Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

31.12.2009

Áhrif fjármálakreppunnar á ríkisfjármál smámunir í samanburđi viđ fjölgun aldrađra

Kostnaður vegna fjármálakreppunnar eru smámunir í samanburði við þann kostnað sem lendir á ríkissjóðum þróaðra ríkja vegna fjölgunar aldraðra á komandi áratugum. Þetta er niðurstaða skýrslu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (AGS) sem birtist fyrr á þessu ári. Fjallað er um niðurstöðurnar í grein á vef SA og þær settar í samhengi við stöðu Íslands. Áhrif fjármálakreppunnar hafa verið meiri á Íslandi en í flestum öðrum löndum vegna hruns fjármálakerfisins en vandi Íslands  vegna breyttrar aldurssamsetningar kann einnig að vera meiri en annarra ríkja. Aldurssamsetning þjóðarinnar til ársins 2050 mun breytast meira en í flestum öðrum vestrænum ríkjum en ef lífeyriskerfið fær að byggjast upp óáreitt mun það sjá lífeyrisþegum fyrir meginhluta þess lífeyris sem þeir fá.

28.12.2009

Samkeppniseftirlitiđ fjallar um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtćkja

Samkeppniseftirlitið hefur birt umræðuskjal um banka og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja og óskað umsagnar SA um málið. Aðildarfyrirtækjum SA gefst jafnframt kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Í umræðuskjalinu er fjallað um skuldavanda íslenskra fyrirtækja og samkeppnisleg álitaefni tengd honum. Frestur til að skila athugasemdum er til 8. janúar 2010.

21.12.2009

Sjálfheldan rofin međ Kaupmannahafnarsamkomulaginu

„Á fimmtudag í síðustu viku hófst lokatilraun til að ná samkomulagi um niðurstöðu í tveggja ára samningsferli um langtímasamkomulag í loftslagsmálum en umboð til samninga var veitt á Balí 2007. Á sama tíma hófst lokatilraun til að ná samkomulagi um framhald Kyoto-bókunarinnar eftir 2012 en þær viðræður hafa staðið í 4 ár. Skemmst er frá því að segja að það voru engar líkur til þess að samkomulag næðist. Embættismenn 194 ríkisstjórna hafa verið vakandi og sofandi yfir málinu allan þennan tíma og hafa haldið endalausa fundi og ráðstefnur. Þrátt fyrir það standa eftir sömu ágreiningsmálin ár eftir ár, fund eftir fund." Þetta segir Pétur Reimarsson í nýjum pistli um niðurstöður loftslagsráðsefnu S.Þ. í Kaupmannahöfn.

18.12.2009

Loftslagsráđstefnu lýkur í dag: Heit ósk um hreina orku

„Í dag lýkur loftslagsráðstefnu S.Þ. hér í Kaupmannahöfn. Þjóðarleiðtogar hafa unnið að almennu samkomulagi í nótt en búast má við að tekist verði á um málin fram eftir degi eða jafnvel fram á nótt. Takist að ná samkomulagi verður það tengt við þau samningsdrög sem unnið hefur verið að síðastliðin tvö ár. Óvíst er hvort tekst að gera samkomulagið þannig úr garði að það geti farið til staðfestingar aðildarríkja loftslagssamnings S.Þ. eða hvort vinna þurfi að frekari útfærslu sem getur lokið á næsta ári eða því þar næsta." Þetta segir Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá SA, í nýjum pistli frá loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn.

17.12.2009

Óásćttanleg vinnubrögđ ríkisstjórnarinnar

Samtök atvinnulífsins eru aðilar að stöðugleikasáttmála við ríkisstjórnina sem undirritaður var 25. júní og ennfremur gaf ríkisstjórnin út sérstaka yfirlýsingu 28. október í tengslum við framlengingu kjarasamninga. Bæði í stöðugleikasáttmálanum og yfirlýsingunni er tekið fram að deilumál vegna stjórnar fiskveiða eigi að reyna að leysa í svokallaðri sáttanefnd sem nú er að störfum. Frumvarp um breytingu á stjórn fiskveiða sem nú hefur verið lagt fram gengur þvert á fyrirheit ríkisstjórnarinnar og slík vinnubrögð eru á engan hátt ásættanleg gagnvart Samtökum atvinnulífsins.

16.12.2009

SA mótmćla rökum fyrir nýju ţrepi í VSK

Margir standa í þeirri trú að lækkun virðisaukaskatts á matvæli feli í sér lífskjarajöfnun þrátt fyrir að opinber gögn sýni fram á allt annað. Með lækkun svokallaðs „matarskatts" árið 2007 var ráðist í eina dýrustu og óskilvirkustu aðferð sem hægt er að hugsa sér til lífskjarajöfnunar. Lægra þrep virðisaukaskatts var þá lækkað úr 14% í 7% en það jákvæða við þá breytingu sem þá var gerð var að öll matvæli og drykkjarvörur voru skattlagðar í sama þrepi.

16.12.2009

Jákvćđar fréttir leynast í atvinnulífinu

Þrátt fyrir mikinn mótbyr sem íslenskt atvinnulíf mætir um þessar mundir leynast jákvæðar fréttir í atvinnulífinu. Þær mættu sannarlega vera fleiri en vert er að vekja athygli á því sem vel er gert. Undanfarið hafa SA óskað eftir jákvæðum fréttum frá fyrirtækjum landsins og fjöldi frétta borist í jákvætt pósthólf SA. Fréttirnar má nú lesa á vef SA en þar kemur m.a. fram að yfirstandandi ár hefur verið eitt hið besta í sögu Promens Dalvík og þar verður að vinna um helgar til að anna eftirspurn. Um 45 manns starfa hjá fyrirtækinu og er gert ráð fyrir óbreyttum umsvifum á næsta ári.

15.12.2009

ESB samţykkir ósk Íslands um loftslagssamvinnu

Íslensk stjórnvöld fóru formlega fram á það við Evrópusambandið í byrjun júní að vera með sameiginlegan loftslagskvóta með ESB gagnvart loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna. Jafnframt tilkynnti Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra að íslensk stjórnvöld væru reiðubúin að taka að fullu upp loftslags- og orkulöggjöf sambandsins. Ráðherraráð ESB samþykkti þessa málaleitan í dag og ákvað að hefja samningaviðræður um nákvæma útfærslu samkomulagsins. Ísland mun því fylgja ákvörðunum ESB um samdrátt í útstreymi gróðurhúsalofttegunda, leggja fé til þróunarríkja eins og aðildarríki ESB og taka upp markmið um að auka nýtingu endurnýjanlegrar orku.

15.12.2009

Loftslagstíđindi frá Kaupmannahöfn: Öll ágreiningsmál óleyst

Loftslagsráðstefna S.Þ. í Kaupmannahöfn er nú komin á 9. dag frá því hún hófst á mánudag í síðustu viku. Skemmst er frá því að segja að enn eru öll ágreiningsmál óleyst og óvíst hverjar verða niðurstöður samningaviðræðna. Ýmsar uppákomur hafa orðið segir Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá SA, í pistli frá Kaupmannahöfn. Dagur atvinnulífsins var á föstudaginn þar sem fjallað var um hvað atvinnulífið getur gert til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í dag munu Al Gore og Arnold Schwarzenegger stíga á stokk og ræða loftslagsmálin en fjöldi þjóðarleiðtoga og ráðherra bíða eftir að taka til máls á ráðstefnunni, þar á meðal umhverfisráðherra Íslands.

14.12.2009

Hugarfarsbreyting nauđsynleg viđ gerđ fjárlaga

Fjárlög ríkisins eru nú til umfjöllunar á Alþingi en ljóst er að of mikill tími fjárlaganefndar fer í smámál og ekki er lögð nægilega rík áhersla á heildarmyndina og langtímastefnumörkun. Þetta kom skýrt fram á ráðstefnu um opinber fjármál sem fór nýrverið fram en að henni stóðu SA, Félag forstöðumanna ríkisstofnana og fjármálaráðuneytið. Kallað var eftir auknum aga við gerð og framkvæmd fjárlaga. Tveir fyrrverandi formenn fjárlaganefndar sögðu raunar þörf á hugarfarsbreytingu en bent var á að allt að þriðjungur stofnana keyri fram úr fjárheimildum.

10.12.2009

SA vísađ frá stöđugleikasáttmálanum?

„Samtök atvinnulífsins hafa leitast við að halda góðum samskiptum við ríkisstjórnina og talið að hún væri að vinna í góðri trú að sameiginlegum hagsmunamálum.  En frumvarp sjávarútvegsráðherra, þvert á yfirlýsingar um sáttavilja, og tillögur um afdrifaríkar breytingar í skattaumhverfi atvinnulífsins sem ekki eru kynntar eða ræddar á meðan viðræður um skattamál atvinnulífsins standa yfir vikum saman vekja óneitanlega upp mikla tortryggni um heilindi ríkisstjórnarinnar í því samstarfi sem markað var með stöðugleikasáttmálanum." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs SA.

10.12.2009

Alvarlegar athugasemdir atvinnulífsins viđ bođađar skattabreytingar

Samtök atvinnulífsins ásamt Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Samtökum atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fiskvinnslustöðva, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samtökum iðnaðarins og Samtökum verslunar og þjónustu, hafa sent Alþingi ítarlega umsögn um fyrirhugaðar skattabreytingar ríkisstjórnarinnar þar sem gerðar eru fjölmargar alvarlegar athugasemdir og þau vinnubrögð sem viðhöfð eru gagnrýnd harðlega. Hagsmunaaðilar fengu aðeins örfáa daga til að kynna sér efni frumvarpsins sem hefur að geyma mjög róttækar breytingar á íslenska skattkerfinu.

10.12.2009

Misráđiđ ađ fjölga skattţrepum í virđisaukaskatti

Ríkisstjórnin áformar að almenna virðisaukaskattþrepið hækki úr 24,5% í 25% frá 1. janúar 2010 og nýtt 14% þrep verði tekið upp frá 1. mars 2010, en undir það falli sykurvörur og óáfengar drykkjarvörur ásamt sölu veitingahúsa og kaffihúsa. Samtök atvinnulífsins telja misráðið að fjölga skattþrepum í virðisaukaskatti. Aukið flækjustig í skattkerfinu auki kostnað fyrirtækja við innheimtu skattsins, bjóði heim hættu á undanskotum og auki kostnað skattyfirvalda við eftirlit. Samtökin telja eðlilegra að hækka neðra þrepið í staðinn til þess að ná þeim tekjumarkmiðum sem að er stefnt.

10.12.2009

Kyoto-viđrćđur sigla á sker

Um hádegisbil í dag var viðræðum slegið á frest um framhald Kyoto-bókunarinnar á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn. Ástæðan er sú að fjölmörg ríki hafa lagt fram tillögur um breytingar á bókuninni þar sem m.a. eru gerðar mun ríkari kröfur um samdrátt útstreymis í iðnríkjunum en þau hafa verið tilbúin að fallast á. Þetta kemur fram í pistli Péturs Reimarssonar, frá loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn.

10.12.2009

Kolefnisgjald verđi ekki varanlegt

Frumvarp um nýja umhverfis- og auðlindaskatta gerir ráð fyrir að skattur á rafmagn og heitt vatn verði tímabundinn til þriggja ára en kolefnisgjald á fljótandi jarðefnaeldsneyti verði varanlegt. Miðað við þær upplýsingar sem Samtök atvinnulífsins hafa fengið frá stjórnvöldum verður að ætla að hið síðarnefnda feli í sér mistök. Með hliðsjón af skaðsemi þessarar nýju skattlagningar fyrir samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja sem og af því að skattformið sem slíkt getur ekki talist viðunandi til langframa, geta Samtök atvinnulífsins með engu móti fallist á að kolefnisskattur samkvæmt frumvarpinu verði lögfestur ótímabundið og telja að alls ekki verði lengra gengið en svo að frumvarpið í heild gildi aðeins til eins árs.

9.12.2009

Rćtt um flug og siglingar á loftslagsráđstefnunni

Loftslagsráðstefnan í Kaupmannahöfn er nú kominn á fulla ferð. Á mánudag og þriðjudag tóku til starfa allir undirhópar loftslagssamnings S.Þ. og einnig Kyoto-bókunarinnar. Í upphafsræðum héldu fulltrúar flestra ríkja sig við fyrri afstöðu og ágreiningsmál eru vissulega til staðar. Hins vegar hefur á síðustu mánuðum orðið ákveðin þróun í yfirlýsingum ráðamanna sem gefur til kynna að mögulega megi ná heildarsamkomulagi. Þetta segir Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá SA í pistli frá loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn. Útstreymi frá siglingum og flugi er þar m.a. til umfjöllunar. Nýlega ákvað ríkisstjórn Íslands að sækja ekki um undanþágu vegna innanlandsflugs á Íslandi sem kostar greinina tugmilljónir króna en umhverfislegur ávinningur er óljós ef nokkur.

9.12.2009

Mikilvćg starfsendurhćfing á vinnumarkađi

Á síðustu 10 árum hefur einstaklingum sem ekki  taka þátt á vinnumarkaði vegna skertrar starfsgetu fjölgað mikið. Fjöldi örorkulífeyrisþega er um 15.000 og hefur fjölgað um ríflega 6.000 manns á síðustu 10 árum. Kostnaður samfélagsins vegna þessa nemur tugum milljarða króna á ári auk þess sem lífsgæði hjá viðkomandi einstaklingum og fjölskyldum þeirra eru skert. Kostnaður á vinnumarkaði vegna veikinda og slysa nemur að auki milljörðum króna á ári en draga má verulega úr þessum kostnaði með stjórnun og fyrirbyggjandi aðgerðum.

7.12.2009

Nćđir um loftslagsvísindin

Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn hófst í morgun en þar munu ríki heims freista þess m.a. að komast að niðurstöðu um aðgerðir til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda og að hjálpa fátækum ríkjum til að aðlagast loftslagsbreytingum. „Á síðustu vikum hefur farið fram mikil umræða á opinberum vettvangi um niðurstöður rannsókna í loftslagsmálum og ekki er þar allt vísindamönnum til framdráttar." Þetta segir Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá SA, í loftslagspistli frá ráðstefnunni í Kaupmannahöfn.

4.12.2009

Loftslagshagsmunir Íslands verđi tryggđir

Útstreymi gróðurhúsalofttegunda í heiminum stafar fyrst og fremst af tvennu. Annars vegar af brennslu jarðefnaeldsneytis til orkuframleiðslu (kola, olíu og jarðgass) og hins vegar vegna eyðingar skóga. Lykilatriði er að í nýjum loftslagssamningi verði fyrst og fremst hvatt til aðgerða sem tengjast þessum sviðum. Ríki heims munu á næstu árum og áratugum keppast við að þróa nýjar aðferðir við orkuframleiðslu og leggja feiknamikla áherslu á nýtingu endurnýjanlegra orkulinda ásamt því að stórefla rannsóknir og þróun á þessu sviði. Þetta segir Pétur Reimarsson í pistli dagsins um loftslagsmál en loftslagsráðstefna SÞ hefst á mánudaginn í Kaupmannahöfn.

3.12.2009

Opinber embćttismađur međ dylgjur um tiltekiđ fyrirtćki

Í fréttatíma Stöðvar 2 í gærkvöldi var viðtal við Aðalstein Hákonarson, forstöðumann eftirlitssviðs Ríkisskattstjóra, þar sem hann gerði málefni eins fyrirtækis að umtalsefni og fjallaði um það með niðrandi hætti. Ef þessi málsmeðferð er ný stefna af hálfu embættisins markar það þáttaskil í opinberri umræðu hér á landi.

3.12.2009

Atvinnulífiđ er hluti af lausninni

Víða um heim hafa fjölmörg samtök viðskiptalífsins og einstök fyrirtæki, bæði stór og smá, hvatt til þess að sátt náist sem fyrst um nýtt loftslagssamkomulag. Það er nauðsynlegt til að fyrirtæki geti gert áætlanir til lengri tíma um fjárfestingar og stundað rannsóknir til að þróa nýja tækni til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda og bæta orkunýtingu. Útilokað er að minnka útstreymi gróðurhúsalofttegunda og draga úr áhrifum loftslagsbreytinga og án þess að atvinnulífið verði virkur þátttakandi í því verkefni. Þetta segir Pétur Reimarsson í pistli dagsins um loftslagsmál.

3.12.2009

Barnvćnt samfélag - vel heppnađ málţing

Nýverið fór fram fjölsótt málþing um barnvænt samfélag. Þar kom m.a. fram að ótal leiðir eru til að auka sveigjanleika í vinnu svo starfsmenn geti betur sinnt þörfum barna. Þar getur komið til breytt starfshlutfall til lengri eða skemmri tíma, möguleiki á að færa vinnu heim að hluta eða öllu leyti, tilfærsla á orlofi eða launalaust orlof og tilfærsla á vinnutíma. Þetta byggir þó á gagnkvæmu trausti milli starfsmanna og vinnuveitenda og aðstæður leyfi slíkar breytingar.

2.12.2009

Balí-áćtlunin er grunnur nýs loftslagssamkomulags

Aðildarríki loftslagssamnings SÞ samþykktu í desember 2007 svokallaða Balí-áætlun um aðgerðir í loftslagsmálum. Í henni fólst að sett var af stað umfangsmikið ferli til að ná heildarsamkomulagi um leiðir til að ná markmiðum loftslagsamningsins. Þetta ferli hefur nú staðið í tvö ár og fyrir liggja tillögur sem rætt verður um á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn sem hefst á mánudaginn. Þetta kemur fram í nýjum pistli Péturs Reimarssonar um loftslagsmál. Hann segir Balí-áætlunina vera grunn nýs loftslagssamkomulags.

2.12.2009

Ótćkt ađ opinber fyrirtćki safni dráttarvöxtum

Það gengur ekki upp að fyrirtæki hins opinbera greiði birgjum ekki fyrir vörur á réttum tíma og safni þess í stað skuldum á háum dráttarvöxtum. Þetta kom skýrt fram á ráðstefnu um opinber fjármál sem SA, fjármálaráðuneytið og Félag forstöðumanna ríkisstofnana héldu nýverið. Björn Zoëga, starfandi forstjóri LSH, sagði að úr þessum vanda þyrfti að bæta en dæmi væru um fyrirtæki sem stæðu frammi fyrir lokun af hálfu opinberra aðila vegna vanskila á virðisaukaskatti á sama tíma og LSH skuldi þeim fé. Samkvæmt viðtali við Björn í Fréttablaðinu í dag stefnir í að dráttarvextir næsta árs af skuldum LSH við birgja verði nálægt 400 milljónum króna.

1.12.2009

Hvađ verđur um Kyoto-bókunina?

Viðræður um framhald Kyoto-bókunarinnar hafa verið í sjálfheldu allt þetta ár og engin augljós leið virðist fær til að breyta því. Árið 2005 hófust á vegum loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna umræður um framhald Kyoto-bókunarinnar en skuldbindingartímabil hennar nær til tímabilsins 2008-12. Þótt ýmsu hafi þokað í samkomulagsátt eru nær öll ágreiningsmál í tengslum við bókunina enn óleyst. Þetta kemur fram í nýjum pistli Péturs Reimarssonar um loftslagsmál í aðdraganda Loftslagsráðstefnu SÞ í Kaupmannahöfn.

30.11.2009

Tíđindi af loftslagsráđstefnunni í Kaupmannahöfn

Næstkomandi mánudag hefst í Kaupmannahöfn loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna. Samtök atvinnulífsins munu eiga fulltrúa á ráðstefnunni, Pétur Reimarsson forstöðumann hjá SA, sem hefur fylgst náið með samningaviðræðum á sviði loftslagsmála undanfarin ár. Á vef SA verður greint frá því helsta sem gerist í Kaupmannahöfn auk þess sem gerð verður grein fyrir niðurstöðum ráðstefnunnar. Í þessari viku birtir Pétur daglega pistla um hvað loftslagsmálin snúast og af hverju þjóðir eigi erfitt með að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Einnig fjallar hann um þá íslensku hagsmuni sem eru í húfi og greinir frá viðhorfi atvinnulífsins til samningaviðræðnanna.

27.11.2009

Launabreytingar 1. nóvember 2009 og 1. júní 2010

Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði halda gildi sínu til nóvemberloka 2010. Það þýðir að umsamdar launabreytingar koma til framkvæmda frá 1. nóvember 2009 og 1. júní 2010. Í nóvember er annars vegar um að ræða 3,5% launaþróunartryggingu og hins vegar sérstaka hækkun lágmarkstaxta kjarasamninga. Þann 1. júní 2010 hækka laun um 2,5% en þá kemur einnig til sérstök hækkun lágmarkstaxta.

27.11.2009

Ráđumst ekki á lífeyrissjóđina

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, flutti í gærkvöld erindi um skattlagningu lífeyrisiðgjalda hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum. Þar sagði hann m.a. að uppbygging lífeyrissjóðana væri eitt af því besta sem gerst hafi í þróun íslensks samfélags og íslenska lífeyrissjóðakerfið sé öfundarefni annarra þjóða. „Ráðumst ekki á það sem vel gengur og léttir okkur enn frekar róðurinn í framtíðinni," sagði Vilhjálmur meðal annars. Hann segir skynsamlegt að nýta lífeyrissjóðina sem bakhjarl fyrir sparnað og fjárfestingar til þess að leiða nýtt uppbyggingartímabil.

26.11.2009

Snilldarlausnir framhaldsskólanema komnar í ljós

Úrslit í hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna, Snilldarlausnum Marel, liggja nú fyrir. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, afhenti í dag hugmyndaríkum framhaldsskólanemum viðurkenningar fyrir að búa til hagnýta hluti úr einföldu herðatré. Bestu hugmyndina átti Valdís Steinarsdóttir sem bjó til nýstárlegan gítarstand. Einnig fengu Elís Rafn Björnsson og Ari Páll Ísberg  viðurkenningu fyrir hjálpartæki sem nýtist við endurvinnslu og Kristinn Pálsson fékk viðurkenningu fyrir fatahengi. Samtök atvinnulífsins voru meðal bakhjarla keppninnar.

26.11.2009

Lífeyrissjóđir mikilvćgir í uppbyggingu atvinnulífsins

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, hélt í dag erindi um lífeyrissjóðina og uppbyggingu atvinnulífsins hjá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands. Þar sagði Vilhjálmur m.a. að endurreisn hlutabréfamarkaðarins væri ein af lykilforsendunum fyrir endurreisn atvinnulífsins til framtíðar og að lífeyrissjóðirnir gegni þar mikilvægu hlutverki - það sé bæði hagur samfélagsins og lífeyrissjóðanna. Hins vegar þurfi að læra af reynslunni og byggja markaðinn upp af meiri fagmennsku og aga.

25.11.2009

Flóknara Ísland

Haustið 2006 samþykkti þáverandi ríkisstjórn aðgerðaáætlun um Einfaldara Ísland og í kjölfarið var skipaður samráðshópur ráðuneyta, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins sem var forsætisráðherra til aðstoðar við að framfylgja henni. Aðgerðaáætluninni var markaður tímarammi frá 2006-2009 og var starfshópnum ætlað að starfa á því tímabili. Lítið hefur frést af framgangi einföldunaráætlana ráðuneytanna og samráðshópurinn hefur ekki komið saman síðan í september 2008. Á þetta bendir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í grein á vef SA. Hann segir verkefnið um Einfaldara Ísland hafa siglt í strand og í raun hafi verið tekin upp þveröfug stefna sem nefna megi Flóknara Ísland.

23.11.2009

Er ađ marka fjárlög?

Þriðjudaginn 17. nóvember héldu Samtök atvinnulífsins ásamt Félagi forstöðumanna ríkisstofanna í samvinnu við fjármálaráðuneytið ráðstefnu um framkvæmd fjárlaga undir yfirskriftinni „Er að marka fjárlög?". Ráðstefnan var vel sótt og heppnaðist vel í alla staði. Ástæða þess að þetta efni var tekið fyrir er sú að á undanförnum árum hefur verið pottur brotinn í framkvæmd fjárlaga og fjárlög og útgjöld einstakra stofnana farið langt fram úr því sem Alþingi ákvað við afgreiðslu sína.

23.11.2009

Ráđstefna um menntun á vinnumarkađi

Í stað hefðbundins ársfundar 2009 mun Fræðslumiðstöð atvinnulífsins í samstarfi við Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB halda ráðstefnu undir heitinu „Úrræði til árangurs" dagana 26. og 27. nóvember á Hótel Nordica. Á ráðstefnunni verða rædd möguleg úrræði til að bregðast nú þegar við því ástandi sem ríkir á íslenskum vinnumarkaði ásamt því sem fjallað verður um menntun á vinnumarkaði til frambúðar.

