Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

25.2.2009

Samiđ um frestun launahćkkana

Samkomulag náðist síðdegis milli SA og ASÍ um frestun fyrirhugaðra launahækkana 1. mars en ákveðið var að fresta ákvörðun um endurskoðun kjarasamninga um allt að fjóra mánuði. Samningsaðilar telja að þessi frestun sé mikilvægt framlag til stöðugleika í efnahagslífinu. Þannig geti skapast aðstæður til þess að hratt dragi úr verðbólgu og vextir geti lækkað. Í sameiginlegum áherslum SA og ASÍ segir að á næstu dögum og vikum þurfi að grípa til margvíslegra aðgerða til þess að verja hag heimilanna og fjölga störfum.

24.2.2009

Hvernig tölum viđ efnahagslífiđ niđur?

Frá upphafi kreppunnar hefur borið á stórum yfirlýsingum um hörmulegt ástand þjóðarbúsins sem skapað hefur ótta og dregið kjark úr fólki en það er mikilvægt að fólk fái eins raunsanna mynd af ástandi efnahags- og ríkisfjármála og frekast er kostur. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður SA. „Vandræðin eru alveg næg þó svo við séum ekki að ýkja umfang þeirra," segir Þór og bendir m.a. á að nettó ríkisskuldir eru áætlaðar um 5-600 milljarðar í árslok 2009 eða 33-40% af áætlaðri landsframleiðslu. Slíkt hlutfall er alls ekki fjarri því sem þekkist í mörgum samkeppnislöndum okkar. Þór segir ýmsar ákvarðanir og aðgerðir stjórnvalda ráða miklu um hvernig til takist á næstu mánuðum en ein alvarlegasta hættan fyrir íslenskt efnahags- og atvinnulíf nú um stundir sé sú að það sé talað niður svo ástandið verði enn verra.

23.2.2009

Gríđarlegt átak nauđsynlegt í orkumálum heimsins

Á vettvangi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna er stefnt að því að ná samkomulagi um framhald svokallaðrar Kyoto-bókunar í lok þessa árs. Miðað við forsendur ESB má ætla að Ísland geti þurft að takast á hendur skuldbindingar um 15-20% samdrátt í almennri losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2020 frá árinu 2005. Útstreymi vegna stóriðju er þar ekki talið með. Þetta kom fram í erindi Péturs Reimarssonar, forstöðumanns hjá SA, á aðalfundi Samorku. Gríðarlegt átak þarf í orkumálum heimsins til að ná niður útstreymi gróðurhúsalofttegunda.

22.2.2009

Erlendir ađilar komi ađ rekstri íslenskra banka

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við fréttastofu RÚV nauðsynlegt að erlendir aðilar komi að rekstri íslensku bankanna svo hægt verði að tryggja aðgang að erlendu lánsfé. Íslenska ríkið muni hafa mjög takmarkaðan eða jafnvel engan aðgang að lánsfé á almennum mörkuðum næstu árin og því mikilvægt að bankarnir komist í eigu erlendra kröfuhafa.

20.2.2009

Óskýrđur launamunur kynja mćlist 7%

Ný viðamikil rannsókn sem byggir á upplýsingum úr launabókhaldi 37 fyrirtækja og nær til rúmlega sex þúsund starfsmanna sýnir að konur sem könnunin náði til voru með rúmlega 7% lægri laun en karlar þegar tillit hafði verið tekið til ýmissa þátta sem eru mismunandi eftir kynjum. Í sambærilegri könnun árið 2007 reyndist óskýrður launamunur kynja 12% en rannsakað var hvaða áhrif kyn, starfsheiti, aldur, starfsaldur í fyrirtæki, menntun, vinnutími og fyrirtæki höfðu á föst laun án óreglulegra yfirvinnugreiðslna.

