Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

30.11.2009

Tíđindi af loftslagsráđstefnunni í Kaupmannahöfn

Næstkomandi mánudag hefst í Kaupmannahöfn loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna. Samtök atvinnulífsins munu eiga fulltrúa á ráðstefnunni, Pétur Reimarsson forstöðumann hjá SA, sem hefur fylgst náið með samningaviðræðum á sviði loftslagsmála undanfarin ár. Á vef SA verður greint frá því helsta sem gerist í Kaupmannahöfn auk þess sem gerð verður grein fyrir niðurstöðum ráðstefnunnar. Í þessari viku birtir Pétur daglega pistla um hvað loftslagsmálin snúast og af hverju þjóðir eigi erfitt með að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Einnig fjallar hann um þá íslensku hagsmuni sem eru í húfi og greinir frá viðhorfi atvinnulífsins til samningaviðræðnanna.

27.11.2009

Launabreytingar 1. nóvember 2009 og 1. júní 2010

Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði halda gildi sínu til nóvemberloka 2010. Það þýðir að umsamdar launabreytingar koma til framkvæmda frá 1. nóvember 2009 og 1. júní 2010. Í nóvember er annars vegar um að ræða 3,5% launaþróunartryggingu og hins vegar sérstaka hækkun lágmarkstaxta kjarasamninga. Þann 1. júní 2010 hækka laun um 2,5% en þá kemur einnig til sérstök hækkun lágmarkstaxta.

27.11.2009

Ráđumst ekki á lífeyrissjóđina

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, flutti í gærkvöld erindi um skattlagningu lífeyrisiðgjalda hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum. Þar sagði hann m.a. að uppbygging lífeyrissjóðana væri eitt af því besta sem gerst hafi í þróun íslensks samfélags og íslenska lífeyrissjóðakerfið sé öfundarefni annarra þjóða. „Ráðumst ekki á það sem vel gengur og léttir okkur enn frekar róðurinn í framtíðinni," sagði Vilhjálmur meðal annars. Hann segir skynsamlegt að nýta lífeyrissjóðina sem bakhjarl fyrir sparnað og fjárfestingar til þess að leiða nýtt uppbyggingartímabil.

26.11.2009

Snilldarlausnir framhaldsskólanema komnar í ljós

Úrslit í hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna, Snilldarlausnum Marel, liggja nú fyrir. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, afhenti í dag hugmyndaríkum framhaldsskólanemum viðurkenningar fyrir að búa til hagnýta hluti úr einföldu herðatré. Bestu hugmyndina átti Valdís Steinarsdóttir sem bjó til nýstárlegan gítarstand. Einnig fengu Elís Rafn Björnsson og Ari Páll Ísberg  viðurkenningu fyrir hjálpartæki sem nýtist við endurvinnslu og Kristinn Pálsson fékk viðurkenningu fyrir fatahengi. Samtök atvinnulífsins voru meðal bakhjarla keppninnar.

26.11.2009

Lífeyrissjóđir mikilvćgir í uppbyggingu atvinnulífsins

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, hélt í dag erindi um lífeyrissjóðina og uppbyggingu atvinnulífsins hjá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands. Þar sagði Vilhjálmur m.a. að endurreisn hlutabréfamarkaðarins væri ein af lykilforsendunum fyrir endurreisn atvinnulífsins til framtíðar og að lífeyrissjóðirnir gegni þar mikilvægu hlutverki - það sé bæði hagur samfélagsins og lífeyrissjóðanna. Hins vegar þurfi að læra af reynslunni og byggja markaðinn upp af meiri fagmennsku og aga.

25.11.2009

Flóknara Ísland

Haustið 2006 samþykkti þáverandi ríkisstjórn aðgerðaáætlun um Einfaldara Ísland og í kjölfarið var skipaður samráðshópur ráðuneyta, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins sem var forsætisráðherra til aðstoðar við að framfylgja henni. Aðgerðaáætluninni var markaður tímarammi frá 2006-2009 og var starfshópnum ætlað að starfa á því tímabili. Lítið hefur frést af framgangi einföldunaráætlana ráðuneytanna og samráðshópurinn hefur ekki komið saman síðan í september 2008. Á þetta bendir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í grein á vef SA. Hann segir verkefnið um Einfaldara Ísland hafa siglt í strand og í raun hafi verið tekin upp þveröfug stefna sem nefna megi Flóknara Ísland.

23.11.2009

Er ađ marka fjárlög?