20.11.2009

Skattamál atvinnulífsins

Ríkisstjórnin hefur nú kynnt útfærð áform sín um skattahækkanir vegna fjárlagagerðar fyrir árið 2010. Töluverðar breytingar hafa orðið á þessum áformum frá því sem kynnt var í fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram í októberbyrjun. Á undanförnum vikum hafa viðræður verið í gangi milli Samtaka atvinnulífsins og stjórnvalda um það sem snýr að atvinnulífinu í þessum skattahækkunum. Ekki tókst að ljúka þessum viðræðum þegar kom að framlengingu kjarasamninga í lok október og framgangur stöðugleikasáttmálans frá því 25. júní var metinn. Ákveðið var að láta reyna áfram á hvort hægt væri að ná ásættanlegri niðurstöðu. Nú þegar hún liggur fyrir er ljóst að komið hefur verið til móts við óskir Samtaka atvinnulífsins en þó eru mikilvæg mál sem enn er ekki samstaða um.

19.11.2009

Sjávarútvegi verđi tryggđ eđlileg starfsskilyrđi

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir fyrirhugaðar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar ekki koma sérstaklega á óvart. „Umfangið er í takt við það sem við höfum verið að búast við," segir hann í samtali við mbl.is. Hann segir að SA hefði kosið að bæði virðisaukaskattsþrepin hefðu verið hækkuð í stað þess að búa til nýtt þrep. „Þetta milliþrep er okkur ekki að skapi og við höfum mótmælt því, en það var ekki hlustað á það," segir Vilhjálmur. Hann leggur á það mikla áherslu að það verði að tryggja sjávarútveginum eðlileg starfsskilyrði. Ekki þýði að hækka skatta á sjávarútveginn og á sama tíma og vegið sé að starfsskilyrðunum. Nú sé verið að leggja 3,5 milljarða kr. í hærri álögur á sjávarútveginn.

18.11.2009

Gögn frá ráđstefnu um opinber fjármál á vef SA

Samtök atvinnulífsins og Félag forstöðumanna ríkisstofnana í samvinnu við fjármálaráðuneytið efndu til ráðstefnu þann 17. nóvember um opinber fjármál undir yfirskriftinni Er að marka fjárlög? Yfir eitt hundrað þátttakendur tóku þátt í ráðstefnunni og ræddu út frá ólíkum sjónarhornum hvernig bæta megi rekstur ríkisins en á því er full þörf eins og kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra á ráðstefnunni. Glærukynningar frummælenda eru nú aðgengilegar á vef SA en ítarlega verður fjallað um efni ráðstefnunnar á sa.is á næstu dögum.

18.11.2009

Hvar liggja tćkifćrin í íslensku atvinnulífi?

Háskólinn á Bifröst efnir til hádegisverðarfundar í Iðnó fimmtudaginn 19. nóvember frá kl. 12 til 13:30 þar sem leitast verður við að greina þau tækifæri sem kunna að felast í íslensku atvinnulífi um þessar mundir. „Þrátt fyrir margvíslega erfiðleika í íslensku efnahagslífi hafa mörg fyrirtæki náð eftirtektarverðum árangri að undanförnu. Alþjóðleg frumkvöðlaverðlaun Cartier féllu í ár í skaut íslensku fyrirtæki, Auði Capital, og CCP leitar eftir á annað hundrað manns til starfa hjá fyrirtækinu. Hvað veldur því að sum fyrirtæki blómstra í kreppunni þrátt fyrir vonlausar ytri aðstæður? Er kreppan tækifæri fyrir menntunar- og menningargeirann eða frumkvöðlastarf?," segir í tilkynningu frá Háskólanum á Bifröst.

17.11.2009

„Ekki tími mikilla hugmyndafrćđilegra sigra"

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, flutti fyrr í dag ávarp á ráðstefnu um framkvæmd fjárlaga sem stendur yfir á Hótel Nordica. Steingrímur sagði að nú væri ekki tími mikilla hugmyndafræðilegra sigra á meðan þjóðin vinnur sig út úr því mikla verkefni sem við blasir í ríkisfjármálunum.

16.11.2009

Rćtt um fjárlögin ţriđjudaginn 17. nóvember

Samtök atvinnulífsins og Félag forstöðumanna ríkisstofnana í samvinnu við fjármálaráðuneytið efna til opinnar ráðstefnu á morgun, þriðjudaginn 17. nóvember, um opinber fjármál. Um eitt hundrað forstöðumenn ríkisstofnana, atvinnurekendur og fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar, alþingismenn, sveitarstjórnarmenn og sérfræðingar auk áhugafólks um bættan rekstur ríkisins hafa þegar skráð þátttöku. Ráðstefnan fer fram á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 13:30-17:00 undir yfirskriftinni Er að marka fjárlög? Dagskrá má nálgast á vef SA þar sem skráning fer jafnframt fram - ekkert þátttökugjald.

16.11.2009

SI: Ósanngjörn skattheimta

„Í sumar ákvað ríkisstjórnin að endurvekja gamla vörugjaldskerfið, reyndar með tvöföldum þunga, og leggja gjöld á ýmsar matvörur. Það var gert undir formerkjum lýðheilsu og þess að verið væri að skattleggja óhollustu. Þrátt fyrir hörð mótmæli, ekki síst úr ranni Samtaka iðnaðarins, var ákveðið að fara þessa leið." Svo segir í yfirlýsingu Samtaka iðnaðarins sem þau sendu frá sér í dag.

12.11.2009

Orđ skulu standa

Í leiðara fréttabréfs Samtaka atvinnulífsins rekur Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, hvernig samtökin hafi bent á leiðir til að ná niður halla ríkissjóðs. Hann leggur áherslu á að samkeppnisstöðu fyrirtækja og atvinnugreina verði ekki raskað, að ríkisstjórnin standi við það sem um var samið í stöðugleikasáttmálanum í júní og við framlengingu kjarasamninga fyrir tveimur vikum. Leiðaranum lýkur Vilhjálmur með þessum orðum: „Samtök atvinnulífsins munu aldrei una skattahækkunum sem eru til þess fallnar að dýpka og lengja kreppuna og geta heldur ekki unað því að gengið sé þvert á það sem búið er að semja um. Verði það niðurstaða ríkisstjórnarinnar skilja leiðir."

12.11.2009

Grímur Sćmundsen varaformađur SA

Á fundi stjórnar Samtaka atvinnulífsins nýverið var Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf., kjörinn varaformaður SA. Grímur situr í stjórn SA fyrir hönd Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) ásamt því að eiga sæti í framkvæmdastjórn SA. Grímur hefur nokkur undanfarin ár sinnt trúnaðarstörfum fyrir SAF og SA. Vilmundur Jósefsson var áður varaformaður SA en hann gegnir nú formennsku í samtökunum.

12.11.2009

Fjöldi jákvćđra frétta borist til SA

Samtök atvinnulífsins opnuðu á dögunum pósthólf fyrir jákvæðar fréttir á vef SA og skemmst er frá því að segja að fjöldi jákvæðra frétta hefur borist úr íslensku atvinnulífi á stuttum tíma.  Samtök atvinnulífsins hvetja fyrirtæki og frumkvöðla til að halda áfram að stinga að SA góðum fréttum - ekki veitir af við þær erfiðu aðstæður sem nú eru í íslensku atvinnulífi. Á vef SA má nú sjá brot af því sem hefur borist í pósthólfið en við munum halda áfram að birta það sem berst í pósthólfið á næstu dögum og vikum.

12.11.2009

Heimsins verđmćtasta herđatré?

Hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna stendur nú yfir undir yfirskriftinni Snilldarlausnir Marel. Samtök atvinnulífsins eru meðal stuðningsaðila keppninnar en hún gengur út á að þátttakendur eiga að skapa sem mest virði úr einföldum hlut. Árið 2009 reyna þátttakendur að hámarka virði herðatrés en virðið getur verið félagslegt, fjárhagslegt, tilfinningalegt, skemmtilegt, umhverfisvænt eða í raun hvað sem er. Fyrirmynd keppninnar er fengin frá Stanford háskólanum í Bandaríkjunum.

10.11.2009

Óraunhćfar hugmyndir um stóraukna skatta

Í fréttum RÚV í gærkvöld var greint frá hugmyndum í stjórnkerfinu um stórfelldar skattahækkanir á einstaklinga og fyrirtæki. Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, líst illa á margar þessara hugmynda og segir þær óraunhæfar. Í samtali við Morgunblaðið segir Vilhjálmur að tölurnar sem vitnað er til virðist hafa verið teknar úr vinnuplöggum en ekkert liggi í raun fyrir - það sé allt á floti.

9.11.2009

Framkvćmdastjóri SA á Sprengisandi

Rætt var við Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA, um stöðu atvinnumála í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni á sunnudagsmorgun. Þar fjallaði Vilhjálmur m.a. um gagnrýni SA á atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar en einnig var rætt við Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra. Vilhjálmur skýrði m.a. út afstöðu SA til skattamála og færði rök fyrir því hvers vegna sé skynsamlegt að hækka atvinnutryggingargjald nú í stað þess að gera það síðar.

6.11.2009

Er ađ marka fjárlög?

Samtök atvinnulífsins og Félag forstöðumanna ríkisstofnana í samvinnu við fjármálaráðuneytið efna til opinnar ráðstefnu þriðjudaginn 17. nóvember um opinber fjármál. Fjallað verður á ítarlegan hátt um framkvæmd fjárlaga og hvernig markmiðum þeirra verður náð árið 2010. Ráðstefnan fer fram á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 13:30-17:00.

5.11.2009

Lítil lćkkun stýrivaxta betri en engin

„Þetta er í áttina en betur má ef duga skal," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins um lækun stýrivaxta Seðlabankans í 11%. Vilhjálmur segir að ef áætlanir ríkisstjórnarinnar um fjárfestingar og endurreisn atvinnulífsins eigi að ganga eftir þurfi að lækka vextina meira.

5.11.2009

Skođanabann, tjáningarbann og hlustunarbann?

„Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa að undanförnu fengið á sig mikla áróðursherferð. Gert er mikið úr því að þessir aðilar vinnumarkaðarins séu ekki kjörnir á Alþingi og eigi því ekki að skipta sér af störfum ríkisstjórnarinnar og Alþingis. Þessi áróðursherferð tengist sérstaklega andstöðu Samtaka atvinnulífsins við áætlanir um nýja séríslenska skatta, orku-, umhverfis- og auðlindagjöld, sem hafa sett fjárfestingaráform í orkufrekri atvinnustarfsemi í uppnám."

4.11.2009

Fjárfestingar eru leiđin út úr kreppunni

Í umfjöllun andstæðinga álvera þessa dagana eru ýkjur áberandi og upplýsingar villandi. Annars vegar er lítið gert úr mikilvægi stóriðju og hins vegar mikið úr hagnaði hennar. Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri SA, bendir á í grein á vef SA að í landinu eru nú framleidd um 800 þúsund tonn af áli árlega og bein og óbein umsvif áliðnaðarins vegi u.þ.b. 5% af vergri landsframleiðslu (VLF) og að gjaldeyrisjöfnuður landsmanna sé rúmlega 10% hagstæðari en ef hann starfaði ekki í landinu. Það samsvari a.m.k. 80 milljörðum af hreinum gjaldeyristekjum á ári.

3.11.2009

Fundir Samtaka atvinnulífsins um kjarasamninga og breytingar á ráđningarsamningum

Stjórn SA hefur ákveðið að ekki komi til uppsagnar kjarasamninga. Það þýðir að launabreytingar koma  til framkvæmda frá  1. nóvember 2009 og 1. júní 2010. Á næstunni efna SA til upplýsingafunda fyrir félagsmenn þar sem verður farið yfir umsamdar breytingar á kjarasamningum og hvaða svigrúm atvinnurekendur hafa til að gera breytingar á launum og vinnufyrirkomulagi.

2.11.2009

Ađalfundur LÍÚ: Horfiđ verđi frá hugmyndum um upptöku aflaheimilda

Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 29. og 30. október 2009  mótmælir harðlega framkomnum hugmyndum um upptöku aflaheimilda og hvetur stjórnvöld til að hverfa nú þegar frá þeim. „Upptaka aflaheimilda er alvarleg ógn við íslenskan sjávarútveg og bein aðför að landsbyggðinni. Þessar hugmyndir hafa þegar valdið atvinnugreininni og tengdum þjónustugreinum fjárhagstjóni. Með upptökunni yrði gerður að engu sá ávinningur og sú hagræðing sem náðst hefur í sjávarútvegi undanfarin ár," segir m.a. í ályktun aðalfundarins.

30.10.2009

Viđrćđur ađ hefjast um atvinnuleysistryggingar

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, flutti í dag erindi á ársfundi Vinnumálastofnunar. Þar sagði hann m.a. að umræðan um nýtt fyrirkomulag atvinnuleysistrygginga væri rétt að hefjast og ýmsar útfærslur mögulegar. Ríkisstjórnin hafi ljáð máls á viðræðum en það væri grundvallarsjónarmið að þeir sem borgi beri meiri ábyrgð ásamt því að þeir sem fái þjónustuna komi að stjórnuninni. Fyrirkomulag trygginganna verði að vera þannig að þær feli í sér bæði hvata til árangurs og hagkvæmni. Þær hugmyndir sem rætt hafi verið um byggi ekki á því að hverfa aftur til eldra fyrirkomulags heldur að horfa til framtíðar.

28.10.2009

Rćtt viđ ríkisstjórnina í nćstu viku

Samtök atvinnulífsins munu ræða við ríkisstjórnina um framgang stöðugleikasáttmálans í byrjun næstu viku. Ágreiningur er á milli aðila í skattamálum en í gær var búið að semja um þau. Síðdegis dró ríkisstjórnin hins vegar til baka það sem um hafði verið samið og lagði til nýjar leiðir. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að engin sátt hafi verið í röðum SA um útspil ríkisstjórnarinnar í skattamálum en þrátt fyrir það hafi SA ákveðið að nýta ekki uppsagnarákvæði kjarasamninga.

28.10.2009

Kjarasamningum ekki sagt upp

Á fundi stjórnar Samtaka atvinnulífsins í kvöld var ákveðið að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði skyldu framlengdir til nóvemberloka 2010. SA geta hins vegar ekki fallist á ákveðin atriði í fyrirliggjandi drögum að yfirlýsingu forsætis- og fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, um framgang stöðugleikasáttmálans. Ágreiningur er í skattamálum og hefur verið óskað eftir áframhaldandi viðræðum við ríkisstjórnina um þau. SA leggja áherslu á að þær viðræður hefjist sem allra fyrst.

26.10.2009

Fjárfesting í atvinnulífinu hrynur

Aðstæður í efnahagslífinu eru nú slæmar eða mjög slæmar að mati 95% stjórnenda í stærstu fyrirtækjum landsins. Er þetta meðal niðurstaðna í ársfjórðungslegrar könnunar Capacent Gallup á stöðu og horfum hjá 500 stærstu fyrirtækja landsins, en könnunin var gerð í septembermánuði. Er mat stjórnenda á aðstæðum í efnahagslífinu að þessu sinni ámóta slæmt og fram hefur komið í hliðstæðum könnunum undanfarið ár. Mikill samdráttur fjárfestingar í atvinnulífinu endurspeglast með skýrum hætti í könnuninni. Útlit er fyrir að fjárfesting muni dragast saman um 20% að nafnvirði á næsta ári eða um 26% að raunvirði, en í þjóðhagsáætlun er hins vegar spáð rösklega 10% magnaukningu á næsta ári.

26.10.2009

Beđiđ eftir ríkisstjórninni

Samtök atvinnulífsins áttu í gær fund með ríkisstjórninni og Alþýðusambandi Íslands um stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaga og ríkisstjórnarinnar frá 25. júní 2009. Með stöðugleikasáttmálanum var leitast við að skapa skilyrði fyrir aukinni fjárfestingu innlendra sem erlendra aðila, auknum hagvexti, nýrri sókn í atvinnumálum og að grunnur yrði lagður að bættum lífskjörum til framtíðar.

21.10.2009

Fjárfestingar í atvinnulífinu lykillinn ađ endurreisninni

Stöðugleikasáttmálinn hangir nú saman á óskhyggjunni einni, sagði Vilmundur Jósefsson, formaður SA, á opnum fundi í morgun. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, sagði hættu á enn dýpri kreppu þar sem samdráttur yrði margfalt meiri en núverandi áætlanir stjórnvalda gerðu ráð fyrir.

20.10.2009

Óljóst hvort kjarasamningar verđi framlengdir

„Eins og þetta horfir við í dag er það algjörlega raunhæfur möguleiki að samningarnir detti í sundur og verði ekki framlengdir," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um líkurnar á því að stöðugleikasáttmáli  ríkisins, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins falli úr gildi á þriðjudaginn í næstu viku. Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, tekur undir að sáttmálinn sé í uppnámi. Röskun á fyrirhuguðum stórframkvæmdum í vetur vegi þar þungt.

19.10.2009

Stjórnvöld liđki fyrir stórfjárfestingum

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, vonast til þess að nýtt Icesave-samkomulag auki stjórnvöldum kjark til að taka ákvarðanir um afnám gjaldeyrishafta og lækkun vaxta. Það hjálpi til í viðræðum um að stöðugleikasáttmálinn haldi. Hann minnir þó á að stjórnvöld eigi enn eftir að standa við atriði sem kveðið er á um í sáttmálanum. Þau þurfi t.a.m. að liðka fyrir stórfjárfestingum eins og álveri í Helguvík, framleiðsluaukningu í Straumsvík og byggingu gagnavera.

15.10.2009

Framhald stöđugleikasáttmálans í höndum ríkisstjórnarinnar

„Næstu dagar eru mjög mikilvægir fyrir þróun íslensks atvinnulífs á næstu misserum og árum. Ef fjárfestingarnar í atvinnulífinu verða ekki að veruleika hefur það í för með sér stóraukinn samdrátt í efnahagslífinu á næsta ári og langt umfram þau 2% sem þjóðhagsforsendur ganga út frá. Þá verður allt sem verið er að leggja á sig til sparnaðar í ríkisútgjöldum, skattahækkana og hófstillingar í launamálum unnið fyrir gíg." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara fréttabréfs SA. Hann segir þessa hryllingsmynd ekki þurfa að verða að veruleika, enn sé hægt að taka ákvarðanir til að koma fjárfestingum af stað. „Boltinn er fyrst og fremst hjá ríkisstjórninni en Samtök atvinnulífsins munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að stuðla að farsælli lendingu."

15.10.2009

Fjórđungur fyrirtćkja hyggst fćkka starfsfólki

Sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum SA hyggjast ekki gera breytingar á starfsmannafjölda á næstu sex mánuðum, 14% áforma fjölgun starfsmanna en 26% hyggjast fækka þeim. Af þeim sem hyggjast fjölga starfsmönnum ætla tveir þriðju að fjölga um innan við fimm starfsmenn. Þó finnst dæmi um áformaða fjölgun um yfir 50 starfsmenn. Í þeim hópi sem hyggst fækka starfsmönnum ætla 70% að fækka um innan við fimm starfsmenn en fimmtungur þeirra hyggjast fækka um meira en 10, sem geta talist hópuppsagnir. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á atvinnuhorfum meðal fyrirtækjanna.

15.10.2009

Umtalsverđ lćkkun stýrivaxta myndi hleypa lífi í fjárfestingar

Rúmlega sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins  (62%) segja að umtalsverð lækkun stýrivaxta myndi hvetja fyrirtækin til fjárfestinga. Það er því til mikils að vinna með því að lækka stýrivexti Seðlabankans duglega þar sem fjárfestingar fyrirtækja eru í algjöru lágmarki. Rúmlega sextíu prósent fyrirtækja (64%) telja að aðgerðir eða áform stjórnvalda hafi ekki haft nein áhrif á fjárfestingaráform fyrirtækjanna en rúmlega þriðjungur (36%) telur áform stjórnvalda beinlínis  hafa haft neikvæð áhrif.

15.10.2009

Fjölgum konum í forystu atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins telja bæði nauðsynlegt og skynsamlegt að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs og hvetja því fyrirtæki til að nýta betur kraft kvenna. Nýleg íslensk rannsókn sýnir að fyrirtæki eru síður líkleg til að lenda í vanskilum ef þau eru rekin af konum og arðsemi eigin fjár er meiri í fyrirtækjum þar sem konur eru framkvæmdastjórar. Fyrirtæki sem stofnuð eru af báðum kynjum eru ennfremur líklegust til að lifa og blandaðar stjórnir karla og kvenna hafa reynst best. Á vef SA má nú finna lista yfir fjölmargar öflugar rekstrarkonur sem eru til í að láta frekar til sín taka í íslensku viðskiptalífi.

14.10.2009

Nýsköpun grunnur farsćldar

Evrópusamtök atvinnulífsins, BUSINESSEUROPE, hafa kynnt nýja stefnumörkun á sviði nýsköpunar. Samtökin leggja áherslu á aukið samstarf milli landa og að stoðir rannsókna og þróunarstarfs verði styrktar. Auka þarf aðgengi frumkvöðla að áhættufjármagni og tryggja fyrirtækjum vel menntað starfsfólk sem getur tekist á við þær krefjandi áskoranir sem eru framundan. BUSINESSEUROPE segja nýsköpun, sem leiði af sér efnahagslegan virðisauka, algjöra forsendu fyrir frekari hagvexti í Evrópu og jafnframt lykillinn að lausn aðsteðjandi úrlausnarefna á sviði loftslags- og orkumála.

13.10.2009

Ákvörđun umhverfisráđherra verđi afturkölluđ

Hart hefur verið deilt á umhverfisráðherra fyrir ákvörðun um að fella úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um Suðvesturlínur. Efast hefur verið um lögmæti og réttmæti ákvörðunar ráðherrans en á vef Samtaka iðnaðarins er fjallað um málið. Þar segir m.a. að svo miklir annmarkar séu á úrskurðinum að allar líkur bendi til þess að hann sé ólögmætur. „Það væri því rétt af ráðherra að afturkalla ákvörðun sína án frekari málalenginga," segir á vef SI.

12.10.2009

Loftslagsmál: Íslenska ákvćđiđ gildi áfram

Ríkisstjórn Íslands hefur gefið út markmið um að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda um 15% frá 1990 sem er um 25% samdráttur frá 2008-12. Þetta vilyrði í alþjóðlegu loftslagsviðræðunum er meðal annars skilyrt því að íslenska ákvæðið gildi áfram á næsta skuldbindingartímabili Kyoto-bókunarinnar.

12.10.2009

Fundir SA um umhverfismál

Umhverfishópur SA fundar þriðjudaginn 13. október kl. 14 - 16, á 6. hæð í Húsi atvinnulífins - Borgartúni 35. Gestur fundarins er Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins. Magnús mun fara yfir þau mál sem efst eru á baugi hjá ráðuneytinu, þingmál og svör við ESB spurningum vegna aðildarumsóknar.

10.10.2009

Nauđvörn ađ segja upp kjarasamningum

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir það nauðvörn að segja upp kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Það sé það síðasta sem samtökin vilji gera. Hins vegar geti vel verið að verið sé koma samtökunum í þá stöðu að segja upp samningum.

9.10.2009

Ávarp Vilhjálms Egilssonar á Umhverfisţingi

„Við verðum að horfa til framtíðar og byggja upp ný arðbær störf, spara og fjárfesta okkur út úr kreppunni. Hver sá sem horfir á möguleika okkar utanfrá sér á augabragði vannýttar náttúruauðlindir sem geta orðið til gagns og skapað skilyrði fyrir velmegun og velferð þjóðarinnar allrar." Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í ávarpi á Umhverfisþingi sem nú stendur yfir.

7.10.2009

Siglt verđi upp úr kreppunni á nćsta ári

Það sem skiptir allra mestu máli um þessar mundir er að búa þannig um hnútana að Íslendingum takist að sigla upp úr kreppunni á næsta ári og bæta sinn hag á komandi árum. Það mun fyrst og fremst gerast með fjárfestingum í atvinnulífinu segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Hann segir jákvætt að samdrátturinn á yfirstandandi ári verði heldur minni en reiknað var með eftir að kreppan skall á.

7.10.2009

Óljós skattastefna stjórnvalda skađleg

„Óvissan sem nýframlagt fjárlagafrumvarp hefur skapað fyrir atvinnulífið, m.a. vegna skattahækkana, er mjög skaðleg. Það hefur verið vitað að skattahækkanir væru framundan og ég tel að þær hafi verið óumflýjanlegar. En þegar þær birtast að stórum hluta óunnar í fjárlagafrumvarpi þá grípur um sig mikil hræðsla í atvinnulífinu," segir Vilmundur Jósefsson formaður Samtaka atvinnulífsins.