20.2.2009

Raunlćkkun orkuverđs til fjölda ára

Árum saman hefur verð á bæði heitu vatni og raforku farið lækkandi um land allt, að teknu tilliti til verðlagsþróunar almennt, ef frá eru skilin áhrif kerfisbreytinga sem raforkulög frá árinu 2003 höfðu í för með sér. Verð á raforku til almennra notenda er lægra hérlendis en í helstu samanburðarlöndum og hefur lengi verið. Sömu sögu má segja um verðlagningu á heitu vatni." Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun aðalfundar Samorku þar sem m.a. er fjallað um endurskoðun raforkulaga, mikilvægi öflugrar grunnþjónustu, loftslagsmál, mikilvægi erlendrar fjárfestingar og vatnsvernd.

19.2.2009

Rýrnun reynist versluninni dýrkeypt

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu efna til morgunverðarfundar um rýrnun í verslun föstudaginn 20. febrúar á Grand Hótel Reykjavík. Framsögumenn á fundinum verða Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Eyþór Víðisson, öryggisfræðingur hjá VSI - öryggishönnun & ráðgjöf, Guðrún Björk Bjarnadóttir, lögmaður hjá SA og Jackie Lambert, framkvæmdastjóri RLP (Retail Loss Prevention) í Bretlandi.

17.2.2009

Viđrćđur um framhald kjarasamninga halda áfram

Á fundi forystu SA og ASÍ sem fram fór hjá Ríkissáttasemjara síðdegis í dag var ákveðið að hittast aftur næstkomandi mánudag til þess að fjalla um áframhald kjarasamninga og frestun fyrirhugaðra launahækkana 1. mars næstkomandi. Fulltrúar samningsaðila hjá hinu opinbera sátu einnig fundinn en ríkur vilji kom fram um víðtækt samstarf á vinnumarkaði á næstunni.

17.2.2009

Aukin fjölbreytni nauđsynleg í íslensku atvinnulífi

Auka má fjölbreytni verulega í íslensku atvinnulífi. Þegar blæs á móti í rekstrinum líkt og nú þarf að taka til og leita nýrra leiða til aukinnar hagsældar. Það er því klókt að auka fjölbreytni í stjórnum fyrirtækja og í stjórnunarstöðum. Það getur verið ein þeirra leiða sem koma íslensku atvinnulífi fyrr af stað í sókn til bættra lífskjara.

16.2.2009

Launahćkkunum og endurskođun kjarasamninga verđi frestađ

Mörg fyrirtæki geta ekki staðið undir launahækkunum um næstu mánaðamót. Samtök atvinnulífsins hafa því tekið jákvætt í hugmyndir forystu ASÍ um að fresta launahækkunum 1. mars næstkomandi. Taka þurfi upp þráðinn í júní vegna breytinga sem annars myndu koma til framkvæmda 1. júlí. Áður höfðu SA sett fram hugmyndir um frestun allra launahækkana til hausts eða jafnvel fram í byrjun næsta árs þegar staða efnahagsmála væri orðin skýrari. Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag.

15.2.2009

Ítarleg úttekt á stefnu og skipulagi Seđlabankans nauđsynleg

Í ljósi þess að peningamálastefna Seðlabankans hefur beðið skipbrot og Seðlabankinn er rúinn trausti og varð gjaldþrota er mikilvægt að allar breytingar á skipulagi hans stuðli að endurvakningu trausts á Seðlabankanum og efnahagsstefnu stjórnvalda. Samtök atvinnulífsins leggja því til að fram fari ítarleg úttekt á stefnu og skipulagi Seðlabankans og í þeirri endurskoðun verði þær breytingar sem felast í frumvarpi um Seðlabankann sem Alþingi hefur til meðferðar einnig teknar til umfjöllunar. Þetta kemur fram í umsögn SA um frumvarpið.

13.2.2009

Stóra U-beygjan

Stór U-beygja gagnvart atvinnulífinu er tekin í fyrstu skýrslu nefndar um endurreisn fjármálakerfisins sem kynnt var á blaðamannafundi 11. febrúar. Meginatriðin í tillögugerð nefndarinnar ganga í veigamiklum atriðum gegn stefnumörkun þáverandi ríkisstjórnar frá 2. desember 2008 um aðgerðir í þágu fyrirtækja sem unnin var í samráði við Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og fleiri hagsmunaaðila. Því verður ekki trúað að það sé ætlan ríkisstjórnarinnar að taka svona tillögugerð alvarlega eins og gefið hefur verið í skyn. Þessi tillögugerð er algjörlega unnin án samráðs við Samtök atvinnulífsins og fær aldrei stuðning þeirra. Framkvæmd þessara tillagna leiðir til mikils ófarnaðar og framlengir erfiðleikana í atvinnulífinu um mörg ár ef ekki áratugi. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA.