Þriðjudaginn 17. nóvember héldu Samtök atvinnulífsins ásamt Félagi forstöðumanna ríkisstofanna í samvinnu við fjármálaráðuneytið ráðstefnu um framkvæmd fjárlaga undir yfirskriftinni „Er að marka fjárlög?". Ráðstefnan var vel sótt og heppnaðist vel í alla staði. Ástæða þess að þetta efni var tekið fyrir er sú að á undanförnum árum hefur verið pottur brotinn í framkvæmd fjárlaga og fjárlög og útgjöld einstakra stofnana farið langt fram úr því sem Alþingi ákvað við afgreiðslu sína.

23.11.2009

Ráđstefna um menntun á vinnumarkađi

Í stað hefðbundins ársfundar 2009 mun Fræðslumiðstöð atvinnulífsins í samstarfi við Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB halda ráðstefnu undir heitinu „Úrræði til árangurs" dagana 26. og 27. nóvember á Hótel Nordica. Á ráðstefnunni verða rædd möguleg úrræði til að bregðast nú þegar við því ástandi sem ríkir á íslenskum vinnumarkaði ásamt því sem fjallað verður um menntun á vinnumarkaði til frambúðar.

20.11.2009

Skattamál atvinnulífsins

Ríkisstjórnin hefur nú kynnt útfærð áform sín um skattahækkanir vegna fjárlagagerðar fyrir árið 2010. Töluverðar breytingar hafa orðið á þessum áformum frá því sem kynnt var í fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram í októberbyrjun. Á undanförnum vikum hafa viðræður verið í gangi milli Samtaka atvinnulífsins og stjórnvalda um það sem snýr að atvinnulífinu í þessum skattahækkunum. Ekki tókst að ljúka þessum viðræðum þegar kom að framlengingu kjarasamninga í lok október og framgangur stöðugleikasáttmálans frá því 25. júní var metinn. Ákveðið var að láta reyna áfram á hvort hægt væri að ná ásættanlegri niðurstöðu. Nú þegar hún liggur fyrir er ljóst að komið hefur verið til móts við óskir Samtaka atvinnulífsins en þó eru mikilvæg mál sem enn er ekki samstaða um.

19.11.2009

Sjávarútvegi verđi tryggđ eđlileg starfsskilyrđi

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir fyrirhugaðar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar ekki koma sérstaklega á óvart. „Umfangið er í takt við það sem við höfum verið að búast við," segir hann í samtali við mbl.is. Hann segir að SA hefði kosið að bæði virðisaukaskattsþrepin hefðu verið hækkuð í stað þess að búa til nýtt þrep. „Þetta milliþrep er okkur ekki að skapi og við höfum mótmælt því, en það var ekki hlustað á það," segir Vilhjálmur. Hann leggur á það mikla áherslu að það verði að tryggja sjávarútveginum eðlileg starfsskilyrði. Ekki þýði að hækka skatta á sjávarútveginn og á sama tíma og vegið sé að starfsskilyrðunum. Nú sé verið að leggja 3,5 milljarða kr. í hærri álögur á sjávarútveginn.

18.11.2009

Gögn frá ráđstefnu um opinber fjármál á vef SA

Samtök atvinnulífsins og Félag forstöðumanna ríkisstofnana í samvinnu við fjármálaráðuneytið efndu til ráðstefnu þann 17. nóvember um opinber fjármál undir yfirskriftinni Er að marka fjárlög? Yfir eitt hundrað þátttakendur tóku þátt í ráðstefnunni og ræddu út frá ólíkum sjónarhornum hvernig bæta megi rekstur ríkisins en á því er full þörf eins og kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra á ráðstefnunni. Glærukynningar frummælenda eru nú aðgengilegar á vef SA en ítarlega verður fjallað um efni ráðstefnunnar á sa.is á næstu dögum.

18.11.2009

Hvar liggja tćkifćrin í íslensku atvinnulífi?

Háskólinn á Bifröst efnir til hádegisverðarfundar í Iðnó fimmtudaginn 19. nóvember frá kl. 12 til 13:30 þar sem leitast verður við að greina þau tækifæri sem kunna að felast í íslensku atvinnulífi um þessar mundir. „Þrátt fyrir margvíslega erfiðleika í íslensku efnahagslífi hafa mörg fyrirtæki náð eftirtektarverðum árangri að undanförnu. Alþjóðleg frumkvöðlaverðlaun Cartier féllu í ár í skaut íslensku fyrirtæki, Auði Capital, og CCP leitar eftir á annað hundrað manns til starfa hjá fyrirtækinu. Hvað veldur því að sum fyrirtæki blómstra í kreppunni þrátt fyrir vonlausar ytri aðstæður? Er kreppan tækifæri fyrir menntunar- og menningargeirann eða frumkvöðlastarf?," segir í tilkynningu frá Háskólanum á Bifröst.