5.10.2009

Varasamar tillögur um ađ skerđa lífeyrissparnađ

Tillögur hafa verið lagðar fram um að breyta formi á skattlagningu lífeyrissparnaðar þannig að inngreiðslur í lífeyrissjóði verði ekki frádráttarbærar til skatts heldur myndi skattskyldar tekjur hjá viðkomandi einstaklingi, hvort heldur það er hann sjálfur eða launagreiðandi sem innir þær af hendi. Á móti verði greiðslur úr lífeyrissjóðum skattfrjálsar. Áhrif þessara breytinga yrðu margþætt og myndu hafa umtalsverð þjóðhagleg áhrif. Sparnaður þjóðarinnar myndi t.a.m. minnka og eignamyndun yrði minni. Loka þyrfti núverandi lífeyrissjóðum, skerða lífeyrisgreiðslur og opna nýja sjóði. Séreignasjóðsfyrirkomulagið þyrfti að endurskoða og samspil lífeyrisgreiðslna og almannatrygginga yrði flóknara auk þess sem mismunur lífeyrisréttinda í almenna og opinbera lífeyriskerfinu myndi aukast.

2.10.2009

Auknar fjárfestingar forsenda bata í efnahagslífinu

Auknar fjárfestingar eru forsenda bata í efnahagslífinu segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við fréttastofu RÚV. Nú skipti miklu máli að fjárfest verði hér á landi og að fjárfestingarnar verði nægilega miklar til að koma okkur út úr kreppunni. Skattabreytingar sem boðaðar séu veiki hins vegar grundvöll frekari fjárfestinga.

2.10.2009

Ályktun ađalfundar SF

Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva 2009 fór fram föstudaginn 25. september síðastliðinn. Í ályktun fundarins segir m.a. að endurreisn íslenska fjármálakerfisins, lækkun fjármagnskostnaðar og afnám gjaldeyrishafta sé algjört forgangsmál. „Það er lífsspursmál fyrir fólk og fyrirtæki að hægt verði að taka upp eðlilega bankaþjónustu sem allra fyrst. Fjárhagslegri endurskipulagningu viðskiptabanka og sparisjóða fer senn að ljúka og því mikilvægt að hægt verði að koma hjólum atvinnulífsins sem fyrst af stað."

1.10.2009

Umhverfisráđherra afturkalli ólögmćtan úrskurđ

Samtök atvinnulífsins skora á umhverfisráðherra að afturkalla ólögmætan úrskurð umhverfisráðuneytisins frá 29. september um að fella úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 25. mars 2009, um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar Suðvesturlínur, styrkingar raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi, og öðrum framkvæmdum sem tengjast álveri í Helguvík. Að öðrum kosti munu samtökin bera fram kvörtun við umboðsmann Alþingis og/eða leita leiða til þess að fá úrskurðinum hnekkt fyrir dómstólum.

30.9.2009

Úrskurđur ráđherra stenst ekki lög

Úrskurður umhverfisráðherra er dæmi um stjórnsýslu sem ekki virðir lögbundin tímamörk. Tímafrestur hans til þess að kveða upp úrskurð er löngu liðinn. Skipulagsstofnun er óheimilt að taka upp álit sitt á mati á umhverfisáhrifum. Úrskurður ráðherra er til þess fallinn að tefja, skapa óvissu og um leið spilla fyrir endurreisn íslensks efnahagslífs. Óviðunandi er að fyrirtæki sem undirbúa framkvæmdir, og fara í einu og öllu að lögum, skuli verða fyrir því að ráðherra skuli breyta skilyrðum eftir á og tefla þannig í tvísýnu öllum undirbúningi framkvæmda og valda með ákvörðunum sínum ómældum kostnaði.

29.9.2009

Skađlegar skattahugmyndir

Ríkisstjórnin boðar nýja skatta á atvinnulífið á borð við orku-, umhverfis- og auðlindaskatta.  Samtök aðila í atvinnurekstri vara við þessum hugmyndum og hvetja til þess að megináherslan verði lögð á uppbyggingu og sköpun starfa. Hætta er á því að þeir fjárfestingarkostir sem erlend fyrirtæki hafa haft til skoðunar hér á landi verði endurmetnir og hugsanlega slegnir af.

27.9.2009

Ný lög um Seđlabankann ef vextirnir lćkka ekki

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að ef ekki verði hagvöxtur á Íslandi strax á næsta ári verði það í boði Seðlabankans. Vaxtastefna bankans haldi samfélaginu í heljargreipum. Hann vill ný lög um bankann ef vextir lækka ekki fljótlega. Þetta kom fram á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva sem fram fór á föstudag.

27.9.2009

Seđlabankinn framlengir kreppuna

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að Seðlabankinn hafi framlengt kreppuna með ákvörðun sinni um að halda stýrivöxtum óbreyttum í 12%. Hann segist líta svo á að um ögrun sé að ræða við aðila stöðugleikasáttmálans - ríkisstjórnina, sveitarfélögin og aðila vinnumarkaðarins.

22.9.2009

Vilmundur Jósefsson formađur SA

Vilmundur Jósefsson hefur tekið við sem formaður Samtaka atvinnulífsins, en Þór Sigfússon, sem verið hefur í leyfi frá formennsku í samtökunum frá 9. júlí, hefur ákveðið að víkja formlega úr sæti formanns SA. Nýr varaformaður verður kosinn á næsta stjórnarfundi SA í stað Vilmundar en formannskjör mun fara fram í aðdraganda aðalfundar SA vorið 2010.

22.9.2009

Stýrivextir ógna stöđugleikasáttmála

Samkvæmt stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins eiga stýrivextir að vera í eins stafs tölu fyrir 1. nóvember en þeir eru nú 12%. Eina auglýsta vaxtaákvörðun fyrir þann tíma er á fimmtudag. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Fréttablaðið í dag miður að lækkun vaxta sé ekki á áætlun. Þá hafi áætlun Seðlabankans um afnám gjaldeyrishafta valdið vonbrigðum, hún hafi verið allt of varfærin. Hannes segir að menn muni meta stöðuna í október og skoða hvort sáttmálinn muni halda.

22.9.2009

Of snemmt ađ flauta kreppuna af

Aljóðasamtök atvinnurekenda (IOE), sem Samtök atvinnulífsins eiga aðild að, hafa sent leiðtogum G-20 ríkjanna opið bréf þar sem þeir eru hvattir til þess að bæta starfsumhverfi fyrirtækja. Samtökin segja of snemmt að fagna lokum kreppunnar þó svo jákvæð teikn hafi sést á mörkuðum og vöxtur látið á sér kræla á ný. IOE segja aukin opinber útgjöld skýra þróunina en einkageirinn eigi enn í töluverðum vandræðum. Endurreisn efnahagslífsins byggi hins vegar á því að fyrirtækin nái sér á strik ekki útþenslu hins opinbera.

21.9.2009

Lífeyrissjóđakerfiđ hefur reynst vel

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir að núverandi lífeyrissjóðakerfi hafi reynst vel þrátt fyrir að lífeyrissjóðirnir orðið fyrir áfalli. Hann hafnar því í samtali við fréttastofu RÚV að seta fulltrúa atvinnurekenda í stjórnum sjóðanna hafi valdið þeim skaða og segir stjórnirnar ekki taka ákvarðarnir um einstaka fjárfestingar heldur marki þær stefnuna. Atvinnurekendur hafi hagsmuni af því að afkoma sjóðanna sé sem best.

18.9.2009

Virđi rekstrarhćfra fyrirtćkja verđi hámarkađ

Bankasýsla ríkisins tekur til starfa í næstu viku en henni er ætlað að fara með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Samtök atvinnulífsins hafa gert fjölmargar athugasemdir við stofnun bankasýslunnar og einnig stofnun opinbers eignaumsýslufélags sem er ætlað að stuðla að endurskipulagningu rekstrarhæfra fyrirtækja. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir að samtökin hafi efasemdir um að ríkið eigi að reka stærri fyrirtæki um langan tíma. Eðlilegast væri að koma þeim í hendur nýrra eigenda til að hámarka virði þeirra.

16.9.2009

Ráđist verđi í umbćtur á fjármálamörkuđum

Evrópusamtök atvinnulífsins (BUSINESSEUROPE) kalla eftir víðtækri og samræmdri endurskipulagningu á starfsumhverfi fjármálamarkaða. Telja samtökin að bæta verði fjármálaeftirlit á heimsvísu, auka gagnsæi og bæta áhættustýringu. Þetta kemur fram í bréfi Jurgen Thumann, forseta BUSINESSEUROPE, til Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB. Evrópusamtök atvinnulífsins segja aðgang fyrirtækja að fjármagni enn takmarkaðan og úr því verði að bæta sem allra fyrst til að koma atvinnulífinu í gang.

15.9.2009

Virk samkeppni ein af forsendum norrćna velferđarkerfisins

Samkeppniseftirlit Íslands, Danmerkur, Finnlands, Grænlands, Noregs og Svíþjóðar hafa lagt mat á það hvaða áhrif efnahagsþrengingar, nú og á síðustu öld, hafa haft á samkeppnisstefnu þjóða og hvaða ályktanir megi draga af þeim áhrifum. Þar sem Norðurlöndin búa við tiltölulega lítil og opin efnahagskerfi er alþjóðleg samkeppnishæfni landanna nauðsynleg til að vernda og viðhalda hinu norræna velferðarkerfi. Hagvöxtur og nýsköpun er ein af forsendum þess að varðveita og auka megi þá samkeppnishæfni. Því takmarki verður best náð með því að stuðla að virkri samkeppni. Þetta kemur fram í nýrri sameiginlegri skýrslu fyrrgreindra stofnana sem var nýverið kynnt í Reykjavík.

14.9.2009

Viđrćđur um sameiningu SA og VÍ

Vilmundur Jósefsson, starfandi formaður SA, fór þess á leit  við Viðskiptaráð Íslands í dag að teknar yrðu upp viðræður um sameiningu samtakanna. Markmið slíkra breytinga væri að efla samtök atvinnurekenda, auka skilvirkni í rekstri og virkja betur kraft og frumkvæði atvinnurekenda til beinnar þátttöku í endurreisn atvinnulífsins.

10.9.2009

Hefjum sókn í orkumálum

Komandi vetur verður landsmönnum mjög erfiður efnahagslega og því er brýnt að hefja nú þegar þær aðgerðir sem kveðið er á um í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins, ríkisvaldsins og sveitarfélaga frá því í sumar. Í aðdraganda samkomulagsins var sett fram sú sameiginlega sýn að skapa 15.000 störf  fram til ársins 2013 en sá árangur næst ekki nema hagvöxtur verði óvenju mikill, eða 4-4,5% á hverju ári. Til að hagvöxtur hefjist á ný liggja fjárfestingar í orkugeiranum og tengdum iðju- og gagnaverum beinast við. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara fréttabréfs SA.

10.9.2009

Mikilvćgt ađ skipuleggja smitvarnir vegna inflúensu

Mikilvægt er íslensk fyrirtæki skipuleggi smitvarnir til að draga úr útbreiðslu inflúensu A(H1N1)v (svínainflúensu) enda geta markvissar forvarnir dregið verulega úr tjóni þjóðfélagsins af völdum inflúensunnar. Gert er ráð fyrir að inflúensan nái sér aftur á strik þegar vetur gengur í garð í Evrópu. Starfsemi sumra fyrirtækja getur raskast verulega ef miklar fjarvistir verða og er mælt með því að gerð sé áætlun um hvernig haga skuli starfseminni við slíkar aðstæður.

10.9.2009

Á brattann ađ sćkja í evrópsku efnahagslífi

Þrátt fyrir að vísbendingar séu farnar að sjást í Evrópu um að kreppunni þar kunni brátt að ljúka eru evrópskir atvinnurekendur aðeins hóflega bjartsýnir á framtíðina. Áætlað er að efnahagur landa ESB dragist saman að meðaltali um 3,9% á þessu ári og hagvöxtur verði aðeins 0,7% á því næsta. Búist er við að kreppan muni hafa neikvæð áhrif um langa hríð á fjárfestingu , atvinnustig og fjármál opinberra aðila og grípa þurfi til fjölþættra aðgerða svo atvinnulífið blómstri á ný. Búist er við að verðbólga á evrusvæðinu á næsta ári verði að meðaltali 1,3% m.v. 0,3% á árinu 2009. Þetta kemur fram í nýrri haustspá Evrópusamtaka atvinnulífsins (BUSINESSEUROPE) um efnahagshorfurnar framundan.

10.9.2009

Starfshópur um samfélagslega ábyrgđ

Ákveðið hefur verið að Samtök atvinnulífsins verði tengiliður á Íslandi við Global Compact verkefni Sameinuðu þjóðanna. Með verkefninu vilja SÞ hvetja fyrirtæki til að sýna samfélagslega ábyrgð í verki með því að tileinka sér tíu viðmið. Um þessar mundir taka þátt í verkefninu 4.700 fyrirtæki um allan heim og þar af eru um 400 á Norðurlöndum. Skipaður verður starfshópur um samfélagslega ábyrgð á vegum SA og stýrir Hörður Vilberg hópnum.

10.9.2009

Kynningarfundir: Leiđbeiningar um stjórnarhćtti

Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Nasdaq OMX Ísland, munu standa fyrir kynningarfundum í september á þriðju útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja sem komu út í sumar. Um verður að ræða stutta fundi á tímum sem henta stjórnendum og starfsmönnum aðildarfyrirtækja. Farið verður yfir efnistök nýju leiðbeininganna og spurningum svarað.

10.9.2009

Alţjóđleg athafnavika 16.-22. nóvember

Samtök atvinnulífsins eru meðal stuðningsaðila Alþjóðlegrar athafnaviku sem fram fer 16.-22. nóvember í meira en 100 löndum og þar á meðal á Íslandi. Markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar um gildi nýsköpunar og athafnasemi fyrir samfélagið ásamt því að kveikja bjartsýni.

9.9.2009

Tal um vaxtahćkkun ögrun

Vilmundur Jósefsson, starfandi formaður SA, segir að það setji að mönnum hroll í atvinnulífinu við að hlýða á orð seðlabankastjóra um að til greina komi að hækka vexti. Það sé tvímælalaust ögrun gagnvart stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera. Launalið kjarasamninga hafi verið frestað fram í október meðal annars til að gefa Seðlabankanum tíma til að lækka vexti niður fyrir tíu prósent. Atvinnulífið sé á heljarþröm og ljóst sé að taka verði til hendinni þar sem 15 þúsund manns eru nú án atvinnu.

7.9.2009

Gjaldeyrishöft grafa undan krónunni

"Gjaldeyrishöftin eru einfaldlega yfirlýsing um að íslenska krónan sé ekki í lagi, þau virka eins og stórt viðvörunarskilti," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Fréttablaðið. Vilhjálmur segir að fyrirtæki kjósi því að halda erlendum gjaldeyri á gjaldeyrisreikningum frekar en að skipta honum í krónur. Í umfjöllun blaðsins kemur fram að samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum áttu íslensk fyrirtæki um 173,5 milljarða króna í erlendum gjaldeyri á svokölluðum gjaldeyrisreikningum í íslenskum fjármálastofnunum í maí síðastliðnum.

7.9.2009

Greitt verđi úr vanda fyrirtćkja

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir ekkert bera á "viðspyrnunni" sem mönnum hafi verið tamt að tala um í sambandi við endurreisn efnahagslífsins. Hann tekur undir gagnrýnisraddir sem segja stöðugleikasáttmála um aðgerðir til að vinna þjóðina út úr kreppunni hafi setið á hakanum. Hannes segir að það verði að greiða úr vanda fyrirtækjanna í landinu sem öll bíði aðgerða og nú þegar verði að fara í framkvæmdir, til dæmis þær sem lífeyrissjóðirnir eru tilbúnir að fjárfesta í.

3.9.2009

Ekkert lát á stofnun nýrra fyrirtćkja

Það sem af er þessu ári hafa verið stofnuð 216 ný fyrirtæki á mánuði sem er sambærilegur fjöldi fyrirtækja og var stofnaður fyrir efnahagshrunið í fyrra. Átta fyrstu mánuði ársins voru stofnuð 1.731 fyrirtæki, aðeins 38 fyrirtækjum færra en á sama tímabili árið 2008. Þetta sýnir ítarleg úttekt sem CreditInfo vann fyrir Fréttablaðið um stofnun nýrra fyrirtækja frá árinu 2005 og fjallað er um í blaðinu í dag.

1.9.2009

Umhverfishópur SA fundar á fimmtudag

Umhverfishópur Samtaka atvinnulífsins kemur saman  til fundar fimmtudaginn 3. september nk. í Húsi atvinnulífsins. Ingimar Sigurðsson, fulltrúi umhverfisráðuneytisins í Brussel, er gestur fundarins og fjallar almennt um það sem efst er á baugi í umhverfis- og loftslagsmálum í Brussel.

28.8.2009

ESB-hópar SA taka til starfa

Samtök atvinnulífsins hafa ákveðið að skipa sex starfshópa til að fjalla um málefni atvinnulífsins vegna aðildarumsóknar Íslands að ESB. Aðildarfélög SA munu fjalla um afstöðuna til ESB innan eigin raða út frá hagsmunum sinna atvinnugreina en starfshópum SA er ætlað að fjalla um málið út frá tilteknum atriðum sem snerta atvinnulífið sem heild.

24.8.2009

Engin fjárfesting viđ núverandi ađstćđur

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir algjört stopp í fjárfestingum fyrirtækja. Algjört hrun er til að mynda í sölu bíla til fyrirtækja en nýskráningar fyrirtækjabifreiða hafa dregist saman um 87 prósent það sem af er ári miðað við sama tímabil árið 2007. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu. Vilhjálmur segir að Seðlabankinn þurfi að lækka stýrivexti strax. „Það fjárfestir enginn á þessum vöxtum."

18.8.2009

Upplýsingar á ensku um stöđu mála á Íslandi

Samtök atvinnulífsins hafa tekið saman stutta en greinargóða samantekt á ensku um stöðu efnahagsmála á Íslandi og horfur í viðskiptalífinu. Aðildarfélög SA eru hvött til þess að koma upplýsingunum á framfæri við erlenda samstarfsaðila og viðskiptavini. Samantektina má nálgast á vef SA og verður hún uppfærð reglulega eftir því sem tilefni gefast til.

18.8.2009

Byggja verđur upp traust á Íslandi

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Vilhjálmur Egilsson, segir að taka verði mark á niðurstöðum könnunar alþjóðlegrar lögmannsstofu. Könnunin sýnir meðal annars að yfir 90 prósent þeirra evrópsku banka og fjármálafyrirtækja sem könnunin náði til ætla ekki að fjárfesta á ný hér á landi.

18.8.2009

Icesave búiđ ađ tefja framţróun of lengi

Icesave málið hefur tafið alla framþróun hér á landi of lengi og þess vegna þarf að ganga frá því sem fyrst. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við Viðskiptablaðið. Aðspurður um þá fyrirvara sem fjárlaganefnd Alþingis setti á fyrirhuguðu lög um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins við Breta og Hollendinga segist Vilhjálmur vona að þeir verði til þess að málið klárist sem fyrst.

16.8.2009

Kallađ eftir fjárfestingum

„Samtök atvinnulífsins hafa kallað eftir ákvörðunum hjá stjórnvöldum um ný fjárfestingarverkefni, sem eru hluti af stöðugleikasáttmálanum. Það þarf að fara að virkja og koma stórum framkvæmdum í gang sem skapa atvinnu," segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, en SA binda vonir við að lífeyrissjóðir komi að fjármögnun nokkurra verkefna í vega- og mannvirkjagerð. „Það er mikið undir okkur sjálfum komið hversu djúp lægðin verður."

13.8.2009

Seđlabankinn og ríkisstjórnin í sjálfheldu

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að stýrivextir yrðu áfram óbreyttir eða 12%. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við mbl.is lítið benda til þess að stýrivextir verði komnir í 9% fyrir 1. nóvember líkt og gert er ráð fyrir í stöðugleikasáttmálanum. Hann telur hins vegar að sáttmálinn sé ekki í hættu og treysta verði því að það gangi eftir að vextirnir verði lækkaðir í nánustu framtíð.

11.8.2009

Tímabćrt ađ lćkka vexti

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við fréttavef Viðskiptablaðsins löngu tímabært að lækka stýrivexti Seðlabankans. Enginn rekstur standi undir 12% stýrivöxtum. Hann segir rök Seðlabankans fyrir háum stýrivöxtum haldi ekki þar sem sú verðbólga sem Íslendingar upplifi nú skapist ekki af umframeftirspurn og þenslu eða kostnaðarhækkunum innanlands. Hún stafi fyrst og fremst af aðlögun að lágu gengi krónunnar.

10.8.2009

Öflugur gjaldeyrisvarasjóđur nauđsynlegur

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir nauðsynlegt fyrir Íslendinga að byggja upp öflugan gjaldeyrisvarasjóð. Án hans verði erlendir fjármagnsmarkaðir lokaðir fyrir Íslandi, jafnt fyrirtækjum sem hinu opinbera. Fréttastofa RÚV ræddi við Vilhjálm um málið.

13.7.2009

Báđir ađilar hafa samţykkt samkomulagiđ frá 25. júní

7. júlí sl. sendu Samtök atvinnulífsins ASÍ tilkynningu um að framkvæmdastjórn samtakanna hefði samþykkt samkomulag SA og samninganefndar ASÍ sem gert var 25. júní sl. Alþýðusamband Ísland sendi SA í dag staðfestingu á samkomulaginu fyrir hönd samninganefndar ASÍ. Launahækkanir, eins og samið var um 25. júní sl., koma því til framkvæmdar frá og með síðustu mánaðamótum. 

9.7.2009

Stöđugleikasáttmálinn - vegvísir út úr kreppunni

Vinna við að fylgja eftir stöðugleikasáttmálanum frá 25. júní er þegar hafin. „Mikilvægt er að hefjast strax handa vegna þess að mörg mikilvæg mál sem þarf að ljúka fyrir 1. nóvember næstkomandi eru umfangsmikil. Því þarf að taka vel til hendi til þess að leiða þau til lykta," segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA. Fyrsti samráðsfundurinn með ríkisstjórninni var í gær og fyrr í dag gengust SA fyrir sérstökum fundi vegna álversins í Helguvík og tengdra fjárfestinga í orkugeiranum. Vilhjálmur segir að engan tíma megi missa til þess að koma atvinnulífinu almennilega af stað fyrir næsta haust og vetur. Meginverkefnið sé að láta ekki hörmungarspár rætast - að því þurfi allir að vinna.

9.7.2009

Til félagsmanna í Samtökum atvinnulífsins

Þór Sigfússon, formaður SA, hefur ákveðið að taka sér leyfi frá störfum sem formaður Samtaka atvinnulífsins um óákveðinn tíma, frá og með 9. júlí, þar til mál skýrast varðandi stöðu hans í rannsókn sérstaks saksóknara á fjárfestingarstarfsemi Sjóvar. Þetta kemur fram í bréfi Þórs til félagsmanna SA en greint var frá rannsókninni á vef SA. Þór segist telja að störf hans hjá Sjóvá hafi í einu öllu verið í samræmi við lög enda hafi hann unnið af metnaði og bestu samvisku fyrir fyrirtækið. Honum sé umhugað um að starfsemi SA gangi eins vel og kostur er og vilji á engan hátt að samtökin verði fyrir skaða vegna fyrrgreindrar rannsóknar sem sé þeim algjörlega óviðkomandi.

9.7.2009

Hvatt til innlendrar og erlendrar fjárfestingar

Í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera náðist sátt um að greiða fyrir auknum framkvæmdum til að auka atvinnu. Lykilatriði er að hvatt verði til þátttöku erlendra og innlendra fjárfesta í fjölbreyttum verkefnum. Nauðsynlegt er að hraða framkvæmdum við álver í Helguvík sem þegar eru hafnar og kanna þarf áhuga fjárfesta á þátttöku í fjárfestingarverkefnum á sviði orkunýtingar án þess að ríki og sveitarfélög afsali sér eignarhaldi á auðlindum. Þá er mikilvægt að leita leiða til að ráðast í arðbærar samgönguframkvæmdir sem að hluta yrðu fjármagnaðar með notendagjöldum. Þetta kemur m.a. fram í ítarlegri umfjöllun SA um verklegar framkvæmdir.