12.2.2009

Atvinnulífiđ vill berjast

Ný könnun SA meðal aðildarfyrirtækja sinna leiðir í ljós að íslensk fyrirtæki vilja berjast áfram og ekki gefast upp þrátt fyrir erfið starfsskilyrði. Því skiptir höfuðmáli að stjórnvöld hlusti á atvinnulífið og skapi því starfsskilyrði sem efla baráttuvilja og þor til þess að takast á við erfiðleikana. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfs SA. Hann ítrekar það sjónarmið SA að æskilegt sé að bankarnir hafi sérstök opin umsýslu- eða eignarhaldsfélög á sínum vegum til þess að fara með eignarhluti í fyrirtækjum sem lenda í þeirra höndum. Mikil hætta sé á spillingu, gerræðislegum ákvörðunum og tortryggni og vandamálum vegna heilbrigðrar samkeppni ef stofna eigi eitt eignarhaldsfélag á vegum ríkisins til þess að eiga og reka mörg af helstu fyrirtækjum landsins.

12.2.2009

Fyrirtćkin ţrjóskast viđ en tími ađgerđa er runninn upp

Tæplega sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum SA fækkuðu ekki starfsmönnum á síðasta ári þrátt fyrir versnandi rekstrarhorfur. Tæp 18% fyrirtækjanna brugðu á það ráð að breyta fullum störfum í hlutastörf til þess að forðast uppsagnir og um 18% gripu til launalækkana til að tryggja áframhaldandi rekstur. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á atvinnuhorfum meðal fyrirtækjanna. Ríflega helmingur aðildarfyrirtækja hyggst halda óbreyttum starfsmannafjölda á næstu mánuðum en fram kemur í athugasemdum svarenda að þrek margra fyrirtækja dvínar ört. Í könnuninni kemur skýrt fram að stjórnendur fyrirtækja telja að lækka verði vexti fljótt  svo fyrirtækin í landinu geti starfað áfram og koma verði bankaþjónustu í eðlilegt horf á nýjan leik ásamt því að gjaldeyrishöft verði afnumin.

12.2.2009

Ćtlum ađ koma standandi út úr kreppunni

„Við fórum standandi inn í þessa kreppu og ætlum helst að koma standandi út úr henni," segir Andrés Sigurðsson rekstrarstjóri Loftorku í Reykjavík, en fyrirtækið hefur vakið athygli fyrir ákveðin viðbrögð við efnahagsþrengingunum sem nú ríða yfir íslenskt samfélag.

12.2.2009

Ráđningar fólks samkvćmt reglum um vinnumarkađsúrrćđi

Ráðning vegna frumkvöðlastarfs í fyrirtækjum og þróun eigin viðskiptahugmyndar eru meðal þeirra úrræða sem Vinnumálastofnun getur boðið en nýjar reglugerðir voru settar um vinnumarkaðsaðgerðir í  byrjun janúar. Ennfremur er þar kveðið á um reynsluráðningar og starfsþjálfunarsamninga. Í lögum um vinnumarkaðsaðgerðir  eru tiltekin helstu vinnumarkaðsúrræði sem Vinnumálastofnun skal annast, en þar er um að ræða styttri námskeið, starfstengd úrræði, námsúrræði, atvinnutengda endurhæfingu og ráðgjöf.