17.11.2009

„Ekki tími mikilla hugmyndafrćđilegra sigra"

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, flutti fyrr í dag ávarp á ráðstefnu um framkvæmd fjárlaga sem stendur yfir á Hótel Nordica. Steingrímur sagði að nú væri ekki tími mikilla hugmyndafræðilegra sigra á meðan þjóðin vinnur sig út úr því mikla verkefni sem við blasir í ríkisfjármálunum.

16.11.2009

Rćtt um fjárlögin ţriđjudaginn 17. nóvember

Samtök atvinnulífsins og Félag forstöðumanna ríkisstofnana í samvinnu við fjármálaráðuneytið efna til opinnar ráðstefnu á morgun, þriðjudaginn 17. nóvember, um opinber fjármál. Um eitt hundrað forstöðumenn ríkisstofnana, atvinnurekendur og fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar, alþingismenn, sveitarstjórnarmenn og sérfræðingar auk áhugafólks um bættan rekstur ríkisins hafa þegar skráð þátttöku. Ráðstefnan fer fram á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 13:30-17:00 undir yfirskriftinni Er að marka fjárlög? Dagskrá má nálgast á vef SA þar sem skráning fer jafnframt fram - ekkert þátttökugjald.

16.11.2009

SI: Ósanngjörn skattheimta

„Í sumar ákvað ríkisstjórnin að endurvekja gamla vörugjaldskerfið, reyndar með tvöföldum þunga, og leggja gjöld á ýmsar matvörur. Það var gert undir formerkjum lýðheilsu og þess að verið væri að skattleggja óhollustu. Þrátt fyrir hörð mótmæli, ekki síst úr ranni Samtaka iðnaðarins, var ákveðið að fara þessa leið." Svo segir í yfirlýsingu Samtaka iðnaðarins sem þau sendu frá sér í dag.

12.11.2009

Orđ skulu standa

Í leiðara fréttabréfs Samtaka atvinnulífsins rekur Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, hvernig samtökin hafi bent á leiðir til að ná niður halla ríkissjóðs. Hann leggur áherslu á að samkeppnisstöðu fyrirtækja og atvinnugreina verði ekki raskað, að ríkisstjórnin standi við það sem um var samið í stöðugleikasáttmálanum í júní og við framlengingu kjarasamninga fyrir tveimur vikum. Leiðaranum lýkur Vilhjálmur með þessum orðum: „Samtök atvinnulífsins munu aldrei una skattahækkunum sem eru til þess fallnar að dýpka og lengja kreppuna og geta heldur ekki unað því að gengið sé þvert á það sem búið er að semja um. Verði það niðurstaða ríkisstjórnarinnar skilja leiðir."

12.11.2009

Grímur Sćmundsen varaformađur SA

Á fundi stjórnar Samtaka atvinnulífsins nýverið var Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf., kjörinn varaformaður SA. Grímur situr í stjórn SA fyrir hönd Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) ásamt því að eiga sæti í framkvæmdastjórn SA. Grímur hefur nokkur undanfarin ár sinnt trúnaðarstörfum fyrir SAF og SA. Vilmundur Jósefsson var áður varaformaður SA en hann gegnir nú formennsku í samtökunum.

12.11.2009

Fjöldi jákvćđra frétta borist til SA

Samtök atvinnulífsins opnuðu á dögunum pósthólf fyrir jákvæðar fréttir á vef SA og skemmst er frá því að segja að fjöldi jákvæðra frétta hefur borist úr íslensku atvinnulífi á stuttum tíma.  Samtök atvinnulífsins hvetja fyrirtæki og frumkvöðla til að halda áfram að stinga að SA góðum fréttum - ekki veitir af við þær erfiðu aðstæður sem nú eru í íslensku atvinnulífi. Á vef SA má nú sjá brot af því sem hefur borist í pósthólfið en við munum halda áfram að birta það sem berst í pósthólfið á næstu dögum og vikum.

12.11.2009

Heimsins verđmćtasta herđatré?

Hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna stendur nú yfir undir yfirskriftinni Snilldarlausnir Marel. Samtök atvinnulífsins eru meðal stuðningsaðila keppninnar en hún gengur út á að þátttakendur eiga að skapa sem mest virði úr einföldum hlut. Árið 2009 reyna þátttakendur að hámarka virði herðatrés en virðið getur verið félagslegt, fjárhagslegt, tilfinningalegt, skemmtilegt, umhverfisvænt eða í raun hvað sem er. Fyrirmynd keppninnar er fengin frá Stanford háskólanum í Bandaríkjunum.