9.7.2009

Launabreytingum frestađ

Með samkomulagi SA og ASÍ um framlengingu kjarasamninga þann 25. júní var launabreytingum frestað. Einungis kauptaxtar kjarasamninga hækka 1. júlí, um kr. 6.750 hjá verkafólki og afgreiðslufólki en kr. 8.750 hjá iðnaðarmönnum og skrifstofufólki. Nýju kauptaxtana má finna í nýrri kaupgjaldsskrá SA. Laun sem eru hærri en nýju kauptaxtarnir hækka ekki.

9.7.2009

Umsagnir SA til Alţingis

Samtök atvinnulífsins vekja athygli á þremur umsögnum SA til Alþingis sem má nálgast á vef samtakanna. Um er að ræða umsagnir um frumvarp fjármálaráðherra vegna Icesave, frumvarp um Bankasýslu ríkisins og umsögn um tillögu að aðildarumsókn Íslands að ESB. Samtök atvinnulífsins styðja að gengið verði til samninga vegna Icesave og benda á að efnahagslegur kostnaður af því að fella samkomulagið gæti orðið mjög mikill. Lausn málsins sé þáttur í því að sköpun starfa geti hafist á ný á Íslandi.

9.7.2009

Óskilvirk vinnumiđlun

Nú þegar álögur á atvinnulífið vegna atvinnuleysis hafa þrefaldast með hækkun atvinnutryggingagjalds úr 0,65% í 2,21% aukast kröfur um að vel sé haldið á fjármunum Atvinnuleysistryggingasjóðs. Vaxandi kröfur eru gerðar til þess að fólk þiggi ekki atvinnuleysisbætur á sama tíma og laus störf eru í boði sem það getur unnið. Töluvert er kvartað yfir því í atvinnulífinu að illa gangi að manna sum störf ófaglærðra, t.d. á hótelum.

9.7.2009

Um tekjur og gjöld Atvinnuleysistryggingasjóđs

Tekjustofn Atvinnuleysistryggingasjóðs er atvinnutryggingagjald, sem er hluti af lögbundnu tryggingagjaldi atvinnurekenda sem reiknast af greiddum launum. Í árslok 2008 var eigið fé sjóðsins um 16 milljarðar króna. Aukin greiðslubyrði sjóðsins vegna nýrra viðfangsefna og sérstakrar hækkunar bóta í janúar umfram almennar launahækkanir var talin leiða til þess að sjóðurinn myndi tæmast haustið 2009 ef ekkert yrði að gert. Með hækkun atvinnutryggingagjalds frá 1. júlí sl. úr 0,65% í 2,21% gera bjartsýnustu spár ráð fyrir að um næstu áramót verði eigið fé sjóðsins jákvætt um 2,5 milljarða en útlitið verði dökkt á árinu 2010.

9.7.2009

Vinnustađaskírteini tekin í notkun í haust

Vinnustaðaskírteini verða innleidd í byggingariðnaði í haust. Þeim er m.a. ætlað að auðvelda eftirlit á vinnustöðum svo hægt sé að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og misnotkun atvinnuleysisbóta.

9.7.2009

Hćrra tryggingagjald og hátekjuskattur

Frá 1. júlí verður tryggingagjald 7,0% í stað 5,34%. Annars vegar hækkar atvinnutryggingagjald úr 0,65% í 2,21% og hins vegar tvöfaldast gjald í ábyrgðasjóð launa og fer í 0,2%. Samtals hækkar tryggingagjald því um 1,66%  Hækkað gjald reiknast af launum frá og með 1. júlí og kemur til greiðslu við innheimtu staðgreiðslu í ágúst. Viðbót vegna launa sjómanna á fiskiskipum verður áfram 0,65%.

7.7.2009

Húsleit hjá Samtökum atvinnulífsins

Starfsmenn sérstaks saksóknara gerðu í dag húsleit á starfsstöð Þórs Sigfússonar, formanns SA, á skrifstofu samtakanna, en Þór hefur haft þar starfsaðstöðu í nokkrar undanfarnar vikur.  Leitað var að gögnum sem tengjast fyrri störfum Þórs hjá Sjóvá en sérstakur saksóknari hefur í dag látið leita víðar að gögnum um fjárfestingastarfsemi fyrirtækisins á undanförnum árum.  Þór er leitarþoli í þessu tilviki en réttarstaða hans í málinu hefur ekki verið skilgreind að öðru leyti. Þór er nú í sumarfríi og tekur ekki þátt í störfum SA á meðan.  Vonast er til að þegar Þór kemur úr fríi undir lok mánaðarins liggi réttarstaða hans í málinu fyrir.

5.7.2009

Icesave-frumvarpiđ verđi samţykkt

Forsvarsmenn atvinnulífsins og verkalýðsforystunnar taka undir rök fjármálaráðherra um nauðsyn þess að frumvarp hans um Icesave-samninginn verði samþykkt. Uppbyggingin framundan sé því háð. Þetta kemur fram í umfjöllun Fréttablaðsins. „Það verður að klára þetta. Öðruvísi komumst við ekki í samband við erlenda fjármagnsmarkaði sem endurreisnin byggir á," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við blaðið.

3.7.2009

Gagnslaus og skađleg gjaldeyrishöft

 „Gjaldeyrishöft eiga að vinna gegn veikingu krónunnar en það virkar ekkert frekar en að verðlagshöft virka til að halda niðri verðbólgu þannig að þetta er bara falleinkunn þeirra yfir sjálfum sér. Gjaldeyrishöft hafa hvergi virkað til að styðja við gengi gjaldmiðla, þeir vita það og það vita allir en samt komast þeir ekki út úr þeirri hugsun." Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson í viðtali við Vísi um þá ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankansað halda stýrivöxtum óbreyttum.

2.7.2009

Fjármálaráđuneytiđ á villigötum

Hugmyndir fjármálaráðuneytisins um að leggja á sérstakan kolefnisskatt eru vanhugsaðar og munu hafa lítil sem engin áhrif á útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá íslenskum fyrirtækjum. Skattheimta sem þessi verður aðeins til þess draga úr samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs auk þess að minnka líkur á að erlend fjárfesting verði hér að veruleika á næstu misserum. Verði skatturinn lagður á getur orkukostnaður útgerðarfyrirtækja hækkað um allt að þriðjung og útsöluverð á bensíni hækkað um 23 krónur hver lítri og dísellítrinn um 25 krónur.

2.7.2009

Telur Seđlabankann vantrúađan á ađgerđir stjórnvalda

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir ljóst að Seðlabankinn hafi enga trú á aðgerðum ríkisstjórnarinnar og allt bendi til þess að ekki takist að ná stýrivöxtum niður fyrir 10% fyrir 1. nóvember nk. líkt og kveðið er á um í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda. „Ef Seðlabankinn lokar augunum fyrir öllu sem er að gerast í peningamálunum í kringum okkur, bæði ríkisfjármálum og öðru, þá hef ég enga trú á því," segir Vilhjálmur í samtali við mbl.is. Tilkynnt var um óbreytta stýrivexti Seðlabankans í morgun, 12%.

1.7.2009

Nýr fastafulltrúi SA í Brussel

Jón Óskar Sólnes hefur verið skipaður fastafulltrúi Samtaka atvinnulífsins hjá BUSINESSEUROPE (Evrópusamtökum atvinnulífsins) til eins árs frá og með 1. júlí 2009. Jón Óskar leysir af Sigrúnu Kristjánsdóttur sem fer í árs barnsburðarleyfi.

1.7.2009

Ný kaupgjaldskrá er komin á vef SA

Kaupgjaldskrá nr.11 er komin á vef SA og gildir hún frá 1. júlí 2009. Kauptaxtar kjarasamninga hækka 1. júlí um kr. 6.750 hjá verkafólki og afgreiðslufólki en kr. 8.750 hjá iðnaðarmönnum og skrifstofufólki. Laun sem eru hærri en nýju kauptaxtarnir hækka ekki. Taxtahækkun er háð því að samninganefnd ASÍ og SA samþykki samninginn en niðurstaða skal liggja fyrir 14. júlí nk.

30.6.2009

Upplýsingar um stöđugleikasáttmála á ensku

Á vef forsætisráðuneytisins má nú nálgast upplýsingar á ensku um helstu þætti nýs stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaga og ríkisstjórnarinnar. Einnig hefur sáttmálinn verið þýddur í heild og birtur á vef ráðuneytisins.

25.6.2009

Framlenging kjarasamninga viđ ASÍ – Stöđugleikasáttmáli

Kjarasamningar við ASÍ og aðildarfélög þess hafa verið framlengdir til 30. nóvember 2010. Stöðugleikasáttmáli aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar fjallar um aðgerðir í efnahags- og atvinnumálum sem skipta sköpum fyrir alla þjóðina og gríðarlega mikilvægt er að vel takist til um framkvæmd sáttmálans.

22.6.2009

Enn rćtt um stöđugleikasáttmála

Forsvarsmenn launþega og atvinnurekenda, lífeyrissjóða og sveitarfélaga funda enn með stjórnvöldum um gerð stöðugleikasáttmála í efnahagsmálum. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að kraftaverk þurfi til að samkomulag takist. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.

18.6.2009

Stefnumörkun vantar um endurreisn bankanna

Aðilar vinnumarkaðarins áttu í gærkvöld fund með ríkisstjórninni. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið að á fundinum hafi verið farið yfir stöðuna til að reyna að átta sig á því hvað gerist á næstu dögum. Svo virðist sem ríkisfjármálin séu að skýrast en stefnumörkun vanti af hálfu ríkisstjórnarinnar um endurskipulagningu bankanna. Þá sé engra breytinga að vænta hvað varðar gjaldeyrishöft og stýrivexti Seðlabankans.

18.6.2009

Ný útgáfa leiđbeininga um stjórnarhćtti fyrirtćkja

Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og NASDAQ OMX Iceland gáfu út í dag endurskoðaðar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. Í þessari 3. útgáfu leiðbeininganna er sérstaklega horft til sambærilegra leiðbeininga frá öðrum löndum og forskriftar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu. Fleiri og ítarlegri ákvæði eru í nýju leiðbeiningunum og gerðar eru ríkari kröfur til stjórnenda fyrirtækja en áður á nær öllum sviðum.

16.6.2009

EES-samningurinn verđi ekki vanrćktur

Samtök atvinnulífsins hafa skilað utanríkismálanefnd Alþingis umsögn um tillögu til þingsályktunar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu (38. mál) og tillögu til þingsályktunar um undirbúning mögulegrar umsóknar um aðild að Evrópusambandinu (54. mál). Í umsögn SA segir m.a. að samtökin fagni því að stjórnvöld hyggist hafa víðtækt samráð við hagsmunaaðila um samningsmarkmið fyrir hugsanlegar aðildarviðræður við ESB. Samtök atvinnulífsins vara hins vegar við því að íslensk stjórnvöld glati metnaði sínum um áframhaldandi þátttöku í Evrópska efnahagssvæðinu eins og hafi gerst á undanförnum árum.  Slíkt geti reynst íslensku atvinnulífi dýrkeypt.

15.6.2009

Nýtt fréttabréf SA komiđ út

Júnítölublað fréttabréfs SA, Af vettvangi, er komið út á vef SA. Þar er m.a. fjallað um risavaxna áskorun í ríkisfjármálunum en stjórnvalda bíður það verkefni að draga úr ríkisútgjöldum um 100 milljarða á þremur árum, eða sem nemur 20% af útgjöldum. Niðurstöður nýrrar Capacent-könnunar sýna að íslenskir stjórnendur eru svartsýnni á framtíðina en áður. Fjallað er um svarta framtíðarspá sem kynnt var á ársþingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) en hún gerir ráð fyrir heimskreppu til ársins 2015. Í fréttabréfinu er jafnframt bent á að Íslendingar geti sparað 11 milljarða á ári með því að taka upp rafræn viðskipti.

11.6.2009

Risavaxin áskorun í ríkisfjármálum

Ekki hefur enn verið tekin pólitísk ákvörðun um hlutföll skatttekna og niðurskurðar í blandaðri leið til aukins aðhalds í ríkisfjármálum. Að mati Samtaka atvinnulífsins er óraunhæft að ganga út frá því að helmingur aðhaldsins náist með auknum skatttekjum því það muni ganga of nærri skattstofnunum. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA. Hann segir það enda með ósköpum ef ekki verði tekið á halla ríkissjóðs fyrr en síðar. Stjórnvalda bíði það verkefni að draga úr ríkisútgjöldum um 100 milljarða á þremur árum, eða sem nemur 20% af útgjöldum.

11.6.2009

Stjórnendur svartsýnni á framtíđina

Niðurstöður ársfjórðungslegrar könnunar Capacent Gallup meðal stærstu fyrirtækja landsins liggja nú fyrir. Líkt og í samsvarandi könnunum í mars 2009 og desember 2008 meta stjórnendur fyrirtækjanna aðstæður í atvinnulífinu afleitar. Telja stjórnendur 97% þeirra fyrirtækja sem svara könnuninni að aðstæður séu nú mjög slæmar (62%) eða frekar slæmar (35%), en ekkert fyrirtæki telur þær góðar.

11.6.2009

Heimskreppa til ársins 2015?

Á ársþingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) í Genf sem nú stendur yfir er m.a. fjallað um það hvort efnahagur heimsins fari að rétta úr kútnum eða hvort áframhaldandi þrengingar séu í spilunum. Í umræðum í nefnd um viðbrögð við kreppunni hefur komið fram það álit að hægur viðsnúningur hefjist á árinu 2010 sem þó sé háður því að fjármálakerfi heimsins fari að virka sem skyldi og fjármagnsflutningar verði með eðlilegum hætti. Svartsýnustu spár gera ráð fyrir því að störfum fari ekki að fjölga að ráði fyrr en í fyrsta lagi árið 2015.

11.6.2009

Bćttur hagur međ rafrćnum viđskiptum

Verulegur ávinningur er fólginn í innleiðingu rafrænna viðskipta en samkvæmt nýlegri erlendri rannsókn er ávinningur af upptöku rafrænna innkaupa áætlaður nema allt að 0,8% af vergri landsframleiðslu. Í tilfelli Íslands væri sparnaðurinn því um 11 milljarðar á ári. Áætlað er að 80-90% innkaupa nú séu á pappírsformi en hægt er að lækka kostnað um 70-75% með fyrir hvern reikning sem berst rafrænt í stað pappírs eða um 200 krónur.

11.6.2009

Stađlar seljast sem aldrei fyrr

Staðlar seljast vel um þessar mundir en í maí sló salan líkast til met. Í lok ársins 2008 voru tæplega 21 þúsund staðlar í gildi á Íslandi en þegar kreppir að opnast augu fólks fyrir gildi þess að nýta sér stöðluð viðmið, fyrirmyndir og samræmdar aðferðir. Staðlaráð selur staðla, stendur fyrir námskeiðum og veitir ráðgjöf, upplýsingar og þjónustu um hvaðeina er lýtur að stöðlum og stöðlun. Áfram miðar í starfi ráðsins og aðila vinnumarkaðarins við að búa til staðal til að byggja á vottunarkerfi um framkvæmd jafnlaunastefnu.

10.6.2009

Rćddu stöđu efnahagsmála

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, ræddu stöðu efnahagsmála í morgunþætti Bylgjunnar í morgun. Þar sagði Vilhjálmur forgangsmál að halda fyrirtækjunum í landinu gangandi og skapa þeim þannig umhverfi að þau þori að fjárfesta, byggja upp og ráða fólk í vinnu. Verðmætasköpunin verði að halda áfram.

9.6.2009

Opinn fundur um útirćktun á erfđabreyttu byggi

Umhverfisstofnun hefur til meðferðar umsókn fyrirtækisins ORF Líftækni hf. varðandi leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu byggi. Talsverð umræða hefur farið fram að undanförnu um þetta mál en í dag kl. 13 efnir Umhverfisstofnun til upplýsingafundar á Grand Hótel Reykjavík. Stofnunin telur mikilvægt að fólk sé upplýst um málið. ORF er stærsta fyrirtæki Evrópu á sínu sviði en 26 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu á Íslandi.

8.6.2009

„Allir ţurfa ađ standa saman"

„Þetta er eitthvað sem við höfum ekki þurft að horfast í augu við," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um stöðu ríkisfjármála í samtali við mbl.is. Fulltrúar SA og ASÍ funduðu í gær um stöðu efnahagsmála í Karphúsinu og einnig var fundað í fjármálaráðuneytinu. „Til þess að ná þessu þá þurfa allir að standa saman. Allir sem hafa einhvern snefil af ábyrgð í samfélaginu," segir Vilhjálmur um áform stjórnvalda um 150 milljarða niðurskurð á næstu þremur árum.

8.6.2009

Endurreisn fyrirtćkja vandmeđfarin

Aldrei í lýðveldissögunni hefur ástandið verið jafn alvarlegt hjá jafn mörgum fyrirtækjum. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður SA, í grein í Morgunblaðinu. Þór segir að bregðast verði skjótt við en endurreisn fyrirtækja sé vandmeðfarin. Reisa verði rekstur þeirra við í nánu samstarfi við eigendur og lykilstarfsmenn.

5.6.2009

Miklar hćkkanir hjá opinberum starfsmönnum og verkafólki á 1. ársfjórđungi 2009

Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu að meðaltali um 4,1% frá 1. ársfjórðungi 2008 til sama fjórðungs á þessu ári, en um 11,3% hjá opinberum starfsmönnum. Þetta er mikill munur, 7,2%, og er afar sjaldgæft að svo mikill munur sé á þróun þessara meginfylkinga á vinnumarkaðinum. Á fjórðungnum á undan, 4. ársfjórðungi 2008,  var hækkunin 6,5% á almennum vinnumarkaði frá sama tíma árið áður, en 12,7% hjá opinberum starfsmönnum, sem er  6,2% munur.

5.6.2009

Áfram rćtt um stöđugleikasáttmála

Samtök atvinnulífsins funduðu í morgun með ASÍ hjá ríkissáttasemjara ásamt samtökum atvinnurekenda og launafólks á opinberum vinnumarkaði. Þar var ákveðið að halda áfram að ræða gerð stöðugleikasáttmála. Reynt verður að skapa samstöðu um þær erfiðu ákvarðanir sem eru framundan og eyða óvissu um horfur í ríkisfjármálum og efnahagsmálum. Þar til niðurstaða þessara viðræðna verður ljós bíða viðræður um kjaramál.

5.6.2009

Vilhjálmur og Gylfi í Kastljósinu

Forsvarsmenn SA og ASÍ eru á einu máli um að lækkun stýrivaxta Seðlabankans í gær í 12% hafi verið allt of lítil og setji áform aðila um gerð stöðugleikasáttmála í uppnám. Rætt var við Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA, og Gylfa Arnbjörnsson, forseta Alþýðusambands Íslands í Kastljósi RÚV í gær. Þeir segja hvorki fólk né fyrirtæki standa undir vöxtunum. Aðilar vinnumarkaðarins hittast hjá Ríkissáttasemjara kl. 10 en fram hefur komið að SA muni ekki framlengja kjarasamninga við þær aðstæður sem atvinnulífið býr við.

4.6.2009

Kjaraviđrćđur lognast út af vegna hárra vaxta

 „Þessi stýrivaxtaákvörðun þýðir væntanlega að það lognast út af allar kjaraviðræður, því við erum ekki að fara að hækka laun á þessum forsendum, með stýrivexti svona háa," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við mbl.is. Stýrivextir hefðu þurft að lækka niður í eins stafs tölu til þess að það væri nokkurt vit í því að halda viðræðum áfram. Tilkynnt var um lækkun stýrivaxta um eitt prósentustig í 12% í morgun. Vilhjálmur segir ljóst að kjarasamningar verði ekki framlengdir og opnist því 1. júlí. Horfur á vinnumarkaði virðist ekki skipta Seðlabankann neinu máli.

4.6.2009

Auknar álögur á fyrirtćki

Til að tryggja atvinnuleysistryggingasjóði fé verða álögur á fyrirtæki auknar á næstunni, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við fréttastofu RÚV. Það skerði getu þeirra til að hækka laun.

4.6.2009

Ríkisbankarnir verđi útibú erlendra banka

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur heppilegt fyrir atvinnulífið að íslensku ríkisbankarnir færist í eigu erlendra banka og verði jafnvel útibú frá þeim. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Nauðsynlegt sé að bankarnir geti fjármagnað sig á góðum kjörum og margir erlendir bankar njóti mun betra lánshæfismats heldur en íslenska ríkið.

4.6.2009

Flýtum vegaframkvćmdum og sköpum störf

Hægt er að flýta vegaframkvæmdum á næstu 2-4 árum án þess að þær íþyngi ríkinu. Með því verða sköpuð störf og öryggi aukið í umferðinni sem sparar þjóðfélaginu milljarða króna á ári. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður SA , í grein í Fréttablaðinu. Þór segir hægt að ráðast í fjölda verkefna með sömu aðferðafræði og beitt var við byggingu Hvalfjarðarganganna með aðkomu lífeyrissjóða, alþjóðlegra þróunarbanka og íslenskra fjármálafyrirtækja. Hann nefnir  lagningu Sundabrautar, breikkun Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar og arðbæra gangagerð á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.

3.6.2009

Samtök atvinnulífsins og stjórnir lífeyrissjóđa

Morgunblaðið birtir í dag grein eftir Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, um SA og stjórnir lífeyrissjóða. Þar segir hann m.a.: „Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin hafa á undanförnum áratugum byggt upp lífeyrissjóði sem eru í senn öflugir, faglega reknir og dæmi um svið þar sem okkur Íslendingum hefur tekist sérlega vel til í samanburði við aðrar þjóðir." Vilhjálmur segir lífeyrissjóðina ekki hafna yfir gagnrýni en með greininni vilji hann svara ómálefnalegri og óvandaðri umfjöllun sem birst hefur í Morgunblaðinu um lífeyrissjóðina.

3.6.2009

Umtalsverđ lćkkun stýrivaxta nauđsynleg

 „Ef við fáum ekki umtalsverða vaxtalækkun þýðir ekkert að tala um launahækkanir," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í Fréttablaðinu í dag. Viðræður um stöðugleikasáttmála héldu áfram milli SA, ASÍ og hins opinbera í gær. Rætt var við fulltrúa sveitarfélaga og forystumenn ríkisstjórnarinnar. Vilhjálmur segist hafa lagt áherslu á að fjárlagahallanum verði náð hraðar niður og fjárhagsáætlanir gerðar til þriggja ára. Einnig hafi verið talað um aðkomu lífeyrissjóða að atvinnulífinu. Beðið er ákvörðunar Seðlabankans um stýrivexti.

2.6.2009

Tryggja verđur útstreymisheimildir til orkufreks iđnađar

Umhverfisráðuneytið tilkynnti á föstudag að ríkisstjórnin hafi samþykkt að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi um 15% frá árinu 1990 til ársins 2020. Þetta hefur nú verið kynnt sem markmið Íslands í viðræðum um nýtt alþjóðlegt samkomulag til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda. Yfirlýst markmið nær til alls útstreymis á Íslandi nema því sem tengist orkufrekum iðnaði. Þess misskilnings virðist gæta að ekki sé þörf á að viðhalda íslenska ákvæðinu svokallaða.

2.6.2009

Öguđ hagstjórn forsenda fastgengis

„Að taka upp fastgengi er ekki eitthvað sem við getum ákveðið að gera á morgun," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við Fréttablaðið. Hann segir að í tengslum við gerð stöðugleikasáttmála hafi verið rætt um möguleikann á því að taka upp fastgengisstefnu, enda sé núverandi peningamálastefna komin í þrot.

30.5.2009

Óbreyttar launahćkkanir ekki í myndinni

SA og ASÍ funduðu í gær hjá ríkissáttasemjara ásamt samningsaðilum á opinberum vinnumarkaði. Til umræðu var tillaga SA um breytingar á kjarasamningum milli aðildarfélaga ASÍ og SA gerðum 17. febrúar 2008 og síðar. Um þessa tillögu hefur ekki náðst samkomulag en af hálfu SA var tekið skýrt fram að samningsbundnar hækkanir komi ekki til framkvæmda óbreyttar þann 1. júlí næstkomandi og 1. janúar 2010.

29.5.2009

Skattahćkkanir rýra lífskjör

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að skattahækkanir stjórnvalda rýri lífskjörin í landinu. Auknar álögur á bensín, olíu, áfengi og tóbak komi þó ekki á óvart. Það sé gamalkunn leið að skattleggja umferð og syndir.