12.2.2009

Ţegar áfalliđ dynur yfir skipta rétt viđbrögđ öllu máli

Um 200 hundruð manns sóttu ráðstefnu um áfallastjórnun sem haldin var á vegum KOM almannatengsla, Vinnuverndar ehf, Humus og Samtaka atvinnulífsins miðvikudaginn 11. febrúar. Fjallað var um málefnið út frá ýmsum sjónarhornum en fram kom í máli framsögumanna að mikilvægt væri að standa faglega að málum þegar „hið óhugsanlega gerist". Ekki væri leyst úr áföllum á einni nóttu og mikilvægt væri fyrir stjórnendur að gera sér grein fyrir langtímaáhrifum áfalla á rekstur og ímynd fyrirtækja, líðan starfsmanna, samskipti við nærsamfélagið og ýmsa aðra þætti ásamt því að leita utanaðkomandi stuðnings þegar þess væri þörf.

10.2.2009

Víđtćk sátt um niđurskurđ í ríkisrekstri nauđsynleg

Í aðdraganda kosninga til Alþingis og hugsanlegra stjórnarmyndunarviðræðna í kjölfarið þarf Alþingi Íslendinga að taka af skarið og hefja þverpólitíska vinnu við að leita leiða til að spara í ríkisrekstri og ná um það víðtækri sátt. Alþingi á að setja á laggirnar sparnaðarnefnd sem hefur að markmiði að undirbúa sparnað í ríkisrekstrinum á fjárlögum 2010 og leggja línur um sparnað til næstu þriggja ára. Nefndin gæti kallað til sín fulltrúa ráðuneyta og unnið náið með fjárlaganefnd þingsins. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður SA.

9.2.2009

Hreinar skuldir ríkissjóđs 27% af landsframleiđslu í lok ársins

Í upphafi árs 2008 var ríkissjóður skuldlaus að teknu tilliti til peningalegra eigna og útistandandi krafna. Námu eignir ríkissjóðs umfram skuldir (svonefnd hrein staða) þá 47 milljörðum kr. eða 3,4% af landsframleiðslu. Eru þá ekki meðtalin fyrirtæki í eigu ríkissjóðs en bókfært virði þeirra er nú um 200 milljarðar. Þessi sterka staða ríkissjóðs sem byggð var upp á umliðnum árum með niðurgreiðslu skulda og aukningu peningalegra eigna auðveldar þjóðinni að takast á við áfall vegna hruns gömlu viðskiptabankanna.

9.2.2009

Fáum málin á hreint

Frá upphafi kreppunnar hefur borið á stórum yfirlýsingum um hörmulegt ástand þjóðarbúsins sem skapað hefur ótta og dregið kjark úr fólki. Skemmst er að minnast yfirlýsinga strax í kjölfar bankahrunsins um að hér yrði matar- og olíuskortur, nokkrir hagfræðingar spáðu fyrir áramót að 40 þúsund manns yrðu atvinnulausir í mars 2009, aðrir spáðu hér þriggja stafa óðaverðbólgu og birtar voru tölur sem sýndu að ríkissjóður skuldaði um þrjú þúsund milljarða króna eða sem nemur um 40 milljónum á fjögurra manna fjölskyldu.  „Reynum að vanda okkur í yfirlýsingum," segir Þór Sigfússon, formaður SA. „Vandræðin eru alveg nóg til þess að við séum ekki að ýkja þau þannig að fólk óttist gjaldþrot íslenska ríkisins og almennan matarskort."

8.2.2009

Ráđstefna um áfallastjórnun 11. febrúar

Miðvikudaginn 11. febrúar fer fram morgunverðarráðstefna um áfallastjórnun á Grand Hótel Reykjavík. Yfirskrift ráðstefnunnar er Þegar áfallið dynur yfir en þar verður fjallað um fyrstu viðbrögð við óvæntum atburðum og möguleg áhrif þeirra. Ráðstefnan er á vegum KOM almannatengsla, Humus, Vinnuverndar og Samtaka atvinnulífsins.