10.11.2009

Óraunhćfar hugmyndir um stóraukna skatta

Í fréttum RÚV í gærkvöld var greint frá hugmyndum í stjórnkerfinu um stórfelldar skattahækkanir á einstaklinga og fyrirtæki. Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, líst illa á margar þessara hugmynda og segir þær óraunhæfar. Í samtali við Morgunblaðið segir Vilhjálmur að tölurnar sem vitnað er til virðist hafa verið teknar úr vinnuplöggum en ekkert liggi í raun fyrir - það sé allt á floti.

9.11.2009

Framkvćmdastjóri SA á Sprengisandi

Rætt var við Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA, um stöðu atvinnumála í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni á sunnudagsmorgun. Þar fjallaði Vilhjálmur m.a. um gagnrýni SA á atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar en einnig var rætt við Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra. Vilhjálmur skýrði m.a. út afstöðu SA til skattamála og færði rök fyrir því hvers vegna sé skynsamlegt að hækka atvinnutryggingargjald nú í stað þess að gera það síðar.

6.11.2009

Er ađ marka fjárlög?

Samtök atvinnulífsins og Félag forstöðumanna ríkisstofnana í samvinnu við fjármálaráðuneytið efna til opinnar ráðstefnu þriðjudaginn 17. nóvember um opinber fjármál. Fjallað verður á ítarlegan hátt um framkvæmd fjárlaga og hvernig markmiðum þeirra verður náð árið 2010. Ráðstefnan fer fram á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 13:30-17:00.

5.11.2009

Lítil lćkkun stýrivaxta betri en engin

„Þetta er í áttina en betur má ef duga skal," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins um lækun stýrivaxta Seðlabankans í 11%. Vilhjálmur segir að ef áætlanir ríkisstjórnarinnar um fjárfestingar og endurreisn atvinnulífsins eigi að ganga eftir þurfi að lækka vextina meira.

5.11.2009

Skođanabann, tjáningarbann og hlustunarbann?

„Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa að undanförnu fengið á sig mikla áróðursherferð. Gert er mikið úr því að þessir aðilar vinnumarkaðarins séu ekki kjörnir á Alþingi og eigi því ekki að skipta sér af störfum ríkisstjórnarinnar og Alþingis. Þessi áróðursherferð tengist sérstaklega andstöðu Samtaka atvinnulífsins við áætlanir um nýja séríslenska skatta, orku-, umhverfis- og auðlindagjöld, sem hafa sett fjárfestingaráform í orkufrekri atvinnustarfsemi í uppnám."

4.11.2009

Fjárfestingar eru leiđin út úr kreppunni

Í umfjöllun andstæðinga álvera þessa dagana eru ýkjur áberandi og upplýsingar villandi. Annars vegar er lítið gert úr mikilvægi stóriðju og hins vegar mikið úr hagnaði hennar. Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri SA, bendir á í grein á vef SA að í landinu eru nú framleidd um 800 þúsund tonn af áli árlega og bein og óbein umsvif áliðnaðarins vegi u.þ.b. 5% af vergri landsframleiðslu (VLF) og að gjaldeyrisjöfnuður landsmanna sé rúmlega 10% hagstæðari en ef hann starfaði ekki í landinu. Það samsvari a.m.k. 80 milljörðum af hreinum gjaldeyristekjum á ári.

3.11.2009

Fundir Samtaka atvinnulífsins um kjarasamninga og breytingar á ráđningarsamningum

Stjórn SA hefur ákveðið að ekki komi til uppsagnar kjarasamninga. Það þýðir að launabreytingar koma  til framkvæmda frá  1. nóvember 2009 og 1. júní 2010. Á næstunni efna SA til upplýsingafunda fyrir félagsmenn þar sem verður farið yfir umsamdar breytingar á kjarasamningum og hvaða svigrúm atvinnurekendur hafa til að gera breytingar á launum og vinnufyrirkomulagi.

2.11.2009

Ađalfundur LÍÚ: Horfiđ verđi frá hugmyndum um upptöku aflaheimilda

Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 29. og 30. október 2009  mótmælir harðlega framkomnum hugmyndum um upptöku aflaheimilda og hvetur stjórnvöld til að hverfa nú þegar frá þeim. „Upptaka aflaheimilda er alvarleg ógn við íslenskan sjávarútveg og bein aðför að landsbyggðinni. Þessar hugmyndir hafa þegar valdið atvinnugreininni og tengdum þjónustugreinum fjárhagstjóni. Með upptökunni yrði gerður að engu sá ávinningur og sú hagræðing sem náðst hefur í sjávarútvegi undanfarin ár," segir m.a. í ályktun aðalfundarins.
RSS-efnisveita SA

Atvinna fyrir alla - smelltu til ađ sćkja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english