28.5.2009

Unniđ gegn misnotkun á bótakerfi

Svindl atvinnubótaþega á vinnumarkaði getur sýkt heilu atvinnugreinarnar, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann óttast að svört atvinnustarfsemi muni aukast á næstu mánuðum. Verið er að þróa sérstakt kerfi sem eykur meðal annars eftirlit með misnotkun.

28.5.2009

Óţarfar áhyggjur af ţjónustutilskipun ESB

 „Skoðun okkar er að þessir fyrirvarar séu sprottnir af óþarfa áhyggjum," segir Guðrún Björk Bjarnadóttir, lögmaður hjá Samtökum atvinnulífsins, um fyrirvara ríkisstjórnarinnar við þjónustutilskipun ESB. Ríkisstjórnin áskilur sér rétt til að reka alla almannaþjónustu áfram eftir sínu höfði og að réttindi á íslenskum vinnumarkaði haldist. Guðrún Björk segir í samtali við mbl.is að ákveðins misskilnings gæti um að tilskipunin fjalli um vinnurétt. Þá undirstrikar hún að verði almannaþjónusta skilgreind öðruvísi í íslenskum lögum en annars staðar, þá komist íslensk stjórnvöld ekki upp með það.

27.5.2009

Formađur SA rćr á ný miđ

Þór Sigfússon, formaður SA, mun láta af störfum hjá Sjóvá en nýr forstjóri, Hörður Arnarson, var ráðinn í dag. Þór mun starfa við hlið Harðar um sinn við að leggja grunn að endurskipulagningu á rekstri félagsins. Hörður Arnarson, var áður forstjóri Marel Food Systems og er SA að góðu kunnur en hann gekk úr stjórn Samtaka atvinnulífsins í vor eftir að hafa setið þar um tveggja ára skeið.

27.5.2009

Komin á endapunkt međ krónuna

Aðilar vinnumarkaðarins og hið opinbera leita nú leiða til þess að koma á stöðugleikasáttmála. Hluti af stöðugleikasáttmála er að hækka gengið og festa það, segir framkvæmdastjóri SA í samtali við Morgunblaðið í dag. „Menn eru komnir á endapunkt með gjaldmiðilinn og reyna að leita allra leiða. Hluti af stöðugleikasáttmála er að hækka gengið og festa það. Þetta er eitt af því sem menn eru mikið að velta fyrir sér," segir Vilhjálmur Egilsson. Hann segir gjaldeyrishöftin staðfesta að menn þori ekki að vera með frjálsan gjaldmiðil. „Á meðan við erum með gjaldeyrishöftin er erfitt að byggja upp tiltrú á krónuna."

26.5.2009

Fundur á föstudag gćti skipt sköpum

Aðilar vinnumarkaðarins og hins opinbera munu hittast á fundi á föstudag sem gæti skipt sköpum í þeim viðræðum sem hafa staðið yfir. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við mbl.is. Hann segir hækkun vísitölu neysluverðs ekki hafa áhrif á viðræðurnar en hækkunina megi nánast eingöngu rekja til gengis krónunnar. Formaður SA átti fund í gærkvöld með forystumönnum ríkisstjórnarinnar og öðrum aðilum á vinnumarkaði um stöðugleikasáttmála sem unnið er að því að koma á.

25.5.2009

Gátlisti fyrirtćkja vegna inflúensufaraldurs

Á vef SA má nálgast gátlista sem tekinn var saman fyrr á þessu ári af aðilum sem unnu að landsáætlun vegna viðbragða við alheimsinflúensu. Beinist listinn sérstaklega að fyrirtækjum og er ætlað styðja þau við gerð eigin viðbragðsáætlana vegna mannskæðra inflúensufaraldra og fyrirbyggja að rekstur fyrirtækja rofni vegna þeirra. Eitt tilfelli inflúensu A (H1N1) hefur verið staðfest hér á landi.

25.5.2009

Eignaumsýslufélags ríkisins hafi sem minnst ađ gera

„Breytingarnar allar eru til bóta," segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um nýtt frumvarp um stofnun eignaumsýslufélags ríkisins, en Hannes fundaði með efnahags- og skattanefnd Alþingis á föstudaginn sem hefur málið til umfjöllunar. Hannes segir í samtali við Fréttablaðið að með nýju frumvarpi verði það aðeins örfá fyrirtæki sem endi hjá slíku eignaumsýslufélagi. SA óski þess að félagið muni hafa sem minnst að gera.

25.5.2009

Bankarnir geri upp í erlendum gjaldmiđli

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir skynsamlegra að bankarnir geri reikninga sína upp í evrum eða öðrum erlendum gjaldmiðli en að erlendum lánum viðskiptavina bankanna sé breytt í íslenskar krónur eins og viðskiptaráðherra hefur lagt til. Reikna megi með því að greiðslubyrði af venjulegu erlendu láni yrði fjórfalt hærri nú ef það væri fært yfir í krónur miðað við stöðuna fyrir ári. Þetta kom fram í fréttum RÚV.

20.5.2009

Fyrningarleiđin er ţjóđnýtingarstefna

Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er ákvæði um upptöku aflaheimilda sem hefjast á haustið 2010. Í sjávarútveginum hafa menn þungar áhyggjur af þessum áformum og sama gildir um bankana, birgja og aðra viðskiptamenn sjávarútvegsins. Sjávarútvegurinn þarf, eins og aðrar atvinnugreinar, að búa við stöðugleika og sæmilega vissu um framtíðarskilyrði til þess að framþróun og nauðsynlegar fjárfestingar eigi sér stað. Þessi áformaða eignaupptaka án bóta hefur þegar haft áhrif á  fjármögnun í bönkum þar sem óvissa hefur verið aukin um tryggingar og framtíðarhorfur fyrirtækjanna.

20.5.2009

Tillaga SA um breytingar á kjarasamningum

Samtök atvinnulífsins lögðu fram í morgun tillögu um breytingar á kjarasamningum milli aðildarfélaga ASÍ og SA gerðum 17. febrúar 2008 og síðar. Tillöguna má nálgast hér á vef SA þar sem munu birtast reglulega fréttir af framgangi viðræðna.

20.5.2009

Leggja ţarf grunn ađ stöđugleika

Breitt samráð samtaka launafólks, atvinnurekenda, ríkis og sveitarfélaga hófst formlega í gær. Verkefnið er að ná breiðri samstöðu um markvissa áætlun í efnahags- kjara- og félagsmálum. Stefnt er á að niðurstaða liggi fyrir 9. júní. Á fundinum voru hátt í sextíu fulltrúar af öllum vinnumarkaðnum. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að mikið sé undir.

19.5.2009

Forgangsmál ađ tryggja atvinnu

Rætt var við formann SA, Þór Sigfússon, í morgunþætti Bylgjunnar í morgun. Tilefnið var stefnuræða forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, sem flutt var í gær. Þór sagði atvinnulífið hafa miklar áhyggjur af ákveðnum stefnumálum ríkisstjórnarinnar, t.d. boðaðri fyrningarleið í sjávarútvegi sem snerti mikinn fjölda fyrirtækja og hafi í raun nú þegar áhrif á allt atvinnulífið. Mjög alvarlegt sé fyrir heimili og fyrirtæki að ríkisstjórnin finni ekki leiðir til að lækka vexti og styrkja gengi krónunnar.

19.5.2009

Horft til framtíđar á fjármálamarkađi

Ársrit Samtaka fjármálafyrirtækja 2009 er komið út. Yfirskrift þess er Horft til framtíðar en þar er að finna yfirgripsmikið yfirlit yfir þróun á fjármálamörkuðum og framtíðarhorfur. Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri SFF, segir m.a. í formála að framtíð íslenska hagkerfisins velti að miklu leyti á því að vel takist til við að endurreisa fjármálakerfið. Öflug fjármálafyrirtæki séu forsenda sterks atvinnulífs. Til skemmri tíma sé  mjög brýnt að ná stýrivöxtum verulega niður og skapa aðstæður til að afnema gjaldeyrishöft.

19.5.2009

Málţing: Ađ tala fyrir Íslands hönd

Málþing sem ber yfirskriftina Að tala fyrir Íslands hönd verður haldið í Salnum í Kópavogi miðvikudaginn 20. maí kl. 8.15-12.00. Þar verða m.a. kynntar niðurstöður úr viðhorfsrannsókn í Danmörku, Þýskalandi og Bretlandi um viðhorf almennings til Íslands. Boðað er til málþingsins í samstarfi hinna ýmsu samtaka atvinnurekenda m.a. SA, Útflutningsráðs, Almannatengslafélags Íslands og Ferðamálastofu. Innlendir og erlendir fyrirlesarar munu fjalla um orðspor Íslands, fortíð og framtíð.

18.5.2009

Ágreiningur banka og lífeyrissjóđa fyrir dómstóla

Líklegt er að leysa þurfi úr ágreiningi skilanefnda bankanna og lífeyrissjóðanna vegna gjaldmiðlavarnarsamninga fyrir dómstólum. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er hlynntur dómstólaleiðinni en tugir millarða eru í húfi.

18.5.2009

Ótrúleg afstađa fulltrúa AGS

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Vilhjálmur Egilsson, er gáttaður á því að fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vilji ekki að stýrivextir verði lækkaðir á Íslandi. Franek Rozwadowsky, sendifulltrúi AGS, sagði á fundi Samtaka fjármálafyrirtækja á fimmtudaginn að ótímabært væri að lækka stýrivexti frekar þvert á það sem Seðlabankinn hefur boðað, það er að óbreyttu megi búast við því að stýrivextir verði lækkaðir umtalsvert í byrjun júní. Þetta kom fram í fréttum RÚV.

15.5.2009

Fjölbreytni í atvinnulífinu verđi aukin

Samtök atvinnulífsins, FKA - Félag kvenna í atvinnurekstri og Viðskiptaráð Íslands telja nauðsynlegt að efla hlut kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs.  Á næstu fjórum árum munu þessir aðilar því hvetja til þess og leggja ríka áherslu á að konum í forystusveit íslensks viðskiptalífs verði fjölgað þannig að hlutfall hvors kyns verði ekki undir 40% í lok árs 2013. CreditInfo mun árlega mæla árangur verkefnisins.

15.5.2009

Aukiđ flćkjustig og misráđin neyslustýring

Heilbrigðisráðherra hefur viðrað hugmyndir um sérstakan skatt á sykraða gosdrykki í þeim tilgangi að draga úr neyslu þeirra og stuðla með þeim hætti að bættri tannheilsu landsmanna. Þessi áform ganga þvert á þá skattastefnu sem Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög þeirra hafa barist fyrir um árabil sem felst í einföldun, hlutleysi og skilvirkni skattkerfisins.

15.5.2009

Brýnt ađ lćkka vexti

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir mjög brýnt að lækka stýrivexti verulega. Hinir háu vextir sem Íslendingar búi við leiði til gjaldþrota og rýrnunar á eignum bankanna. Hannes segist hafa orðið fyrir vonbrigðum að heyra talsmann AGS lýsa því að ekki væri tilefni til að lækka stýrivexti frekar. Samtök atvinnulífsins séu því ósammála. Þetta kom fram í fréttum RÚV.

14.5.2009

Víđtćk samvinna nauđsynleg

Í ítarlegri samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna er þung áhersla lögð á samvinnu við aðila vinnumarkaðarins á fjölmörgum sviðum. Þessar áherslur eiga sér líklega ekki fordæmi hér á landi og endurspegla annars vegar það grafalvarlega ástand sem ríkir í efnahagslífinu og þá ríku kröfu sem gerð hefur verið um fjölþætt samstarf leiðandi aðila með það að markmiði að tryggja stöðugleika til frambúðar og efla atvinnustarfsemi. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA sem kemur út í dag.

14.5.2009

Óraunhćfar hugmyndir um styttingu vinnuviku

Í samstarfsyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar er ákvæði um aðgerðir til þess að sporna gegn atvinnuleysi og þess getið í því samhengi að metnir verði kostir þess að stytta vinnuvikuna. Þetta kemur nokkuð á óvart því vinnutími er viðfangsefni kjarasamninga og meðal samningsaðila hafa undanfarin ár ekki farið fram neinar umræður um styttingu vinnuvikunnar. Orlof er töluvert lengra á Íslandi en í flestum öðrum ríkjum og sérstakir frídagar sömuleiðis fleiri. Ársvinnutími í dagvinnu er hvergi lægri nema í Þýskalandi og Frakklandi og hvorki eru tilefni né aðstæður til þess nú að eyða miklum tíma í skoðun á því hvort stytta eigi vinnuvikuna á Íslandi.

14.5.2009

Bandaríkin gegna lykilhlutverki í loftslagsmálunum

Um þessar mundir stendur yfir samningaferli þar sem aðildarríki loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna freista þess að komast að niðurstöðu um hvernig skuli draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá 2013. Á árinu 2012 lýkur tímabili Kyoto-bókunarinnar sem hófst á síðasta ári en samkvæmt henni var gert ráð fyrir að útstreymi frá iðnríkjum verði 5% minna á tímabilinu borið saman við árið 1990. Ný ríkisstjórn Bandaríkjanna gegnir lykilhlutverki í þessum samningum. Nýlega hefur aðalsamningamaður Bandaríkjanna lagt línurnar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og felast skilaboðin í 10 meginþáttum.

14.5.2009

SA tengiliđur viđ Global Compact verkefni SŢ

Ákveðið hefur verið að Samtök atvinnulífsins verði tengiliður á Íslandi við Global Compact verkefni Sameinuðu þjóðanna. Með því vilja SÞ hvetja fyrirtæki til að sýna samfélagslega ábyrgð í verki með því að tileinka sér tíu viðmið. Um þessar mundir taka þátt í verkefninu 4.700 fyrirtæki um allan heim og þar af eru um 400 á Norðurlöndum.

14.5.2009

SA og Félagsráđgjafafélag Íslands semja

Samtök atvinnulífsins og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert með sér kjarasamning sem nær til félagsmanna sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins og gegna störfum sem krefjast háskólamenntunar. Samningurinn tekur gildi 1. júlí 2009. Með samningnum gengur FÍ inn í kjarasamning sem SA gerðu við 14 aðildarfélög BHM á síðasta ári.

13.5.2009

Orlofsuppbót 2009

Þann 1. maí síðastliðinn hófst nýtt orlofsár. Samkvæmt flestum kjarasamningum SA greiðist orlofsuppbót þann 1. júní ár hvert. Við útreikning orlofsuppbótar er litið til vinnutíma og starfshlutfalls á síðasta orlofsári, þ.e. frá 1. maí 2008 til 30. apríl 2009. Full orlofsuppbót á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2009 er kr. 25.200 fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn, en þeir fá greiddar kr. 19.000.

12.5.2009

Óvissa um kvótann kippir stođunum undan sjávarútvegsfyrirtćkjum

Ríkisbankarnir hafa yfirtekið fjögur stór fyrirtæki vegna mikilla rekstrarerfiðleika síðustu mánuði en búist er við að þeir fái mun fleiri félög í fangið á næstu mánuðum. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að óvissa um fiskveiðistjórnunarkerfið valdi því að endurfjármögnun sjávarútvegsfyrirtækja og uppbygging í greininni sé í uppnámi og bankarnir haldi að sér höndum.

11.5.2009

Skortur á erlendu lánsfé ţrengir ađ fólki og fyrirtćkjum

Skortur á erlendu lánsfé kemur til með að þrengja kosti fólks og fyrirtækja á lánamarkaði. Samningar um að erlendir kröfuhafar eignuðust nýju bankana hefðu breytt allri þeirri mynd og líkast til orðið til að styðja við gengi krónu, að mati framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Þetta kemur fram í umfjöllun Fréttablaðsins.

11.5.2009

Bráđavandi atvinnulífsins verđi leystur

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Vilhjálmur Egilsson, segist í samtali við fréttastofu RÚV vera í meginatriðum sammála nýrri ríkisstjórn um áherslur í efnahagsmálum. Einkum því að skapa atvinnu, lækka vexti, afnema gjaldeyrishöft, koma fjárfestingum af stað og skapa þær aðstæður að fyrirtæki þori að ráða fólk í vinnu. Vilhjálmur segist þó vera ósammála þeim leiðum sem fara eigi í sjávarútvegi. Einnig að stofna eigi eignaumsýslufélag um illa stödd fyrirtæki.

8.5.2009

Mikil samneysla á Íslandi

Af pólitískri umræðu mætti stundum ætla að Ísland ætti langt í land með að flokkast sem norrænt velferðarríki. Það er þó fjarri sanni þegar litið er á mælikvarða á borð við hlutdeild samneyslu og heildartekjur hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu.

8.5.2009

Yfirlýsing frá Samtökum atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins skora á Samfylkinguna og Vinstri hreyfinguna - grænt framboð að hverfa frá öllum hugmyndum um upptöku og uppboð aflaheimilda sjávarútvegsfyrirtækja. Það er mikilvægt að stöðugleiki ríki í rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja eins og annarra fyrirtækja. Á þeim erfiðu tímum sem í hönd fara er samvinna og samstarf stjórnvalda og atvinnulífsins nauðsynlegt. Samtök atvinnulífsins eru reiðubúin til þess að eiga gott samstarf við nýja ríkisstjórn en þær aðferðir sem kynntar hafa verið gagnvart sjávarútvegi og afleiðingar þeirra tefla óhjákvæmilega slíku samstarfi í tvísýnu.

8.5.2009

Stórt skref fyrir Seđlabankann en lítiđ fyrir atvinnulífiđ

„Þetta er stórt skref fyrir Seðlabankann en mjög lítið skref fyrir atvinnulífið," segir Þór Sigfússon, formaður SA, í samtali við Fréttablaðið um lækkun stýrivaxta Seðlabankans um 2,5 prósentustig. „Þessi aðgerð kemur ekki í veg fyrir að fyrirtækjunum í landinu haldi áfram að blæða út," segir Þór. Vextirnir þurfi að komast undir tíu prósent sem fyrst og helst lægra."

7.5.2009

Enginn ráđinn og ekkert fjárfest vegna ofurvaxta

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að fyrirtæki þori hvorki að fjárfesta né ráða til sín fólk vegna himinhárra vaxta.  „Í stað þess að lækka vexti um 2,5 prósentur ættu stýrivextirnir að vera 2,5 prósent," segir Vilhjálmur. Um mikið fall á gengi krónunnar sem myndi fylgja slíkri lækkun telur Vilhjálmur að þau áhrif yrðu tímabundin og jákvæð til lengri tíma.

7.5.2009

Lćkkun stýrivaxta fagnađ í Evrópu

Seðlabanki Evrópu lækkaði í dag stýrivexti um 0,25 prósentur og eru þeir nú 1%. Danski seðlabankinn fylgdi í kjölfarið og lækkaði stýrivexti í 1,65% en Íslendingar mega búa við 13% stýrivexti eftir lækkun dagsins hjá Seðlabanka Íslands. Evrópusamtök atvinnulífsins, BUSINESSEUROPE, fagna því að stýrivextir séu nú aðeins 1% á evrusvæðinu og segja nauðsynlegt að grípa til óhefðbundinna meðala til að koma krafti í atvinnulífið á nýjan leik.

7.5.2009

Stýrivextir ćttu ađ vera 2,5%

 „Vissulega er 2,5 prósentustiga vaxtalækkun meiri lækkun en þeir hafa áður kynnt, það er vissulega jákvætt. Við hefðum hins vegar ekki viljað sjá vextina lækka um 2,5 prósentur heldur að þeir hefðu verið færðir niður í 2,5%," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við mbl.is. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans um 2,5 prósentur í 13,0%.

6.5.2009

Atvinnulífiđ hrópar eftir ađgerđum

Samtök atvinnulífsins telja að það muni valda óbætanlegum skaða ef stýrivextir verði ekki lækkaðir verulega í vikunni. SA áttu í gær fund með fulltrúum ríkisstjórnarflokkanna ásamt aðilum vinnumarkaðarins. Þór Sigfússon, formaður SA, segir atvinnulífið hrópa eftir aðgerðum og því hafi verið komið til skila.

5.5.2009

Háir vextir eru ađ sliga atvinnulífiđ

Það sem helst leiðir til þess að fyrirtæki í vandræðum fá ekki þá aðstoð frá bönkunum sem þau þurfa á að halda eru slæm lánakjör og þar ræður vaxtastigið mestu. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA í samtali við Morgunblaðið í dag. Hann segir nauðsynlegt að stýrivextir verði lækkaðir sem allra fyrst. Þeir eru nú 15,5 prósent og taka lánakjör banka mið af þeim. „Hjá fyrirtækjunum er staðan að versna dag frá degi öðru fremur vegna vaxtanna," segir Vilhjálmur.

4.5.2009

Frambođ á starfsnámi verđi aukiđ í atvinnulífinu

„Ég held að það sé gríðarlega þýðingarmikið núna að skoða alla þessa fleti og get ekki annað sagt en að mér finnst allar hugmyndir Vinnumálastofnunar til sóma og rétt að ræða þær," segir Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, í frétt í Morgunblaðinu í dag.

4.5.2009

Gátlisti fyrirtćkja vegna inflúensufaraldurs

Á vef SA má nú nálgast gátlista sem tekinn var saman fyrr á þessu ári af aðilum sem unnu að landsáætlun vegna viðbragða við alheimsinflúensu. Beinist listinn sérstaklega að fyrirtækjum og er ætlað styðja þau við gerð eigin viðbragðsáætlana vegna mannskæðra inflúensufaraldra og fyrirbyggja að rekstur fyrirtækja rofni vegna þeirra.

2.5.2009

Störf og verđmćti tapast vegna óvissu

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við fréttastofu RÚV störf og verðmæti tapast í atvinnulífinu meðan þess er beðið að ný ríkisstjórn verði mynduð. Vegna óvissu í stjórnmálum hafi atvinnurekendur þurft að bíða með margar ákvarðanir varðandi rekstur, fjárfestingar og mannahald. Vilhjálmur segir ekki óðeðlilegt að það taki tíma að mynda ríkisstjórn en atvinnulífið þurfi á vissu að halda um framtíðina.

29.4.2009

Mun verđhjöđnun fylgja efnahagshruni?

Niðurstöður könnunar á stöðu og framtíðarhorfum hjá 500 stærstu fyrirtækjum landsins bera með sér margvísleg einkenni banka- og gjaldmiðilskreppunnar. Eins og í samsvarandi könnun í desember eru núverandi aðstæður í atvinnulífinu afleitar. Stjórnendur eiga almennt ekki von á að breyting verði til batnaðar á næstu sex mánuðum en ívið meiri bjartsýni kemur fram þegar horft er ár fram í tímann. Öll einkenni eftirspurnar- og verðbólguþrýstings eru horfin úr hagkerfinu.

28.4.2009

Óvissu verđi eytt

Á fundi nýrrar stjórnar Samtaka atvinnulífsins sem haldinn var í dag var áhersla lögð á að stjórnmálalegri óvissu verði eytt sem fyrst og að stefna landsins verði mótuð til framtíðar. Verulegur árangur í niðurskurði ríkisútgjalda sé forsenda þess að landið komist hratt upp úr öldudalnum.

28.4.2009

Sóknarfćri á sviđi íslenskrar hönnunar

Íslensk fatahönnun veltir um fimm milljörðum króna á ári og innlend sala er áætluð um tveir milljarðar króna. Á síðasta ári seldu íslensku fyrirtækin Nikita, Elm Design og Andersen & Lauth fyrir tvo og hálfan milljarð króna erlendis. Félagar í Fatahönnunarfélagi Íslands eru 50 og um 500 manns vinna greininni þar sem veruleg sóknarfæri eru til staðar. Til samanburðar má nefna að 10.000 manns vinna við fatahönnun í Danmörku, greinin veltir þar 544 milljörðum og fatahönnun er í 4. sæti yfir útflutning Dana.

27.4.2009

Rćtt um kosti rafrćnna reikninga

Skýrslutæknifélag Íslands, Icepro og FUT efna til ráðstefnu um rafræna reikninga á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 30. apríl næstkomandi frá kl. 13:00-16:15. Yfirskrift ráðstefnunnar er Framtíðin er núna - Rafrænir reikningar.

24.4.2009

Upptökur frá ađalfundi SA 2009

Á vef SA má nú nálgast ræður og innslög frá aðalfundi SA sem fram fór miðvikudaginn 22. apríl. Ræðu Þórs Sigfússonar, formanns SA, ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og stutt viðtöl við fjölda stjórnenda úr íslensku atvinnulífi.

