009

Fjármálaráđuneytiđ á villigötum

Hugmyndir fjármálaráðuneytisins um að leggja á sérstakan kolefnisskatt eru vanhugsaðar og munu hafa lítil sem engin áhrif á útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá íslenskum fyrirtækjum. Skattheimta sem þessi verður aðeins til þess draga úr samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs auk þess að minnka líkur á að erlend fjárfesting verði hér að veruleika á næstu misserum. Verði skatturinn lagður á getur orkukostnaður útgerðarfyrirtækja hækkað um allt að þriðjung og útsöluverð á bensíni hækkað um 23 krónur hver lítri og dísellítrinn um 25 krónur.

2.7.2009

Telur Seđlabankann vantrúađan á ađgerđir stjórnvalda

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir ljóst að Seðlabankinn hafi enga trú á aðgerðum ríkisstjórnarinnar og allt bendi til þess að ekki takist að ná stýrivöxtum niður fyrir 10% fyrir 1. nóvember nk. líkt og kveðið er á um í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda. „Ef Seðlabankinn lokar augunum fyrir öllu sem er að gerast í peningamálunum í kringum okkur, bæði ríkisfjármálum og öðru, þá hef ég enga trú á því," segir Vilhjálmur í samtali við mbl.is. Tilkynnt var um óbreytta stýrivexti Seðlabankans í morgun, 12%.

1.7.2009

Nýr fastafulltrúi SA í Brussel

Jón Óskar Sólnes hefur verið skipaður fastafulltrúi Samtaka atvinnulífsins hjá BUSINESSEUROPE (Evrópusamtökum atvinnulífsins) til eins árs frá og með 1. júlí 2009. Jón Óskar leysir af Sigrúnu Kristjánsdóttur sem fer í árs barnsburðarleyfi.

1.7.2009

Ný kaupgjaldskrá er komin á vef SA

Kaupgjaldskrá nr.11 er komin á vef SA og gildir hún frá 1. júlí 2009. Kauptaxtar kjarasamninga hækka 1. júlí um kr. 6.750 hjá verkafólki og afgreiðslufólki en kr. 8.750 hjá iðnaðarmönnum og skrifstofufólki. Laun sem eru hærri en nýju kauptaxtarnir hækka ekki. Taxtahækkun er háð því að samninganefnd ASÍ og SA samþykki samninginn en niðurstaða skal liggja fyrir 14. júlí nk.
RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english