6.2.2009

Lćkkun vaxta mikilvćgasta ađgerđin í atvinnumálum

Hröð lækkun vaxta er lang mikilvægasta aðgerðin í atvinnumálum sem hægt er að grípa til á Íslandi. Ljóst er að við núverandi vaxtastig verður engin atvinnusköpun þar sem vart finnst sú fjárfesting sem stendur undir því. Það er óeðlilegt ástand að búa við 18% stýrivexti en vegna hins háa vaxtastigs verða engin ný störf til og störfum fækkar jafnframt óðfluga. Lækkun stýrivaxta í 8% gæti hugsanlega tryggt 7.000 fleiri störf á Íslandi á næsta ári en ella. Í dag eru 13.688 manns atvinnulausir á Íslandi.

3.2.2009

Vaxtalćkkun verđi byggđ á framsýni

Háir vextir eiga alls ekki við í efnahagskreppu eins og þeirri sem Íslendingar ganga í gegnum um þessar mundir. Þeir auka enn á rekstrarvanda fyrirtækja og stuðla að auknu atvinnuleysi. Veruleg vaxtalækkun nú myndi ekki valda því að raunvextir yrðu neikvæðir á næstu mánuðum og því er ekki eftir neinu að bíða. Verðbólgan síðustu 12 mánuði var 18,6% og allt bendir til þess að hún hafi náð hámarki og fari lækkandi á næstu mánuðum. Verðbólgan fær hvorki fóður í formi launahækkana né mikillar eftirspurnar.

3.2.2009

Vel heppnađur fundur međ starfsmönnum Straums

Samtök atvinnulífsins kynntu í hádeginu starfsmönnum Straums fjárfestingabanka atvinnustefnu samtakanna sem kom nýverið út. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, fór yfir helstu þætti hennar og undirstrikaði m.a. mikilvægi þess að dugur og þor yrði ekki barinn úr íslensku þjóðinni - framundan væri tímabil endurreisnar atvinnulífsins þar sem þurfi að hefja framtak og áræðni til vegs og virðingar á ný. Fulltrúar SA kynna þessa dagana atvinnustefnuna fyrir starfsmönnum aðildarfyrirtækja SA og geta áhugasamir haft samband við skrifstofu SA hafi þeir áhuga á slíkri kynningu.

2.2.2009

Hćgt ađ lćkka vexti strax

Í verkefnaskrá nýrrar ríkisstjórnar segir meðal annars að leitað verði markvissra leiða til að lækka vexti eins fljótt og kostur er. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Vilhjálmur Egilsson, telur að ekkert geti komið í veg fyrir að hægt sé að lækka vexti strax þar sem búið er að mynda nýja ríkisstjórn. Hann segir í samtali við fréttastofu RÚV að Seðlabankinn hafi gefið út að vextir hafi ekki verið lækkaðir vegna óvissu í stjórnmálaástandinu. Þeirri óvissu hafi verið eytt fram að kosningum og því hægt að lækka vexti.

2.2.2009

Ađgerđir gegn atvinnuleysi

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur ýtt úr vör vinnu við fjölbreyttar aðgerðir gegn atvinnuleysi í samræmi við fyrstu tillögur starfshóps þar um. Í tillögum starfshópsins kom fram að grípa þyrfti til margvíslegra úrræða til að bregðast við gríðarlegum samdrætti í byggingariðnaði. Nauðsynlegt væri að beina sjónum fyrst og fremst að viðhaldsverkefnum í ljósi offramboðs á fasteignum og lækkandi fasteignaverðs.

2.2.2009

Áform um lćkkun vaxta til bóta - ríkisbankaleiđ ófćr

Morgunblaðið og Fréttablaðið leituðu viðbragða Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra SA, við myndun nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. „Ég hef verið að skoða verkefnaáætlunina og mér sýnist sem að það sé ýmislegt, eins og lækkun vaxta og eitthvert undanhald í gjaldeyrishöftum, sem sé til bóta," segir Vilhjálmur um nýju stjórnina. Hann telur þó að kveða hefði mátt skýrar að orði um afnám gjaldeyrishaftanna að fullu. „Síðan er það algjörlega nauðsynlegt að það verði ábyrg ríkisfjármálastefna og að framkvæmd verði þau fjárlög sem við búum við," segir Vilhjálmur í Morgunblaðinu í dag.
RSS-efnisveita SA

Atvinna fyrir alla - smelltu til ađ sćkja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english