24.4.2009

Erindi Ásbjörns Gíslasonar á ađalfundi SA

Lykilforsenda endurreisnar samfélagsins er að Samtök atvinnulífsins, verkalýðshreyfingin og stjórnvöld komi á þjóðarsátt á ný.  Tryggja verður frjóan farveg fyrir atvinnustarfsemi í landinu og stíga raunhæf skref í átt að stöðugleika og að viðskipti og atvinnustarfsemi blómstri á ný. Þetta sagði Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa á aðalfundi SA. Hann Samskip hafa þurft að draga saman í rekstri, eins og önnur félög. Fyrirtækið muni hefja að ráða fólk í vinnu um leið og hjólin fara að snúast aftur - tugi starfa - um land allt.

23.4.2009

Andri Ţór Guđmundsson á ađalfundi SA

Það er atvinnulífið sem skapar störfin og það er þörf ábending nú rétt fyrir kosningar þegar stjórnmálamenn keppast við að bjóða sem flest störf, eins og þeir stundi hér stórframleiðslu á alls kyns störfum. Þetta sagði Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar á aðalfundi SA. Hann sagði íslenskt atvinnulíf ekki þurfa á því að halda að fara 60 ár aftur í tímann með höftum, neyslustýringu, pólitískum klíkuskap og spillingu. Íslenskt atvinnulíf þyrfti ennfremur ekki á því að halda að stofnað sé ríkishlutafélag til að endurskipuleggja þjóðhagslega mikilvæg atvinnufyrirtæki.

22.4.2009

Erindi Ţórs Sigfússonar á ađalfundi SA

Aðalfundur SA 2009 fór fram á Hilton Reykjavík Nordica á síðasta degi vetrar. Um 400 manns sóttu fundinn. Þór Sigfússon hóf opna dagskrá með erindi sem má nálgast á vef SA. Þór sagði Samtök atvinnulífsins hafa ítrekað að koma verði atvinnulífinu af stað til að hægt sé að skapa störf og lækka verði vexti hratt. „Vaxtastefnan hérlendis hefur verið sem snara um háls atvinnulífsins. Háir vextir hérlendis  lama hundruð fyrirtækja í hverjum mánuði og koma þeim úr umferð. Munum að hávaxtastefnan er heimatilbúin og ein stærsta einstaka ástæðan fyrir því hversu illa er komið fyrir landinu okkar," sagði Þór. 

Þór Sigfússon, formaður SA

22.4.2009

Erindi forsćtisráđherra á ađalfundi SA

„Bankarnir, útflutningsfyrirtækin og atvinnu- og viðskiptalífið eru ómissandi hlekkir í þeirri endurreisn sem framundan er og það eru okkar öflugu lífeyrissjóðir líka." Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, á aðalfundi SA . Jóhanna sagðist taka undir yfirskrift fundarins, Atvinnulífið skapar störfin, og lýsti því yfir að hún væri tilbúin í samstarf við atvinnulífið um sköpun starfa sem flest verði til á hinum almenna markaði. 

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra

22.4.2009

Ţór Sigfússon endurkjörinn formađur SA

Á aðalfundi SA 22. apríl 2009 var Þór Sigfússon endurkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins. Kosningin fór fram með rafrænum hætti og var þátttaka góð. Þór var rétt kjörinn formaður starfsárið 2009-2010 með 74% greiddra atkvæða. Þór er að ljúka sínu fyrsta starfsári sem formaður SA.

22.4.2009

Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins fyrir 2009-2010

Lýst hefur verið kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2009 til 2010. Nýir koma inn í stjórnina þau Adolf Guðmundsson, Gullbergi ehf., Finnur Árnason, Högum hf., Margrét Kristmannsdóttir, PFAFF hf., Sigríður Margrét Oddsdóttir, Símanum hf., Jón Sigurðsson, Össuri hf. og Kristín Pétursdóttir, Auði Capital.  Úr stjórninni ganga þau Eiríkur Tómasson, Þorbirni hf., Brynjólfur Bjarnason, Skipti hf., Kristín Jóhannesdóttir, Baugur Group hf., Hrund Rudolfsdóttir, Milestone ehf., Hörður Arnarson, Marel Food Systems hf. og Halldór J. Kristjánsson, Landsbanka Íslands hf.

22.4.2009

Stefnir í fjölmenni á ađalfundi SA í dag

Hátt í 400 manns hafa boðað komu sína á aðalfund Samtaka atvinnulífsins sem fer fram í dag, miðvikudaginn 22. apríl. Yfirskrift fundarins er Atvinnulífið skapar störfin en fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn hefst kl. 14:00 með venjulegum aðalfundarstörfum en opin dagskrá hefst kl. 15:00 með erindi formanns SA, Þórs Sigfússonar, og ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Þrír stjórnendur úr atvinnulífinu munu leggja á ráðin um hvernig hægt sé að skapa 20.000 störf, þau Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa og Steinunn Sigurðardóttir, fatahönnuður.

21.4.2009

Kynjahlutföll jöfnuđ í lífeyrissjóđum

Samtök atvinnulífsins skipa í 24 sæti stjórnarmanna í 9 lífeyrissjóðum. SA hafa markað þá stefnu að auka fjölbreytni stjórnarmanna og rétta hlut kynjanna innan stjórnanna. Konur skipa nú tæpan helming (46%) þeim sætum sem SA skipa í lífeyrissjóðunum og fjölgar um þrjár milli ára. Árið 2008 skipuðu konur þriðjung af sætum SA.  Þetta kemur m.a. fram í ársskýrslu SA sem kemur út á aðalfundi samtakanna nk. miðvikudag. Yfirlit yfir fulltrúa SA má nú nálgast hér á vefnum.

20.4.2009

Rćktun á hampi í Rödd atvinnulífsins

Fimmti umræðuþáttur SA um íslenskt atvinnulíf verður sendur út á vef SA í dag kl. 17-18. Nýsköpun og menntamál verða þar í forgrunni en m.a. verður rætt um tilraunaræktun á hampi sem hefst í vor til að framleiða vefnaðarvöru sem verður nýtt í íslensk föt. Markmiðið er að framleiða algjörlega sjálfbæra náttúrulega vöru. Einnig verður kynnt til sögunnar ný íslensk vara sem hefur hlotið góðar viðtökur: Hlaupabretti fyrir hesta.

20.4.2009

Kosningu formanns SA lýkur á miđvikudaginn

Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins stendur nú yfir meðal aðildarfyrirtækja samtakanna og er þátttaka í kosningunni góð. Þór Sigfússon, formaður SA, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður. Þór er að ljúka sínu fyrsta starfsári sem formaður Samtaka atvinnulífsins en hann tók við formennsku á aðalfundi  SA þann 18. apríl 2008. Rafrænni kosningu lýkur kl. 12:00 á aðalfundardag þann 22. apríl 2008 - aðildarfyrirtæki SA eru hvött til að taka þátt í kosningunni.

20.4.2009

Ferđaţjónusta, ís, hönnun og útrás

Upptaka af fjórða umræðuþætti SA um íslenskt atvinnulíf er nú aðgengileg á vef SA. Í þættinum er rætt við Árna Gunnarsson, formann Samtaka ferðaþjónustunnar og framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands,  Valdimar Hafsteinsson, framkvæmdastjóra Kjöríss, Svönu Helen Björnsdóttur, framkvæmdastjóra Stika og Þóreyju Vilhjálmsdóttur framkvæmdastjóra Hönnunarmiðstöðvar Íslands.

19.4.2009

Nýtt fréttabréf SA komiđ á vefinn

Á vef SA má nú nálgast nýjasta tölublað fréttabréfs samtakanna, Af vettvangi. Þar er m.a. fjallað um þær forsendur sem þurfa að vera fyrir hendi til að hægt sé að skapa ný störf. Fjallað er um aðalfund SA sem fram fer n.k. miðvikudag og kosningu formanns Samtaka atvinnulífsins sem nú stendur yfir. Þá er þar að finna upplýsingar um nýtt gjald til sjúkrasjóðs háskólamanna og vakin athygli á fundi umhverfishóps SA í lok mánaðarins þar sem staðan í alþjóðlegum viðræðum um loftslagsmál verður til umræðu.

17.4.2009

Ţađ er veriđ ađ pína ţjóđina

„Það er verið að pína þjóðina," sagði Margeir Pétursson stjórnarformaður MP Banka í Rödd atvinnulífsins. Margeir telur fullmikið af því góða að hafa hér bæði himinháa vexti og gjaldeyrishöft á sama tíma. Hagsmunir erlendra kröfuhafa virðist í forgrunni og það sé slæmt ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og peningastefnunefnd Seðlabankans taki að sér að verða innheimtumenn þeirra sem sé ekki þeirra hlutverk.

17.4.2009

Grćn lausn á jöklabréfavanda?

Í umræðum á Alþingi í dag kom fram að unnið væri hörðum höndum að því að leysa þau vandamál, sem svonefnd jöklabréf hafa skapað. Þetta kemur fram á mbl.is. Guðjón Már Guðjónsson, í Hugmyndaráðuneytinu, reifaði í gær hugmyndir í Rödd atvinnulífsins um hvernig mætti leysa þennan tiltekna vanda með grænum hætti.

16.4.2009

Atvinnulífiđ skapar störfin

Aðalfundur SA er haldinn á miðvikudaginn í næstu viku undir yfirskriftinni „Atvinnulífið skapar störfin". Tilgangur samtakanna með þessari yfirskrift er að vekja fólk til umhugsunar um að 20 þúsund ný störf verða því aðeins til á næstu árum að fyrirtækin í landinu búi við starfsskilyrði sem hvetja þau til fjárfestinga og aukinna umsvifa og þar með til þess að ráða fleiri starfsmenn. Ríki eða sveitarfélög munu ekki verða leiðandi í nýrri atvinnusókn og því síður munu auknar álögur á atvinnulífið eða þá einstaklinga sem fjárfesta í atvinnulífi hjálpa til við að skapa ný störf. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA sem kemur út í dag.

16.4.2009

Hver prósenta í hagvexti skapar 800-900 störf

Á síðustu 45 árum, frá 1963-2008, jókst landsframleiðsla að jafnaði um 3,9% á ári og störfum fjölgaði um 2,0%. Hverri prósentu í hagvexti fylgdi þannig fjölgun starfa um hálft  prósent. Ef þetta samband verður í gildi áfram á næstu árum þarf landsframleiðslan að vaxa um tæpan fjórðung fram til ársins 2015 til þess að fjölgun starfa um 20.000 verði að veruleika. Að því gefnu að landsframleiðslan minnki um 10% á þessu ári og að enginn hagvöxtur verði á næsta ári þá þarf hagvöxtur að vera 4,5% árlega að jafnaði á árunum 2011-2015 svo þetta markmið náist.  Full atvinna næst ekki með öðrum hætti að því gefnu að jafnvægi verði í búferlaflutningum til og frá landinu á komandi árum.

16.4.2009

Hćgt ađ flytja vel launuđ störf til landsins

Össur og Marel munu fjárfesta fyrir um 6 milljarða króna í rannsóknar- og þróunarstarfi á árinu. Að stórum hluta fer það fram erlendis en með tiltölulega einföldum aðgerðum má flytja stærra hlutfall þessarar starfsemi til Íslands og skapa vel launuð störf. Þetta kemur fram í viðtali SA við Þórð Magnússon, stjórnarformann Eyris Invest, en þar fjallar Þórður um hugmyndir sem hann hefur sett fram til að liðka fyrir sköpun starfa á Íslandi.

16.4.2009

Ný störf verđa ekki til án stöđugleika

Til að hægt sé að skapa störf á Íslandi á næstu árum er algjör grundvallarforsenda að hér ríki stöðugleiki. Þetta er mat Hilmars Sigurðssonar, framkvæmdastjóra CAOZ. Vegna umróts í efnahagslífinu eru starfsmenn CAOZ aðeins 8 en ekki 30 eins og til stóð. Þrátt fyrir það er þó er mikill kraftur í fyrirtækinu sem er með teiknimynd um þrumugoðið Þór í framleiðslu, tölvuleik og mynd um Egilssögu. Fyrirtækið hefur jafnframt átt í viðræðum við erlenda dreifingaraðila um mögulega framleiðslu á Þór 2.

16.4.2009

Margeir Pétursson í Rödd atvinnulífsins í dag

Þriðji umræðuþáttur SA um íslenskt atvinnulíf verður sendur út á vef SA í dag kl. 17-18. Endurreisn og uppbygging verður þar í forgrunni. Rætt verður við Margeir Pétursson, stjórnarformann MP Banka,  um endurreisn íslenska bankakerfisins, MP banka og SPRON. Guðjón Már Guðjónsson segir frá  uppbyggingu Hugmyndaráðuneytisins og þeim hugmyndum sem þar hafa fæðst um hvernig hægt sé að byggja upp öflugt íslenskt þjóðfélag. Þá mun Hilmar Sigurðsson, framkvæmdastjóri CAOZ, ræða um atvinnusköpun og nauðsynlegan stuðning við lengra komnin sprotafyrirtæki auk þess að segja frá vinnslu teiknimyndar um þrumugoðið Þór.

16.4.2009

Umhverfishópur SA fundar 29. apríl

Umhverfishópur SA efnir til fundar miðvikudaginn 29. apríl nk. kl.13 í Húsi atvinnulífsins. Umræðuefni fundarins er staðan í loftslagsmálunum og alþjóðlegum samningaviðræðum. Á fundinn kemur Þórir Ibsen, sendiherra og formaður íslensku samninganefndarinnar gagnvart loftslagssamningi SÞ, og gerir grein fyrir stöðu mál og horfunum framundan.

16.4.2009

Nýtt gjald til sjúkrasjóđs háskólamanna

Samkvæmt kjarasamningi SA við fjórtán aðildarfélög BHM frá 19. ágúst 2008 skal frá 1. mars 2009 greiða 1% iðgjald af heildarlaunum til sjúkrasjóðs BHM. Greitt er af þeim háskólamenntuðu starfsmönnum sem aðild eiga að stéttarfélögunum.

15.4.2009

Forstjóri HB Granda í Rödd atvinnulífsins

Annar umræðuþáttur  SA um íslenskt atvinnulíf verður sendur út á vef SA kl. 17-18 í dag. Framleiðsla, verðmætasköpun og sköpun nýrra starfa verður í brennidepli. Meðal gesta í Rödd atvinnulífsins verður Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda, sem ræðir um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og rekstrarumhverfi íslensks atvinnulífs um þessar mundir.

14.4.2009

Rödd atvinnulífsins í dag kl. 17-18

Atvinnulífið hefur upp raust sína í dag á vef SA og á Útvarpi Sögu FM 99,4. Samtök atvinnulífsins munu senda út sex klukkustundarlanga umræðuþætti um íslenskt atvinnulíf fram að aðalfundi SA sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica, á síðasta degi vetrar, miðvikudaginn 22. apríl. Þættirnir verða sendir út milli kl. 17 og 18 en upptökur af þáttunum verða aðgengilegar á vef SA að aflokinni útsendingu.

13.4.2009

Vaxtastig Seđlabankans út í bláinn

Lækkun stýrivaxta í 15,5% er of lítil og engar forsendur eru í efnahagslífinu fyrir svo háum stýrivöxtum. Aðstoðarframkvæmdastjóri SA, Hannes G. Sigurðsson, segir í samtali við fréttastofu RÚV vaxtastastig Seðlabankans vera út í bláinn. Að mati SA þurfi vextir að lækka mjög hratt niður í eins stafs tölu. Með þessu áframhaldi gerist það hins vegar ekki fyrr en seint á árinu.

7.4.2009

Fjöldagjaldţrot verđi stýrivextir ekki lćkkađir

Lækka verður stýrivexti hratt til að forðast fjöldagjaldþrot íslenskra fyrirtækja. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtalið við Fréttablaðið. Vextirnir þurfi helst að fara niður fyrir tíu prósent mjög fljótlega. Hannes segir að stjórnvöld virðist ekki nægilega meðvituð um umfang vanda íslenskra fyrirtækja. Hundruð fyrirtækja rói nú lífróður og gjaldþrotum fjölgi mánuð eftir mánuð.

6.4.2009

Tímabundin niđurfelling álags vegna skila á VSK

Vegna áframhaldandi truflana á bankastarfsemi hér á landi og áhrifa þess á atvinnulífið beindi fjármálaráðuneytið þeim tilmælum til skattstjóra í dag að fella niður tímabundið álag vegna skila á virðisaukaskatti sem er á gjalddaga 6. apríl 2009. Gildir niðurfellingin í átta daga eða til 14. apríl 2009.

6.4.2009

Ađalfundur SA 22. apríl - skráning stendur yfir

Atvinnulífið skapar störfin er yfirskrift aðalfundar SA 2009 sem verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og hefst opin dagskrá kl. 15:00. Formaður SA, Þór Sigfússon, og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytja erindi. Þá munu Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa og Steinunn Sigurðardóttir, fatahönnuður leggja á ráðin um hvernig hægt sé að skapa 20.000 störf.

3.4.2009

Vel heppnađ stefnumót

Yfir 2500 þátttakendur mættu á Stefnumót atvinnulífsins í Evrópu (European Business Summit) sem fram fór í liðinni viku í Brussel. Þeirra á meðal voru 13 af 27 fulltrúum í framkvæmdastjórn ESB, José Manuel Barroso forseti framkvæmdastjórnar ESB og Abbdullah Gul forseti Tyrklands. Stefnumótið hefur fest sig í sessi en árlega koma þar saman þátttakendur úr öllum mögulegum áttum - stjórnendur stórra sem smárra fyrirtækja, forstöðumenn alþjóðastofnana, háskólafólk, stjórnmálamenn, álitsgjafar og fulltrúar margs konar samtaka og þrýstihópa. Efnahagsmál, mannauðsmál og umhverfismál voru í forgrunni þetta árið.

1.4.2009

Gjaldeyrishöft hert af Alţingi

Alþingi  hefur samþykkt breytingar á lögum til að herða gjaldeyrishöft og hafa breytingarnar þegar tekið gildi. Samkvæmt þeim skulu útflutningsviðskipti vöru og þjónustu fara fram í erlendum gjaldmiðli en ekki íslenskri krónu. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 þetta fullkomna afneitun þjóðar á eigin gjaldmiðli.

1.4.2009

Rödd atvinnulífsins 14.-21. apríl

Í aðdraganda aðalfundar SA 22. apríl munu SA senda út sex útvarpsþætti undir heitinu Rödd atvinnulífsins. Þættirnir verða sendir út í gegnum vef SA en einnig verður hægt að hlusta á þá í venjulegum viðtækjum á tíðni Útvarps Sögu FM 99,4 milli kl. 17 og 18. Upptökur af þáttunum verða aðgengilegar á vef SA að aflokinni útsendingu.

31.3.2009

Jafnréttisráđ gagnrýnir stjórnir Seđlabanka og Kaupţings

Í nýlegri ályktun Jafnréttisráðs brýnir ráðið stjórnvöld til að halda vöku sinni.  „Það er algjörlega á skjön við anda jafnréttislaga að í nýskipaðri stjórn Seðlabanka Íslands eru 5 karlar og 2 konur og í  sérnefnd um endurskoðun stjórnarskrár eiga sæti 8 karlar og 1 kona," segir Jafnréttisráð.  Í ályktuninni segir ennfremur: „ Á sama hátt og með sömu rökum er gagnrýnisvert að ný stjórn Kaupþings skuli einungis vera skipuð konum."

30.3.2009

Ályktun ađalfundar SAF 2009

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar fór fram 27. mars. Í ályktun stjórnar samtakanna segir m.a.: „Umgjörðin sem ferðaþjónustunni er sköpuð, líkt og öðru atvinnulífi í landinu, er ekki ásættanleg. Breytingar sem gerðar voru á yfirstjórn Seðlabanka Íslands í síðastliðnum mánuði hafa ekki haft áhrif á peningastefnu bankans eða aðgerðir. Stýrivextir í landinu eru alltof háir og þýðir ekki endalaust að horfa í baksýnisspegilinn við ákvörðun þeirra, hér verða menn að hafa kjark til að líta fram á veginn og lækka stýrivexti verulega."

27.3.2009

Evrópskt atvinnulíf kallar eftir fjármagni

Vegna þess ástands sem nú ríkir á fjármálamörkuðum eiga fyrirtæki í Evrópu æ erfiðara með að fjármagna rekstur sinn. Evrópusamtök atvinnulífsins, BUSINESSEUROPE, kynntu fyrir stundu tillögur að aðgerðum sem er ætlað að bregðast við þessum vanda. Tillögurnar eru settar saman af fjölbreyttum hópi sérfræðinga en vinnu hópsins stýrði Jean-Paul Betbèze, yfirhagfræðingur Crédit Agricole. Hann segir að grípa þurfi til óhefðbundinna meðala við óhefðbundnar aðstæður.

25.3.2009

SA hvetja fyrirtćki til samstöđu

Samtök  atvinnulífsins hvöttu í gær aðildarfyrirtæki SA til að láta ekki undan þrýstingi og taka skyndiákvarðanir um að hækka laun í þessum mánuði þrátt fyrir samkomulag við ASÍ um frestun launahækkana fram á sumar. Nokkur fyrirtæki hafa fylgt í kjölfar HB Granda og boðað að hækkun launa taki strax gildi. Framkvæmdastjóri SA segir í samtali við Morgunblaðið í dag að samtökin geti hrakist til að endurnýja ekki kjarasamninga í júní.

24.3.2009

Peningastefnunefnd ákveđi frekari vaxtalćkkun

Nýjasta verðbólgumæling Hagstofunnar hlýtur að koma Seðlabankanum verulega á óvart. Hjöðnun verðbólgu er mun hraðari en hann virðist hafa  gert ráð fyrir og það hlýtur að leiða til þess að stýrivextir verði endurskoðaðir fyrr en áformað var.

23.3.2009

Kosning formanns SA er hafin

Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins er hafin meðal aðildarfyrirtækja samtakanna. Kosningin hófst í morgun en Þór Sigfússon, formaður SA, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður. Þór er að ljúka sínu fyrsta starfsári sem formaður Samtaka atvinnulífsins en hann tók við formennsku á aðalfundi  SA þann 18. apríl 2008.

23.3.2009

Margrét Kristmannsdóttir nýr formađur SVŢ

Á aðalfundi SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu, sem haldinn var 20. mars á Grand Hótel Reykjavík, var Margrét Kristmannsdóttir framkvæmdastjóri Pfaff hf. kjörin formaður samtakanna. Hún tekur við af Hrund Rudolfsdóttur sem hefur verið formaður SVÞ síðastliðin fjögur ár.

20.3.2009

Greiđsluađlögun vegna virđisaukaskatts og vörugjalda

Alþingi hefur samþykkt mikilvæga greiðsluaðlögun vegna greiðslu vörugjalda og aðflutningsgjalda í tolli. Samkvæmt lögunum er greiðslum ýmist skipt í tvennt eða þrennt. Breytingin  gildir út árið 2009 en greiðsluaðlögunin nær einnig til gjalddagans 15. mars sl. Þau fyrirtæki sem greiddu sín gjöld að fullu 15. mars eiga rétt á að fá 2/3 endurgreidda. Tollstjóri sér um endurgreiðslur  og má senda endurgreiðslubeiðni á fyrirspurn@tollstjori.is

19.3.2009

Fé betur geymt á ríkistryggđum reikningum en í atvinnulífinu?

Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, verður að svara því hvað hún telji siðlega ávöxtun í íslensku atvinnulífi samanborið við þá vexti sem fyrirtækjum er gert að greiða af lánsfé. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við mbl - Sjónvarp. Hann er ósáttur við orð Jóhönnu sem sagði argreiðslur HB Granda siðlausar á meðan umsömdum launahækkunum starfsfólks væri frestað. Fjárfestar geti valið að leggja peninga frekar á ríkistryggða reikninga með mikilli ávöxtun í stað þess að standa í ótryggum atvinnurekstri.

19.3.2009

Atvinnuleysi eykst međ 17% stýrivöxtum

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir stýrivaxtalækkun Seðlabanka Íslands um 1 prósentustig vera ótrúlega litla lækkun. „Þetta er miklu minni lækkun heldur en eðlilegt var að reikna með" segir Vilhjálmur í samtali við mbl.is. Í ljósi þeirra forsendna sem fyrir liggja þá komi svo lítil lækkun verulega á óvart. „Það er engin verðbólga í gangi í hagkerfinu. Það er engin eftirspurnarþrýstingur. Það er mikið atvinnuleysi og fer vaxandi. Staða fyrirtækja og atvinnulífsins er ekki með þeim hætti að einhver rekstur standi undir þessu vaxtastigi."

19.3.2009

Af gjaldeyrisviđskiptum Jóns og séra Jóns

Seðlabanki Íslands mismunar einstaklingum og fyrirtækjum við afgreiðslu á gjaldeyri fullyrðir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem segir að menn virðist geta fengið undanþágur ef þeir eiga góða vini á réttum stöðum. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.

18.3.2009

Viđskiptalíf G20: Fyrirtćkin ţurfa ađgang ađ fjármagni

Fulltrúar atvinnulífsins í 20 helstu ríkjum heims (G20) hittust í dag í Downingstræti 10 í London til að ræða viðbrögð við alþjóðlegu fjármálakrísunni. Öll fyrirtæki verða nú fyrir barðinu á afleiðingum krísunnar, jafnvel vel rekin fyrirtæki sem tengjast fjármálastarfsemi ekki á nokkurn hátt. Forseti BUSINESSEUROPE (Evrópusamtaka atvinnulífsins), Ernest-Antoine Seillière, ræddi m.a. við Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og Peter Mandelson, viðskiptaráðherra. Seillière lagði áherslu á að fyrirtækjum verði tryggður eðlilegur aðgangur að fjármagni og varaði sterklega við verndarstefnu og einangrunarhyggju.

18.3.2009

Hagsmunir Íslands í loftslagsmálum verđi tryggđir

Samtök atvinnulífsins styðja eindregið að þingsályktunartillaga um hagsmuni Íslands í loftslagsmálum sem nú liggur fyrir Alþingi verði samþykkt. SA telja tillöguna bæði tímabæra og mikilvæga. Stefnt er að því að ljúka gerð nýs alþjóðlegs samkomulags um loftslagsmál á þessu ári, sem taka á við þegar tímabili Kyoto-bókunarinnar lýkur árið 2012. Alger nauðsyn er að útstreymisheimildir Íslands samkvæmt nýju samkomulagi endurspegli raunverulegt útstreymi að meðtöldum heimildum íslenska ákvæðisins svokallaða. Náist það ekki er vandséð hvernig Ísland geti átt aðild að nýju loftslagssamkomulagi.

16.3.2009

Fallist á undanţágu Íslands frá hvíldartíma ökumanna

Fastanefnd EFTA ríkjanna hefur samþykkt undanþágubeiðni Íslands frá reglum Evrópusambandsins um akstur og hvíld atvinnubílstjóra. Þar með er fallist á sérstöðu Íslands í samgöngumálum en vegakerfi landsins og aðstæður atvinnubílstjóra til hvíldar hér á landi eru mjög frábrugðnar því sem gerist á meginlandi Evrópu auk þess sem íslenskt veðurfar getur sett strik í reikninginn. Reglugerð Evrópusambandsins mun því verða innleidd hér á landi með meiri sveigjanleika en í öðrum ríkjum á hinu Evrópska efnahagssvæði.

13.3.2009

Áratugur hinna glötuđu tćkifćra framundan?

Miklu máli skiptir að taka réttar ákvarðanir um skipan mála í íslensku atvinnulífi því að þær ráða hvort kreppan og erfiðleikarnir í atvinnulífinu verða tiltölulega skammvinnir eða fylgja okkur næsta áratuginn. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs samtakanna. Hann segir raunverulega hættu á því að við eigum eftir að upplifa nýjan „áratug hinna glötuðu tækifæra" vegna rangra ákvarðana stjórnvalda.

13.3.2009

Matvćlalöggjöf ESB verđi innleidd á Íslandi

Mikilvægt er að Alþingi samþykki að innleiða matvælalöggjöf Evrópusambandsins áður en það lýkur störfum á næstu vikum þar sem miklir viðskiptahagsmunir þjóðarinnar eru í húfi. Matvælalöggjöfin felur í sér að sömu reglur gilda um sjávarafurðir, búfjárafurðir og önnur matvæli. Þetta tryggir jafna samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu gagnvart framleiðslu á EES svæðinu. Sérstaklega er þetta mikilvægt fyrir sjávarafurðir en afleiðingar þess að taka ekki upp löggjöfina geta leitt til þess að aðgangur íslenskra sjávarafurða að mörkuðum innan ESB verði takmarkaður.

13.3.2009

Bréf til formanna stjórnmálaflokkanna

Samtök atvinnulífsins lýsa þungum áhyggjum af stöðu atvinnu- og efnahagsmála í bréfi til formanna stjórnmálaflokkanna. Þar segir að allt of hægt hafi gengið að taka lykilákvarðanir um endurreisn atvinnulífsins og seinagangurinn valdi íslenskum fyrirtækjum enn meiri erfiðleikum en fyrirsjáanlegt var. Rúmir fimm mánuðir séu liðnir frá hruni bankanna og tímabært að ráðast í brýnar aðgerðir, t.d. lækkun stýrivaxta í a.m.k. 10%. Samtök atvinnulífsins hafa óskað eftir viðræðum við forystumenn flokkanna um þá alvarlegu stöðu sem ríkir í atvinnulífinu þegar kosningar eru framundan og stjórnmálaleg óvissa bætist við aðra erfiðleika sem við er að etja.

13.3.2009

Kynbundinn launamunur á undanhaldi

Í viðamikilli rannsókn á launum fólks sem gerð var á vegum Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og ParX, mældist enginn launamunur milli kynja meðal fólks á þrítugsaldri. Í sambærilegri könnun árið 2007 mældist munurinn 10%. Athygli vekur að launamunur kynja minnkar samkvæmt könnuninni í öllum aldurshópum. Niðurstöðurnar byggja á gögnum úr launabókhaldi fyrirtækja sem kjósa að taka þátt í árlegri greiningu á launagreiðslum.

12.3.2009

Atvinnulífiđ skapar störfin

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2009 verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl nk. á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og hefst opin dagskrá kl. 15:00. Formaður SA, Þór Sigfússon, og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytja erindi auk þess sem þrír stjórnendur úr atvinnulífinu munu ræða hvernig hægt sé að skapa 20.000 ný störf. Dagskrá lýkur kl. 16:30 þegar atvinnulífið kveður vetur með formlegum hætti og fagnar sumri. Yfirskrift fundarins er Atvinnulífið skapar störfin.

12.3.2009

Vanda ţarf breytingar á tekjuskatti og stađgreiđslu opinberra gjalda

Fyrir Alþingi liggur frumvarp til laga um breytingar á lögum um tekjuskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda (þingmál 366). Samtök atvinnulífsins telja ýmis atriði frumvarpsins vera til bóta og geta stuðlað að bættri skattframkvæmd og betra samræmi við það sem gerist í nálægum ríkjum. Tillögurnar eru hins vegar umfangsmiklar og flóknar og geta í mörgum tilvikum haft afgerandi áhrif á samkeppnishæfni fjármálafyrirtækja og hvernig tekst til við endurreisn fjármálamarkaðarins. Á þá hlið málsins er ekki varpað ljósi í greinargerð frumvarpsins.

12.3.2009

Óvönduđ vinnubrögđ viđ gerđ stjórnarfrumvarpa

Mikill fjöldi stjórnarfrumvarpa sem varða atvinnulífið liggur fyrir þinginu til hraðrar afgreiðslu. Í flestum tilvikum hefur ekki verið nægilega vel vandað við undirbúning þeirra og samráð við atvinnulífið verið lítið. Þetta gengur þvert á opinbera stefnu stjórnvalda um vandaðan undirbúning og samráð við gerð stjórnarfrumvarpa. Ónóg umræða um áhrif þeirra breytinga sem í frumvörpunum felast, kosti þeirra og galla, valda hættu á því að löggjöfin verði óvönduð og hafi ýmsar ófyrirsjáanlegar afleiðingar.

11.3.2009

Viltu fá lánađan frćđslustjóra?

Fræðslusjóðirnir Starfsafl og Landsmennt bjóða nú fyrirtækjum fræðslustjóra að láni án nokkurs kostnaðar í tiltekinn tíma. Mannauðsráðgjafi fer yfir fræðslu- og þjálfunarmál fyrirtækisins, dregur fram það sem vel er gert og greinir þarfir fyrirtækisins. Það er mikið til af góðum náms‐ og þjálfunarúrræðum á vinnumarkaðnum en mörg þeirra eru lítið notuð meðal smærri fyrirtækja. Mörg fyrirtæki, einkum þau stærri, eru með fjölbreyttar þjálfunaráætlanir fyrir sitt starfsfólk en skortir oft yfirsýn yfir fræðslumálin svo þau gagnist sem best bæði fyrirtækinu og starfsmönnum.

8.3.2009

Jákvćtt skref en lćkka verđur vexti

Mikilvægasta aðgerðin í atvinnumálum um þessar mundir er lækkun vaxta. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttastofu RÚV. Hann segir áform ríkisstjórnarinnar um sköpun allt að fjögur þúsund ársverka vera jákvætt skref en vaxtalækkun verði að fylgja fljótt í kjölfarið - vextirnir séu að sliga fyrirtækin.

6.3.2009

Ályktun Iđnţings 2009

Iðnþing Samtaka iðnaðarins fór fram á Grand Hótel Reykjavík 5. mars. Í ályktun þingsins er lögð áhersla á að lækka þurfi vexti, endurreisa bankakerfið, afnema gjaldeyrishöft, semja við erlenda kröfuhafa, auka útflutningstekjur, blása lífi í fasteignamarkaðinn og sækja um aðild að ESB og taka upp evru.

5.3.2009

Menntatorg opnađ föstudaginn 6. mars

Nám utan formlega skólakerfisins og ýmis úrræði fyrir atvinnulausa verða kynnt á Menntatorginu síðdegis föstudaginn 6. mars í Skeifunni 8, Reykjavík. Menntatorg er nú opnað í fyrsta skipti.

5.3.2009

Laun lćkkuđ í sćnskum iđnađi

Eftirspurn eftir sænskum iðnaðarvörum hefur dregist verulega saman. Til að koma í veg fyrir uppsagnir fólks hafa því samtök atvinnurekenda í Svíþjóð og verkalýðsfélög samið um allt að 20% tímabundna lækkun launa. Markmiðið er að standa vörð um störfin og gefa fyrirtækjunum sóknarfæri þegar ástandið batnar.

5.3.2009

Efnahagsmálin og framtíđin til umrćđu á Iđnţingi í dag

Iðnþing Samtaka iðnaðarins fer fram á Grand Hótel Reykjavík í dag. Yfirskrift þess er Vöxtur og verðmæti - Mótum eigin framtíð. Dagskráin hefst klukkan 13.00 og stendur til klukkan 16.00. Þeir sem ekki komast á þingið geta fylgst með því í beinni útsendingu á vef SI.

4.3.2009

Bankar hafi samkeppnismál til hliđsjónar viđ sölu fyrirtćkja

Sala Íslandsbanka á Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, gæti verið fordæmi fyrir sölu ríkisbankanna á öðrum fyrirtækjum, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við Fréttablaðið í dag. Fleiri fyrirtæki geti lent í sambærilegri stöðu og jafnvel geti komið upp sú staða að engir kaupendur fáist að félögunum. Þá geti bankarnir þurft að afskrifa skuldir og fá í staðinn hlutafé.

3.3.2009

Stefnumót atvinnulífsins í Evrópu 26.-27. mars

Stefnumót atvinnulífsins í Evrópu, European Business Summit, fer fram dagana 26.-27. mars næstkomandi  í Brussel. Þetta verður í sjöunda skiptið sem stefnumótið fer fram en búist er við um 2.500 þátttakendum. Evrópusamtök atvinnulífsins (BUSINESSEUROPE) og framkvæmdastjórn ESB eru meðal þeirra sem standa að viðburðinum en þar koma saman ráðamenn þjóða, stjórnmálamenn, stjórnendur fyrirtækja, leiðtogar ESB, fulltrúar félagasamtaka og fjölmiðla til að ræða framtíðina. Alls munu 113 frummælendur stíga á stokk, þeirra á meðal José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, Mirek Topolánek, forsætisráðherra Tékklands og Abdullah Gül forseti Tyrklands.

2.3.2009

Ákvörđun Seđlabankans órökstudd og skađleg

Gjaldeyrishöft verða ekki afnumin næsta hálfa árið samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Íslands. Samtök atvinnulífsins segja ákvörðunina skaðlega og brýnt að losað verði um höftin hið fyrsta. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Vísi að ákvörðunin sé á engan hátt rökstudd. Gjaldeyrishöftin séu ekki til neins gagns.

2.3.2009

Óskađ eftir tilnefningum vegna Kuđungsins 2008

Kuðungurinn - umhverfisviðurkenning umhverfisráðuneytisins - verður afhentur á degi umhverfisins 25. apríl næstkomandi. Úthlutunarnefnd á vegum ráðuneytisins óskar nú eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir sem hafa skarað fram úr í umhverfismálum á árinu 2008 en frestur til að skila inn tilnefningum rennur út 25. mars.

25.2.2009

Samiđ um frestun launahćkkana

Samkomulag náðist síðdegis milli SA og ASÍ um frestun fyrirhugaðra launahækkana 1. mars en ákveðið var að fresta ákvörðun um endurskoðun kjarasamninga um allt að fjóra mánuði. Samningsaðilar telja að þessi frestun sé mikilvægt framlag til stöðugleika í efnahagslífinu. Þannig geti skapast aðstæður til þess að hratt dragi úr verðbólgu og vextir geti lækkað. Í sameiginlegum áherslum SA og ASÍ segir að á næstu dögum og vikum þurfi að grípa til margvíslegra aðgerða til þess að verja hag heimilanna og fjölga störfum.

24.2.2009

Hvernig tölum viđ efnahagslífiđ niđur?

Frá upphafi kreppunnar hefur borið á stórum yfirlýsingum um hörmulegt ástand þjóðarbúsins sem skapað hefur ótta og dregið kjark úr fólki en það er mikilvægt að fólk fái eins raunsanna mynd af ástandi efnahags- og ríkisfjármála og frekast er kostur. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður SA. „Vandræðin eru alveg næg þó svo við séum ekki að ýkja umfang þeirra," segir Þór og bendir m.a. á að nettó ríkisskuldir eru áætlaðar um 5-600 milljarðar í árslok 2009 eða 33-40% af áætlaðri landsframleiðslu. Slíkt hlutfall er alls ekki fjarri því sem þekkist í mörgum samkeppnislöndum okkar. Þór segir ýmsar ákvarðanir og aðgerðir stjórnvalda ráða miklu um hvernig til takist á næstu mánuðum en ein alvarlegasta hættan fyrir íslenskt efnahags- og atvinnulíf nú um stundir sé sú að það sé talað niður svo ástandið verði enn verra.

23.2.2009

Gríđarlegt átak nauđsynlegt í orkumálum heimsins

Á vettvangi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna er stefnt að því að ná samkomulagi um framhald svokallaðrar Kyoto-bókunar í lok þessa árs. Miðað við forsendur ESB má ætla að Ísland geti þurft að takast á hendur skuldbindingar um 15-20% samdrátt í almennri losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2020 frá árinu 2005. Útstreymi vegna stóriðju er þar ekki talið með. Þetta kom fram í erindi Péturs Reimarssonar, forstöðumanns hjá SA, á aðalfundi Samorku. Gríðarlegt átak þarf í orkumálum heimsins til að ná niður útstreymi gróðurhúsalofttegunda.

22.2.2009

Erlendir ađilar komi ađ rekstri íslenskra banka

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við fréttastofu RÚV nauðsynlegt að erlendir aðilar komi að rekstri íslensku bankanna svo hægt verði að tryggja aðgang að erlendu lánsfé. Íslenska ríkið muni hafa mjög takmarkaðan eða jafnvel engan aðgang að lánsfé á almennum mörkuðum næstu árin og því mikilvægt að bankarnir komist í eigu erlendra kröfuhafa.

20.2.2009

Óskýrđur launamunur kynja mćlist 7%

Ný viðamikil rannsókn sem byggir á upplýsingum úr launabókhaldi 37 fyrirtækja og nær til rúmlega sex þúsund starfsmanna sýnir að konur sem könnunin náði til voru með rúmlega 7% lægri laun en karlar þegar tillit hafði verið tekið til ýmissa þátta sem eru mismunandi eftir kynjum. Í sambærilegri könnun árið 2007 reyndist óskýrður launamunur kynja 12% en rannsakað var hvaða áhrif kyn, starfsheiti, aldur, starfsaldur í fyrirtæki, menntun, vinnutími og fyrirtæki höfðu á föst laun án óreglulegra yfirvinnugreiðslna.

20.2.2009

Raunlćkkun orkuverđs til fjölda ára

Árum saman hefur verð á bæði heitu vatni og raforku farið lækkandi um land allt, að teknu tilliti til verðlagsþróunar almennt, ef frá eru skilin áhrif kerfisbreytinga sem raforkulög frá árinu 2003 höfðu í för með sér. Verð á raforku til almennra notenda er lægra hérlendis en í helstu samanburðarlöndum og hefur lengi verið. Sömu sögu má segja um verðlagningu á heitu vatni." Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun aðalfundar Samorku þar sem m.a. er fjallað um endurskoðun raforkulaga, mikilvægi öflugrar grunnþjónustu, loftslagsmál, mikilvægi erlendrar fjárfestingar og vatnsvernd.

19.2.2009

Rýrnun reynist versluninni dýrkeypt

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu efna til morgunverðarfundar um rýrnun í verslun föstudaginn 20. febrúar á Grand Hótel Reykjavík. Framsögumenn á fundinum verða Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Eyþór Víðisson, öryggisfræðingur hjá VSI - öryggishönnun & ráðgjöf, Guðrún Björk Bjarnadóttir, lögmaður hjá SA og Jackie Lambert, framkvæmdastjóri RLP (Retail Loss Prevention) í Bretlandi.

17.2.2009

Viđrćđur um framhald kjarasamninga halda áfram

Á fundi forystu SA og ASÍ sem fram fór hjá Ríkissáttasemjara síðdegis í dag var ákveðið að hittast aftur næstkomandi mánudag til þess að fjalla um áframhald kjarasamninga og frestun fyrirhugaðra launahækkana 1. mars næstkomandi. Fulltrúar samningsaðila hjá hinu opinbera sátu einnig fundinn en ríkur vilji kom fram um víðtækt samstarf á vinnumarkaði á næstunni.

17.2.2009

Aukin fjölbreytni nauđsynleg í íslensku atvinnulífi

Auka má fjölbreytni verulega í íslensku atvinnulífi. Þegar blæs á móti í rekstrinum líkt og nú þarf að taka til og leita nýrra leiða til aukinnar hagsældar. Það er því klókt að auka fjölbreytni í stjórnum fyrirtækja og í stjórnunarstöðum. Það getur verið ein þeirra leiða sem koma íslensku atvinnulífi fyrr af stað í sókn til bættra lífskjara.

16.2.2009

Launahćkkunum og endurskođun kjarasamninga verđi frestađ

Mörg fyrirtæki geta ekki staðið undir launahækkunum um næstu mánaðamót. Samtök atvinnulífsins hafa því tekið jákvætt í hugmyndir forystu ASÍ um að fresta launahækkunum 1. mars næstkomandi. Taka þurfi upp þráðinn í júní vegna breytinga sem annars myndu koma til framkvæmda 1. júlí. Áður höfðu SA sett fram hugmyndir um frestun allra launahækkana til hausts eða jafnvel fram í byrjun næsta árs þegar staða efnahagsmála væri orðin skýrari. Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag.

15.2.2009

Ítarleg úttekt á stefnu og skipulagi Seđlabankans nauđsynleg

Í ljósi þess að peningamálastefna Seðlabankans hefur beðið skipbrot og Seðlabankinn er rúinn trausti og varð gjaldþrota er mikilvægt að allar breytingar á skipulagi hans stuðli að endurvakningu trausts á Seðlabankanum og efnahagsstefnu stjórnvalda. Samtök atvinnulífsins leggja því til að fram fari ítarleg úttekt á stefnu og skipulagi Seðlabankans og í þeirri endurskoðun verði þær breytingar sem felast í frumvarpi um Seðlabankann sem Alþingi hefur til meðferðar einnig teknar til umfjöllunar. Þetta kemur fram í umsögn SA um frumvarpið.

13.2.2009

Stóra U-beygjan

Stór U-beygja gagnvart atvinnulífinu er tekin í fyrstu skýrslu nefndar um endurreisn fjármálakerfisins sem kynnt var á blaðamannafundi 11. febrúar. Meginatriðin í tillögugerð nefndarinnar ganga í veigamiklum atriðum gegn stefnumörkun þáverandi ríkisstjórnar frá 2. desember 2008 um aðgerðir í þágu fyrirtækja sem unnin var í samráði við Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og fleiri hagsmunaaðila. Því verður ekki trúað að það sé ætlan ríkisstjórnarinnar að taka svona tillögugerð alvarlega eins og gefið hefur verið í skyn. Þessi tillögugerð er algjörlega unnin án samráðs við Samtök atvinnulífsins og fær aldrei stuðning þeirra. Framkvæmd þessara tillagna leiðir til mikils ófarnaðar og framlengir erfiðleikana í atvinnulífinu um mörg ár ef ekki áratugi. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA.

12.2.2009

Atvinnulífiđ vill berjast

Ný könnun SA meðal aðildarfyrirtækja sinna leiðir í ljós að íslensk fyrirtæki vilja berjast áfram og ekki gefast upp þrátt fyrir erfið starfsskilyrði. Því skiptir höfuðmáli að stjórnvöld hlusti á atvinnulífið og skapi því starfsskilyrði sem efla baráttuvilja og þor til þess að takast á við erfiðleikana. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfs SA. Hann ítrekar það sjónarmið SA að æskilegt sé að bankarnir hafi sérstök opin umsýslu- eða eignarhaldsfélög á sínum vegum til þess að fara með eignarhluti í fyrirtækjum sem lenda í þeirra höndum. Mikil hætta sé á spillingu, gerræðislegum ákvörðunum og tortryggni og vandamálum vegna heilbrigðrar samkeppni ef stofna eigi eitt eignarhaldsfélag á vegum ríkisins til þess að eiga og reka mörg af helstu fyrirtækjum landsins.

12.2.2009

Fyrirtćkin ţrjóskast viđ en tími ađgerđa er runninn upp

Tæplega sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum SA fækkuðu ekki starfsmönnum á síðasta ári þrátt fyrir versnandi rekstrarhorfur. Tæp 18% fyrirtækjanna brugðu á það ráð að breyta fullum störfum í hlutastörf til þess að forðast uppsagnir og um 18% gripu til launalækkana til að tryggja áframhaldandi rekstur. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á atvinnuhorfum meðal fyrirtækjanna. Ríflega helmingur aðildarfyrirtækja hyggst halda óbreyttum starfsmannafjölda á næstu mánuðum en fram kemur í athugasemdum svarenda að þrek margra fyrirtækja dvínar ört. Í könnuninni kemur skýrt fram að stjórnendur fyrirtækja telja að lækka verði vexti fljótt  svo fyrirtækin í landinu geti starfað áfram og koma verði bankaþjónustu í eðlilegt horf á nýjan leik ásamt því að gjaldeyrishöft verði afnumin.

12.2.2009

Ćtlum ađ koma standandi út úr kreppunni

„Við fórum standandi inn í þessa kreppu og ætlum helst að koma standandi út úr henni," segir Andrés Sigurðsson rekstrarstjóri Loftorku í Reykjavík, en fyrirtækið hefur vakið athygli fyrir ákveðin viðbrögð við efnahagsþrengingunum sem nú ríða yfir íslenskt samfélag.

12.2.2009

Ráđningar fólks samkvćmt reglum um vinnumarkađsúrrćđi

Ráðning vegna frumkvöðlastarfs í fyrirtækjum og þróun eigin viðskiptahugmyndar eru meðal þeirra úrræða sem Vinnumálastofnun getur boðið en nýjar reglugerðir voru settar um vinnumarkaðsaðgerðir í  byrjun janúar. Ennfremur er þar kveðið á um reynsluráðningar og starfsþjálfunarsamninga. Í lögum um vinnumarkaðsaðgerðir  eru tiltekin helstu vinnumarkaðsúrræði sem Vinnumálastofnun skal annast, en þar er um að ræða styttri námskeið, starfstengd úrræði, námsúrræði, atvinnutengda endurhæfingu og ráðgjöf.

12.2.2009

Ţegar áfalliđ dynur yfir skipta rétt viđbrögđ öllu máli

Um 200 hundruð manns sóttu ráðstefnu um áfallastjórnun sem haldin var á vegum KOM almannatengsla, Vinnuverndar ehf, Humus og Samtaka atvinnulífsins miðvikudaginn 11. febrúar. Fjallað var um málefnið út frá ýmsum sjónarhornum en fram kom í máli framsögumanna að mikilvægt væri að standa faglega að málum þegar „hið óhugsanlega gerist". Ekki væri leyst úr áföllum á einni nóttu og mikilvægt væri fyrir stjórnendur að gera sér grein fyrir langtímaáhrifum áfalla á rekstur og ímynd fyrirtækja, líðan starfsmanna, samskipti við nærsamfélagið og ýmsa aðra þætti ásamt því að leita utanaðkomandi stuðnings þegar þess væri þörf.

10.2.2009

Víđtćk sátt um niđurskurđ í ríkisrekstri nauđsynleg

Í aðdraganda kosninga til Alþingis og hugsanlegra stjórnarmyndunarviðræðna í kjölfarið þarf Alþingi Íslendinga að taka af skarið og hefja þverpólitíska vinnu við að leita leiða til að spara í ríkisrekstri og ná um það víðtækri sátt. Alþingi á að setja á laggirnar sparnaðarnefnd sem hefur að markmiði að undirbúa sparnað í ríkisrekstrinum á fjárlögum 2010 og leggja línur um sparnað til næstu þriggja ára. Nefndin gæti kallað til sín fulltrúa ráðuneyta og unnið náið með fjárlaganefnd þingsins. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður SA.

9.2.2009

Hreinar skuldir ríkissjóđs 27% af landsframleiđslu í lok ársins

Í upphafi árs 2008 var ríkissjóður skuldlaus að teknu tilliti til peningalegra eigna og útistandandi krafna. Námu eignir ríkissjóðs umfram skuldir (svonefnd hrein staða) þá 47 milljörðum kr. eða 3,4% af landsframleiðslu. Eru þá ekki meðtalin fyrirtæki í eigu ríkissjóðs en bókfært virði þeirra er nú um 200 milljarðar. Þessi sterka staða ríkissjóðs sem byggð var upp á umliðnum árum með niðurgreiðslu skulda og aukningu peningalegra eigna auðveldar þjóðinni að takast á við áfall vegna hruns gömlu viðskiptabankanna.

9.2.2009

Fáum málin á hreint

Frá upphafi kreppunnar hefur borið á stórum yfirlýsingum um hörmulegt ástand þjóðarbúsins sem skapað hefur ótta og dregið kjark úr fólki. Skemmst er að minnast yfirlýsinga strax í kjölfar bankahrunsins um að hér yrði matar- og olíuskortur, nokkrir hagfræðingar spáðu fyrir áramót að 40 þúsund manns yrðu atvinnulausir í mars 2009, aðrir spáðu hér þriggja stafa óðaverðbólgu og birtar voru tölur sem sýndu að ríkissjóður skuldaði um þrjú þúsund milljarða króna eða sem nemur um 40 milljónum á fjögurra manna fjölskyldu.  „Reynum að vanda okkur í yfirlýsingum," segir Þór Sigfússon, formaður SA. „Vandræðin eru alveg nóg til þess að við séum ekki að ýkja þau þannig að fólk óttist gjaldþrot íslenska ríkisins og almennan matarskort."

8.2.2009

Ráđstefna um áfallastjórnun 11. febrúar

Miðvikudaginn 11. febrúar fer fram morgunverðarráðstefna um áfallastjórnun á Grand Hótel Reykjavík. Yfirskrift ráðstefnunnar er Þegar áfallið dynur yfir en þar verður fjallað um fyrstu viðbrögð við óvæntum atburðum og möguleg áhrif þeirra. Ráðstefnan er á vegum KOM almannatengsla, Humus, Vinnuverndar og Samtaka atvinnulífsins.

6.2.2009

Lćkkun vaxta mikilvćgasta ađgerđin í atvinnumálum

Hröð lækkun vaxta er lang mikilvægasta aðgerðin í atvinnumálum sem hægt er að grípa til á Íslandi. Ljóst er að við núverandi vaxtastig verður engin atvinnusköpun þar sem vart finnst sú fjárfesting sem stendur undir því. Það er óeðlilegt ástand að búa við 18% stýrivexti en vegna hins háa vaxtastigs verða engin ný störf til og störfum fækkar jafnframt óðfluga. Lækkun stýrivaxta í 8% gæti hugsanlega tryggt 7.000 fleiri störf á Íslandi á næsta ári en ella. Í dag eru 13.688 manns atvinnulausir á Íslandi.

3.2.2009

Vaxtalćkkun verđi byggđ á framsýni

Háir vextir eiga alls ekki við í efnahagskreppu eins og þeirri sem Íslendingar ganga í gegnum um þessar mundir. Þeir auka enn á rekstrarvanda fyrirtækja og stuðla að auknu atvinnuleysi. Veruleg vaxtalækkun nú myndi ekki valda því að raunvextir yrðu neikvæðir á næstu mánuðum og því er ekki eftir neinu að bíða. Verðbólgan síðustu 12 mánuði var 18,6% og allt bendir til þess að hún hafi náð hámarki og fari lækkandi á næstu mánuðum. Verðbólgan fær hvorki fóður í formi launahækkana né mikillar eftirspurnar.

3.2.2009

Vel heppnađur fundur međ starfsmönnum Straums

Samtök atvinnulífsins kynntu í hádeginu starfsmönnum Straums fjárfestingabanka atvinnustefnu samtakanna sem kom nýverið út. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, fór yfir helstu þætti hennar og undirstrikaði m.a. mikilvægi þess að dugur og þor yrði ekki barinn úr íslensku þjóðinni - framundan væri tímabil endurreisnar atvinnulífsins þar sem þurfi að hefja framtak og áræðni til vegs og virðingar á ný. Fulltrúar SA kynna þessa dagana atvinnustefnuna fyrir starfsmönnum aðildarfyrirtækja SA og geta áhugasamir haft samband við skrifstofu SA hafi þeir áhuga á slíkri kynningu.

2.2.2009

Hćgt ađ lćkka vexti strax

Í verkefnaskrá nýrrar ríkisstjórnar segir meðal annars að leitað verði markvissra leiða til að lækka vexti eins fljótt og kostur er. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Vilhjálmur Egilsson, telur að ekkert geti komið í veg fyrir að hægt sé að lækka vexti strax þar sem búið er að mynda nýja ríkisstjórn. Hann segir í samtali við fréttastofu RÚV að Seðlabankinn hafi gefið út að vextir hafi ekki verið lækkaðir vegna óvissu í stjórnmálaástandinu. Þeirri óvissu hafi verið eytt fram að kosningum og því hægt að lækka vexti.

2.2.2009

Ađgerđir gegn atvinnuleysi

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur ýtt úr vör vinnu við fjölbreyttar aðgerðir gegn atvinnuleysi í samræmi við fyrstu tillögur starfshóps þar um. Í tillögum starfshópsins kom fram að grípa þyrfti til margvíslegra úrræða til að bregðast við gríðarlegum samdrætti í byggingariðnaði. Nauðsynlegt væri að beina sjónum fyrst og fremst að viðhaldsverkefnum í ljósi offramboðs á fasteignum og lækkandi fasteignaverðs.

2.2.2009

Áform um lćkkun vaxta til bóta - ríkisbankaleiđ ófćr

Morgunblaðið og Fréttablaðið leituðu viðbragða Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra SA, við myndun nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. „Ég hef verið að skoða verkefnaáætlunina og mér sýnist sem að það sé ýmislegt, eins og lækkun vaxta og eitthvert undanhald í gjaldeyrishöftum, sem sé til bóta," segir Vilhjálmur um nýju stjórnina. Hann telur þó að kveða hefði mátt skýrar að orði um afnám gjaldeyrishaftanna að fullu. „Síðan er það algjörlega nauðsynlegt að það verði ábyrg ríkisfjármálastefna og að framkvæmd verði þau fjárlög sem við búum við," segir Vilhjálmur í Morgunblaðinu í dag.

30.1.2009

Nýsköpun Íslendinga í 14. sćti í Evrópu

Ef lagt er mat á nýsköpun í hagkerfinu eru Íslendingar í 14. sæti ríkja í Evrópu og er það svipuð frammistaða og síðastliðin fimm ár þar sem Ísland hefur verið í 13.-15. sæti. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu European Innovation Scoreboard 2008 þar sem borin er saman nýsköpun í ríkjum Evrópu. Í mörg ár hafa Finnar verið í einu af efstu sætunum en á fundi SA í síðustu viku var því lýst hvernig Finnar sköpuðu með markvissum hætti nýsköpunarsamfélag að lokinni efnahagskreppunni sem yfir þá gekk á árunum 1991 - 1994.

30.1.2009

Samtök atvinnulífsins heimsćkja vinnustađi - bókiđ núna

Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins heimsækja aðildarfyrirtæki SA þessa dagana og kynna nýja atvinnustefnu samtakanna sem nýverið kom út. Stjórnendur sem vilja fá Samtök atvinnulífsins í heimsókn til að kynna starfsmönnum sýn SA á hvernig snúa skuli vörn í sókn er velkomið að hafa samband til að finna hentugan tíma.

30.1.2009

Mikil fjölgun örorkulífeyrisţega heldur áfram

Mikil fjölgun örorkulífeyrisþega á Íslandi hélt áfram á síðasta ári. Í árslok 2008 voru þeir sem fengið höfðu úrskurð um 75% örorku rúmlega 15.000 sem er rúmlega 8% af vinnafli í landinu. Í hópnum fjölgaði um 550 frá árinu áður. Skiptingin milli kynja er þannig að karlar eru 6.000 og konur 9.000 þannig að karlar eru 40% og konur 60%.

29.1.2009

Tímabundin niđurfelling álags vegna skila á virđisaukaskatti

Vegna áframhaldandi truflana sem orðið hafa á bankastarfsemi hér á landi og áhrifa þess á atvinnulífið telur fjármálaráðuneytið að gildar ástæður séu til að fella tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti fyrir uppgjörstímabilið nóvember og desember 2008. Hefur ráðuneytið í dag því beint þeim tilmælum til skattstjóra að fellt verði tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti sem á gjalddaga er 5. febrúar 2009 og gildi sú niðurfelling í átta daga eða til 13. febrúar 2009.

29.1.2009

Óskiljanleg ákvörđun ađ halda stýrivöxtum í 18%

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við mbl.is það óskiljanlega ákvörðun að halda stýrivöxtum Seðlabankans óbreyttum í 18%. Hann segir það aum rök að lækka þá ekki og greinilegt að það vanti eitthvað upp á að menn tali saman. Eins veki það athygli að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn, sem segist ekki hafa afskipti af stjórnmálum, vilji ekki lækka stýrivexti vegna ótryggs stjórnmálaástands á Íslandi.

28.1.2009

Góđ starfsskilyrđi atvinnulífs verđi tryggđ

Góð starfsskilyrði skipta atvinnulífið mestu máli óháð því hverjir eða hvaða stjórnmálaflokkar sitja í ríkisstjórn. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, sem segir miklu máli skipta að koma hér á varanlegum stöðugleika fyrir rekstur fyrirtækja og heimila. Rætt var við Vilhjálm á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun ásamt Ingibjörgu R. Guðmundsdóttur, varaforseta ASÍ, um aðgerðir til að bjarga hag heimila og fyrirtækja. Aðspurður sagði Vilhjálmur hækkandi matvælaverð eina birtingarmynd af því hvernig lækkun á gengi krónunnar hafi reytt af okkur lífskjörin.

27.1.2009

Skilabođ frá Finnlandi: Verndiđ fólkiđ og fyrirtćkin

Það er algjört forgangsmál í þeirri kreppu sem Íslendingar glíma við að slá skjaldborg um fólkið í landinu og arðvænleg fyrirtæki. Ríkið verður af miklum skatttekjum við gjaldþrot fyrirtækja sem eru í rekstri og það kostar blóð svita og tár að stofna ný fyrirtæki - sem ekki komast öll á legg. Við þrot fyrirtækja tapast einnig dýrmæt störf og afkoma fjölskyldna versnar. Fulltrúar atvinnulífsins í Finnlandi ráðleggja íslenskum stjórnvöldum að bregðast markvissar við en gert var í Finnlandi á árunum 1991-1994 þegar efnahagskreppa reið yfir landið. Fálmkennd viðbrögð hafi reynst dýrkeypt. Þetta kom fram á fundi SA, FKA og Finnsk-íslenska viðskiptaráðsins sem fram fór í liðinni viku. Fjallað er um fundinn á vef Helsingin Sanomat í dag - stærsta dagblaðs Finnlands.

27.1.2009

Heimilin ţola ekki skattahćkkanir

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, kallar eftir stefnu þeirra sem hyggjast mynda nýja ríkisstjórn og varar eindregið við því að hækka tekjuskatt einstaklinga meira en orðið er. „Þá er verið að veita fjölmörgum fjölskyldum náðarhöggið sem eru að berjast við það að standa í skilum."

27.1.2009

Opnir fundir SA um stöđu atvinnulífsins í kvöld

Samtök atvinnulífsins efna til opinna funda í kvöld á Selfossi og í Reykjanesbæ um stöðu atvinnulífsins og hvert stefnir. Fundirnir fara fram á Hótel Selfossi og Hótel Keflavík og hefjast kl. 20:00. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA.

26.1.2009

Atvinnulífiđ kallar eftir sterkri ríkisstjórn

 „Það er verulegt áhyggjuefni að landið skuli vera ríkisstjórnarlaust," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við mbl.is. Atvinnulífið kalli eftir sterkri ríkisstjórn sem geti búið því starfsskilyrði sem hægt sé að vinna við. Brýnt sé að greiða úr þeim bráðavanda sem við sé að glíma og síðan að byggja upp til lengri tíma. Vilhjálmur segir að brýnustu viðfangsefnin felist í lækkun vaxta, afnámi gjaldeyrishafta, nauðsyn á starfhæfum bönkum og ýmsum aðgerðum til að draga úr atvinnuleysi.

25.1.2009

Opnir fundir SA um atvinnustefnu til framtíđar

Samtök atvinnulífsins efna til opinna funda á mánudag og þriðjudag á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og Reykjanesbæ. Þar verður ný atvinnustefna samtakanna kynnt ásamt tillögum sem SA hafa sett fram í aðdraganda viðræðna vegna framlengingar kjarasamninga fyrir 15. febrúar næstkomandi. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA.

23.1.2009

Hendur atvinnulífsins eru bundnar

Ekkert fyrirtæki getur þrifist í starfsumhverfi þar sem stýrivextir eru 18% og útlánsvextir banka á bilinu 20-30%. Þetta kom fram á fjölmennum fundi stjórnenda í atvinnulífinu á Grand Hótel Reykjavík í morgun. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að lækka verði stýrivexti strax í 12% og síðan mjög hratt í kjölfarið. Æskilegt sé að þeir stýrivextir verði ekki nema 2-3% yfir því sem gerist á evrusvæðinu innan 12 mánaða. Með 18% stýrivexti sé viðbúið að fjöldi fólks og fyrirtækja lendi í þroti og ekki síður hinir nýju ríkisbankar. Rekstrarform þeirra gangi ekki upp og hið háa vaxtastig geti á endanum leitt til falls þeirra.

22.1.2009

Tuttugu ţúsund störf

Sá efnahagsskellur sem Íslendingar hafa orðið fyrir er af nánast áður óþekktri stærðargráðu í nútímasögunni. Bankakerfið hrundi nánast eins og það lagði sig á einni viku og gengi íslensku krónunnar lækkaði meira en nokkurn gat órað fyrir. Afleiðingarnar eru rekstrarerfiðleikar fyrirtækja og vaxandi atvinnuleysi. Það er í senn megin áhyggjuefnið og viðfangsefnið á næstunni. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður SA. Skapa verði tuttugu þúsund ný störf til ársins 2015 og vinna til baka þau störf sem hafi tapast. Nauðsynlegt sé að marka leið út úr þeim ógöngum sem íslenska þjóðarbúið hafi ratað í.

22.1.2009

Hagsýn, framsýn og árćđin atvinnustefna SA

Samtök atvinnulífsins hafa markað hagsýna, framsýna og áræðna atvinnustefnu sem innlegg í umræðu um hvernig hægt er að snúa vörn í sókn. Í núverandi ástandi verður að bregðast rétt við þegar í stað, lágmarka skaðann og auðvelda nýja uppbyggingu. Nauðsynlegt er að grípa til ráðstafana og taka ákvarðanir sem skapa grunn að nýrri framfarasókn.

21.1.2009

Vottun jafnra launa mikilvćg

Samtök atvinnulífsins vænta mikils af samstarfsverkefni SA, ASÍ og félags- og tryggingamálaráðuneytis um að fyrirtækjum og stofnunum verði gert kleift að fá vottun þess að jafnlaunastefna sé virk og í heiðri höfð á viðkomandi vinnustöðum. Þetta kom fram hjá Hrafnhildi Stefánsdóttur, yfirlögfræðingi SA, í umræðum á Jafnréttisþingi sem fór nýverið fram. Hrafnhildur lagði áherslu á að árangursríkar og hagkvæmar leiðir verði farnar á vinnumarkaði til að efla jafnrétti í stað þess að auka skrifræði og kostnað atvinnulífsins.

19.1.2009

Úr vörn í sókn: Fundur fćrđur í Súlnasal vegna mikillar ađsóknar

Mikill áhugi er á morgunverðarfundi SA, FKA og Finnsk-íslenska viðskiptaráðsins í fyrramálið um hvernig finnskt atvinnulíf snéri vörn í sókn í efnahagsþrengingunum í Finnlandi á árunum 1991-1994. Fundurinn fer fram á Hótel Sögu og hefur verið færður í Súlnasal vegna mikillar aðsóknar. Hægt er að skrá þátttöku til kl. 18 í dag en fundargjald er kr. 2.500 með morgunverði.

15.1.2009

Háir vextir uppskrift ađ nýju hruni

Enginn eðlilegur rekstur stendur undir 25% vöxtum eða þaðan af hærri né heldur tveggja stafa vaxtatölum á verðtryggðum lánum. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA. Lækka verði vextina ef ekki eigi illa að fara. Vandamál hrannist nú upp í bönkunum í stóran afskriftahaug sem einhvern tímann þurfi að moka burt. „Fyrirsjáanleg útlánatöp með þessum háu vöxtum er ekkert annað en uppskrift að hruni nýju bankanna þá loksins þegar og ef þeir komast af stað," segir Vilhjálmur.

15.1.2009

Fjárfestingasjóđur Íslands - 75 milljarđa fjárfestingargeta

Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa beitt sér fyrir því á vettvangi lífeyrissjóðanna að stofnaður verði á þeirra vegum Fjárfestingasjóður Íslands í því skyni að taka þátt í endurreisn atvinnulífsins. Þessi sjóður verður öflugur með 75 milljarða króna fjárfestingagetu á þremur árum. Frumvarp um breytingu á lögum um lífeyrissjóði var samþykkt á Alþingi í árslok 2008 í því skyni að auðvelda stofnun hans. Á vettvangi lífeyrissjóðanna er nú verið að fjalla um stofnun sjóðsins og þátttöku þeirra í uppbyggingu hans.

15.1.2009

Endurreisn hlutabréfamarkađar í Kauphöllinni mikilvćg

Endurreisn hlutabréfamarkaðar á Íslandi er lykilþáttur í uppbyggingarstarfi í íslenskum þjóðarbúskap á næstu misserum. Íslenskur hlutabréfamarkaður varð fyrir miklu áfalli við hrun viðskiptabankanna þriggja, enda nam markaðsverðmæti fjármálafyrirtækja fyrir þann tíma yfir 80% af samanlögðu markaðsverðmæti skráðra félaga í kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi. Fyrir hrunið var meðalvelta með hlutabréf félaga í úrvalsvísitölunni um 9,8 milljarðar króna á dag, en eftir hrun var meðalveltan einungis um 81 milljónir króna, sem þýðir hvorki meira né minna en liðlega 99% lækkun. Endurvinna þarf traust og tryggja að smærri fyrirtæki eigi greiðan aðgang að hlutabréfamarkaði án yfirþyrmandi regluverks.

13.1.2009

Samgönguhópur SA tekur til starfa

Samtök atvinnulífsins hafa ákveðið að setja á laggirnar starfshóp um samgöngumál. Tilgangurinn er tvíþættur, annars vegar að móta almenna stefnu samtakanna um samgöngumál og hins vegar að annast samráð af hálfu atvinnulífsins við samgönguráð vegna mótunar samgönguáætlunar 2011 - 2022. Hópurinn mun því fjalla um vegasamgöngur, flug og flugvelli, siglingar og hafnir.

12.1.2009

Takmarkađir möguleikar til ađ auka útstreymi eftir 2012

Ísland er í þröngri stöðu gagnvart Loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna og erfitt verður að sækja frekari heimildir vegna endurnýjanlegrar orku, sérstaklega í ljósi þess að iðnríkin beita nú miklum þrýstingi á þróunarríkin um að þau taki einnig á sig byrðar til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda. Þetta segir Pétur Reimarsson, forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs hjá Samtökum atvinnulífsins, í samtali við Morgunblaðið og vísar til fyrirhugaðar verslunar með útstreymisheimildir á opnum markaði.

8.1.2009

Jafnréttisţing haldiđ á Hilton Nordica

Í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla boða félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð til jafnréttisþings föstudaginn 16. janúar næstkomandi að Hilton Reykjavík Nordica frá klukkan 9 til 17. Á jafnréttisþinginu verður fjallað um fjölmargar hliðar jafnréttisbaráttunnar, svo sem launajafnrétti kynjanna, kynbundið ofbeldi, jafnrétti í atvinnulífi, karla og jafnrétti og jafnréttisstarf í skólum.

5.1.2009

Ísland áfram í efstu deild ţjóđa

Hagstofa Evrópusambandsins hefur birt yfirlit yfir landsframleiðslu aðildarríkja ESB og EFTA-ríkjanna undanfarin ár og spá fyrir það ár sem nú er hafið. Hagstofa ESB birtir jafnframt yfirlit yfir meðalmannfjölda ríkjanna og mannfjöldaspár. Á þessum grundvelli hefur hagdeild SA reiknað út landsframleiðslu á hvern íbúa í þessum ríkjum og borið þau saman. Samkvæmt Hagstofu ESB verður verg landsframleiðsla á Íslandi tæplega 10 milljarðar evra á á árinu 2009 eða sem nemur 31 þúsund evrum á hvern íbúa. Í samanburði við umrædd 30 ríki verður Ísland í 13 sæti, á svipuðum slóðum og Frakkland og Þýskaland, og allnokkuð hærra en meðaltöl fyrir evru-svæðið eða ESB í heild.

5.1.2009

Upplýsingavefur á ensku um efnahagsástandiđ á Íslandi

Stjórnvöld hafa sett á fót upplýsingavef á ensku vegna efnahagsástandsins á Íslandi. Þar verða aðgengilegar upplýsingar um viðbrögð við því ástandi sem skapast hefur og aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til. Markmiðið er að á vefnum geti fólk fengið heildstæðar upplýsingar á ensku um efnahagsvandann og úrræði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

5.1.2009

Framlag íslenskra stjórnvalda til loftslagsviđrćđna

Á fundi aðildarríkja loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, sem nýverið fór fram í Póllandi, var fjallað um fyrirhugað alþjóðlegt samkomulag um loftslagsmál sem ætlunin er að ljúka á þessu ári. Aðildarríkin hafa að undanförnu sent inn tillögur sínar um það sem þau telja mikilvægt að felist í nýjum samningi. Íslensk stjórnvöld sendu inn sínar tillögur þann 5. desember síðastliðinn en þær eru í fimm hlutum og tengjast nokkurn veginn þeirri efnisskipan sem búast má við að nýr samningur byggi á. Á vef SA er þessum tillögum lýst í stuttu máli en þeir hlutar sem helst tengjast aðgerðum hér á landi er útstreymi gróðurhúsalofttegunda, yfirfærsla tækniþekkingar og endurheimt votlendis.

2.1.2009

Úr vörn í sókn: Hvađ gerđu finnsku fyrirtćkin?

Þriðjudaginn 20. janúar næstkomandi efna Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri og Finnsk-íslenska viðskiptaráðið til morgunverðarfundar um hvernig finnskt atvinnulíf snéri vörn í sókn í efnahagsþrengingunum í Finnlandi á árunum 1991-1994. Fulltrúar finnskra atvinnulífssamtaka munu lýsa því hvernig finnsk fyrirtæki brugðust við efnahagsþrengingunum og hvað megi af því læra. Fundurinn fer fram á Hótel Sögu í Súlnasal kl. 8:30-10:00. Skráning og morgunverður frá kl. 8:00. Þátttökugjald kr. 2.500.
RSS-efnisveita SA

Atvinna fyrir alla - smelltu til ađ sćkja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english